Þjóðviljinn - 09.12.1984, Qupperneq 18
__________BRIDGE___________
íslandsmótið í einmenning hafið
Fargjaldastyrkur
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar tekur þátt í fargjalda-
kostnaðinemendaúr Hafnarfirði sem sækja skóla til
nágrannabyggðarlaganna.
Rétt á fargjaldastyrk eiga þeir sem stunda nám í
framhalds- og sérskólum. Námið standi yfir í a.m.k.
eina önn (3-4 mán.) og Ijúki með prófi eða veiti starfs-
réttindi. Miðað er við að um fullt nám sé að ræða.
Nemendum er bent á að snúasértilbæjarsKrifstof-
unnar, Strandgötu 6, og fá þar eyðublöð, sem fylla
þari út og fá staðfest hjá viðkomandi skóla.
Útborgun fargjaldastyrkja fer fram í des. - jan. fyrir
fyrri hluta skólaársins, en í apríl - maí fyrir síðari hluta
skólaársins.
Sérstök athygli er vakin á því að vitja þarf styrkja
fyrir liðið skólaár fyrir 1. ágúst ár hvert, ella fellur réttur
til þeirra niður.
Bæjarritarinn í Hafnarfirði.
TILKYNNING
Frá Fiskveiðasjóði íslands
Umsoknir um lán á árinu 1985
og endurnýjun eldri umsókna
Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði íslands á árinu
1985 hefur eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði
Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda
nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga,
sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé
að ræðasérstakaraðstæðurað mati sjóðsstjórnar.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið hag-
ræðingarfé hrekkur til, verður lánað til véla, tækja
og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og
aukna framleiðni.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
2. Vegna fiskiskipa
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður
lánað til skipa á aflvél og til tækjakaupa og endur-
bóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
3. Endurnýjun umsókna
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að
endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig
þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur
verið veitt til.
4. Umsóknarfrestur
Umsókharfrestur er til 15. desember 1984.
5. Almennt
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum,
sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn
ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu
Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykja-
vík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan
Reykjavíkur).
Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest
verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu
1985, nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík 6. desember 1984
Fiskveiðasjóður íslands
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar
starf skrifstofumanns (1/2 daginn).
Reynsia í skráningu á diskettuvél nauðsynleg.
Umsóknum með upplýsingum um menntun, aldur og
fyrri störf sendist deildarstjóra starfsmannahaids.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
Reykjavík
ÞAKKLÆTISVOTTUR ,
Velunnarar, vinir og ættingjar.
Ég þakka ykkur alla sæmd og viðhöfn á sjötugsafmæli
mínu 6. nóv. sl.
Gjafirnar og heillaóskaskeytin,
heimsóknirnar og símtölin,
hugskeytin öll og kortin,
hvað þetta allt vermdi sálartetrið.
Lifið öll heil!
Játvarður Jökull Júlíusson
Miðjanesi.
Sláturfélagið
Firmameistari 1984
Sláturfélag Suöurlands varð
efst í Firmakeppni Bridgesam-
bands fslands, sem spiluð var sl.
mánudag, með 113 stig. Spilari
fyrir þá var Bernharður Guð-
mundsson.
Úrslit í Firmakeppninni urðu
sem hér segir:
stig
1. SiáturfélagSuðurl. 113
2. -3. ísfugl 112
2.-3. Aðalbraut h/f. 112
4.-5. S.Ármannsson & co. 111
4.-5. ÍSAL 111
6.-7. Búnaðarbankinn 110
6.-7. H.ÓIafsson & Bernh. 110
8. Heildv. Jóns Jóhanness. 107
9. Heildversl. Sund h/f 104
10. Óðal 103
11. -12. Húsasmiðjan 101
11.-12. Versl. Ásgeir 101
13.-16. Byggingariðjan h/f 100
13.-16. Hagkauph/f 100
13.-16. O. Johnson & Kaaber 100
13.-16. Versl. Liverpool 100
Alls tóku 62 firmu/fyrirtæki
þátt í þessari Firmakeppni í veg-
um Bridgesambands íslands.
Bridgesambandið þakkar þeim
öllum veittan stuðning, svo og
þeim spilurum sem tóku þátt í
Firmakeppni 1. kvöldið.
Þessi Firmakeppni er jafn-
framt íslandsmót í einmennings-
keppni 1984. Fyrsta kvöldið
mættu 64 spilarar til leiks og var
spilað í 4 riðlum. Eftir 1. kvöldið í
þeirri keppni er röð efstu spilara
Bernharður Guðmundsson 113
Ólafur Lárusson 112
Helgi Ingvarsson 112
HannesR. Jónsson 111
Sverrir Kristjánsson 111
Eggert Benónýsson 110
Sveinn Jónsson 110
Júlíana Isebarn 107
Lárus Hermannsson 104
ÓskarFriðþjófsson 103
Óli Valdimarsson 101
Þorsteinn Kristjánsson 101
Ingunn Hoffmann 100
Jóhann Guðlaugsson 100
Björn Guðmundsson 100
Jón Viðar Jónmundsson 100
Sigríður Pálsdóttir 99
Sigrún Pétursdóttir 98
Erla Ellertsdóttir 98
Arnar Ingólfsson 97
Bjarni Jónsson 96
Gunnar Þorkelsson 95
Kristján Jónsson 95
Alda Hansen 95
Jón Baldursson 94
Sveinn Sigurgeirsson 94
íslandsmótinu í einmenning
verður framhaldið á mánudaginn
kemur í Domus Medica og hefst
spilamennska kl. 19.30. Allt
spilaáhugafólk er velkomið til
spilamennsku án endurgjalds. í
einmenning spila allir sama kerf-
ið og margt ansi spaugilegt hendir
ýmsa spilara, sem ekki eru vanir
því breytta ástandi sem ríkir í ein-
menningskeppnum almennt.
Reykjavíkurmótið
í tvímenning
f dag kl. 13 hefst spilamennska
í Reykjavíkurmótinu í tvímenn-
ing, úrslitum. 42 pör spila í úr-
slitum, barometer með 2 spilum
milli para, allir v/alla. Spilað
verður til ca. kl. 18 í dag og síðan
hefst spilamennska á ný á morg-
un kl. 13 og verður spilað fram á
kvöld.
Spilað er í Hreyfli v/
Grensásveg. Keppnisstjóri er
Agnar Jörgensson. Nv. Reykja-
víkurmeistarar í tvímenning eru
Þórarinn Sigþórsson og Guð-
mundur Páll Arnarson.
Hannes og Póll
sigruðu
Hótel Akranes mótið
Hannes R. Jónsson og Páll
Valdimarsson urðu sigurvegarar í
Opna Hótel Akranesmótinu,
sem spilað var um síðustu helgi
(laugardag og sunnudag).
28 pör tóku þátt í mótinu og
voru spiluð 3 spil milli para, alls
81 spil. Tvenn pör skiptust á for-
ystunni allt mótið þartil undir
íokin, þau Hermann Lárusson og
Hrólfur Hjaltason og Stefán Páls-
son og Rúnar Magnússon. En
sunnudagar eru sumum pörum
þyngri í skauti en öðrum, óska-
dagur hjá Páli og Hannesi, því
ekkert gat stöðvað þá síðari dag-
inn og undir lokin var sigri þeirra
lítt ógnað (þó naumt yrði þegar
staðið var upp). Úrslit urðu þessi:
1. Hannes R. Jónsson - stig
Páll Valdimarsson 162
2. Rúnar Magnússon -
Stefán Pálsson 159
3. Alfreð Viktorsson -
Karl Alfreðsson 154
4. Jón Páll Sigurjónss,-
Sigfús Ö. Árnason 131
5. Hermann Lárusson -
Hrólfur Hjaltason 129
6. Guðmundur Bjarnason -
Hörður Pálsson 100
7. Aðalsteinn Jörgensen -
ValurSigurðsson 78
-9. Einar Guðmundsson -
Karl O. Alfreðsson 60
.-9. Baldur Ólafsson -
Gísli Hafliðason 60
Þrenn efstu pörin unnu sér til
peningaverðlauna fyrir árangur-
inn. Mótið fór mjög vel fram í alla
staði (ekki spillti að Hallbjörn
skemmti um laugardagskvöldið).
Keppnisstjóri var Ólafur Lárus-
son.
Fró Bridgedeild
Sjólfsbjargar
Starfsemi bridgedeildarinnar
hófst 8. október í haust, með 4
kvölda tvímenningskeppni sem
14 pör tóku þátt í. Úrslit urðu
þessi: stig
1. Páll Sigurjónsson -
Sigurður Sigurjónsson 716
2. Gísli Guðmundsson -
Ragnar Þorvaldsson 648
3. Rut Pálsdóttir -
HlaðgerðurSnæbjörnsdóttir 645
4. Gunnar Guðmundsson -
Sigurrós Sigurjónsdóttir 630
Þá tók við hraðsveitakeppni,
þarsem 8 sveitir tóku þátt. Henni
Íauk 26/11 sl., og urðu úrslit
þessi: stig
1. sv. Rutar Pálsdóttur 1883
(Með henni voru: Hlaðgerður
Snæbjörnsd., Þorbjörn Magnús-
son og Guðmundur Þorbjörns-
son).
2. sv. Sigurrósar Sigurjónsd. 1878
3. sv. Páls Sigurjónssonar 1773
Ekki verður spilað meira fyrir
jól, en mánudaginn 14. janúar
hefst aðalsveitakeppni deildar-
innar. Spilað er að Hátúni 12,
Reykjavík.
Fró Bridgedeild
Skagfirðinga
14 sveitir mættu til leiks í jóla-
sveinakeppni félagsins, sem er 3
kvölda hraðsveitakeppni. Eftir 1.
kvöldið eru þessar sveitir efstar:
stig
1. sv. Arna Más Björnss. 596
2. sv. Leós Jóhannessonar 560
3. sv. Leifs Jóhannssonar 544
4. sv. Hildar Helgadóttur 539
5. sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 533
6. sv. Björns Hermannssonar 519
Meðalskor er 504 stig.
Keppni verður framhaldið
næsta þriðjudag.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Eftir 9 umferðir í aðlasveita-
keppni félagsins er staða efstu
sveita orðin þessi:
stig
1. sv. Úrvals 192
2. sv. Þórarins Sigþórss. 187
3. sv. Jóns Baldurssonar 153
4. sv. Júlíusar Snorrasonar 153
5. sv. Sturlu Geirssonar 142
6. sv. Eiríks Bjarnasonar 140
7. sv. Sigurðar B. Þorsteinss. 140
Frá Hjónaklúbbnum
Nú er 3 umferðum lokið af 4 í
hraðsveitakeppni félagsins og
spila eftirtaldar sveitir í A-riðli
síðasta kvöldið:
stig
1. sv. Ólafar Jónsdóttur 1481
2. sv. Dóru Friðlcifsdóttur 1459
3. sv. Drafnar Guðmundsd. 1409
4. sv. Kolbrúnar Indriðadóttur 1378
5. sv. Gróu Eiðsdóttur 1358
6. sv. Margrétar Guðmundsd. 1355
7. sv. HelguKjaran 1335
Meðalskor er 1296 stig.
Frá Bridgefélagi
Suðurnesja
Sigurvegarar í hraðsveita-
keppni félagsins varð sveit Stef-
áns Jónssonar með 181 stig. Með
Stefáni voru: Einar Jónsson,
Rósmundur Guðmundsson,
Hjálmtýr Baldursson, Alfreð G.
Alfreðsson og Kjartan Ólafsson.
Röð efstu sveita varð þessi:
stig
1. sv. Stefáns Jónssonar 181
2. sv. Nesgarðs 178
3. sv. Marons Björnssonar 151
4. sv. SigurðarSteindórss. 150
5. sv. Þorgeirs Halldórss. 140
Næstu tvo mánudaga verður á
dagskrá einmenningur. Spilað er
í samkomuhúsinu í Sandgerði og
hefst spilamennska kl. 20.
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
Starf í fjármáladeild
Óskum eftir að ráða starfsmann í fjármáladeild nú þegar.
Starfið felst í almennri afgreiðslu og aðstoð við gjaldkera.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Starfsmannahaldi,
Ármúla 3, sími 81411.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMULA3 SIMI 81411
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN