Þjóðviljinn - 09.12.1984, Síða 19
£\MGAPOf)£
REKKJAN
I FJORUM LITUM
Opið í öllum deildum: mánud.-miðvikud. 9—18,
fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild
^ Sími 28601
Sænsk
gæðavara
Sænsk
gæðavara
Opið
til
kl. 10
í kvöld
Opið
til
kl. 10
í kvöld
í miðri þingviku ASÍ greindi
Þjóðviljinn frá því að kratar
væru að íhuga að bjóða sig
fram í embætti varaforseta
gegn Birni Þórhallssyni, mið-
stjórnarmanni í Sjálfstæðis-
flokknum, yrði varaforsetum
ekki fjölgað í tvo, Bak við þetta
stóð Jón Baldvin Hannibals-
son og þóttist ekki geta nema
komið vel út úr slíkum vef: ef
kratinn færi fram og Alþýðu-
bandalagsmenn á þinginu
styddu hann ekki heldur
íhaldsmanninn, þá væri Jóni í
lófa lagið að segja á fundum
sínum útum land að Alþýðu-
bandalagið væri kerfisflokkur
og partur af hinu pólitíska
samtryggingarkerfi. Máli sínu
til stuðnings gæti hann þá
bent á að Allaballar hefðu
stutt íhaldsmenn gegn vinstri
manni. Hefðu Allaballar hins
vegar stutt kratann hefði hann
að öllum líkindum verið kos-
VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 30. REYKJAVÍK. SÍMI: 81240.
Umsóknir um íbúðakaup
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir um-
sóknum um 63 nýjar íbúðir í Ártúnsholti.
íbúðir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og
verða væntanlega afhentar síðla árs 1985 og fyrri
hluta árs 1986. Ennfremur er óskað eftir umsóknum
um eldri íbúðir, sem koma til endursölu síðari hluta árs
1985 og fyrri hluta árs 1986.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara
íbúða gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B.
Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar
almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga- föstudaga kl. 9 -12 og
13 - 16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 4. janúar 1985.
Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi.
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík.
Bogga
◦ Hjalla
Barnabók eftir
Vilborgu
Dagbjartsdóttur
Barnabókin Bogga á Hjalla
cftir Vilborgu Dagbjartsdóttur er
komin út hjá Máli og menningu,
myndskreytt af Önnu Cynthiu
Leplar.
Söguhetjan, Bogga, er
skemmtileg stelpa sem býr í litlu
þorpi, hjá mömmu, pabba,
ömmu og öllum systkinunum,
kisu, hananum og hænsnunum.
Það er glatt á hjalla þar sem
svona margir búa - enda heitir
húsið þeirra Hjalli. í sögunni
segir frá daglegum störfum, han-
anum sem lenti í tjörunni, húsinu
sem fauk út í sjó, huldufólkinu
sem Bogga sá þegar hún var að
reka kýrnar og mörgu fleira. Allt
þetta gæti sem best gerst á okkar
dögum, en raunar er Bogga Vil-
borg Dagbjartsdóttir sjálf og
þorpið hennar Vestdalseyri við
Seyðisfjörð sem nú hefur verið
jafnað við jörðu. Það er veröld
sem var sem lesendur kynnast í
bók Vilborgar en þó lifandi og
nálæg veröld.
Komið
af fjöllum
Ljóðabók eftir
Sigríði Beinteinsdóttur
Ut cr komin hjá Hörpuútgá-
funni á Akranesi ljóðabókin Kom-
ið af fjöUum eftir Sigríði
Beinteinsdóttur frá Hávarsstöð-
um í Leirársveit.
I í bókarkynningu segir:
Ljóðagerð og kveðskapur hef-
ur verið eftirlætisiðja á íslandi
fyrr og síðar. Sumar sveitir hafa
orðið þekktari en aðrar á því
sviði. Sömuleiðis einstök heimili
og ættir. í Grafardal, sem liggur í
austur af Svínadal í Borgarfirði,
stóð samnefndur bær, sem nú er í
eyði. Þar bjuggu hjónin Helga
Pétursdóttir og Beinteinn Einars-
son. Börn þeirra urðu átta. Það
vakti snemma athygli að þau
hneigðust öll að ljóðagerð. Ljóð-
list var í hávegum höfð á heimil-
inu. Fjögur þessara systkina, Pét-
ur, Halldóra, Einar og
Sveinbjörn hafa látið frá sér fara
ljóðabækur og önnur ritverk.
Nú bætist í hópinn Sigríður,
húsfreyja á Hávarsstöðum í
Leirársveit. Hún er kunn fyrir
fleygar stökur í vinahópi og ljóð
eftir hana hafa birst í blöðum og
tímaritum.
Klækjaspil
og refskák
inn varaforseti og fellt Björn.
Þá hefði Jón hins vegar getað
sagt: Sko bara, um leið og ég
er orðinn formaður Alþýðu-
flokksins fer hann að ráða
miklu meir!
Af framboðinu varð þó
aldrei. Varaforsetum varfjölg-
að og krati kosinn í hið nýja
sæti. Þetta hefði hins vegar
getað komið Alþýðubanda-
lagsmönnum á ASÍ þinginu í
klípu. Flokksráðsfundur var
nýbúinn að samþykkja að
efna til vinstra samstarfs og
þeir hefðu því orðið að styðja
kratann, ætluðu þeir að fylgja
flokknum. Innan ASÍ hefur
hins vegar Alþýðubandalagið
hallað sér töluvert á íhalds-
hliðina samanber samstarfið
viö Björn Þórhallsson.
Hvað hefði Þjóðviljinn gert?
Við erum auðvitað flokksblað
og hefðum farið að vilja
flokksráðsfundar og stutt
kratannlB
Fæðingin
og vitringarnir
Vestur á ísafirði hafa gamlir
menn verið að rifja upp frá-
sögnina um fæðingu
sveinbarnsins í Alþýðuhúsinu
þar í bæ, fyrr á öldinni. Hermir
sagan sem borist hefur suður
yfir heiðar, að er barnið var
fætt hafi það verið lagt í jötu.
Þá birtist í sömu andrá ákaf-
lega björt og skær stjarna á
himinhvolfinu beint yfir Alþýð-
uhúsinu sem á að hafa vísað
vitringunum þremur frá Bol-
ungarvík leiðina að sveininum
unga í jötunni. Er þeir komu
loks um síðir í Alþýðuhúsið
lutu þeir fram að jötunni og
færðu barninu gjafir. Sá fyrsti
færði því bull, annar vitringur-
inn færði barninu ergelsi og
sá þriðji firru.B
Kvótakerfið
á ASÍ þingi
Á þingi ASÍ var við lýði mjög
strangt flokkspólitískt kvóta-
kerfi, og helst engum var stillt
upp af kjörnefnd til trúnaðar-
starfa nema vitað væri til
hvaða kvóta hann teldist.
Skipti þar engu máli hvort ver-
ið var að kjósa aðalmenn eða
varamenn í til dæmis mið-
stjórn. Þannig var stungið upp
á ágætis baráttukonu af
Stöðvarfirði, Valdísi Kristins-
dóttur, utan úr sal. Þá fór nátt-
úrlega allt í kerfi í kjörnefnd-
inni, því þó Valdís hefði á ár-
um áður verið hlynnt Alþýðu-
bandalaginu og setið einn
landsfund þess, þá vildi hún
ekki gefa upp neinar holl-
ustuyfirlýsingar við neinn
flokk. Þetta olli nokkrum
taugatitringi, og undir mið-
nættið daginn fyrir miðstjórn-
arkjörið hringdi einn stressað-
ur kjörnefndarmaður í Valdísi
og spurði hvort maður hennar
væri ekki Framsóknarmaður?
„Afhverju?" spurði Valdís.
„Þá gætum við mögulega
sett þig í Framsóknarkvót-
ann!“ kom svarið frá kindar-
legum kjörnefndarmanni.
Þess má svo geta að Valdís
felldi Karl Steinarog náði kjöri
sem varamaður.B
Sunnudagur 9. desember 1984