Þjóðviljinn - 09.12.1984, Side 20
Hænsnabú ríkis-
stjórnarinnar
Og þú líka,
sonur minn,
Brútus
Viðtalsbók Halldórs Halldórs-
sonar við Jón G. Sólnes er nú
komin út og er þar talað tæpi-
tungulaust eins og búast mátti
við. Einn kaflinn heitir
Sleggjudómar um pólitíska
samferðamenn og þar kennir
margra grasa. Meðal annars
fá flokksbræður hans sitt. Um
Eggert Haukdal segir hann að
hann myndi treysta honum til
að vera bílstjórinn sinn. Ellert
B. Schram er skrýtinn náungi
og Eyjólfur Konráð Jónsson
stórskrýtinn náungi. Geir Hall-
grímsson er þægilegt snotur-
menni sem ekki getur tekið
ákvarðanir og Birgir ísleifur
frekar litlaus maður. Versta
útreið fá þó þeir Halldór
Blöndal og Gísli Jónsson. Um
Halldór segir hann m.a.: „Satt
að segja fyrirlít ég Halldór
Blöndal. Hann hefur verið að
reyna aö heilsa mér, en ég tek
illa undir það. Núna nýlega á
einhverjum flokksfundi kallaði
hann á mig og vildi tala við
mig. Ég veifaði honum frá
mér, segir Jón. Og um Gísla
segir hann: Gísli sneri algjör-
lega við mér baki þarna. En
hvað ég skil menn, þegar
þessi orð eru sögð: „Og þú
líka, sonur minn, Brútus.‘‘B
Arfinn í Sjálf-
stæðisflokknum
Og Jóni Sólnes gest lítt að
krötum. Hann talar heldur vel
um Kjartan Jóhannsson en
segir svo: „Forysta í krata-
flokki skiptir hins vegar engu
máli. Hún skiptir ekki nokkru
einasta máli. Það er ekkert
pláss fyrir krata, því krata-
flokkurinn er í Sjálfstæðis-
flokknum. Hann á ekkert að
vera að þessu. Eftir 12 ára
Viðreisnarstjórn settu þeirsvo
mikinn arfa í Sjálfstæðisflokk-
inn, að þeir drápu sjálfa sig á
því. Sjálfstæðisflokkurinn
gleypti þetta uþp. Þessi bölv-
aði arfi, hann er búinn að gera
mjög illt í Sjálfstæðisflokkn-
um. Það þarf (raun enga hel-
vítis krata". ( kaflanum um
Árna Gunnarsson bætir hann
ennfremur við: „Dæmigerðir
kratareru þannig, að þeir hafa
ekki nokkra pólitíska sann-
færingu. Þetta málæði í þeim
er bara froðusnakk eftir ein-
hverjum kratalínum utan úr
löndum. Uss, ég gef ekkert
fyrir þá. Má ég þá biðja um
allaballana. Já, ég vil hafa
hreinar línur í þessu". Eið
Guðnason kallar hann
leiðindaskjóðu.B
Mikið ósamþykki er um vaxta-
mál innan ríkisstjórnarinnar.
Þegar Seðlabankinn hafði
samþykkt að hækka vextina á
miðvikudag, þá leit allt út fyrir
að stjórnin myndi hrökkva
sundur. Til að vinna tíma til að
berja í brestina boðaði
Steingrímur Hermannsson
vin sinn Jóhannes Nordal á
fund ríkisstjórnarinnar til að
ræða málið. Þar upphófst
gífurlegt fjaðrafok, einkum af
hálfu Framsóknarráðherr-
anna en einnig einhverra
Sjálfstæðismanna. Að lokum
féllst Jóhannes á að fresta
vaxtahækkuninni um viku.
Þegar hann kom út af fund-
inum strauk hann sér yfir enn-
ið og sagði við nærstaddan
kunningja sinn að aldrei heföi
hann á lífsfæddri komist í ann-
að eins hænsnabú! ■
Nordalsminkur
Þessi ummæli Nordals
minntu okkur hins vegar á það
sem stendur í gamalli vísu:
Vaxta hækkun vildi fá,
vargar engu lofa,
mest þá Nordal minnti á
mink í hænsnakofa.B
BETRIKO
Reglulegur samanburður er gerður á kjörum Hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum. Og er það stefna Samvinnubankans að Hávaxtakjör
verði alltaf betri kostur en verðtryggð kjör hjá bankanum.
Hækkandí vextí r
Hávaxtareikningur ber stighækkandi
vexti, 17% i fyrstu sem strax eftir
2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði
uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan
12 mánaða sparnað hækka vextirnir
síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5%
upp frá því.
Ársávöxtun
Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og
31. desember ár hvert og fer því
ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en
getur náð 27,58% sem ræðst af því
hvenær ársins lagt er inn.
Vextír frá stofndegí
Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings
reiknast frá stofndegi og falla aldrei
niður á sparnaðartímanum. Þannig
tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu
kjörin.
Nýstáílegt fYrírkomulag
Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri
innborgun og er hvert stofnskírteini til
útborgunar í einu lagi. Því er sjálfsagt að
deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir
úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess
að vaxtakjör eftirstöðva rýrni.
Óbundínn
Hvert skírteini er laust til útborgunar
fyrirvaralaust.
Betri kjör bjóðast varla.
EINS OG GENGUR er óvenjuleg endurminningabók, óvenju-
leg vegna þess hve hún er skemmtileg.
Sigurður Thoroddsen varð þjóðkunnur fyrir verkfræöistörf
sin, en honum var margt fleira til lista lagt. i þessum endurminn-
ingum, sem hann skráði siðustu árin sem hann lifði, segir hann
frá uppvaxtarárum á Bessastöðum og í Vonarstræti 12, náms-
árum hér heima og i Kaupmannahöfn, ferðalögum um land allt i
sambandi við virkjanir, frá Bretavinnu og þingmennsku, en líka
árangurslitlum tilraunum sinum á sviði uppfinninga og fyrstu
skopmyndasýningunni, sem haldin var í Reykjavík.
Sigurður hafði næmt auga fyrir kátlegum hliðum tilverunnar,
og hann var alveg laus við sjálfsupphafningu og óþarfa hátíð-
leika. Samferðamönnum sinum lýsir hann hispurslaust en af
sanngirni, og kryddar frásögn sina ótal smáþáttum og ein-
kennilegum vísum, þar á meðal áður óbirtum kvæðum eftir Jón
Helgason og Halldór Laxness.
í bókinni erfjöldi mynda.
Verðkr. 1170,—
Félagsverð kr. 995.—
Mál
cjefumíjóðarbækur
og menning