Þjóðviljinn - 16.12.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 16.12.1984, Page 5
gevintýrí, ráðgátur og spenna Gefðu þig fram Gabríel eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk íslenska sveitabarnið Linda, sem verður kjördóttir bresks blaðakóngs og síðan þekktur blaðamaður með allan heiminn að vettvangi, virðist eiga sér verndarengil. Hver er hinn dularfulli Qabríel, sem alltaf fylgist með henni og gerir vart við sig á ólíklegustu stöðum? Eftir flugslys dvelst Linda um hríð hjá innfæddum á Tristan da Cunha og getur síðan ekki gleymt námaverkamanninum Tony. En starfið krefst hennar á ný, hún fer víða og kynnist fleiri mönnum Steve Raynor, auðugum glaumgosa, sem hún hyggst fletta ofan af sem stórbófa . . . Santor, frægum listmálara, sem felursig bak við dulnefnið . . . enTony flytur í nágrennið oggerir henni erfltt fyrir. Úr ritdómi í Morgunblaðinu 4.12. 1984 eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur: „En hraðinn í frásögninni og skemmtilega óþvingaðar lýsingar á þeim stöðum sem heimsóttir eru vítt og breitt um veröldina, Ijá bókinni þekkilegt aðdráttarafl. . . En hvað sem hnökrunum líður er hér á ferðinni afþreyingarbók eins og mér finnst þær gerast hugnanlegastar." ■ Bókin um bijóstagjöf eftir Máire Messenger í þýðingu Halldóru Eilipusdóttur Brjóstamjólk er besta fæða sem hægt er að gefa nýfæddu barni, en þrátt fyrir það eru margar mæður, sem ekki gefa brjóst eða gefast upp eftir mjög skamman tíma. Oft má kenna um skorti á sjálfstrausti og stuðningi. Bókin um brjóstagjöf leggur fram rök, hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar, sem nauðsynlegar eru til að ýta undir sjálfstraust móður og hjálpa þannig til að gera brjóstagjöfina einfalda, ánægjulega og vel heppnaða. Stærdfræði Handbók lyrir foreldra, kennara og nemendur eftir Krisýán Quðjónsson námsstjóra. Þessari bók er ætlað að leysa úr vandamálum og svara spurningum sem upp koma t.d. á heimilum þegar foreldrar viija hjálpa börnum sínum við heimadæmin en muna ekki einstaka reikningsaðferðir og þær flnnast ekki í viðkomandi reikningsbók sem barnið notar þá stundina. Þetta er sem sagt bók sem margir hafa beðið eftir og kemur nemendum, foreldrum og kennurum í góðar þarfir. .ír • Gönguleiðir á Homströndum og Jökulfjörðum eftir Snorra Grímsson með jarðfræðiskýringum eftir Leif A Símonarson jarðfræðing Höfundur bókarinnar á ættir að rekja til Hornstranda og er einn af kunnugustu mönnum þar um slóðir. í bókinni segir frá helstu gönguleiðum um Hornstrandir og Jökuifirði, tíndir eru saman fróðleiksmolar úr ýmsum áttum og þetta tengt frásögnum Þórleifs Bjarnasonar í Hornstrendingabók. Leifur A. Símonarson veitir lesandanum mikilsverðar jarðfræðiskýringar í bókinni og er að þeim mikill fengur. BÓKAÚTGÁFAIN ÖRN 61ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866 Sigurþór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.