Þjóðviljinn - 12.02.1985, Side 13

Þjóðviljinn - 12.02.1985, Side 13
Indland Njósnahneykslið mikla Indversk ríkisleyndarmál gengu kaupum og sölum og kaup- endur voru margir - Snar þáttur almennrar fjármálaspillingar Rajiv Gandhi: Þegar hann komst til valda kvaðst hann ekki ætla að gefa stjórn sinni langan reynslutíma og njósnamálið herðir á nauðsyn þess að hreinsa til í stjórnkerfinu. Indland hefur verið í upp- námi síðustu vikur eftir að uppvíst varð, að njósnarar höfðu búið þægilega um sig í ýmsum veigamestu stofnun- um þessa risaríkis. Handteknir hafa verið háttsettir menn úr hópi aðstoðarmanna forsætis- ráðherrans sjálfs, í viðskipta- og hermálaráðuneytinu og upplýsingaskrifstofu forseta landsins. Og málið er svo flók- ið að því er helst líkt við fornt banjantré, sem hefur skotið svo mörgum rótum, að enginn veit lengur hvert hver teygir sig. ilar eru nefndir sem sökudólgar. Fyrst beindist athyglin að Alain Boiley, frönskum diplómata og ofursta í flughernum, sem fljót- lega var látinn fara heim eftir að skriður komst á rannsókn málsins og handtökur. En spurningum fjölgaði hveð hverjum degi. Kannski vann hann bæði fyrir Frakka og fyrir bandarísku leyni- þjónustuna CIA? Vestur- Þjóðverjar voru nefndir til leiksins, einnig Sovétmenn og diplómatar úr öðrum löndum Austur-Evrópu. Engu líkara en indversk ríkisleyndarmál væru á útsölu og bjargaði sér hver sem beturgat. Hvort sem væri til að fá upplýsingar um kjarnorkuiðnað Indlands, viðbrögð ríkisstjórnar- innar við óeirðum í Assam eða Punjab, um þörf hersins fyrir ra- darstoðvar, um samning Sovét- ríkjanna og Indlands um vinskap og gagnkvæma aðstoð sem svo heitir. Það er líka talið að meðal þeirra leyndarmála, sem út hafa síast, séu upplýsingar um það, hvernig indverski herinn mundi bregðast við árás frá Kína eða Pakistan og um aðstoð Indverja við skæruliða Tamíla á norður- hluta Sri Lanka. En þessa dagana er einmitt allmikið rætt um líkur á því, að indverski herinn komi Tamílum til aðstoðar ef að til nýrra Tamílamorða komi á þeirri eyju, sem áður bar nafnið Ceylon. því, að sú nefnd öldungadeildar þingsins sem fjallar um njósna- mál, hafi komist yfir skýrslu um leynilega indverska áætlun sem lögð hefði verið fyrir Indiru Gandhi. Hún laut að því að eyði- leggja með skyndiáhlaupi kjarn- orkuofn í Pakistan, væntanlega þá til að koma í veg fyrir að erfð- afjandinn gæti komið sér upp kjarnorkusprengju (Indverjar hafa sjálfir sprengt eina slíka en hyggja ekki á framhald að því er best er vitað). Sagt er að Indira Gandhi hafi brugðist ókvæða við og fyrirskipað strangt eftirlit með ýmsum starfsmönnum sínum. Hafi leyniþjónustumenn verið reiðubúnir til að láta til skarar skríða gegn njósnurunum nokkr- um vikum eftir að Indira Gandhi var myrt (þann 31. október) en málinu síðan verið skotið á frest vegna yfirvofandi kosninga. Heyrst hafa þær raddir, að Ra- jiv Gandhi forsætisráðherra bæri að segja af sér vegna þessa mikla hneykslis og er þá vísað á for- dæmi Willy Brandts, sem vék úr stóli kanslara eftir að uppvíst var að einn nánasti samverkamaður hans var austurþýskur njósnari. En því má svara sem svo, að Ra- jiv Gandhi er nýkominn til ábyrgðar í stjórnmálum. Njósn- amálin eru afar umfangsmikil og líta í raun út sem snar þáttur af þeirri umfangsmiklu spillingu sem gegnsýr alla stjórnsýslu og öll viðskipti á Indlandi. Ekki atvinnumenn Indversk yfirvöld hafa gefið takmarkaðar upplýsingar um þessi mál eins og vonlegt er. En þó verður ekki betur séð en að njósnararnir hafi, þegar eftir var tekið, ekki getað orðið erfið bráð sæmilega eftirtektarsömum gagnnjósnamönnum. Lítið um atvinnumennsku þar. Þeir ku hafa ljósritað holt og bolt á skrif- stofum sínum flest það sem merkt var „leyndarmál" og um hendur þeirra fór. Og ef ljósritunarvél- arnar í forsætisráðuneytinu voru bilaðar, þá skruppu þeir kannski út á næsta horn og létu afgreiða sig í næstu ljósritunarstofu. Eigandi ljósritunarstofunnar heldur því fram, að honum hafi ekki dottið í hug að skoða það seni viðskiptavinir hans komu með. Vískí og villtar meyjar Njósnararnir fóru svo með ljósritaðan feng sinn til einskonar upplýsingaheildsala, viðskipta- hölds eins í Delhi, sem keypti varninginn af þeim. Hann sýnist ekki hafa borgað nein ósköp. Nokkur hundruð rúpíur, skoskt viskí, aðgangur að greiðviknum konum - þetta voru öll ósköpin. Eða svo sýndist að minnsta kosti fyrstu dagana eftir að handtökur byrjuðu. Nokkru síðar hélt blað- ið Hindustan Times því svo fram, að erlendir agentar hefðu varið um 19 miljónum dollara til að múta indverskum embættis- mönnum. Enginn veit hvernig sú tala er fengin. Afleiðingar Ekki er enn vitað hvaða afleið- ingar njósnamálið kann að hafa fyrir samskipti Indverja við önnur ríki. Líklega fara Frakkar einna verst út úr því, vegna þess að þeir hafa að undanförnu gert nrarga stóra samninga um að selja indverska hernum fallbyss- ur, Mirage-orustuþotur og margt fleira. Einn dálkahöfundur í blaðinu Times of India hefur sagt á þá leið, að vera kunni að Frökkum hafi orðið svo vel á- gengt vegna þess að þeir „höfðu aðgang að veigamestu leyndar- málum Indlandsstjórnar". Gæti nú orðið minna úr þessum við- skiptum en til stóð. Hitt hafa menn lengi talið liggja í augum uppi að Indland, sem er tíunda mesta iðnríki 1 heimi, rekur einhvern stærsta her heims og er leiðandi ríki í Þriðja heiminum, sé einkar freistandi vettvangur fyrir njósnir af öllu mögulegu tagi - pólitískar, við- skiptalegar og hernaðarlegar. Og urnfang njósnahneykslisins hefui orðið til þess, að á indverska þinginu og í blöðum hafa komið fram kröfur um að refsingar fyrii njósnir verði þyngdar. Hámarks- refsing er nú tólf ára þrælkunar- vinna en nú er stungið upp á þvi að njósnara megi hengja-öðrum Þriðjudagur 12. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 til viðvörunar. AB tók saman. Grænlendingar famir úr EBE Greitt fyrir fiskveiðileyfi - Þorskurinn að hverfa I febrúarbyrjun gerðust Græn- lendingar fyrstir manna til að segja sig úr Efnahagsbanda- laginu, sem þeir voru dregnir inn í 1972 gegn vilja sínum. Talið er að þeir hafi náð sæmilegum samningum við EBE um fisk- veiðar og er það m.a. rakið til þess, að Grænland hafi svo mikla hernaðarlega þýðingu vegna legu sinnar að menn vilji ekki standa í ófriði við heimamenn. Að skilnaði komu Grænlend- ingar og EBE-menn sér saman um það á fundi í Bruxelles að Grænland fengi sem svarar um 900 miljónum króna fyrir fisk- veiðileyfi og að fiskiskip frá EBE, fyrst og fremst fá Vestur- Þýskalandi, fengju þá að fis þau 2000 tonn af þorski \ Vestur-Grænland sem þau ei eftir af áður umsömdum kvc ársins 1984. Eiga þau að ve búin að því áður en mars er ú Efnahagsbandalagið fær s ekki að veiða meiri fisk við Græ land í bili eða þar til fiskifræðin ar telja öllu óhætt. Grænlendir ar munu sjálfir skera niður sii þorskveiðikvóta í ár úr 34 þúsui smálestum í 25 þúsundir. Þors stofninn við Vestur-Grænland sagður í mikilli hættu, en mei vita ekki hvort þorskurinn horfinn fyrir sakir ofveiði & vegna harðra ísvetra á unda förnum árum. Nema hvoi tveggja sé. Margir undir grun Með því er meðal annars átt við það að svo til allir hugsanlegir að- Spor rakin Haft er fyrir satt að tvö banda- rísk blöð, Washington Post og New York Times, hafi komið ind- versku leyniþjónustunni á spor- ið. í september hafi þau skýrt frá Indversk kjarnorkurannsóknastöð. Njósnirnar snerust m.a. um það hve langt Indverjar væru komnir á því sviði.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.