Þjóðviljinn - 04.10.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Page 6
Framhaldsaðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans verður haldinn 10. október kl. 20.30 að Hverfisqötu 105. Dagskrá fundarins verður: 1. Kosning stjórnar félagsins. 2. Undirbúningur vegna 50 ára afmælis Þjóðviljans 1985. 3. Lög að skipulagsskrá félagsins. 4. Önnur mál. Útgáfuféiag Þjóðviljans Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 46711 Auglýsið í Þjóðviijanum ALÞÝÐUBANDALAGIÐ AB Grundarfirði Árshátíð Hin árlega árshátíð Alþýðubandalagsins í Grundarfirði verður hald- in í Samkomuhúsinu Grundarfirði laugardaginn 12. október og hefst hún kl. 20.30. Nánar auglýst síðar. Stjórnin AB Reykjanesi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi verður haldinn mánudaginn 21. október í Þinghóli Kópavogi kl. 20.00 stundvíslega. Dagskrá: 1) Lagabreytingar. 2) Önnur aðalfundarstörf. 3) Geir Gunnarsson alþingismaður flytur ávarp. 4) Afgreiddar tillögur um undirbúning kosninga- starfs. 5) Sveitastjórnarmál. 6) Utgáfumál. 7) Önnur mál. - Stjórnin. Ab Garðabær Aðalfundur AB í Garðabæ verður haldinn mánudaginn 14. október kl. 20.30 í Flataskóla. Dagskrá: 1) Lagabreytingar. 2) Önnur aðalfundarstörf. 3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð og á landsfund. Geir Gunnarsson alþingismaður og Ólafur R. Grímsson formaður fram- kvæmdastjórnar AB ræða flokksstarfið og stjórnmálaástandið. - Stjórnin. AB Vesturland Stjórn kjördæmisráðs efnir til ráðstefnu um verkalýðs- og atvinnumál í Samkomuhúsinu Grundarfirði laugardaginn 12. október kl 13.00. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin AB Siglufirði Kaffifundir á Suðurgötu 10 á miðvikudögum kl. 16.30. - Alþýðubandaiagið ÆSKULÝÐSFYLKINGIN ÆF-ingar athugið Fréttabréfið okkar hún Rauðhetta kemur út bráðum. Nú er bara að setjast niður og skrá hugrenningar sínar á blað, vélrita á A-4 og senda á H-105 fyrir 18. október, merkt: Framkvæmdaráð ÆFAB. Kveðjur, Framkvæmdaráð Óskilamunir frá landsþingi ÆFAB eru á H-105, s. 17500. Sunnudagur 7. október Stjórnarfundur ÆFR Fundurinn hefst kl. 17.00 að H-105. Dagskrá: 1) Landsfundur AB, 2) Kosning í trúnaðarstöður, 3) Starfið framundan, 4) Önnur mál. Mikilvægt að allir landsfundarfulltrúar ÆFR mæti en annars er fundurinn vitanlega opinn öllum félagslega þenkjandi. Formaður MANNLÍF Þessum spurningum og mörg- um fleiri leituðu starfsmenn Úti- deildar svara við s.l. vetur, þegar 571 gestur á sex leiktækjasölum borgarinnar var spurður spjörun- um úr um heimsóknir sínar þang- að. Spurt var um aldur, kyn, skólahverfi eða sveitarfélag, hvort viðkomandi væri í vinnu eða skóla og hvernig sambýli á heimilinu væri háttað. Hins vegar var ekki spurt um stöðu foreldra, reykingar, áfengis- og vímuefna- neyslu, en það eru viðkvæmar spurningar sem bjóða uppá að ekki sé svarað samviskusamlega í hópkönnun. Niðurstöðurnar voru nýlega kynntar félagsmálaráði, barna- verndarnefnd og æskulýðsráði Reykjavíkur en markmið könn- unarinnar var að fá heildarmynd af þessum stöðum svo nefndir borgarinnar hefðu raunhæfar upplýsingar til að byggja á en ekki fullyrðingarnar einar, þegar fjallað er um leiktækjasali. Skýrslunni er því ætlað að vera innlegg í umræðu bæði opinber- lega og pólitískt. Börn og fullorðnir Samkvæmt könnuninni kemur mjög breiður hópur á mismun- andi aldri í leiktækjasalina. 10% gesta voru undir leyfilegum aldri, þ.e. 13 ára og yngri, og önnur 10% eru eldri en tvítugir. „Það eru því ekki aðeins unglingar sem sækja þessa staði, heldur einnig fullorðnir og böm“, segir í niður- stöðum. Hlýtur þetta að teljast hátt hlutfall undir aldursmörk- um, ekki síst þar sem gera verður ráð fyrir hertu eftirliti eigenda dagana sem könnunin stóð yfir þar sem þeim var kunnugt um hana. Þeir sem eru undir aldri voru á öllum stöðunum sex, en mjög mismargir á hverjum stað. Stað- irnir era einungis merktir með bókstöfum í niðurstöðum könn- unarinnar. 74% þessa hóps búa hjá foreldrum sínum, 15% hjá móður og 9% hjá móður og stjúpa. Þetta er langhæst hlutfall þeirra sem búa hjá báðum for- eldrum en af öllum hópnum voru það 63%. Nær fjórði hver úr þessum hóp segist koma alla daga, 11% koma þrisvar í viku en 43% segja að það sé meira en mánuður síðan þeir komu síðast í leiktækjasal. 16 grunnskólar í Reykjavík eiga nemendur í þessari könnun, allir nema Fossvogsskóli, og þeir grunnskólar sem eiga fleiri en 20 nemendur í leiktækjasölunum eiga það sammerkt að engin fé- lagsmiðstöð er í viðkomandi skólahverfi. Strákar og stelpur Stelpur eru í miklum minni- hluta þeirra sem sækja staðina, ein á móti hverjum þremur strák- um, en mikitl munur er á þessum tveimur hópum. Aldursdreifing- in hjá strákunum er nokkuð jöfn þó svo meirihluti þeirra eða 62% séu 14-17 ára. Rúmlega helming- ur stelpnanna er hins vegar 14-15 ára og uppúr 18 ára aldri sjást þær varla í leiktækjasölunum. Rúmlega 70% hópsins koma oftar en einu sinni í viku og þriðj- ungur hópsins segist koma næst- um alla daga. Dreifing hjá strák- unum er nokkuð jöfn og segjast 25% þeirra koma eiginlega alla daga og 22% einu sinni í mánuði eða sjaldnar. Öðru máli gegnir um stelpurn- ar. 53% þeirra segjast koma næstum alla daga en aðeins 13% einu sinni í mánuði eða sjaldnar. Það er ekki aðeins að stelpurnar komi oftar en strákarnir, þær dveljast þar líka lengur í hvert skipti, því helmingur þeirra er klukkutíma eða lengur en aðeins 21% strákanna. Félagsþörf og spilafíkn Leiktækjasalirnir þjóna greini- lega hlutverki félagsmiðstöðva fyrir krakka úr hverfum, þar sem engin slík aðstaða er fyrir hendi. Þetta kemur m.a. fram þegar krakkarnir eru spurðir af hverju þeir komi í leiktækjasalina, en 23% segjast afdráttarlaust ekki koma til þess að spila. Enn er hér mikill munur milli kynja. 41% stelpnanna segist ekki koma til að spila, heldur hitta vini og kjafta, en 17% strákanna. Þær virðast því fremur koma til að sinna fé- lagsþörfinni en strákarnir. Krakkar sem búa í hverfum þar sem engin félagsmiðstöð er og sér í lagi þar sem leiktækjasalir eru í grennd við skólann eru líklegri en aðrir á grunnskólaaldri til að sækja leiktækjasali. Þeir grunn- skólar sem eiga flesta nemendur á leiktækjasölunum eru skólarnir á miðbæjarsvæðinu þar sem styst er í salina og í þeim hverfum, austurbæ og vesturbæ, er heldur engin félagsmiðstöð. Spurt var fyrir hvað mikið væri spilað í hvert skipti og sögðust 85% spila fyrir minna en 100 krónur. Mjög fáir eða 12 manns sögðust spila fyrir meira en 300 krónur í hvert sinn. Þeir eyðslu- frekstu eru strákar á aldrinum 18- 19 ára og eitthvað af 16 og 17 ára, en þeir elstu, 20 ára og eldri, spila allir fyrir minna en 300 krónur í einu að eigin sögn. Og hvaðan koma svo pening- arnir? 53% segjast vinna fyrir pening- unum sem fara í spilakassana og 35% tilgreina vasapeninga. 12,6% krossa við „annað“ en margir skrifuðu til skýringar við þann kross að þau fengju pening hjá pabba og mömmu. Þannig virðast krakkarnir gera greinarmun á því hvort um reglu- lega vasapeninga er að ræða eða óreglulegar fjárhæðir frá foreldr- um. „Því má“, segir í skýrslunni, „slá því föstu að liðurinn „annað“ á ekki bara við þjófnaði og stöðu- mælastuldi eins og í fljótu bragði gæti virst“. Skóli og vinna Meirihluti þátttakendanna var í skóla eða rúm 78%. Tæp 13% þeirra vinna með skólanum, 191,1% er í vinnu en 3,4% at- vinnulaus. Skipting milli hverfa í Reykja- vík er mjög svipuð; 75-90% úr hverju hverfi er skólafólk, minnst í Breiðholti, 75%. Krakkarnir þaðan eru líka eldri en hinir eins og reyndar líka úr nágranna- sveitarfélögunum. Þaðan koma líka tiltölulega færri skólanemar, að Seltjarnarnesi undanskildu. Þeir grunnskólar sem eiga fleiri en 20 nemendur á leiktækja- sölum eiga það sammerkt að leiktækjasalur er í skólahverfinu og/eða engin félagsmiðstöð er í hverfinu. Atvinnulausir Atvinnulausir í þessum 571 manns hóp eru 19, eða 3,3% af heildarfjöldanum. 4,7% stelpn- anna eru atvinnulausar en 2,9% strákanna. Þessi hópur kemur úr öllum borgarhverfum og ná- grannasveitarfélögum en sker sig nokkuð frá heildarmyndinni að öðru leyti. Þeir sem eru atvinnulausir koma aðallega á leiktækjasalina til að hitta vini og kunningja, eða I 70% ámóti40% hjáhinumhópn- um. Þeir koma lfka oftar á degi hverjum, 79% koma oftar en einu sinni á dag en sambærilegt hlutfall hjá hinum hópnum er 40%. Atvinnulausir sækja einkum einn ákveðinn leiktækjasal, sem sker sig líka frá öðrum sölum í því að þar er langhæst hlutfall fasta- gesta. 57% koma þar alla daga og 22% til viðbótar 3-5 sinnum í viku eða oftar. Þar koma rúm 70% oftar en einu sinni á dag en sambærilegt hlutfall annars stað- ar er um 30%. Þessi sami leiktækjasalur hefur líka lengsta dvalartímann. 65% dvelja þar lengur en eina klukkustund en á hinum stöðunum er hlutfallið öfugt: 70% dveljast skemur en eina klukkustund á þeim. Þessi staður, sem aðeins er merktur með bókstaf í könnun- inni, er hins vegar með þeim minni: 13,8% þátttakenda voru þaðan eða 79 manns. Stærsti staðurinn hafði 33,6% af þátttak- endum eða 192. -ÁI Tæp 85% spila fyrir minna en 100 krónur I hvert skipti, en þess ber að geta að þriðjungur hópsins segist koma eiginlega alla daga og rúm 70% oftar en einu sinni í viku. Ljósm. E.ÓI. 77% koma til að spila, hinir til að hitta vini og kjafta. Það er einkum stelpurnar sem koma til að sinna félagsþörfinni því 41 % þeirra segist ekki koma til að spila en 17% strákanna. Ljósm. E.ÓI. 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. október 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.