Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 12
UM HELGINA Helgarbókin Þú og Ég Út er komin hjá Máli og menn- ingu ný handbók um kynlíf, eink- um ætluð ungu fólki, scm ber hið Ijóðræna heiti Þú og Ég. Hðfund- urinn er ástralskur fræðimaður, Derek Llewellyn-Jones, en Elísa- bet Gunnarsdóttir hefur þýtt bók- ina og staðfært. í bókinni er fylgt þroska mann- eskjunnar frá fæðingu, fjallað um bernsku, kynþroska, kynhvöt unglinga, kynlíf, getnaðarvarnir, fóstureyðingu, meðgöngu og fæðingu, ófrjósemi, kynsjúk- dóma og kynlífsvandamál. Fjöldi teikninga og ljósmynda er í bók- inni. Á bókarkápu segir: „Þú og Ég“ bætir úr brýnni þörf fyrir lesefni handa ungu fólki um kynferðis- mál. Þar er lögð áhersla á tilfinn- ingar ekki síður en líkamleg at-' riði, virðingu milli manna, skiln- ing og vellíðun. Mikils virði er að ungt fólk fái óbrengluð viðhorf til kynlífs og að því stuðla góðar upplýsingar sem vinna gegn hjátrú og fordómum.“ Hótel með meiru Reno Renata stórtenór syngur fyrir Þuríði Sigurðardóttur. Snúlli Snjólfsson bóndi í Öræfasveit segir farir sínar ekki ____________________ sléttar. Þeir sem ganga fram hjá húsinu númer 18 við Rauðarárstíg gera sér sjálfsagt ekki grein fyrir því að þar er hægt að ganga inn fyrir, setjast við borð og kaffi og með því. Heimabakað. Þó utan á húsinu standi Hótel Hof er þetta meira en Hótel. Kaffistaður, matstaðurog jafnvel skemmtistaður. Það má leigja sér sal og hafa húllum hæ. Áslaug Alfreðsdóttir, sem er þarna hótelstjóri ásamt manni sínum, Ólafi Erni Ólafssyni, sagði aðspurð að auðvitað væri jretta hótel en fólk gæti líka kom- ið af götunni og fengið sér að borða, hvort sem væri í hádegi eða að kvöldi til. Staðurinn væri opinn frá því snemma á morgn- ana og fram eftir kvöldi. „Það koma hér bæði útlending- ar og íslendingar, erlendir ferða- menn auðvitað meira á sumrin. Á veturna ber meira á fólki utan af Fyrirlestur Hvað er verufrœði Atli Harðarson flytur fyrirlest- ur um verufræði (ontologiu) á vegum Félags áhugamanna um heimspeki í stofu 101, húsi laga- deildar HÍ kl. 15.00 á sunnudag. í fyrirlestrinum mun Atli taka mið af skrifum nokkurra am- erískra samtímaheimspekinga um verufræði. Kenningar þeirra verða útskýrðar og hismið greint frá kjarna kenninganna. Innanstokks á Hótel Hofi. landi sem er að koma til höfuð- staðarins í ýmsum tilgangi, menningarreisur, innkaupaferðir o.s.frv. Haustin og vorin köllum við hins vegar jaðartímabil eða shoulder season eins og það er nefnt upp á enskan máta, axla- tímabil.“ Það er nú svo. Blásið á tertuna, frá vinstri: Carl Möller, Stefán Jóhannsson, Hermann Gunnarsson, Eyþór Stefánsson, Jón Ragnarsson, Omar Ragnarsson, Þuríður Sig- urðardóttir, Magnús Ólafsson, Ragnar Bjarnason, Ásgeir Steingrímsson, Stefán Stefánsson, Bessi Bjarnason og Jón Sigurðsson. Fyrir framan sitja blóma- rósir úr Dansnýjung Kollu. Ljósm. E.ÓI. Skemmtan Sumargleðin 15 óra >€tlar að skemmta Reykvíkingum ó Broadway í vetur Þess er minnst á fjölum Broa- dway næstu helgar að Sumar- gleðin sem hefur skemmt lands- fólki undanfarin sumur er 15 ára um þessar mundir, í tilefni af- mælisins hafa þeir kappar Omar, Ragnar, Hemmi, Magnús og Bessi tekið saman nýja dagskrá og spunnið inn í hana gömlum en sígildum atriðum og er ætlunin að gefa Reykvíkingum kost á að heyra og sjá fram eftir vetri eða svo lengi sem einhverjir kæra sig um. Þjóðviljamönnum var boðið í afmælisveislu fyrir nokkru þar sem kapparnir ásamt úrvalsliði hljóðfæraleikara sýndu nokkur af þeim atriðum sem er á dagskrá Sumargleðinnar. Það verðureng- inn svikinn af því sem er á boð- stólum enda munu undirtektir Reykvíkinga um síðustu helgi hafa verið frábærar. En látum myndir fljóta með um leið og við óskum Sumargleðinni til ham- ingju með afmælið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.