Þjóðviljinn - 06.10.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.10.1985, Blaðsíða 5
„Endurminningar mínar eru ekki mín séreign” „Þaö tók mig langan tíma að ákveöa að skrifa endurminning- arnar. Endurminningar mínar eru ekki mín sóreign. Þær eru lífið. Ég er sannfærð um að við erum öll háð hvert öðru og þegar þú byrjar á sögu lífs þíns, ertu jafnframt að segja sögu annarra. Jafnvel þær ákvarðanir sem við tökum á lífs- leiðinni eru alltaf tengdar öðrum; óvæntum atvikum eða því að þú vilt að ákveðnir einstaklingar virði þig. Reyndar ekki margir. Mér er fullljóst að það sem ég kalla samvisku mína er þegar allt kemur til alls, það sem hálf tylft manna telur mig vera. Ekki endi- lega þeir sem ég sé oftast, - jafnvel fólk sem hefur ekki hug- mynd um að það er samviska mín. En ég veit að það fylgist með mér! í mínum huga eru þetta allt karlmenn. Það er skrýtið: égfinn eiginlega ekki hið kvenlega auga á mér. Ekki heldur eru þetta endilega menn sem ég hef verið í tilfinningasambandi við.” Á þessa leið hljómar upphaf fyrsta kaflans í sjálfsævisögu Simone Signoret „Nostalgia (Eftirsjá) er ekki það sem hún var”. Simone, sem var án efa dáðasta leikkona Frakka, lést úr krabbameini nú í vikunni eftir langvarandi veikindi. Hún var ekki aðeins dáð sem leikkona um allan heim heldur var hún dæmi um hinn sterka og frjálsa lista- mann sem ætíð barðist fyrir rétt- læti hvar sem var og undir hvaða stjórn sem var. Eftir að hún giftist öðrum dáðum frönskum leikara, Yves Montand árið 1952, varð hún ásamt honum mjög áberandi í stjórnmálaumræðunni í Evrópu og ekki síður í Bandaríkjunum, en þangað fóru þau með vega- bréfsáritun af því tagi sem margir íslenskir vinstri menn kannast við. Tekið var á móti þeim með miklum virktum, en þau voru eigi að síður „undir eftirliti” vegna stjórnmálaskoðana. Á seinni árum vakti Simone mikla athygli með ritstörfum sín- um, en hún hafði reyndar unnið sem blaðamaður við dagblaðið „Le petite Parisien” á árum áður. Margir höfðu reynt að fá að rita endurminningar hennar og einn komist svo langt að skrá þær eftir segulbandsupptökum á við- tölum, en þegar Simone sá árang- urinn sagði hún nei. Hún sagði: „Þetta var ekki til að lesa. Kannski var hægt að hlusta á það og þá helst með mynd svo að handahreyfingar, hik og þagnir fylgdu. En fyrir þann sem elskar bækur, ólæsilegt. Fyrir mig, ólæsilegt.” Þannig lentu þessar endur- minningar uppi í hillu. En einn góðan veðurdag hóf Simone sjálf að rita endurminningar sfnar. Dag eftir dag sat hún og skrifaði: „Það var eins og að rekja upp peysu - þegar ég hafði náð í lykkjuna var auðvelt að rekja alla flíkina upp,” sagði hún ennfrem- ur. Og þannig urðu endurminn- ingarnar til. Móttökurnar voru mjög góðar. Öll helstu dagblöð og tímarit fjölluðu ítarlega um þær. Simone var hrósað óspart, fyrir góðan stíl, skemmtilega frá- sögn, djúpar og einlægar mann- lýsingar, (t.d. lýsingar hennar á Lillian Hellman, Arthur Miller og Marilyn Monroe, - lýsing hennar á þeirri síðastnefndu þyk- ir bera vitni mikilli næmni og innsæi), sjálfsgagnrýni og skarpa greind. „Þetta er vissulega fýrsta bók höfundar, en maður vonar svo sannarlega að hún sé ekki sú síð- sagt frá sjálfsœvisögu Simone Signoret; sem léstí vikunni asta,” sagði gagnrýnandi New York Times og aðrir tóku undir. Þetta varð heldur ekki síðasta bók hennar, því nokkru síðar (Nostalgia kom fyrst út árið 1976) settist hún niður við að skrifa skáldsöguna „Adieu Volodia”, sem náði metsölu á skömmum tíma. Glíman við Lady Macbeth Af mörgum frábærum frásögn- um í æviminningabók hennar er lýsingin á því þegar hún lék Lady Macbeth á móti Alec Guinness ein sú allra besta og sýnir vel hví- líka sjálfsgagnrýni og kímnigáfu hún hafði. Sýning þessi þótti fyrirfram meiriháttar listviðburð- ur, en fékk hörmulega útreið og Simone, aldrei þessu vant, sömu- leiðis. Hún var auk þess mjög smámælt á enskunni, sem þótti hæfa hinni eitilhörðu frú Mac- beth sérlega illa. En grípum niður í kaflann þar sem hún lýsir þessu tímabili í lífi sínu: „Fyrirgefðu, William Shakesp- eare, ég geri þetta aldrei aftur... Það er ekki grobb þegar ég segi að ég hef sennilega svitnað meira í glímunni við Lady Macbeth en nokkur annar í veröldinni - sem þó kom ekki í veg fyrir að þetta ævintýri mitt mistækist gersam- lega. I fyrsta lagi var þetta ekki mitt ævintýri. Það var búið til af vin- um í London árið 1966, vinum sem vildu í mestu vinsemd gera mér góðan greiða. Alec Guinness langaði til að leika Macbeth aftur og það út af fyrir sig var meiri- háttar atburður. Sir Alec, hin mikla kvikmyndastjarna, vildi snúa sér aftur að klassíkinni í frísklegri, óhefðbundinni sýn- ingu. Drottinn minn, herrar mín- ir og frúr, Shakespeares dýrkend- ur um allan heim: Þið sjáið þetta auglýst í blöðunum og samstund- is pantið þið ykkur miða í Royal Court leikhúsinu með tveggja mánaða fyrirvara. Þegar þið síð- an, nokkrum dögum seinna, herrar mínir og frúr, Shakespear- es dýrkendur um allan heim o.s.frv., sjáið að Lady Macbeth er leikin af Alice Aisgill (persón- an sem SS lék í einni þekktustu mynd hennar „Casque d’Or”), klórið þið ykkur í höfðinu og spyrjið: Hversvegna? Samt sem áður, þú lætur taka frá þessi eftir- sóttu sæti þín í leikhúsinu trúlega með svipuðu hugarfari og þú lætur taka frá miða á góðgerðar- skemmtun, þar sem aðalnúmerið er jasssöngvari í loftfimleikum, - án öryggisnets. Enn þann dag í dag vakna ég upp á morgnana og segi við sjálfa mig: „Stórkostlegt. Ég þarf ekki að leika Lady Macbeth í kvöld.” „Óþjálfaður loftfimleikamað- ur getur fallið af slánni. Sumir hafa fallið, - sumir hafa freistað þess á einni kvöldstund að kom- ast út fyrir takmarkanir sínar með hraða ljóssins. Árangurinn verð- ur margra ára endurþjálfun og lærdómur, sem aðrir hafa glímt við síðan þeir voru í vöggu. Sem betur fer detta ekki allir. Flestir komast niður á jörðina úr sirkus- hringnum ógnvekjandi og varpa öndinni léttar. Ég hafði aldrei hugrekki til að læra að ganga á línu eða þjálfa villidýr, iðka töfrabrögð, eða stökkva í gegnum eld. Það er hreinlega ekki mín deild. Svo hvað á jörðinni, eða á himnum - kom mér til að gruna að ég gæti leikið Lady Macbeth þegar ég var ófær um að flytja texta Shakespe- , ares á þann hátt sem þessir áhorf- endur höfðu fullan rétt á að krefj- ast.” Svo mörg voru þau orð Simone og þó enn fleiri. Hún lagðist á kaf í Shakespeare þegar hún ákvað að taka að sér hlutverkið, las allar útgáfur á Macbeth ogbarðist við enska framburðinn. Hún segir sjálf að það hafi verið misskilin kurteisi við sig og kjarkleysi við- staddra að vara hana ekki við, - segja henni ekki á hvaða villigöt- um hún var lent strax á æfinga- tímanum. Skellurinn var mikill þegar kom að frumsýningu og gagnrýnendur hökkuðu sýning- una í sig, leikstjórann og leikar- ana. „Það eiwloksins nú að ég skil hvert stolxpitt og metnaður getur leitt þig þegar þú ætlar að yfir- stíga takmarkanir þínar og fleygja þér út í óvissuna. Þú gleymir samstundis öllu sem þú hefur numið frá því þú byrjaðir að leika.” Simone hafði gert samning upp á fjölda sýninga og varð að leika þær allar hvort sem henni líkaði betur eða verr. Hún lýsir tíman- um sem langri eilífð. Og kaflan- um um Lady Macbeth lýkur á þessum orðum: „Shakespeare, ég lofa að gera þetta aldrei aftur.” (Stytt og endursagt -þs) Simone Signoret segir á stórkostiegan háttfráþ ví þegar hún ætlaði aðsláí gegn í London og lék Lady Macbeth meðfrönskum áherslum, breskum áhorfendumog gagnrýnendum til ómældrarskelfingar. Alec Guinnes lék Macbeth og ætlaði að snúa aftur að klassíkinni í frísklegri nútímalegri Shakespearesýningu, en raunin varð önnur. Yves Montand, eiginmaður Simone. Þau fóru bæði til Bandaríkjanna en höfðu takmarkað ferðafrelsi vegna stjórnmálaskoðana. Sunnudagur 6. október 1985 ÞJÓÐViLJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.