Þjóðviljinn - 10.11.1985, Síða 18
KROSSGATA
Nr. 492
y z 3 7 5* (0 7- * 9 i y )0 8 //
/3 )7 /5 l(r 3 5 10 )7 ii 8 )2 <5P 18
9 5 7 )5 )°> ¥ 20 <y> ) 2) J5 V *) 22 )?
$ y- 20 V )5 QP )V 23 5 )5 3 W <? 20 22
JO i 5 )5 <P 25 8 7 )5 q? <5 /5 15 ?
21 y 18 <5 ) 8 T' 2 y 2(r /5 5- " <P 25
2o )5 7- 1/ & )2 V 8 5 5 V 6, 5 )5
9 r 7- )5 V & 5 1 7 T )0 ;?
9 22 CV' Y ll 2 3 5 2 ? 3 V/ ’)R % "K
27 V V *) 27 2 3 28 27 )9 T~ 7
+ i Y )9 J5 °) v 10 5 / 8 V 30
)9 2<J 9 líT y j<r )? <P )0 )7 i 8 Zlo 2J
V 5 tt 9 7T ɣ 8 5 <7 )l )5 5 5' )5 /9
Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 492“. Skilafrest-
ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
22 5 3 )5 9 10 7
Stafimir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem
lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆ,Ö
Því miður varð smávegis númera-
ruglingur á krossgátunni hjá okkur.
Við hoppuðum yfir númer 487 þegar
skýrt var frá verðlaunahöfunum og
voru því orðin á undan okkur. Það var
Guðmundur Guðmundsson, Hábergi
7, 111 Reykjavík, sem fékk vinning í
nr. 487, en lausnarorðið var Vind-
heimar. Hann fær senda bókina „ís-
lenskar lækninga- og drykkjarjurtir".
Næst birtum við svo nafn þess sem
vann í krossgátunni númer 490 og
erum við þá komin á réttan kjöl aftur.
Hin nýja matreiðslubók Mar-
grétar Þorvaldsdóttir. Réttur
dagsins, er í verðlaun í
krossgátunni í dag. Það er
Hörpuútgáfan sem gefur bók-
ina út.
SKÁK
Þröstur unglingameistari
Um síðustu helgi háðu 34 unglingar
keppni um titilinn „Unglingameistari
íslands í skák“. HÍutskarpastur varð
Þröstur Þórhallsson, 16 ára piltur ætt-
aður frá Siglufirði. Hann sýndi mikla
yfirburði í þessu móti og vann alla
andstæðinga sína nema hvað hann *
samdi stutt jafntefli í síðustu umferð
við Hannes Hlífar. f öðru sæti með 5
vinninga og 1 Vi vinningi á eftir Þresti
varð Hjalti Bjarnason. Eftir góðan
árangur Hjalta í Haustmóti T.R. þá
er annað sætið ekki óvæntur árangur.
f þriðja sæti einnig með 5 vinninga
varð svo drengjameistari fslands
Hannes Hlífar Stefánsson. Það sem
kom kannski mest á óvart í þessu móti
var slök frammistaða Andra Áss
Grétarssonar og Davíðs Ólafssonar.
Þeir lentu báðir í 4.-7. sæti og náðu
aldrei að veita Þresti neina keppni.
Kannski er orsökin skákþreyta því
þeir félagar hafa verið að tefla einvígi
um titilinn „Skákmeistari Taflfélags
Reykjavíkur“ undanfarnar vikur.
Staðan í því einvígi er IV2-IV2 þegar
ein skák er eftir.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Hjalti Bjarnason
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. c3
Þröstur velur að beita afbrigði sem er
kennt við sovéska stórmeistarann
Svesnikov. Svesnikov þessi hefur teflt
þetta afbrigði með mjög góðum ár-
angri undanfarin ár og varla tapað
skák með því.
2. - d5
3. exd5 Dxd5
4. d4 e6
5. Rf3 Rf6
6. Ra3 Rc6
7. Bg5 cxd4
8. Rb5 Dd8
9. Rfxd4 Rxd4
10. Rxd4 Be7
11. Bd3 0-0
12. De2 Dd5
13. f4 Bd7
14. 0-0 Bc6
15. Hadl Bc5?!
Svartur metur ekki rétt stöðuna sem
kemur upp eftir að g-línan opnast.
Eins og Þröstur sýnir fram á þá hefur
svartur ekkert gagn að henni.
16. Bxf6 gxf6
17. Khl Bxd4
18. cxd4 Kh8
19. Bc4 Df5
; 20. d5!
Truflar allar samgöngur á borðinu.
Nú gengur 20. - exd5 ekki vegna 21.
Bd3 ásamt 22. Dh5 og máti. Og ekki
heldur 20. - Bxd5 vegna 21. Bd3 og
vinnur drottninguna.
20. - Bd7
21. Bd3 Dxd5
22. Bxh7 Bb5!
Eini leikurinn sem kemur í veg fyrir
algjört hrun. Nú má hvítur ekki vera
of bráður á sér og leika 23. Dg4 vegna
þess að eftir 23. - Bxfl 24. Hxd5 exd5
verður svartur ekki mát.
23. Bd3 Bxd3
24. Hxd3 Df5
25. Hh3+ Kg7
I 26. Hg3+ Kh8
I 27. Hh3+ Kg7
28. Hh5! Dg6
Þegar aðeins fáar mfnútur eru eftir á
klukkunni er oft erfitt að finna besta
framhaldið. Hérna gat Þröstur leikið
29. Hh4! Df5 30. Hg4+ Kh8 31. Df3
Dh7 32. Df2 Df5 33. Dh4+ Dh7
34. Dxf6+ og mátar.
29. f5?! exf5
30. Hhxf5 Hfe8
31. Df2 He6
32. Hf3 Dh5
33. Hxf6 He7
34. Hf5 Dg6
35. Dd4+ Kf8
36. Dh8+ Dg8
37. Dh5 Dg7
Hérna hættu keppendur að skrifa en
lokin hefðu getað orðið þessi: 38.
' Hg5 Dd4 39. Dh6+ Ke8 40. Hg8+ og
hvítur vinnu hrók. Skákin endaði síð-
an með sigri Þrastar.
Lestu
aðeins
sliömorbloðai?
DJÚÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjórnarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)81333
_______bridge_____
Stórmót ó Húsavík
Útlit er fyrir að hátt í 50 pör
taki þátt í 1. Opna Samvinnu-
ferða/Landsýn mótinu sem verð-
ur um þessa helgi á Húsavík. Er
það mjög góð þátttaka, miðað
við allar aðstæður. Spilamennska
hefst kl. 13 á laugardeginum og
verða spilaðar tvær umferðir þá
um daginn. Á sunnudeginum
verður spiluð ein umferð. Mótið
verður tölvureiknað og Sér Vig-
fús Pálsson um þá hlið mála.
Keppnisstjóri er Ólafur Lárus-
son.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Opið hús
22 pör mættu til leiks í Opnu
húsi sl. laugardag í Borgartúni
18. Spilaður var tvímenningur og
urðu úrslit þessi (efstu pör):
N/S:
Ragnar Björnsson
- Þórarinn Árnason 292 st.
Guðmundur Pétursson
- Magnús Torfason 248 st.
Hermenn Erlingsson
- Eymundur Sigurðsson 229 st.
Jón Ingi Björnsson
- Guðjón Jónsson 220 st.
A/V:
Guðjón Jónsson
- Friðrik Jónsson 263 st.
Baldur Árnason
- Sveinn Sigurgeirsson 263 st.
Albert Þorsteinsson
- Sigurður Emilsson 241 st.
Guðlaugur Sveinsson
- Róbert Sigurjónsson 228 st.
Meðalskor 216 stig í báðum áttum.
Enn á ný er minnt á það, að
regluleg spilamennska hefst kl.
13.30 (hálf-tvö). Öllu spilaáhug-
afólki svo og öðrum er gaman
hafa af leiknum, er velkomið að
vera með, í afslappaðri og rólegri
keppni.
Fró Bridge-
félagi Reykjavíkur
Eftir 5 umferðir af 9 í aðal-
sveitakeppni Bridgefélags
Reykjavíkur (32 spila leikir - 9
umferðir, Monrad) er staða efstu
sveita þessi:
1. sv. Delta 96 st.
2. sv. Ólafs Láruss. 91 st.
3. sv. Samv.ferða/Landsýn 89 st.
4. sv. Stefáns Pálssonar 88 st.
5. sv. Úrvals 86 st.
6. sv. Jóns Hjaltasonar 86 st.
7. sv. Torfa S. Gíslasonar 83 st.
8. sv. Páls Valdimarssonar 81 st.
Ekki verður spilað næsta mið-
vikudag, vegna Stofnanakeppni,
sem hefst næsta mánudag í Dom-
\ us, síðan á miðvikudeginum í
Hreyfli og lýkur annan mánudag í
Domus. Þar eru skráðar til leiks
24 sveitir.
Afmœlismót
Afmælismót Bridgefélags
Kópavogs, en félagið er 25 ára á
árinu, verður haldið 16. og 17.
nóv. nk. í Þinghól, Hamraborg
Mótið er tileinkað minningu
Kára Jónassonar sem um árabil
var í forystu félagsins en lést fyrir
nokkrum árum.
Spilaður verður barómeter,
þrjú spil milli para. Gert er ráð
fyrir 36 pörum. Góð verðlaun eru
í boði og spilað verður um silfur-
stig. Þátttökugjald er kr. 2000,-
pr. par. Mótið verður spilað í
þremur lotum; eftir hádegi á
laugardag, eftir kvöldmat á laug-
ardag og eftir hádegi á sunnudag.
Skráning í mótið er á spilakvöld-
um félagsins og hjá Gróu Jónat-
ansdóttur í síma 41794 (vinnusími
41570).
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga Rvík.
Eftir 6 umferðir í aðalsveita-
keppni deildarinnar, er staða
efstu sveita orðin þessi:
1. sv. Björns Hermannss. 125 st.
2. sv. Magnúsar Torfasonar 114 st.
3. sv. Hjálmars Pálssonar 101 st.
4. sv. Sigmars Jónssonar 98 st.
5. sv. Sigurðar Ámundasonar 97 st.
6. sv. Hildar Helgadóttur 93 st.
7. sv. Bernódusar Kristinss. 90 st.
8. sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 87 st.
Ný stjórn var nýlega kjörin hjá
deildinni, á almennum félags-
fundi fyrir skömmu. í henni eiga
sæti: Sigmar Jónsson formaður,
Karólína Sveinsdóttir, Guðni
Kolbeinsson, Hjálmar Pálsson,
Haukur Hannesson og Ólafur
Lárusson.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. nóvember 1985