Þjóðviljinn - 16.03.1986, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.03.1986, Qupperneq 10
Þegar við verður ég Skilnaður er stríð, sagði einn viðmælandi Þjóðvilj- ans þegar viðtölin sem birt eru í opnunni áttu sér stað. Þar segja þrjár manneskjur á miðjum aldri, tvær konur og einn karl, frá þeirri erf iðu reynslu aö ganga í gegnum skilnað eftir langt hjóna- band. Þessi viðtöl eru birt í þeirri von að þau verði ein- hverjum að liði sem stendur í skilnaði, sýni þeim að van- líðan þeirra er ekkert eins- dæmi heidur sameiginleg öllum þeim sem standa, oft- ast skyndilega, frammi fyrir þeirri staðreynd að hjóna- bandinu er lokið og allt er orðiðbreytt. Sálfræðingar segja að áfallið sem fólk verður fyrir við skilnað sé áþekkt því sem þeir lenda í sem missa maka sinn yfir móðuna miklu. Viðmælendur okkar segja allir þá sögu að um langa hríð komist ekkert annað að en skiln- . aðurinn. Endurminningarnar hrannast upp og gera fólki'ókleift að horfast í augu við lífið í nútíð- inni, hvað þá framtíðinni. Álagið á taugarnar er mikið og birtist oft í líkamlegri vanlíðan sem bætist ofan á þá andlegu. Viðmælendur okkar eiga það sameiginlegt að hafa leitað sér Áfallið sem fólk verðurfyrirvið skilnaðerjafn- mikið og við frá- fall maka. Og svo tekur eftirleikurinn við... aðstoðar í þrengingunum á nám- skeiðum sem félagsráðgjafarnir Sigrún Júlíusdóttir og Nanna K. Sigurðardóttir hafa haldið und- anfarin ár fyrir fólk sem stendur í skilnaði. Öll eru þau sammála um að þetta námskeið hafi hjálpað þeim og bent þeim á leið út úr þrengingunum. Þau voru í átta manna hópi og sex þeirra hafa haldið áfram að hittast reglulega eftir að námskeiðinu lauk. Þau hittast til að ræða málin og styðja hvert annað meðan þau eru að raða persónuleikanum og tilfinn- ingunum saman á nýjan leik. Hlutverkin breytast „Námskeiðin eru 12 tímar, sex kvöld á jafnmörgum vikum,“ sagði Sigrún þegar blaðamaður spurði hana um námskeiðin. „Við byggjum þau upp sem fræðslunámskeið, hvert kvöld hefst á stuttum fyrirlestri en síðan eru umræður. f fræðslunni göngum við út frá þeirri kenningu að allir þurfi einhvern tímann á lífsleiðinni að ganga í gegnum kreppu. Þar eru bæði á ferð það sem nefnist þroskakreppa og allir upplifa, td. kynþroskaskeiðið, og áfallakreppur, td. við skilnað, slys eða fráfall ástvinar. Þátttakendur í námskeiðunum verða að vera fráskildir að borði og sæng, þe. fluttir frá fyrrver- andi maka, og æskilegast er að nokkur tími sé liðinn frá skilnaði því meðan sjokkið er hvað sárast á fólk erfitt með að nýta sér fræðsluna. Við reynum að haga því þannig að fólk sé á mismun- andi stigi svo það geti miðlað reynslu sinni hvert til annars. Hóparnir eru litlir, 6-8 manns, en með því móti komast allir að. Við ræðum þá spurningu hvað skilnaður er í ljósi breyttra að- stæðna, hvernig ' híutverkin breytast, félagslega, tilfinninga- lega og kynferðislega, og afleið- ingar þess. Einnig ræðum við samskiptin við fyrrverandi maka, fjölskyldu og vini. hvað það þýðir að við erum allt í einu orðin ég. Börnin eru rauður þráður í nám- skeiðinu og við ræðum hvaða við- brögð við þeim geta talist heppi- leg og hver óheppileg. Loks ræðum við framtíðina og hugsan- lega nýja fjölskyldumyndun, stj úpfj ölskylduna. “ Mjallhvít í spilinu? „Stjúpfjölskyldan er reyndar efni í heilt námskeið og við höf- um auglýst slíkt námskeið. Það komu fjölmargar fyrirspurnir en þegar á hólminn var komið reyndist áhuginn vera minni. Það er eins og fólk skammist sín fyrir að vera í stjúpfjölskyldum, það er eins og vonda stjúpan í Mjallhvít svífi yfir vötnunum. Það er synd því víða erlendis, td. í Bandaríkj- unum, hefur komið í ljós að hægt er að koma miklu til leiðar með fræðslu. Og þörfin er mikil því í stjúpfjölskyldum koma oft upp margvísleg vandamál, ekki síst ef bæði hjónin eru fráskilin. Þessi skilnaðarnámskeið hafa verið feykivinsæl og svo gæti farið að við þyrftum að fjölga þeim. Við höfum breytt þeim og þróað og reynt að aðlaga þau hverjum hópi, td. eftir því á hvaða aldri börn þátttakenda eru,“ sagði Sig- rún. Hún bætti því reyndar við að það væri skömm að því hvernig búið væri af hálfu yfirvalda að ráðgjöf og aðstoð við fólk sem á í félagslegum og tilfinningalegum erfiðleikum. „Sjúkrasamlögin taka ekki þátt í kostnaði við slíka Eins og hjartað vœri rifið úr brjóstinu „Ég var að koma úr fríi utan- lands þegar maðurinn minn sagði mér frá því í bílnum á leiðinni frá Kef lavík að hann vildi skilnað. Þá hafði ég hafttilfinningalegan grun um að eitthvað væri að í hjónabandinu en vissi ekki hvað það var. Ég hafði reynt að finna út úr því og ma. fórum við hjónin til sálfræð- ings en það kom ekkert út úrþví. Þegar hann sagði þetta í bíln- um var það hræðilega sárt, það var eins og hjartað væri rifið úr brjósti mínu. Ég veit ekki hverju ég svaraði. Þetta var líkast raf- losti og ég gat ekki hugsað rökrétt í marga mánuði." Tók ó mig sökina „Ég komst að því að hann væri ástfanginn af annarri konu. Tveimur vikum síðar var hann fluttur út og í fyrstu vissi ég ekk- ert hvar hann bjó. Hins vegar varð ég þess vör að hann njósnaði um mig, það var oft hringt og hann notaði börnin til að afla frétta af mér. Það fannst mér verst því það þarf að leyfa þeim að átta sig á málunum sjálfum. Ég gat ekki talað við þau um skilnaðinn í fyrstu en þau tóku skiinaðinum afar illa. Erfiðast fannst þeim að sætta sig við að hann væri í tygjum við aðra konu. Hann reyndi líka að spilla á milli mín og barnanna. Við eitt barnið sagði hann að nýja konan væri bara vinkona en öðru sagði hann að hann hefði ákveðið að skilja við mig fyrir allmörgum árum, þe. rétt eftir að við gift- umst. Því þriðja að hann skamm- Rúmlega20ára hjónaband endaði með því að eigin- maðurinn varð ástfanginn afann- arrikonu aðist sín ekkert fyrir það sem hann hefði gert. Mér hefur flogið í hug að ef ég hefði hagað mér eins og hann og ekki tekið alla ábyrgðina sætu börnin mín kannski á Hlemmi núna. Þau höfðu alist upp við að allt væri í föstum skorðum. Nú talaði hann um að það væri allt í lagi að allir gerðu það sem þeir vildu án þess að taka tillit til annarra. Einnig reyndi hann að koma því inn hjá þeim að ég væri alkóhólisti. Reyndar drakk ég dálítið fyrst eftir skilnaðinn til að róa taugarn- ar. Þetta var svo erfitt, ekki síst vegna þess að ég tók á mig alla sökina á því hvernig fór.“ Gat ekki eldað „Þegar þetta kom upp var ég ekki að vinna, hafði reyndar ekk- ert unnið utan heimilisins í nokk- ur ár eða frá því yngsta barnið fæddist. Mér finnst mjög gott að ég gat verið hjá þeim og gefið þeim af sjálfri mér. Þannig var mitt uppeldi og ég naut góðrar verndar í æsku. Það er því miður allt of lítið um að mæður séu hjá börnum sínum núna, baráttan um peningana er svo hörð og fólk svo þreytt að það getur ekkert gefið börnum sínum. Fljótlega eftir skilnaðinn komu tvær vinkonur mínar, hvor á eftir annarri og bjuggu hjá mér. Það var mér mikil stoð því ég var svo illa farin að ég gat ekki einu sinni eldað mat. Ég var alveg lokuð og gat ekki rætt við neinn. Ég gekk um gólf nötrandi og hamaðist við að taka á mig alla ábyrgð á því hvernig fór. Eg fór til fjölskyldu- ráðgjafa sem sagði mér að taka mig saman í andlitinu og hætta að taka á mig sökina. Eftir nokkra mánuði fór ég á námskeið hjá Sigrúnu og Nönnu og hafði gott af því. Ég sótti einn- ig námskeið hjá Álfheiði og Guð- finnu og þar opnuðust augu mín fyrir því hvernig mismunandi uppeldi hafði mótað okkur hjón- in hvort á sinn hátt. Ég er úr fjöl- skyldu þar sem við ræðum okkar tilfinningar opinskátt og strax og þær bæra á sér. Stundum vorum við reyndar einum um of tilfinn- ingaleg. En hann er úr mjög lok- aðri fjölskyldu þar sem ekki er til siðs að ræða vandamál sín. Hann ýtti þeim alltaf á undan sér, reyndi að fela þau og ég átti að finna út sjálf hvað að honum amaði." Endurtekið mynstur „Ég reyndi að fá hann til að ræða vandamálin í hjónabandinu en það gekk illa. Hann neitaði alveg að ræða það að mismun- andi uppeldi gæti haft áhrif á samband okkar, sagðist ekki vilja sverta þá mynd sem hann hefði af foreldrum sínum. Ég sagðist ekki vilja að við yrðum eins og foreldr- ar hans og að hjónaband þeirra endurtæki sig hjá okkur í sömu mynd og án umhugsunar en hann vildi ekki horfast í augu við það. Þá varð mér hugsað til tengda- móður minnar, hún var brostin kona, engin útgeislun úr augun- um. Það merkilega við þetta var að nú er hann orðinn alveg eins og pabbi hans var. Núna er ég með yngsta barnið, hann er með miðbarnið en það elsta er farið að búa. Eins og ég nefndi áðan sagði hann börnun- um að ég væri alkóhólisti og hann reyndi mas. að koma því til leiðar að ég væri send í meðferð. Ég svaraði því til að ég þyrfti enga meðferð, það sem ég þarfnaðist mest væri heitur pottur því ég hafði svo mikla verki í öxlunum. Þeir fylgdu álaginu, áreynslpnni sem var sjokkinu samfara. Mað- ur hugsar svo mikið um fortíðina og um tíma var ég að því komin að hata hann en sagði þá við sjálfa mig að ég vildi ekki verða eins og tengdamamma. Hann talaði ekkert um skilnað- inn við yngsta barnið fyrr en hann var fluttur út. En þegar hann gerði það gerbreyttist barnið. Ég sá stóran mun á því þegar það kom aftur heim. Það var orðið svo dapurt.“ Starfsmenntun mikilvœg „Það vildi svo til að eftir skiln- aðinn fór ég á námskeið þar sem einmitt var fjallað mikið um sjokk. Það gerði mér auðveldara fyrir að vinna bug á sjokkinu sem ég varð fyrir. Ég var svo heppin að ég hef starfsmenntun og gat farið að vinna við mitt fag eftir að ég jafn- aði mig á skilnaðinum. Það er afar mikilvægt fyrir konur að læra eitthvað starf sem þeim finnst gaman að áður en þær giftast. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að konur eigi að vera heima hjá börnum sínum meðan þau eru lítil, ef þær geta. Það er um að gera að nota þessi ár með þeim, þau koma ekki aftur.“ Það hlióp steinsteypa í hjónabandið Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi: námskeiðin hafa verið feykivinsæl og svo kynni að fara að við þyrftum að halda þau oftar. aðstoð. Að þessu leyti erum við mörgum árum, ef ekki áratugum, á eftir öðrum þjóðum, td. Norðurlöndunum og Bandaríkj- unum,“ sagði Sigrún. Reyndar eru fíeiri einkaaðilar sem bjóða fram aðstoð sína við fólk sem á í erfiðleikum í hjóna- bandi. Þar má nefna sálfræðing- ana Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal en tveir af við- mælendum okkar leituðu til þeirra og bera þeim góða söguna. Þær eru bæði með námskeið, td. til að efla sjálfstraustið sem vana- lega gufar upp í skilnaðarkrepp- unni, og einnig einstaklingsráð- gjöf. —ÞH „Ég ertvískilin, gifti mig ung og skildi ung. í fyrra hjóna- bandinu eignaðist ég eitt barn. Fyrri maður minn erof- beldismaður sem veit ekki hvað hann gerir ef honum mislíkar. Samt var hann blíður og skilningsríkur þess á milli. Þannig skaphöfn er martröð að búa við, sérstaklega fyrir óharðnaða unglingsstúlku. Ég áleit hann geðveikan og varð hrædd. Þá fór ég til geð- læknis og eftir að hann hafði talað við manninn, sagði hann mér að þetta flokkaðist ekki undir geðveiki. Bætti síðan við: „ Við geðlæknar ráðleggj- um fólki aldrei skilnað, en í þínu tilfelli geri ég það.“ Þegar barnið óx úr grasi og fór að spyrja urn pabba sinn svaraði ég sem minnstu og reyndi að vera jákvæð. Ég sagði að fólk skildi af því að því kæmi illa saman, en svo ef það giftist öðrum væri allt í lagi og samkomulagið gæti orðið gott. Ég talaði gjarnan um það sem gott var í fari hans en neitaði að ræða hitt. Égsagði oft: „Þú kynn- ist pabba þínum betur sjálfur seinna og þá færðu þína mynd af honurn. Og mundu það að ég hefði aldrei gifst honum og átt þig ef mér hefði ekki líkað við hann. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson heldur hér á óafgreiddum skilnaðarbeiðnum en slíkum þeiðnum hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Mynd: Tíminn. Aukið vonleysi Séra Sigurður Haukur Guðjónsson: Fólk vinnurfrá morgni til kvöids tilþess að ná endum saman og gliðnarundan álaginu Séra Sigurður Haukur Guðjónsson sagði í viðtali við Þjóðviljann að lang mest áberandi orsökin fyrir hjónaskilnuðum væri þrældómur á fólki og erfiðleikar í húsnæðismálum væru mjög svo áber- andi. „Fólk vinnurfrá morgni til kvölds til þess að ná endum saman og undir þessu álagi gliðnarfólk ísundur. Þegar það hitt- ist þá nær það ekki að tala um annað en víxla og aðra reikninga. Þessarorsakir hjónaskilnaðar voru ekki eins algengar fyrir nokkrum árum. Vonleysið hefur aukist til muna, áður nægði fjölskyldu ein fyrirvinna en í dag nægja ekki tvær. Þessar orsakir eiga rætur sínar að rekja til þróun efnahagsmála í landinu. Þessir háu vextir sem hafa verið á öllum lánum hafa haft þær afleiðingar að fólk þrælar og þrælar en aldrei grynnkar á skuldunum. Svo eru þessir vextir réttlættir, að hluta, með því að þeir séu gamla fólkinu, helstu sparifjáreigendunum, til hagsbóta. Ég held að hér sé frekar verið að vernda hagsmuni annarra manna því ég hef ekki orðið var við það að gaml^ fólkið eigi sparifé. Efnahagslegir örðugleikar eru þannig meginorsök hjónaskilnaðar í dag. Drykkjuskapur og önnur óregla er oft af- leiðing þessara aðstæðna og verður til þess að auka lfkurnar á hjónaskilnaði enn frekar“. Önnur orsök sem Sigurður Haukur nefndi fyrir aukningu hjónaskilnaða er aukið frjálsræði í kynferðismálum. „Með því leikur fólk sér við eld, enda hefur margur brennt sig á því. Mér finnst þó að þetta sé að breytast, að fólk sé farið að átta sig á þessu“, sagði Sigurður Haukur. Þegar um sambúðarslit er að ræða þarf fólk ekki að hafa samband við presta eins og þegar um lögskilnað er að ræða. Fólk sem er að ganga í gegnum sambúðarslit leitar þó, að sögn Sigurðar Hauks, í auknum mæli til þeirra. „Vandi þessa fólks er mikill, og sérstaklega kvenna. Hlutur þeirra er illa varinn. Þær hafa kannski streðað í mörg ár en bera svo ekkert úr býtum. Sumum þeirra.hefur hreinlega verið kastað út af sínu eigin heimili án þess að geta nokkuð að gert. Þessu verður að breyta og allri þeirri þró- un sem miðar að því að brjóta heilu fjöl- skyldurnar upp“, sagði Sigurður Haukur að lokum. -K.ÓI. Eftirtveggja mán- aða fjarvistir komust hjóninað þvíað 10 ára hjónabandi vœri bestslitið Við áttum ekki skap saman.“ Ég veit svo vel núna að þetta var rétt. Börnin af seinna hjónabandinu eru eldri við skilnað og því erfið- ara að halda þeim utan við á- standið. En ég hef reynt eftir því sem ég hef mögulega getað að láta þau ekki verða vör við nei- kvæðni frá mér í garð pabba þeirra. Ég tel líka að þau eigi sið- ferðilegan rétt á því. Langvarandi erfiðleikar í seinna hjónabandinu höfðum við verið gift í 10 ár og búið við langvarandi sambúðarerfiðleika áður en við skildum. Það var þetta venjulega basl, of mikið vinnuálag, maður settist þreyttur fyrir framan sjónvarpið á kvöld- in, við stóðum í húsbyggingum og höfðum mjög ólík viðhorf til pen- ingamála. Útkoman varð sú að það hljóp steinsteypa í hjóna- bandið og við vorum ekki fær um að vinna á henni. Vegna atvinnu urðum við fjar- vista í tvo mánuði. Án þess að hafa skilnað í huga. Að þeim tíma liðnum gátum við ekki hugsað okkur annað en skilnað. Ég er á því að ef fólk er meðvitað um það hvert stefnir þá sé ekki rétt að bíða og sjá hverju fram vindur heldur ganga strax í að gera eitthvað af raunsæi í málunum. Þær Guðfinna Eydal og Álf- heiður Steinþórsdóttir halda góð námskeið fyrir fólk sem finnur að það er farið að halla undan fæti í hjónabandinu og ég held að það hefði hjálpað okkur mikið ef við hefðum getað komist að samkomulagi um að fara á slíkt námskeið. Þær eru líka með gott námskeið í barnauppeldi." Ólíkt uppeldi „Það sem kom í veg fyrir að við gætum leyst hnútana var fyrst og fremst hve ólík við vorum og hve ólíkt uppeldi okkar var. Hann var lokaður og ekki tilbúinn að ræða neitt, lagði frekar á flótta. Við reyndum oft að laga ástandið án þess að ræða það, eða ég reikna með að hann hafi reynt það líka. Skilnaðurinn og aðdragandi hans hafði mjög slæm áhrif á börnin sem eru tvö. Þau urðu á- rásargjörn, ofvirk, eirðarlaus og gengu bókstaflega um argandi. Þetta kom fram í skólanum þar sem þau voru annars hugar og störðu oft út í loftið tímunum saman. Áhrifin af skilnaðinum birtust ma. í teikningununr hjá yngri drengnuni. Hann fór allt í einu að teikna eintómar hryll- ingsmyndir í svörtu og gráu, oft- ast2augu með öngum út úrþeim. Nú er hann sem betur fer kominn í litagleðina aftur en skilnaðurinn mun þó eflaust hafa varanleg áhrif á börnin, um það er ekki hægt að dæma enn sem komið er. Það eru aðeins tvö ár síðan við skildum. Þau virðast þó hafa að mestu náð einbeitingu sinni og gleði aft- ur. Hjá yngra barninu eru þó enn nokkur taugaveiklunareinkenni. Ég efast ekki um að skilnaður var rétt ákvörðun. Mig hryllir við þeirri tilhugsun ef börnin hefðu þurft að búa við svona heimilisá- stand öll sín uppeldisár. Orkan búin Það er mikið álag að búa við langvarandi erfiðleika í hjóna- bandi. Áfengi hafði aldrei verið með í spilinu en eftir 6 ára sambúð lagði hann í fyrsta sinn hendur á mig. Ég áleit þetta tírna- bundna'Taugabilun og þraukaði því áfram. En hann vildi ekki fara til læknis og þetta ágerðist. Ákvörðunin um að hætta að reyna að bjarga hjónabandinu var erfið. Ég varð máttfarin og fór til læknis. Hann sagði mér að ég væri búin að ganga á orku- forða minn of lengi og að áfallið sem fólk yrði fyrir við skiinað væri jafnmikið og við fráfall maka. Eftirmálin gera skilnaðinn þó oft erfiðari. Ofan á allt bætist nagandi efi um það hvort maður hefði ekki getað gert hlutina öðruvísi. Forræðisdeilan um börnin var martröð. Ég var ekki vinnufær fyrsta árið, enda ærinn starfi að lagfæra ástand barnanna og byggja sjálfa mig upp þótt ekki bættist vinna ofan á. Ég tók þá ákvörðun að láta ekki vín inn fyrir mínar varir meðan á þessu gekk og stóð við það. Ég hef séð svo margt sorglegt gerast af völd- um vínsins þegar skilnaður er annars vegar." Beiskjan mannskemmandi „Annað sem ég einsetti mér var að vinna bug á beiskjunni í garð makans. Hún er ekkert ann- að en skentmd á manni sjálfum því manni líður sjálfum verst með hana. Ég held að fólk verði að eyða orku í það að sigrast á beiskjunni því hún eitrar líka út frá sér. Hins vegar gerði ég of mikið af því að loka mig af. Sjálfsvirðingin gufaði upp og af því ég var tví- skilin fannst mér ekki bara ann- ars flokks persóna heldur þriðja flokks. Ég gat ekki talað um vandann og lokaði á vinkonur mínar. Ég var ekki tilbúin að svara spurningum þeirra. Á þess- um tíma gerði ég rnikið af því að fara í bíltúra með börnin. Það var gott fyrir okkur öll og ýmislegt fleira gerðum við sameiginlegt. Ég hefði þurft að gera meira fyrir útlit mitt og drífa mig í að sinna áhugamálunum en ég hafði lítinn þrótt í það. Eftir árið fór ég á námskeið hjá Sigrúnu og Nönnu og það hjálp- aði mér mikið. Það opnar fyrir skilning á stöðunni og hjálpar manni að átta sig á viðbrögðum makans og annarra við ntanni sjálfum. Einnig opnar svona námskeið fyrir samskiptin við annað fólk, maður fer að geta tal- að um málin. Nú eftir tvö ár vantar enn að ég hafi alla fyrri drift og ég fresta hlutunum of mikið. Ég get orðið talað við vinkonur mínar en forð- ast þó að fara rnikið inn á niína erfiðleika. Það hefur hver nóg með sig. Auk þess er ég enn ekki tilbúin að ræða mín einkamál mjög náið, ég sé ekki að það þjóni neinum tilgangi. Ég fæ meira út úr því að tala við óvið- komandi, td. fjölskylduráðgjafa sem er bundinn þagnareiði en kemur með leiðandi spurningar sem hjálpa manni áleiðis. Slík samtöl styrkja persónuleikann og draga úr hættunni á uppgjöf." Frumstœðustu hvatir tóku völdin í sálinni „Ég var búinn að vera í hjóna- bandi í 17 ár þegar ég upp- götvaði að konan mín hafði haldið fram hjá mér í fjögur ár með vini okkar. Þetta var svakalegt sjokk og eiginlega ekki hægt að lýsa því. Það lýsti sér í ofboðslegri höfnun, bæði kynferðislegri og félags- legri og það blossaði upp í mér heift og hatur. Ég spurði migspurningaeinsog: hérert þú búinn að þjóna þessari fjöl- skyldu í allan þennan tíma og byggja upp fyrirtæki, hvers vegna gerðir þú það fyrir þessamanneskju? Þetta gerðist snemma sumars og næstu mánuðir fóru í að gera upp hug sinn. Ég var milli tveggja andstæðra skauta: annars vegar vildi ég reyna að halda hlutununi óbreyttum eins og þeir voru, hins vegar vildi ég fara í uppgjörið. Þessi togstreita var einna erfið- ust, þe. að gera það upp við sig hvort ég ætti að fara fram á skilnað. Þetta var um sumar og allir ráðgjafar í fríi og ég gat ekki leitað til minna nánustu um að- stoð og skilning. Vinir mínir og ættingjar höfðu enga reynslu af að standa í svona hlutum og þess vegna fannst mér þeir ekki vera færir um að hjálpa mér.“ Kafað í fortíðina „Þetta hatur sem ég nefndi það beindist ekki svo mjög að makan- Eftir i 7 ára hjóna- band kom íljós að eiginkonan hafði í 4 árhaldið við einn úr vinahópnum um heldur hinum karlmanninum. Mér fannst hann nærast á niður- lægingu minni og ég vildi helst ganga frá honum. Það var eins og frumstæðustu hvatir mannskepn- unnar næðu öllum völdum í sál- inni. Ég gat ekki hugsað um ann- að. Ég varð sljór og fór að kafa ofan í fortíðina, rifja upp hvert samtal. Ég var á þessum 17 árum búinn að venja mig af afbrýðis- seminni enda hafði aldrei komið neitt upp sem gaf tilefni ti! henn- ar, fyrr en þetta gerðist. Á þessum tíma fór ég að drekka heilt helvíti, rniklu meira en ég hafði gert áður. Það linaði þjáningarnar um tíma, hjálpaði mér að slaka á. En þegar til lengdar lætur viðheldur brenni- vínið óbreyttu ástandi, kyrrstöðu í tilfinningalífinu. Ég komst að því að ég varð að takast á við hlutinaedrú. Þaðvar mín gæfaað ég gekk í AA-samtökin. Þar hitti ég fyrir fólk sem margt hafði svip- aða reynslu og ég og sem þorði að tala um sínar tilfinningar. Þar lærði ég að tala um tilfinningar mínar og hlusta á tilfinningar annarra. Um haustið tók ég svo ákvörð- un um að skilja. Börnin voru þrjú og hún vildi halda þeim. Ég gerði ekki kröfu til þeirra, vildi ekki deila um þau. Samband mitt við börnin hefur verið gott en ég hef tekið eftir því að eftir skilnaðinn hættu þau að umgangast börn sem bjuggu með báðum foreldr- um sínum. Eins og af eðlisávísun leituðu þau uppi börn fráskilinna foreldra sem svipað var ástatt um og þau sjálf. Það var eins og þau væru að forðast að verða fyrir gagnrýni og aðkasti.“ Klofinn í marga þœfti „Fyrst eftir skilnaðinn hélt ég áfram að drekka og var ntjög upptekinn af sjálfum mér. Ég fór að berja utan mitt fyrra heimili um miðjar nætur og angra kon- una. Ég held að hún hafi gert sér grein fyrir því hverjar afleiðing- arnar af framhjáhaldinu yrðu, viðbrögð mín virtust ekki koma henni í opna skjöldu. Enda var ekki um annað að ræða, heiftin var svo mikil. Hún átti vinkonur sem tóku upp hanskann fyrir hana og þær afgreiddu mig með einu orði: karlrembusvín. Mér fannst það heldur ómakleg nafn- gift fyrir það eitt að ég hafði til- finningar. Eftir á hef ég svo reynt að taka á mig sökina. Það geri ég vegna þess að mér líður ekki vel í hefnd- inni, ég verð að brjóta hefndar- huginn á bak aftur. Og það er ekki hægt að bera hefndarhug út af einhverju sem er manni sjálf- um að kenna. Áhrifin af sjokkinu voru svo sterk að ég gat ekki sinnt neinu öðru en sjálfum mér, það komst ekkert annað að. Ég varð vilja- laus og sljór, starði út í loftið til- finningalega dofinn. í slíku á- standi gat ég lítið sinnt fyrirtæk- inu. Enda skiptu peningar engu máli þegar maður kepptist við að halda sjálfum sér í heilu lagi. Það var eins og ég klofnaði upp í marga þætti, það var ekki heil brú í persónuleikanum. Ég tók á- kvarðanir en stóð ekki við þær og varð alls ófær urn að gera áætlan- ir. Ég einangraðist félagslega og það náði enginn til mín. Nú er ég farinn að nálgast jörð- ina en fyrirtækið er á leið til and- skotans. Vaxtapólitíkin eins og hún er þolir ekki svona ástand. Það leið langur tími þangað til ég gat hugsað mér að standa í eigna- skiptum, ég var td. ekki fær um að meta þau áhrif sem skilnaður- inn hafði á fyrirtækið. Nú er ég nokkurn veginn kom- inn í tilfinningalegt jafnvægi og orðinn ég sjálfur aftur. Að vísu eru fjármálin í rusli og ég er orð- inn gjörbreyttur maður. Ég er ekki ungur lengur og ekki eins opinn fyrir öðru fólki og áður. Ég veit því ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, hvort og hvenær ég verð fær um að lifa tilfinningalífi með annarri manneskju. Fram- tíðin er óskrifað blað.“ 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. mars 1986 Sunnudagur 16. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.