Þjóðviljinn - 16.03.1986, Blaðsíða 16
Rocky IV
Stallone fékk
6.000 árslaun
Deng Hsiao-ping
Kvikmyndaleikarar í Holly-
wood eru stjörnur ma. í þeim
skilningi aö þeirfásumir
hverjirstjarnfræðilega há laun
fyrir leik sinn. Frá því var ný-
lega greint í bandarísku tíma-
riti aö það tæki leiðtoga
stærstu þjóðarveraldar,
Deng Hsiao-ping hinn kín-
verska, sex þúsund ár að
vinna fyrir þeirri upphæð sem
Sylvester Stallone fær fyrir að
leika i einni kvikmynd.
Deng Hsiao-ping — 2.000 dollara á ári.
Sylvester Stallone — 12 miljónir dollara á mynd auk ágóðahlutar.
Stallone lék í tveim myndum
sem frumsýndar voru á síðasta
ári, Rambo og Rocky IV, ogfékk
að launum 12 miljónir dollara —
uþb. hálfan miíjarð íslenskra
króna — fyrir hvora mynd. Auk
þess samdi hann um ágóðahlut af
Rocky IV sem gæti hækkað upp-
hæðina í 20 miljónir. Stallone er
langsamlega hæst launaði leikar-
inn í Hoilywood um þessar
mundir, hann fær allt að heimingi
hærri laun en þeir sem koma hon-
um næstir.
Stallone hefur þó enn ekki
slegið Marlon Brando við. Hann
þáði 3,7 miljónir dollara og
ágóðahlut til viðbótar fyrir að
birtast í 20 mínútur á tjaldinu í
myndinni Superman.
Næstir koma Robert Redford,
Dustin Hoffman og Warren Be-
atty sem þiggja 6 miljónir dollara
fyrir hverja mynd sem þeir leika
í. í 5 miljóna flokknum eru svo
Jack Nicholson og Eddie Murphy
en sú kona sem ber mest úr být-
um fyrir kvikmyndaieik er Meryl
Streep. Hún fékk 3 miljónir doll-
ara fyrir leik sinn í Out of Africa
sem fjallar um dönsku skáldkon-
una Karen Blixen.
Meryl Streep — 3 miljónir dollara á
mynd, enda kona.
Karlar trekkja,
segja framleiðendur
Það viðgengst mikið launamis-
rétti milli kynja í Hollywood eins
og sést á því að Streep sem leikur
aðalhlutverkið í Out of Africa er
aðeins hálfdrættingur á við Ro-
bert Redford sem leikur stærsta
karlhlutverk myndarinnar. Samt
er hlutverk Streep miklu veiga-
meira og hún hefur verið útnefnd
Dustin Hoffman — 6 miljónir dollara á
mynd auk ríflegs ágóðahlutar.
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn
en ekki Redford.
Þær konur sem næstar koma í
tekjum eru Goldie Hawn sem fær
3 miljónir dollara fyrir hverja
mynd en í tveggja miljóna
flokknum eru Shirley MacLaine,
Sally Field, Jane Fonda, Kath-
leen Turner og Jessica Lange.
Það er gamalt orðtæki í Holly-
wood að það séu fyrst og fremst
karlmenn sem dragi fólk í bíó.
Goldie Hawn — 3 miljónir dollara á
mynd.
Þetta endurspeglast í því að 69%
hlutverka í kvikmyndum þar sem
leikarar fara með einhvern texta
falla körlum í skaut en 31% kon-
um. Karlar hafa því úr helmingi
fleiri rullum að moða og gott bet-
ur.
Konur hafa fleiri skýringar á
þessu misrétti á takteinum.
Fjármagnið sem kvikmyndafyrir-
tæki hafa úr að spila kemur mest
frá körlum og þeir treysta konum
Jack Nicholson — 5 miljónir dollara á
mynd.
síður til að stjórna dýrum mynd-
um. „Það er sjaldgæft að konur
fái að stjórna myndum sem kosta
meira en 5 miljónir dollara,"
segir Barbara Klein kvikmynda-
framleiðandi. Hún er hins vegar
alveg ósammála þeim sem segja
að einungis karlar dragi fólk í bíó.
„Ég er viss um að fólk kemur til
að sjá Shirley MacLaine, Jane
Fonda og Meryl Streep þótt engir
karlar séu í aðalhlutverkum, rétt
eins og fólk flykktist í bíó hér á
árum áður til að sjá Judy Gar-
land, June Allyson og Lönu
Turner.
Harður bransi
Færri hlutverk þýðir meiri
samkeppni og þar af leiðir að
konur verða að sætta sig við lægri
laun. Auk þess bendir stéttarfé-
lag leikara í Hollywood á að kon-
ur þéni mest séu þær undir þrí-
tugu eða yfir áttræðu. Karlar eru
hins vegar best launaðir á aldrin-
um 40-80 ára og hafa því lengri
starfsaldur.
Kvikmyndagerð í Hollywood
er harður bransi og leikarar eiga á
hættu snöggt gengisfall ef þeir
leika í myndum sem ekki trekkja
nóg. Einn þeirra sem hefur orðið
fyrir slíku er kyntröllið Burt
Reynolds. Hann varð fyrsti
leikarinn sem rauf fimm miljón
dollara múrinn árið 1980 þegar
hann lék í myndinni Cannonball.
En á síðustu þremur árum hefur
stjarnan hans hnigið og launin
sömuleiðis.
Og ekki eru aliir stjörnur í
Hollywood, því fer fjarri. í stétt-
arfélagi leikara eru 60.000 félags-
rnenn og 70% þeirra hafa innan
við 2.000 dollara (85.000 kr.) í
árstekjur fyrir kvikmyndaleik.
—ÞH/reuter
Marfumynd
Skotvopnum beitt gegn mynd Godards
Kaþólikkar í Brasilíu siguðu vopnuðum lögreglumönnum á Maríumynd Godards enda telja þeir at og frá að heilög mey
hafi leikið körfubolta meðan hún var og hét.
Enn heldur franski kvikmynda-
leikstjórinn Jean-Luc Godard
áfram að valda hugarangri mcðal
íhaldsmanna heimsins. Nýjasta
mynd hans, Ég heilsa þér María,
sem sýnd var á kvikmyndahátíð
hér á landi í fyrra, veldur íhalds-
sömum kaþólikkum miklum and-
vökum og undanfarið hafa staðið
deilur um myndina í Brasilíu.
Fyrir skömmu þurftu lögreglu-
menn að beita skotvopnum til að
koma í veg fyrir sýningu myndar-
innar í kaþólskum háskóla í Sao
Paulo. Stúdentar höfðu reynt að
gera að engu tilraunir lögreglu-
manna til að stöðva sýninguna.
Engan sakaði þó í átökunum.
Forseti Brasilíu, Jose Sarney,
lét í síðasta mánuði undan þrýst-
ingi kaþólsku kirkjunnar og
bannaði sýningar á Maríumynd
Godards. Héraðsdómari í Sao
Paulo leyfði síðar sýningar á
myndinni um tíma en alríkis-
dómstóll ógilti svo þann úrskurð.
íhaldssamir kajjólikkar hafa
það út á myndina að setja að hún
brjóti í bága við túlkun kristinnar
kirkju á meyfæðingunni.
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN