Þjóðviljinn - 16.03.1986, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 16.03.1986, Qupperneq 15
„Afstaða mín til utanríkismála hefur fyrst og fremst mótast af umhugsuninni um stöðu smá- þjóðanna og nauðsyn þess að tryggja sjálfstæði þeirra. “ Svo sagöi Olof Palme forsæt- isráðherra Svíþjóðar í viðtali sem Magnús Kjartansson átti við hann og birtist hér í Þjóð- viljanum 10. febrúar 1970. Þá daga stóðu yfir fundir Norður- landaráðs í Reykjavík og Magnús segir í inngangi, að ekki fari á milli mála að Olof Palme sé sá stjórnmálamað- ur sem mest sé tekið eftir á þeimvettvangi, en þá varekki langt um liðið síðan hann tók við embætti forsætisráðherra. Magnús Kjartansson og Olof Palme ræðast við. Að upprœta stéttamun og bœta stöðu smáþjóða... í viðtalinu er Palme spurður um mat hans á þeim þjóðfélags- breytingum sem flokkur hans hefur staðið að í Svíþjóð, á næstu verkefnum og á utanríkismálum. Viðtalið fer hér á eftir nokkuð stytt - sleppt er spurningum og svörum um Efnahagsbandalag Norðurlanda, Nordek, sem þá var á döfinni og um nýafstaðin verkföll námumanna í Kiruna. Þjóðnýtingar? - Þið sósíaldemókratar hafið lengi farið með völd í Svíþjóð og framkvæmt miklar þjóðfélags- legar breytingar. Engu að síður eru atvinnufyrirtækin að mestu leyti í höndum einstaklinga; þið hafið ekki framkvæmt neina verulega þjóðnýtingu. Hafið þið ekki í hyggju að breyta þeirri af- stöðu? - Það er rétt að við höfum ekki framkvæmt víðtæka þjóðnýt- ingu. Við höfum lagt megin- áherslu á hitt að ná valdi á hag- stjórnartækjunum, svo að við hefðum með því móti tök á hag- þróuninni. Við teljum, að okkur hafi tekist þetta, þannig að við höfum upprætt stjórnleysi kapítalismans og tryggt yfirráð hinna félagslegu sjónarmiða. Vissulega er eignarrétturinn mikilvægur, en við teljum sjálfa hagstjórnina mun áhrifameira atriði. Við höfum hins vegar þjóðnýtt og munum halda því áfram að þjóðnýta fyrirtæki sem ekki falla að hinu almenna hag- stjórnarkerfi okkar; nú erum við til dæmis að þjóðnýta lyfjaversl- unina alla og ýmis fleiri fyrirtæki. Framtíðar- verkefni - Enda þótt þér séuð ánægður með margt það sem flokkur yðar hefur fengið áorkað, hljótið þér að vera óánægður með ýmislegt. Á hvaða sviði teljið þér að sænsk- um sósíaldemókrötum hafi mis- tekist mest? - Auðvitað hefur okkur mis- tekist á ýmsum sviðum, en ég held að það sé rangt að standa í slíkum reikningsskilum við for- tíðina. Það er ekki fortíðin sem skiptir máli, heldur þau vanda- mál sem framundan bíða og í við- horfi okkar til þeirra birtist auðvitað mat á því sem betur hefði mátt fara áður. Ég hef lagt áherslu á þrjú framtíðarverkefni sem ég tel mikilvægust. í fyrsta lagi tel ég að við verð- um að kanna sérstaklega félags- legar afleiðingar tækniþróunar- innar, eins og hún birtist í hag- ræðingu, framleiðni, auknu vinn- uálagi, firringu o.s.frv. Við þurf- um að tryggja það í verki að mannleg sjónarmið ráði ævinlega yfir tækniþróuninni. Einmitt verkfallið í Kiruna sem við rædd- um um áðan er dæmi um and- stæður sem geta risið milli tækni- þróunar og mannlegra sjónar- miða. í annan stað verðum við að leggja áherslu á að uppræta stétt- amun í Svíþjóð og tryggja öllum þegnum sívaxandi jöfnuð. Þriðja meginverkefnið er lýð- ræðisleg þróun í atvinnulífinu, vaxandi ákvörðunarréttur launa- fólks innan fyrirtækja. Þetta við- fangsefni verður aðalverkefnið á þingi sænska alþýðusambandsins á næsta ári, og flokkur okkar mun leggja megináherslu á að hug- myndir verkafólks á þessu sviði nái fram að ganga. Jafnrétti og menntun - Þér hafið verið menntamála- ráðherra og hafið mikinn áhuga á þeim málum. Ætlið þið að halda áfram að lengja skyldunámið í Svíþjóð, og hvernig er ástandið að því er varðar jafnrétti til menntunar? - Skyldunámið í Svíþjóð er nú 9 ár fyrir alla, og 90% ungs fólks stundar nám í 11-12 ár. Við telj- um nú að ekki sé unnt að Iengja námstíma ungs fólks meira, af því myndi hljótast einangrun frá at- vinnuiífinu. Þess í stað teljum við Viðtalsem Magnús Kjartansson átti við OlofPaime áNorðurlanda- ráðsþingií Reykjavík 1970 að leggja þurfi áherslu á að fólk haldi áfram að mennta sig eftir að það hefur hafið störf og við ein- beitum okkur nú að því að byggja upp skólakerfi fyrir fullorðna, þar sem menn geta stundað fram- haldsnám eða aflað sér þekkingar á nýjum sviðum í samræmi við breyttar aðstæður. Slíkt skóla- kerfi fyrir fullorðna tel ég afar mikilvægt á þeirri öld vísinda og tækni og örra breytinga á at- vinnuháttum, sem við lifum nú. Jafnrétti til nienntunar hefur aukist mjög í Svþjóð, en þó er mikið ógert á því sviði. Nernend- ur veljast enn allt of mikið til háskólanámseftirstéttum; hlutur verkafólks er til muna of smár þótt hann hafi aukist. Einnig á þessu viði bíður okkar það óhjá- kvæmilega verkefni að tryggja fullt jafnrétti til menntunar, þannig að hæfileikar og áhugi skeri úr, en ekki stéttaaðstæður og fjárhagur foreldra. - Hér á íslandi hafa að undan- förnu orðið nokkrar umræður um sérskóla eða samskóla fyrir stúlk- ur og pilta í tilefni af hugmyndum um að stofna sértakan kvenna- menntaskóla. Hver er afstaða yðar til slíkra skóla? - Ég er gersamlega andvígur sérskólum eftir kynferði, og tel það vera stórmál að piltar og stúlkur séu algerir jafningjar í skólakerfinu. Það er eitt þeirra verkefna sem bíða okkar að jafna aðstöðu kvenna og karla í þjóðfé- laginu og í því sambandi eru sam- skólar grundvallaratriði, en sér- skólar eftir kynferði leifar frá fortíðinni. Við lítum þetta mál svo alvarlegum augum að við höf- um rætt um að setja um það regl- ur, að taka verði jafn margar stúlkur og pilta inn í þá skóla sem. aðgangur er takmarkaður að. Víetnam og Tékkóslóvakía - Utanríkisstefna Svía hefur vakið mikla athygli og deilur, - og nú um skeið hefur verið kalt á milli sænskra og bandarískra stjórnvalda. Hefursá ágreiningur einnig haft áhrif á viðskipti land- anna? - Sænska stjórnin hefur lýst á- kveðinni skoðun á styrjöldinni í Víetnam. Sú skoðun er ekki sprottin af neinum fjandskap í garð Bandaríkjanna, heldur vilj- um við styðja baráttu Víetnama fyrir frelsi og sjálfstæði og mótum stefnu okkar í samræmi við það. Þessi stefna er afdráttarlaus og við hana stöndum við, enda þótt bandarískum stjórnarvöldum og öðrum kunni að mislíka hún. En ég held að þessi ágreiningur hafi ekki haft mikil áhrif á viðskipti okkar og Bandaríkjanna. - Er staða smáþjóðanna ekki alvarlegt og örlagaríkt vandamál um þessar mundir, þegar hernað- arbandalög stórvelda og ó- mennskar efnahagssamsteypur teygja griparma sína um veröld- ina? - Jú, ég er sammála yður um það að þetta er mjög örlagaríkt vandamál. Raunar get ég sagt að afstaða mín til utanríkismála hef- ur fyrst og fremst mótast af um- hugsuninni um stöðu smáþjóð- anna og nauðsyn þess að tryggja sjálfstæði þeirra. Það er þetta viðhorf sem olli því hverja af- stöðu ég tók til styrjaldarinnar í Víetnam og atburðanna í Tékk- óslóvakíu. Það hefur verið og er mikil hætta á því að stórveldin reyni að skipta heiminum á milli sín í áhrifasvæði og leysa vanda- mál sín á kostnað smáríkjanna. Því er mikil nauðsyn að lina tök hernaðarbandalaganna t.d. í Evrópu og koma í staðinn á eðli- legum samskiptum austurs og vesturs. Á þessu er nú vaxandi skilningur; m.a. bind ég miklar vonir við að nýja stjórnin í Vestur-Þýskalandi geti stuölað að slíkri þróun. Að lina tök hernaðar- bandalaga - Gæti ráðstefna um öryggi Evrópu, sem Varsjárbandalags- ríkin hafa gert tillögu um, stuðlað að slíkri þróun? - Við höfum stutt hugmyndina um öryggisráðstefnu sem fjalli um vandamál Evrópuríkja. En að sjálfsögðu fer gildi hennar eftir því hvernig haldið verður á málum. Slíka ráðstefnu væri hægt að nota til þess að festa í sessi skiptingu Evrópu eftir hernaðar- bandalögum, en einnig væri hægt að nota hana til þess að lina þau tök, og það teljum við að beri að gera. En þá er forsendan sú að fundin verði lausn á þeim deilu- málum sem nú valda viðsjám í Evrópu. Á meðan deilumál eru óleyst og stórveldin standa and- spænis hvort öðru með hin miklu völd sín að bakhjarli beita þau aga í liði sínu eftir ýmsum leiðum og sjálfsákvörðunarréttur smá- ríkjanna skerðist. Takist að leysa deilumálin dregur úr þenslu «g sjálfræðið mun aukast að sama skapi. Við teljum að smáþjóðirnar hafi mikið gildi og að fordæmi þeirra geti haft heillavænleg áhrif á þróun heimsmála. Einnig þess vegna bindum við miklar vonir við Efnahagsbandalag Norður- landa. Það á að auka sjálfstæði Norðurlanda og veita þeim meiri styrk í samskiptum við aðra, en slíkt framtak Norðurlanda verð- ur einnig stuðningur við aðrar smáþjóðir. M.K. Sunnudagur 16. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.