Þjóðviljinn - 03.04.1986, Blaðsíða 1
LANDSBYGGÐIN
HEIMURINN
ÞJÓÐMÁL
Nesjavellir
Framkvæmdum verði frestað
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins: Kannað verði hvort hagkvœmt er að nýta
umframorkufrá Landsvirkjun til húshitunar íReykjavík. Framkvœmdum við
Nesjavelli verðifrestað á meðan. Hugsanlega gífurlegur sparnaður
Meðan menn trúðu því að
orkuskortur væri fyrirsjáan-
legur var einhugur um að stefna
að því að virkja á Nesjavöllum, en
nú hefur annað komið í ljós og því
sjálfsagt að kanna hvort ekki eru
aðrir möguleikar og leiðir til að
spara verulega fjármuni, sagði
Sigurjón Pétursson borgarfull-
trúi í samtali við Þjóðviljann I
gær.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins munu leggja fram tillögu í
borgarstjórn í kvöld þess efnis að
virkjunarframkvæmdum á
Nesjavöllum verði frestað meðan
kannað verði hvort ekki er hag-
kvæmt að nýta umframorku frá
Landsvirkjun til kyndingar í
Reykjavík. Lagt er til að teknar
verði upp nú þegar viðræður við
stjórn Landsvirkjunar um hugs-
anlegt verð á þessari orku, sem
nú fer í súginn.
Hugmyndin er sú að hita frá-
rennslisvatn frá Hitaveitu
Reykjavíkur með þessari unt-
framorku og mæta þannig
aukningu í húshitun næstu ára.
Sigurjón sagði í gær að líklega
myndi 100 MW rafskautsvirkjun
kosta um 150 miljónir króna, en
til samanburðar má geta þess að
stofnkostnaður minnsta hugsan-
lega áfanga Nesjavallavirkjunar
yrði um 2 miljarðar króna. „Það
er ótvírætt í þjóðarhag ef unnt er
að nýta þessa orku og það er
nauðsynlegt að þessir möguleikar
verði kannaðir," sagði Sigurjón í
gær.
- gg
Sprengjuútkall
Saga rýmd
Hótel Saga var rýmd vegna
sprengjuhótunar kl. 18 í gær.
Hafði unglingur hringt og til-
kynnt að sprengja væri í húsinu
og að hún myndi springa innan
fjórtán mínútna. Lögreglan
mætti á staðinn en fann enga
sprengju og um sjöleytið var allt
aftur komið í eðlilegt horf.
Að sögn Einars Bjarnasonar
varðstjóra, virðast svona
sprengjuhótanir hafa færst mjög í
aukana. í fyrradag var tilkynnt
um sprengju við bandaríska
sendiráðið. Reyndist það einnig
gabb. Sagði Einar að svona til-
kynningar kæmu nú minnst viku-
lega. Þrátt fyrir það að enn hafi
ekki alvara verið á ferðum, tekur
lögreglan allar svona tilkynning-
ar alvarlega.
- Sáf
Gabb
Ráðheirar
hlupu apríl
Aprílgabb sjónvarpsins um
aukin bflafríðindi bankastjóra og
ráðherra náði tilætluðum árang-
ri, að minnsta kosti í hópi ráð-
herra. Ekki hafði ÓlafurSigurðs-
son fréttamaður fyrr lokið lestri
pistils síns í fréttatímanum, þegar
sá fyrsti hringdi. Það var Albert
Guðmundsson sem ekki hafði
skilið gabbið, og vildi koma
leiðréttingu á framfæri. Skömmu
síðar hringdi svo Þorsteinn Páls-
son, og vildi fá nánari fregnir af
frétt sjónvarpsins. Hann hafði þá
komið heim til sín, þar sem
strengileg skilaboð frá fimm ráð-
herrum biðu hans um að hafa taf-
arlaust samband! Ráðherrarnir
bitu sumsé á agnið.
í fyrrakvöld var svo dagskrá
sjónvarpsins rofin til að segja frá
og birta myndir af kafbáti sem
strandaði í Hvalfirði. Skipverj-
arnir höfðu, að sögn Ögmundar
Jónassonar fréttamanns yfirgefið
kafbátinn og væri þeirra ákaft
leitað. Fjölmargir höfðu sam-
band við sjónvarpið og kváðust
hafa séð skuggalega rússa hér og
hvar um landið. Hlupu margir
áhorfendur apríl þetta kvöld -
auk óbreyttra ráðherra.
-óg
Álverið
Tvöfélög
felldu
Mjótí á mununum hjá
öðrum. Deilt um gildis-
tíma samningsins
Tvö félög felldu nýgerða kjara-
samninga í álverinu í Straumsvík.
Það voru Verkamannafclagið
Hlíf, sem greiddi atkvæði um
samningana á þriðjudag og Versl-
unarmannafélag Hafnarfjarðar
sem felldi í gær. Önnur félög sam-
þykktu samningana við ísal þó yf-
irleitt væri mjög mjótt á munun-
um, yfirleitt um tveggja til fjög-
urra atkvæða munur.
Það sem starfsmenn álversins
eiga erfitt með að sætta sig við, er
að samningurinn skuli ekki gilda
frá 1. janúar er samningar voru
lausir, heldur gildir hann frá 26.
febrúar er ASÍ og atvinnurek-
endur undirrituðu sinn samning í
Garðastræti. Reyndar hafa
starfsmenn vilyrði frá stjórnend-
um fsal urn að greitt verði eftir
nýgerðum kjarasamning frá 1. fe-
brúar.
Óljóst er hvað tekur við hjá
Hlífarmönnum og félags-
mönnunt í Verslunarmannafé-
laginu. Enn hafa engar viðræður
við ísal verið ákveðnar.
- Sáf
Kátt í Kópaseli
Blaðamenn Þjóðviljans gerðu stuttan stans á einu botna. Krakkarnir stilltu sér upp í rennibrautinm,
af dagvistarheimilum Kópavogs fyrir skömmu, en en frá þessu merkilega heimili segir nánar í Þjóð-
það er staðsett inn á milli fjallanna við Lækjar- viljanum eftir helgi. Ljósm. E.ÓI.
Skokk
Að hlaupa
til að hlaupa
Peking - Þrír kínverskir verka-
menn frá bænum Shenyang í
norðausturhluta Kína hlupu fyrir
nokkru 2100 km til þess að taka
þátt í maraþonhlaupi í suðvest-
urhluta Kína.
Verkamennirnir lögðu af stað í
hríðarkófi eftir vinnu og hlupu að
meðaltali rúma 60 kílómetra á
dag til þess að komast nógu
snemma tilbæjarins Chengdu þar
sem fram á að fara maraþonhlaup
á vegum alþjóða ólympíunefnd-
arinnar. Þeir eru komnir til
Chengdu til að hlaupa smáspotta,
42 km á laugardaginn kemur.
Ekki er vitað hvort þeir ætla að
hlaupa til baka.
- IH/Reuter