Þjóðviljinn - 03.04.1986, Page 2
_______________________FRÉTTIR___________
Eftirstöðvabréfin
Hugsanlega gripið inní
Félagsmálaráðherra lœtur athuga hvortstjórnvöld eigi að
tryggja lœkkun á20% bréfunum tilsamrœmis við hœstu
lögleyfðu vexti
Mér fínnst þetta mál þess eðlis
að rétt sé að kanna hvort
stjórnvöld eigi að grípa þarna
inní, sagði Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra í samtali við
Þjóðviljann í gær, aðspurður
hvort stjórnvöld myndu láta það
afskiptalaust að innheimtir væru
raunvextir langt umfram hæstu
lögleyfilegu vexti af eftirstöðvar-
bréfum vegna íbúðakaupa sem
gefín hafa verið út á síðustu árum
og bera fasta 20% vexti.
Eftir að hæstu útlánsvextir
voru lækkaðir á þriðjudag í
15.5% er ljóst að áðurnefnd eftir-
stöðvabréf munu bera allt að
10% raunvexti síðar á árinu lækki
verðbólgan eins og spár gera ráð
fyrir.
Félagsmálaráðherra sagði í gær
að hann hefði falið nokkrum sér-
fræðingum að kanna þessi mál.
- Það er vissulega óréttlátt ef
það er bundið í samningum að
vextirnir hreyfist ekki í samræmi
við hæstu vexti hverju sinni og ef
þeir menn sem ég hef falið að
kanna málið telja rök hníga að
því að stjórnvöld grípi þarna inní,
þá verður það tekið fyrir, sagði
Alexander. - lg.
Hlaupi þeir sem oftast og sem
allra lengst.
Alþýðubankinn
Gömlu línumar njóti sín
Innréttingu Alþýðubankans breytt. Gamlarskreytingarfráþriðjaáratugnumfá
að njóta sín aftur. Ólafur Ottósson: Aukin umsvif kalla á breytingu. Haukur
Viktorsson: Tilgangurinn að opna bankann
Alþýðubankinn við Laugaveg
fær andlitsupplyftingu um
þessar mundir. Er verið að
innrétta bankann upp á nýtt og er
leitast við að láta gamlar
skreytingar í lofti og við hurðar
njóta sín. Eru sumar þessar
skreytingar jafn gamlar húsinu,
eða frá 1927.
Að sögn Ólafs Ottóssonar, að-
stoðarbankastjóra, er ráðist í
þessar framkvæmdir nú vegna
þess að mikil aukning hefur átt
sér stað í starfsemi bankans, auk
þess sem verið er að breyta um
afgreiðsiustíl með tölvuvæðing-
unni. Framvegis verður af-
greiðslan á tveim hæðum en á
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni hjá Iðn-
tæknistofnun:
Málmtæknideild
7.-11. apríl Hlífðargassuða: MIG/MAG-suða.
14.-18. apríl Hlífðargassuða: TIG-suða.
Raftæknideild
14.-16. apríl Örtölvutækni I. - Grunnnámskeið -
Innri bygging örgjörva (8088), forritun á
véla- og smalamáli (assembler). Nám-
skeið ætlað tæknimönnum.
Rekstrartæknideild
þriðju hæð verða skrifstofur fyrir
bankastjórn og lögfræðinga
bankans.
Upphaflega var Vefnaðar-
vöruverslun Marteins Einars-
sonar í húsinu, allt fram á sjö-
unda áratuginn og þegar ráðist
var í breytingarnar núna var
ákveðið að láta gömlu skreyting-
arnar njóta sín.
Haukur Viktorsson er arkitekt
að breytingunum. Hann sagði í
samtali við Þjóðviljann að við
þessar breytingar hefði í sjálfu sér
ekkert nýtt komið í ljós en hins-
vegar væri reynt að láta gömlu
skreytingarnar njóta sín. „Við
reynum að ná fram línunum í hús-
inu.“
Gamiar hurðar hússins hafa
verið geymdar og verða þær nú
settar aftur á hjarirnar þar sem
því verður komið við. Þá fær
gamall stigi í húsinu að njóta sín.
Loftin á þriðju hæð eru hvert
með sínu lagi og er reynt að láta
þau öll halda sér. Afgreiðslusal-
irnir verða málaðir hvítir og stillt
upp skilrúmum. „Tilgangurinn er
að opna bankann,“ sagði Haukur
að lokum.
- Sáf
Huld Ruth starfsmaður hjá lögfræðingi Alþýðubankans við Laugaveg sýnir
blaðamanni skreytingarnar í loftinu. Sannarlega þess verðar að fá að prýða
húsakynnin áfram. Ljósm. E.ÓI.
Laxinn
Fiskeldi
Fjórar
28. apríl
kl. 13-17
20.-30. apríl
kl. 13-17
2. maí
kl. 9-16
5. apríl
7. apríl
14.-17. apríl
21. apríl
Gæðahringir I. - Námskeið ætlað
stjórnendum fyrirtækja.
Gæðahringir II. - Námskeið ætlað
deildar- og verkstjórum fyritækja. Nánari
upplýsingar veitir Haukur Alfreðsson
deildarstjóri.
Fræðslumiðstöð iðnaðarins
Stýritækni - Loftstýringar. Nám-
skeiðið hefst laugardaginn 5. apríl. Hald-
ið í Vélskóla íslands.
Grunnnámskeið í rafsuðu. Námskeið-
ið hefst mánudaginn 7. apríl. Haldið í
Iðnskólanum í Peykjavík.
Verkstjórnarfræðslan
Stjórnun 2. Haldið í Reykjavík. Farið
yfir undirstöðuatriði í verktilsögn og fyrir-
mælum. Stjórnun breytinga og hegðun
einstaklinga við vinnu.
Vinnuvélanámskeiðin
Námskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla.
Haldið í Reykjavík. Hefst 21. apríl.
Innritun stendur yfir.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntæknistofnunar,
Keldnaholti, nema annað sé tekið fram. Upplýsingar um innritun hjá
stofnuninni í síma (91)68-7000.
Geymið auglýsinguna
stórkvíar
Þriðja besta
laxveiðiárið
66.313 laxar veiddust sl. ár
Samkvæmt upplýsingum Veiði-
málastofnunar var laxveiðin
sl. ár 14% meiri en árlegt meðal-
tal 10 ára þar áður og fjórðungi
betri en meðaltal síðustu 20 ára.
Arið var þriðja laxveiðiár hér-
lendis.
Alls veiddust 66.313 laxar.
Heildarþungi þeirra var 216.589
kg en meðalþunginn 3,3 kg aðeins
undir meðallagi.
Veruleg umskipti urðu til hins
betra sl. sumar í laxagengd víðs-
vegar um land miðað við síðustu
5 árin þar áður. Lægðina í lax-
veiðinni má að mestu rekja til
köldu áranna þriggja, 1979, 1981
og 1983, en þau hafa fengið sam-
heitið köldustu ár aldarinnar.
Laxveiðin sl. ár var hæg í upphafi
veiðitímans, öfugt við það sem
gerðist 1984, en glæddist er árs-
fiskur úr sjó (smálaxinn),ór að
ganga. Vatnsleysi í ám, sunnan-
og vestanlands, vegna þurrka,
háði nokkuð stangveiði í þessum
landshlutum.
í heild var laxveiðin rúmlega
60 af hundraði betri en árið áður,
en þá varð hún minnst miðað við
sl. 15 ár þar áður. Á því tímabili
hafa orðið miklar sveiflur í
veiðinni en frá 41 þús. löxum
1984 í tæplega 81 þús. laxa 1978,
sem er besta laxveiðiár hérlendis.
Annað besta árið var 1975 en þá
veiddust 74 þús. laxar.
- mhg
Mikil eftirspurn: Þórir í
Bílaborg: Henta vel ís-
lenskufiskeldi
Við erum búin að selja fjórar
stórkvíar og mikið spurt um þær.
Þannig að það er klárt að við
munum selja fleiri, enda er Ijóst
að stórkvíarnar henta mjög vel
fískeldi á íslandi.
Þetta sagði Þórir Jensson í Bíl-
aborg, sem hefur umboð fyrir
Bridgestone-kvíarnar, mjög stór-
ar flotkvíar sem eru að ryðja sér
til rúms í fiskeldi víða í heimin-
um.
Kvíarnar munu kosta um fjór-
ar miljónir, en þegar búið er að
setja þær niður er kostnaðurinn
að líkindum kominn yfir 5 milj-
ónir.
Þeir fjórir aðilar sem hafa
keypt kvíar eru Jón Gunnlaugs-
son í Sjóeldi á Reykjanesi, Krist-
ján Pálsson og félagar í Ólafsvík,
Byggingavöruverslun Kópavogs,
og Sveinbjörn Runólfsson, verk-
taki.
Einungis ein kví, sú sem er í
eigu Sjóeldis, er komin í sjó. Gert
er ráð fyrir að hinar verði settar
niður í vor, eða síðar. _ As
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. apríl 1986