Þjóðviljinn - 03.04.1986, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Sambandið
Kjöliðnaðarstöðin skorin
Akvörðun umframtíð Kjötiðnaðarstöðvarinnar tekin ílok apríl. A aðfœra KEA starfsemina í 100 ára
afmœlisgjöf? Mjögskiptarskoðanir. Reksturinn gengið velað undanförnu. Árangur endurbótastarfs
farinn að skilasér. Dúndurniðurstaða markaðsátaks
Akvörðun verður tekin um
framtíð Kjötiðnaðarstöðvar
Sambandsins undir lok aprílmán-
aðar. Þá mun stjórn Sambands-
ins ákveða hvort stöðin verður
lögð á skurðborðið eða hvort
starfsemi hennar verður haldið
áfram.
Einsog fram kom í Þjóðviljan-
um upp úr miðjum mars, þá
komu mjög róttækar breytingar á
rekstri Sambandsins til umræðu
og afgreiðslu á stjórnarfundi hjá
SIS. Ein af þeim breytingum sem
ræddar voru, var að leggja Kjöt-
iðnaðarstöðina niður. Skiptar
skoðanir reyndust meðal
stjórnarmanna á því og var
ákveðið að fresta ákvarðanatöku
um það þar til í lok apríl.
Innan Sambandsins er talað
um að með þessu sé verið að færa
KEA verkefni Kjötiðnaðar-
stöðvarinnar á silfurfati, en KEA
hefur nýlega byggt upp mikla
stöð á Akureyri sem gæti afkast-
að mun meiru en nú. „Það á að
færa KEA starfsemina í hundrað
ára afmælisgjöf", sagði einn við-
mælenda blaðsins í gær.
Sláturleyfishafar sem hafa
skipt við Kjötiðnaðarstöðina eru
lítt hrifnir af þessu. Telja þeir að
stöðin hafi veigamiklu hlutverki
að gegna og það sé mjög gott að
stöðin sé staðsett á stærsta mark-
aðssvæði landsins.
Rekstur Kjötiðnaðarstöðvar-
innar hefur gengið upp og niður,
en þrjá síðustu mánuði 1985 var
hún rekin hallalaust. Nú er beðið
eftir uppgjöri þriggja fyrstu mán-
aða þessa árs.
Að sögn Magnúsar Friðgeirs-
sonar hjá Búvörudeild Sam-
bandsins hefur mikið uppbygg-
ingarstarf verið unnið hjá Kjöt-
iðnaðarstöðinni að undanförnu.
Við þá uppbyggingu hefur verið
notið aðstoðar Slátrunarskólans í
Hróarskeldu. Er árangur endur-
bótanna þegar farinn að skila sér
en nú er verið að vinna að síðasta
þætti þessara endurbóta, mark-
aðsátakinu, sem hefur skilað
dúndurniðurstöðu.
—Sáf
Fjársvik
Fasteignasali dæmdur
Hæstiréttur dæmir fasteignasala Húsamiðlunar hf. ífimm mánaða fangelsi fyrir
fjársvik. Ómar Kristvinsson: Tjónið ekki bara fjárhagslegt. Fótunum kippt undan
lífi okkar
Hæstiréttur hcfur kveðið upp
dóm gegn Pétri Einarssyni
fasteignasala hjá Húsasmiðlun
hf., en hann er ákærður fyrir
fjársvik gagnvart viðskiptavinum
fastcignasölunnar. Dómurinn
yfir Pétri hljóðar upp á fimm
mánaða fangelsi en auk þess er
hann dæmdur til að borga allan
sakarkostnað og áfrýjunarkostn-
að sakarinnar.
Forsaga málsins er sú að árið
1982 hafði Pétur milligöngu um
kaup Ómars Kristvinssonar og
Emmu Þ. Blomsterberg á húseign
í Hafnarfirði. Pétur fékk Emmu
til þess að samþykkja vfxla að
fjárhæð 350 þúsund krónur sem
ganga skyldu upp í húsverð
eignarinnar. Nokkrum dögum
eftir að fyrsta greiðslan var fallin í
gjalddaga hafði seljandi samband
við þau Ómar og Emmu og kom
þá í ljós að hann hafði ekki feng-
ið greiðslur frá Pétri né heldur að
Pétur hefði nokkurt umboð til
þess að kalla eftir þeim.
Pétur gat ekki gert grein fyrir
því hvert þessi upphæð hefði
runnið en samt sem áður var
hann sýknaður af Sakadómi
Reykjavíkur eftir að Ríkissak-
sóknari hafði lagtframkærugegn
honum. Ómar og Emmu var gert
að greiða seljanda sömu upphæð
og þau höfðu greitt Pétri og hafði
Pétur því fengið 350 þúsund
krónur í sinn vasa án þess að
þurfa nokkur tíma að gera grein
fyrir þessum peningum. Hæsti-
réttur hefur tekið þetta mál upp
tvívegis, en í fyrra skiptið var því
vísað aftur í Sakadóm.
Ómar Kristvinsson sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að næsta
skref í þessu máli væri bótamálið.
„Þetta mál allt saman hefur tekið
óralangan tíma að fara í gegnum
dómskerfið og bótamálið á ef-
laust eftir að taka sinn tíina líka.
Þessi bið hefur verið okkur mög
þungbær, en auðvitað fögnum
við niðurstöðu hæstaréttar."
Ómar sagði jafnframt að tjónið
sem þessi fjársvik hefðu haft í för
með sér væri mun meira en bara
fjárhagslegt. „Fótunum var al-
gjörlega kippt undan lífi okkar.
Okkar reynsla er lýsandi dæmi
um það hvernig einn maður og
hans félagar geta brotið saklaust
fólk niður lið fyrir lið. Ég hvet
fólk sem lendir í svona málum að
kæra og leita eftir ráðgjöf sér-
fræðinga sem geta stutt við bakið
á því en slíka þjónustu er t.d.
hægt að fá hjá Lögvernd,“ sagði
Ómar.
-K.ÓI.
Ómar Kristvinsson: Okkar reynsla er
lýsandi dærni um það hvernig einn
maður og félagar hans geta brotið
saklaust fólk niður.
Forstjóri Landsvirkjunar
Athugasemd við frétt Þjóðviljans
HalldórJónatansson gerir athugasemdir við staðhœfingar Sigurjóns Péturssonar borgarfulltrúa íPjóðviljanum ígær
um að Landsvirkjun hafi meðfjármálastjórn sinni tapað 5 miljónum dollara
Aforsíðu Þjóðviljans í dag er
fullyrt að Landsvirkjun hafí
tapað 5 miljónum Bandaríkja-
dollara við að breyta lánum í
Bandaríkjadollurum í lán í
japönskum yenum og
svissneskum frönkum á vit-
lausum tíma eins og það er orðað,
en við það hafí höfuðstóll þesara
lána hækkað um 10,1 miljón
Bandaríkjadollara. Að frádregn-
um vaxtasparnaði að fjárhæð 4,8
miljónir Bandaríkjadollara sé
tapið um 5 miljónir Bandaríkja-
dollara, sem gleypi hagnað
Landsvirkjunar á s.I. ári, en hann
var um 253 miljónir króna. Þar
sem hér er um að ræða rangar og
villandi staðhæfíngar gerir
Landsvirkjun eftirfarandi at-
hugasemdir við þennan fréttafl-
utning Þjóðviljans:
1. Það er mjög mikilvægur liður í
fjármálastjórn að leitast við að
haga samsetningu erlendra
skulda þannig með tilliti til gjald-
miðla að gengisáhætta sé í lág-
marki á hverjum tíma. í því skyni
er, eftir því sem lánssamningar
leyfa, framkvæmd skuldbreyting
af og til með það fyrir augum að
breyta skuldum úr sterkum gjald-
miðlum í veikari og þá jafnframt í
lán með lægri vöxtum, eftir því
sem unnt er, þannig að draga
megi sem mest úr lánsfjárkostn-
aði. Landsvirkjun hefur náð góð-
um árangri með skuldbreytingum
af þessu tagi og þannig sparað
vaxtakostnað á s. 1. þremur árum í
verulegum mæli eða alls um 4,8
miljónir Bandaríkjadollara.
2. Skýringin á framangreindum
ávinningi er sú að á árunum 1983
og 1984 var skuldum í Banda-
ríkjadollurum breytt í skuldir í
japönskum yenum og
svissneskum frönkum þegar
Bandaríkjadollari var mjög
sterkur gagnvart öðrum gjald-
miðlum og vextir af lánum í
Bandaríkjadollurum jafnframt
mjög háir. Framangreindur
sparnaður sýnir og sannar að hér
hefur tekist vel til -og stenst því
ekki sú fullyrðing Þjóðviljans að
hlutaðeigandi færslur úr dollur-
um í yen og franka hafi farið fram
á röngum tíma.
3. Ástæðan fyrir því að Lands-
virkjun breytti lánum í Banda-
ríkjadollurum á árunum 1983 og
1984 í lán í japönskum yenum og
svissneskum frönkum, en ekki í
öðrum gjaldmiðlum var sú, að
með því móti var hægt að ná hvað
hagstæðustum kjörum, auk þess
sem aðrir lánamarkaðir voru þá
ekki jafn aðgengilegir og sá jap-
anski og svissneski.
4. Á árinu 1985 fór Bandaríkja-
dollarar að veikjast og var þá sú
stefna því tekin hjá Landsvirkjun
að taka lán í Bandaríkjadollur-
um. Hlutur Bandaríkjadollars í
heildarskuld Landsvirkjun er nú
tæp 40%, sem telja verður hæfi-
legt hlutfall með tilliti til tekna
Landsvirkjunarí Bandaríkjadoll-
urum.
5. Rétt er að miðað við gengi í dag
hefur höfðustóll þeirra tveggja
lána, sem tekin voru 1984 til að
greiða upp lán í Bandaríkjadoll-
urum hækkað um jafnvirði 10,1
miljón Bandaríkjadollara. Hér
ber hins vegar að hafa eftirfar-
andi í huga:
a. Uppfærsla einstakra skulda
miðað við gengi í það og það
skiptið segir ekki allan
sannleikann. Útkoman sem
þannig fæst um hve skuldin
sé há í einni mynt eða ann-
arri er því aðeins einhlít að
skuldin eigi að greiðast upp
þá þegar. Langt er frá að
hér sé slíku til að dreifa, þar
sem um er að ræða lán, sem
ekki á að endurgreiða fyrr
en á árunum 1989-1994.
Það er því ekki á nokkurs
manns færi að segja til um
það hvaða gengi kemur til
með að gilda þegar að
skuldadögum umræddra
lána kemur og sama gildir
um öll önnur erlend lán,
Landsvirkjunar sem ann-
arra.
b. Skuldbreytingar Lands-
virkjunar hafa óvéfengjan-
lega fært fyrirtækinu fé í
aðra hönd með sparnaði í
vaxtagjöldum í beinhörð-
um peningum, en endan-
legt gengismat verður ekki
lagt á höfðustól lána fyrr en
eftir á, annað hvort þegar
þau hafa verið endurgreidd
samkvæmt upphaflegum
lánsskilmálum eða greidd
upp með skuldbreytingum.
c. Þaðerekkihægtaðætlasttil
þess að skuldbreytingar geti
átt sér stað í eitt skipti fyrir
öll þannig að náð verði
þeirri samsetningu skulda
eftir gjaldmiðlum að hún
standist tímans tönn hvað
hagkvæmni snertir og sé
skuldaranum ævinlega jafn
hagstæð á hverju sem
gengur í ölduróti gengisþró-
unar á hinum ýmsu fjár-
magnsmörkuðum heimsins.
Skuldbreytingar verða því
að vera virkar á öllum tím-
um í þeirri viðleitni að skilja
eftir sig meiri eða minni
áþreifanlegan ávinning.
Leyfi ég mér að vona að fram-
angreint verði til að upplýsa
hversu fráleitt það er að halda því
fram að Landsvirkjun hafi með
fjármálastjórn sinni tapað 5 milj-
ónum Bandaríkjadollara í kjölfar
skuldbreytinga á árunum 1983-
1985 einsog Þjóðviljinn staðhæf-
ir. Fullyrðingar í þá átt, byggðar á
gengi sem enginn veit hvort í gildi
verður þegar að gjalddögum
kemur, geta aldrei orðið annað
en staðlausir stafir.
Virðingarfyllst
Halldór Jónatansson forstjóri
Fimmtudagur 3. april 1986 i ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3