Þjóðviljinn - 03.04.1986, Síða 4
LEIÐARI
Lögreglan og lágtaxtamir
Á línuriti sem fylgdi viötali viö Björn Arnórsson
hagfræöing BSRB í Þjóðviljanum fyrir nokkrum
vikum sást glöggt hvernig laun lögreglumanna
á íslandi eru saman sett. Þessi stétt manna er
nefnilega á margan hátt dæmigerö fyrin þá
launastefnu sem rekin hefur veriö í landinu -
þaö er gert út á vinnuþrælkun, fólkinu er ætlað
aö lifa af vinnuþrælkuninni.
í viðtalinu benti Björn einmitt á þá staðreynd,
aö einsog málum er nú háttaö getur fólk ekki
lifað af laununum nema vegna yfirvinnunnar.
Og þessi yfirvinna er sífellt aö aukast. Lögreglu-
mönnum á íslandi er ekki ætlað aö lifa af dag-
vinnutekjum. Byrjunarlaun lögreglumanns fyrir
dagvinnu er rúmlega 20 þúsund krónur. Einsog
annaö launafólk, hafa lögreglumenn mætt
kaupmáttarrýrnuninni og lágtöxtunum meö
gegndarlausri yfirvinnu og aö meðaltali taka
þeir rúmlega helming tekna sinna fyrir vinnu-
þrælkunina eina.
Ekki þarf aö fjölyröa um hvernig slík vinnu-
þrælkun leikur einstaklingana. Félags- og fjöl-
skyldulíf þeirra er í samræmi viö fjarvistir frá
venslafólki og vinum, - vinnuþrælkunin eitrar út
frá sér. Hæfni manna til aö gegna viðkvæmum, j
erfiðum störfum þarsem reynir á þolinmæöi og
mannleg samskipti veröur auövitaö aö sama
skapi minni. Þaö er ekki mönnunum aö kenna, -
heldur vinnuþrælkuninni og lágtaxtastefnunni,
ef illa fer.
Þaö er athyglisvert aö fylgjast meö málflutn-
ingi Einars Bjarnasonar talsmanns lögreglu-
manna, þarsem hann setur kjaramál lögreglu-
manna í vítækara félagslegt samhengi en oft
tíðkast viö viðlíka aöstæöur. Einar segir aö starf
lögregluþjónsins sé slítandi og erfitt. Fáir menn
þoli þaö til lengdar aö vinna 100 yfirvinnutíma á
mánuöi til aö ná sæmilegum launum. Menn
gefast upp á heimi vinnuþrælkunar um síðir.
Og nú er svo komið aö rösklega helmingur
lögregluþjóna landsins eða um 300 manns hafa
sagt upp störfum hjá lögreglunni. Um 50 manns
hafa hætt störfum hjá lögreglunni síðustu 16
mánuði. Lögreglumenn sjá ekki aöra leið til aö
vekja ráöamenn til vitundar um aðstæðurnar.
í þessu efni eru lögreglumenn ekkert eins-
dæmi. Sú þróun aö dagvinnulaun hrökkvi ekki
fyrir nauðsynjum, og fólk mæti þeim meö meiri
vinnu, yfirvinnu, næturvinnu-vinnuþrælkun, er
viötekin í landinu og ráðamönnum finnst þaö
bara sjálfsagt. Uppsagnir lögreglumanna eru
einfaldlega enn eitt birtingarform á afleiöingum
lágtaxtaþjóðfélagsins. Og þau eru fjöldamörg
önnur sem hrópa og öskra framan í valdhafana
sem þykjast ekki heyra, sem þykjast ekki sjá og
er fyrirmunað aö skilja.
Dómsmálaráðherrann, Jón Helgason, segir
blygöunarlaust í blaðaviötali að engar ráöstaf-
anir hafi veriö geröar af hálfu hans ráðuneytis
eða ríkisstjórnarinnar vegna uppsagna lög-
reglumanna. „Það er allt of snemmt að fara
að hugsa um það nú,“ segir ráöherrann orö-
rétt í viðtali viö Morgunblaöiö í gær. Þessi um-
mæli og annað sem gerst hefur í launamálum
íslendinga síöustu misseri bendir til þess, aö
menn sem hafa yfir hundrað þúsund krónur í
mánaðarlaun tali ekki sama tungumál og aðrir
landsmenn. Þeir tala einsog þeir séu búsettir á
annarri plánetu.
Hins vegar mætti ætla aö hin æruverðuga
ríkisstjórn Islendinga hafi brugöist ómeövitaö
viö flótta úr stétt lögreglumanna. Þetta er nefni-
lega sama ríkisstjórnin og hefur heimilaö
aukningu vígbúnaðar bandaríska hersins á (s-
landi. Þetta er sama ríkisstjórnin og hefur stofn-
sett fleiri „víkingasveitir“, - þetta er sama ríkis-
stjórnin sem vill vopna lögreglumennina sem
eftir veröa og ættu þá aö vinna 200 yfirvinnu-
tíma á mánuði. Þetta er sama ríkisstjórnin og í
fúlustu alvöru er aö ræöa hugsanlega leynilög-
reglu á íslandi á lokuðum fundi hjá pólitískum
öfgasamtökum aö viöstöddum bandarískum
hernaöarráögjöfum.
Þegar allt þetta: víkingasveitir, stjórnstöö í
Keflavík sem þolir „vikulangt allsherjarstríö",
meiri vígbúnaður hersins og vopnuð leynilög-
regla ríkisstjórnarinnar hefur leyst óvopnaöa
lögreglumenn af hólmi - þá berja menn
óskaland valdhafanna augum. Þaö er ekki
nema von aö ráðherrann segi að þaö sé of
snemmt aö hugsa. Þegar svo bætist viö aö
ríkisstjórnin getur reitt sig á aö koma geröar-
dómslögum í gegnum alþingi einsog hendi væri
veifað, þá er von aö tillögur og hugmyndir ríkis-
stjórnarinnar séu eitt stórt núll; þaö er nefnilega
alltof snemmt aö fara aö hugsa aö mati ráöherra
í ríkisstjórninni.
-óg
KUPPT OG SKORIÐ
,atnJ-Nú var Gorbachev senuþjóf-
lurinn á alþjóðavettvangi til að
™ minna þá, sem segast hafa
einkaleyfi á friði, á hver stjomar
ferðinni. Ríkishljóðvarpið beindi
E>'■'& r/. ■
..., -. .Það va
yoðru vísi umhorfs í stjóm
Áenskra landsmála, ef þjóc
péfði borið gæfu til að ve
jafh samhent um val á foryst
^mönnum og Reykvíkinyar
Mogginn
í fýlu
Hvenær sem Morgunblaðið
heyrir minnst á frið fer blaðið í
fýlu. Enn eitt dæmi um þetta er
leiðari blaðsins í gær, sem heitir
„Flókið afvopnunartafl".
Þar segir frá þeim orðsending-
um sem hafa gengið milli leiðtoga
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
unt afvopnunarntál og þá sérstak-
lega um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Eins og menn vita hefur Reag-
an forseti ekki viljað taka undir
við Sovétntenn, sem settu á sig
einhliða tilraunabann í fyrra-
sumar. Og lét á dögunum
sprengja mikla hleðslu í Nevada-
eyðimörkinni, þrátt fyrir margar
viðvaranir.
Og það er segin saga, að þegar
Bandaríkjaforseti brýnir rau-
stina, og lætur jörð skjálfa, þá fær
Morgunblaðið í hnén. Enda segir
blaðið í leiðaranum í gær, að það
hafi alltaf verið „áróðursbragð“
af tillögu Sovétmanna um til-
raunabann. Og er bersýnilega
reiðubúið til að skrifa undir þá
opinberu bandarísku kenningu
að „tillagan eigi rætur að rekja til
þess að sovéska hernaðarvclin
hefði náð forskoti og þyrfti ekki
að gera tilraunir með kjarnorku-
vopn um nokkurn tíma“.
Þeirri kenningu trúa víst fáir
aðrir. Það má deila mjög um
magn það, sem stórveldin eiga af
einstaka vopnum, en enginn trúir
því í alvöru, að Sovétmenn hafi
forskot í nýjum vopnabúnaði,
sem er væntanlega sá sem helst
„þarf“ að gera tilraunir með.
Að hjálpa
Rússum
Ekki nóg með það. Morgun-
blaðið notar tækifærið til að viðra
einu sinni enn þá eftirlætis kenn-
ingu sína, að í rauninni geri frið-
arhreyfingar á Vesturlöndum
ekki annað en að hjálpa Rússum.
Blaðið er í afskaplega fúlu skapi
yfir því, að ríkisútvarpið skuli
hafa sagt frá fundum herstöðva-
andstæðinga og „samstarfs-
manna þeirra í friðarhreyfingum
hér á landi“ nú yfir páskana. Og
verður ekki betur séð af málflutn-
ingi blaðsins en að sá fréttaflutn-
ingur sé, þegar allt kemur til alls,
runninn beint undan rifjum htns
lævísa Gorbatsjofs. Blaðið segir:
„Víða um hinn vestræna heim
eru það aðrir en kirkjan og prest-
arnir sem „stela senunni“ í fjöl-
miðlum um bænadagana og upp-
risuhátíðina. Nú var Gorbachev
senuþjófurinn á alþjóðavettvangi
til að minna þá, sem segjast hafa
einkaleyfi á friði, á hver stjórnar
ferðinni. Ríkishljóðvarpið beindi
athygli notenda sinni rækilega að
fundum talsmanna friðar hér á
landi um helgina“.
Enn og aftur sannast hinar
freku ritskoðunarhneigðir Morg-
unblaðsmanna sem reka upp sitt
fjörtíu þúsund eintaka gól í hvert
skipti sem nokkur maður dirfist
að minnast á frið og vígbúnað
með öðrum hætti en þeir í Aðal-
strætinu vilja. Þar fyrir utan er>.
einsýnin svo mikil, að Mogga-
menn koma hreint ekki auga á
það, að bandamenn Reagans í
Nató og stjórnarandstaðan í hans
eigin landi telja framgöngu hans í
tilraunamálinu og fleirum vafa-
samaeða fáránlega. íhaldsstjórn-
in í Noregi hefur Iýst áhyggjum
sínum af sprengingunni í Nevada.
Oddviti demókrata á Banda-
ríkjaþingi telur, að Reagan sé að
afhenda Rússum allt friðarfrum-
kvæði. Bandaríkjamenn standa
einir uppi með sín viðhorf á fundi
hjá kjarnorkuvígbúnaðarráði
Nató.
Af þessu vilja Morgunblaðs-
menn ekkert vita. Þeir hugsa sem
svo: heimurinn skal vera eins og
ég hugsa hann.
Velferð
og sögufölsun
Á skírdag skrifaði Morgun-
blaðið leiðara um „Fátækt og
frelsi einstaklingsins". Þar segir
sem svo að enginn flokkur geti
þakkað sér íslenskt velferðar-
kerfi, sem aðstoði þá sem verst
eru settir. Öðru máli gegni þó um
Reykjavík, þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi stjórnað einn.
Þar sé svo gott velferðarkerfi „að
sá flokkur sem þannig hcfur stað-
ið að verki verður ekki sakaður
um mannvonsku eða grimmd“.
Fyrir nú utan allt það sem er
ámælisvert í velferðarkerfi borg-
arinnar er sagan fölsuð mjög
hremmilega í þessari sælu mynd.
Það má rétt vera, að engum
einum flokki sé að þakka það sem
gert hefur verið í velferðarmálum
hér á landi. Og að enginn flokkur
sé nú opinskátt á móti því kerfi
sem til er - þótt að því sé vegið af
Ungtyrkjum Sjálfstæðisflokks-
ins.
En hitt er víst, að kerfi sam-
hjálpar og samábyrgðar, sem nú
er til, það er ekki komið til fyrir
frumkvæði Sjálfstæðisflokksins.
Sá flokkur var dragbítur á aliar
þær hugmyndir, þegar þær komu
fram. Það varð hlutskipi alþýðu-
flokksmanna og sósíalista að bera
þær fram, berjast fyrir þeim, ná
sumu fram í gegnum kjarasamn-
inga en öðru með þrýstingi á
þingi. Það var vinstriöflum á ís-
landi að þakka, að sá rýri vísir að
velferð, sem fólst í gömlu ölm-
usukerfi, varð að allvíðtæku kerfi
réttinda, sem enginn þurfti að
blygðast sín fyrir að gera tilkall
til, þegar með þurfti.
Sama sagan gilti hér í Reykja-
vík sem í þjóðfélaginu í heild.
Sósíalistar héldu uppi harðri hríð
í húsnæðismálum (sú var tíð að
hér bjuggu þúsundir manna í
húsnæði sem læknar dæmdu
beinlínis háskalegt heilsu manna)
og dagvistarmálum og fleiri þörf-
um málum gegn tregðu borgar-
stjórnaríhaldsins. Hitt gat svo
verið, að þegar ekki dugði lengur
að tefja fyrir, þegar almennilegur
stuðningur var tryggður fyrir fé-
lagslegum kröfum, þá gat borg-
arstjórnarmeirihlutinn snúið við
blaði og tekið einn og einn vel-
ferðarþátt upp á sína arma.
Vegna þess, að af tvennu illu
hefur Sjálfstæðisflokknum þótt
skynsamlegra að fremja smávegis
„kratasyndir" en að missa höfuð-
vígi sinna valda, Reykjavík.
ÁB
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalísma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgeíandi: Úigáfufélag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Viðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þon/aldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavik, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. april 1986