Þjóðviljinn - 03.04.1986, Side 6
LANDSBYGGÐIN
FLÓAMARKAÐURINN
Viltu verða hamingjusamari?
Skilaðu þá aftur svefnpokanum
sem þú tókst í mísgriþum á Umferð-
armiðstöðinni á skirdag. Pokinn er
grænn í vínrauðum hlífðarþoka.
Vinsamlegast hringið í Bergþóru í
simum 621550 og 26428.
Fluorescent Ijós
Vil hirða úr geymslu eða fá fyrir lítið,
fluorescent Ijós (flúrlampa), 120 cm
langt. Vinsamlegast hringið í síma
28595 milli kl. 5 og 8.
Hjálp - ryksuga
Mig bráðvantar ódýra ryksugu.
Upplýsingar í.síma 18583.
Sólbekkur (samloka)
til sölu. Tilvalinn í heimahús. Fæst á
45.000,- Uppl. í síma 21116.
Ódýrt ullargarn
verð 25-35 kr. dokkan. Vegna mik-
illar aðsóknar verður garnútsalan
endurtekin og garnið verður selt
laugardaginn 5. apríl frá 10-18 og
sunnudaginnfrákl. 13-18. AðTóm-
asarhaga 11, bílskúr. Á boðstól-
um er m.a. Hjarta-Crep og Hjarta-
Comby í öllum regnbogans litum.
Suzuki ’81 tll sölu
Ný kúpling. Nýupptekinn gírkassi.
Nýjar framhjólalegur, pústkerfi og
bremsur. Sem sé - svo til nýupp-
gerður bíll og gullfallegur. Upplýs-
ingar í síma 53217.
Bamapía - vagnar
Vantar strák eða stelpu til aö gæta
11/2 árs drengs seinnipart dags
endrum og eins, og einstaka sinn-
um á kvöldin. Á sama stað til sölu
svalavagn og kerruvagn. Uppl. í
SÍma 621454.
Reiðhjól tll sölu
2 stk. barnareiðhjól til sölu. Þarfnast
lagfæringar. Seljast ódýrt. Uppl. í
síma 71683, eftir kl. 14.
Bíll óskast
Óska eftir að kaupa bíl á ca
30.000.- Uppl. í síma 681274.
Austin Mini ’78 til sölu
Þarfnast smá lagfæringar. Uppl. í
síma 76448, eftir kl. 18.
Til sölu tölva
Vel með farin Comandor 64K tölva
með segulbandi og um 300 leikjum.
Uppl. i síma 40141.
Til sölu
Hjónarúm, hornasófi, Rowenta
blástursofn, setjaraskúffur, furu-
stigi, kvenreiðhjól og ýmislegt
fleira., frá kl. 13 laugardaginn 5.
apríl að Blesugróf 27.
Til sölu
mjög vel með farin unglingaskíði
(165 cm) ásamt stöfum og binding-
um. Selst á 1500 kr. Upplýsingar í
síma 18317 eftir kl. 15.
Ylræktarbændur athugið
Ég er 14 ára og óska eftir að komast
í vinnu í sumar. Upplýsingar í sima
75990.
Svefnbekkur til sölu
með áföstum skáp fyrir ofan. Upp-
lýsingar í síma 71308.
Kaupi og sel
vel meö farin húsgögn og húsmuni.
Fornverslunin, Grettisgötu 31,
sími 13562.
BBC-B tölva
til sölu með 31/4 disklingadrifi og
töluverðu af diskum. Upplýsingar í
síma 18959 á kvöldin.
Vil ÓLM kaupa
hillusamstæðu (úr furu eða öðru
efni) ca. 3 raðir, á sanngjörnu verði.
Upplýsingar í síma 32185.
ívar-furuhillur
Óska eftir Ivar (Uffe)-furuhillum frá
Ikea, hæð 73 cm og 179 cm, dýpt
30 cm. Á sama staö er til sölu ca. 50
ára gamall útskorinn bókaskápur
með 4 hillum, hæð 130 cm, breidd
125 cm. Upplýsingar í síma 18886.
Norsk-íslenskur
linguaphone
Viljum kaupa notaðan lingua-
phone, norsk-íslenskan. Hringið í
síma 92-1948.
Bamagæsla
Get tekið aö mér börn í daggæslu
frá kl. 8-16. Bý í Vesturberginu. Hef
leyfi. Upplýsingar í síma 72439.
Til sölu
Lítill ísskápur til sölu. Sími 73229.
Vinna 2-3 tíma á dag
Mig vantar einhvern til að koma
heim frá kl. 9 eða 10 fyrir hádegi til
kl. 12 á hádegi. Aðalatriðið er aö
einhver sé til staöarfyrir Einar Egil 6
ára. Fólk á öllum aldri kemur til
greina, bara að það beri umhyggju
fyrir 6 ára gutta. Vinsamlegast
hringið i sima 37865.
íbúð óskast
Barnlaust, ungt par óskar eftir lítilli
2ja herbergja ibúð frá og með 1.
júní. Helst í Reykjavík. Upplýsingar í
síma 53320 eftir kl. 18.
Ódýrt! „/
Fataskápur, bókaskápur og skrif-
borð fást fyrir slikk. Upplýsingar í
síma 83542, eftir kl. 19.
íbúð óskast í Hafnarfirði
Unga konu vantar strax litla íbúð í
Hafnarfirði. Skilvísum greiðslum og
reglusemi heitið. Upplýsingar í
síma 40828.
Eldavéi, eldhúsinnrétting og
innihurðir óskast
Við óskum eftir að kaupa á sann-
gjörnu verði gamla eldavél, eldhús-
innréttingu og innihurðir, helst
gamlar fulningahurðir. Upplýsingar
í sima 43452 eftir kl. 15.
Flóamarkaður
Esperantistar hafa flóamarkað og
kökubasar laugardaginn 5. apríl kl.
10-16 að Klapparstíg 28, 2. hæð.
Mikið vöruúrval á frábæru verði.
Sunnudagsblað Þjóðviijans
til sölu. Næstum hvert blað frá upp-
hafi. Selst ódýrt. Á sama stað er til
sölu notaður barnavagn fyrir lítið.
Upplýsingar í síma 53217.
Útför mannsins míns,
Ásgríms Jónssonar, Kaplaskjólsvegi 51, verður' gerð frá Fossvogskirkju, 13.30. Þorbjörg Eiríksdóttir. föstudaginn 4. apríl kl.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Björn Grímsson
sem andaðist að Hrafnistu, Reykjavík, 26. mars verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. apríl kl.
13.30.
Ásta Björnsdóttir Gerður Björnsdóttir Haukur Þorleifsson
Matthías Björnsson Fjóla Guðjónsdóttir
Harpa M. Björnsdóttir Ásbjörn Magnússon
Grímur M. Björnsson Margrét Oddgeirsdóttir
Jakobína E. Björnsdóttir Árni Einarsson
Karl H. Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Hulda Bjarnadóttir
Varmilækur í Skagafirði
Ferðaþjónusta bœnda
Um 20 þús. gisti-
nætur á sl. ári
72 heimili rekaferðaþjónustu ogfjölgar með ári hverju
Fyrir skömmu efndi Ferða-
þjónusta bænda til kynningar á
starfsemi sinni á Hótcl Sögu. A
kynningarfundinn, sem var hinn
fyrsti sinnar tegundar, var eink-
um boðið framámönnum
ferðamála- og fjöimiðlafólki. Þar
var og nokkuð af ferðaþjónustu-
bændum og þó cinkum hús-
freyjum, sem sýndu margvíslega
heimaunna muni og minjagripi og
kynntu, í myndum og máli, hvað
viðkomandi býli bjóða gestum og
gangandi.
Að sögn Oddnýjar Björgvins-
Tímarit
Stranda-
pósturínn
Kemur út í 19. sinn
Atthagafélag Strandamanna er
ekki á þeim buxunum að slaka á
klónni með útgáfu Strandapósts-
ins. Hann er nú kominn út í 19.
sinn. Að vísu ekki ýkja hár aldur
á tímariti en allmörg munu þau
þó orðin tímaritin, sem hafa bæði
heilsað og kvatt sl. 19 ár. En
Strandapósturinn hefur lifað og
lifað vel þótt ekki berist hann á í
ytra útliti. Skrautklæði eru ekki
alltaf einhlít til langlífis.
Efni Strandapóstsins hefur
jafnan verið að miklu leyti tengt
Ströndum og Strandamönnum.
Ekki er það ómerkara af þeim
sökum, enda mun sá brunnur
seint verða þurrausinn. Mér telst
svo til að í þessu hefti séu 18 frá-
sagnir í lausu máli og 9 ljóð og
vísnaflokkar. Höfundar hins
bundna máls eru Ingólfur Jóns-
son frá Prestsbakka, Jósep á Mel-
um (sveitarbragur frá 1905), Eyj-
ólfur Isaksson, (bændavísur frá
1909), Guðrún Jónsdóttir frá
Prestsbakka, (rifjar upp gamlar
þulur), Jörundur Gestsson, Sig-
mundur Björnsson frá Klúku,
Jóna Vigfúsdóttir frá Stóru-
Hvalsá og Guðmundur Guðni
Guðmundsson, Lausamálshöf-
undar eru: Gísli Ágústsson, Skúli
dóttur, forstöðumanns Ferða-
þjónustunnar og Kristins Jó-
hannssonar, formanns Lands-
sambands ferðaþjónustubænda,
eru ferðaþjónustuheimilin nú
orðin 72 og í öllum landshlutum.
Alls hafa þau nú á boðstólum 760
rúm. Heimingur þessara bæja
tekur á móti fólki allt árið. Á síð-
asta ári urðu gistinætur um 20
þús.
Ferðaþjónustufólkið kom
beint af þriggja daga námskeiði á
Hvanneyri, þar sem það bar sam-
an bækur sínar og fjallaði um
Klúka í Bjarnarfirði
frá Ljótunnarstöðum, Jóhannes
frá Asparvík, Jóhann Hjaltason,
Lýður Björnsson, Ingunn Ragn-
arsdóttir, Guðmundur Guðni
Guðmundsson, Jón Einarsson,
Ingvar Agnarsson, Sveinsína
Agústsdóttir frá Kjós, Matthildur
Guðmundsdóttir frá Bæ, Ingólf-
ur frá Prestsbakka, Sigurgeir
Magnússon, Jóna Vigfúsdóttir,
Gísli Jónatansson, Guðmundur
Jónsson, Sæmundur Björnsson
frá Hólum í Reykhólasveit og Óli
B. Björnsson. Hér hafa því marg-
ir lagt hönd á plóg og er ógerlegt
að geta allra efnisþátt en allir
hafa þeir til síns ágætis nokkuð.
Gaman er og fróðlegt að lesa
lýsingu Skúla á Ljótunnarstöðum
á aldamótamönnunum í Bæjar-
hreppi, sem Jósep á Melum yrkir
um sinn sveitarbrag. Eða frásögn
Jóns frá Valdasteinsstöðum um
hina margvíslegu þætti ferðamála
og ferðaþjónustu. Var þetta hið
fjórða slíkara námskeiða, en
ferðaþjónusta hefur verið á
kennsluskrá Bændaskólans á
Hvanneyri undanfarna fjóra vet-
ur.
Ferðaþjónusta bænda á sívax-
andi vinsældum að fagna. Fram-
an af voru það einkum útlending-
ar, sem notfærður sér hana en ís-
lendingum, sem það gera, fer
óðum fjölgandi og þá ekki hvað
síst fjölskyldufólki úr þéttbýlinu.
-mhg
Vesturheimsferð hans með öðr-
um útflytjendum árið 1888. Frá-
sögn Jóns er fersk því hún birtist í
Heimskringlu sama ár og af henni
er ljóst, að útflytjendur máttu
þola bæði súrt og sætt áður en
þeim auðnaðist að nema land í
nýjum heimkynnum. Eftirtektar-
verð er einnig frásögn Matthildar
frá Bæ, en ung að árum veiktist
hún af berklum og fór í Vífils-
staði. Læknar þar töldu hana
dauðvona en eftir að maður
hennar hafði leitað til Margrétar
frá Öxnafelli tók hún þegar að
hressast og telur sig nú „lifandi
sönnun þess að kraftaverk geta
enn gjörst".
Hér verður ekki frekar fjallað
um efni Strandapóstsins en allt er
það þess eðlis, að fengur er að því
að fá það skráð.
-mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. apríl 1986