Þjóðviljinn - 03.04.1986, Qupperneq 9
HEIMURINN
Frakkland
Nýr þingforseti kjörinn
í Frakklandi í gær
Jacques Chaban-Delmas líklegastur og er búist við að hann geti
orðið í lykilstöðu vegna kunningsskapar síns við Mitterand
París — Hinn 71 árs gamli
JacquesChaban-Delmas, var i
gær kjörinn forseti franska
þingsins á fyrsta fundi þess
eftir kosningar í síðasta mán-
uði.
Ef að líkum lætur munu at-
kvæði hæagri flokkanna tveggja,
RPR og UDF, tryggja honum
sætið. Delmas hefur tvisvar áður
ERLENDAR
FRÉTTIR
E_R
mmmmur
Jóhannesarborg — Desmond
Tutu, biskup, hvatti ríkisstjórnir
víða um heim til að beita ríkis-
stjórn S-Afríku efnahagslegum
refsiaðgerðum svo að bjarga
mætti landinu frá hörmungum.
Hvatning hans var birt um svipað
leyti og ríkisstjórnin aflétti ferða-
banni á Winnie Mandela sem hún
setti á fyrir 10 árum síðan.
Mexíkóborg — Ekki hefur verið
útilokað að skemmdarverk hafi
verið framið þegar flugvél mexí-
kanska flugfélagsins hrapaði með
þeim afleiðingum að 166 manns
létust.
Grikkland
Sprenging
í flugvél
hjörLeífsson/ R E U1
haft þetta embætti með höndun-
um á franska þinginu, í 14 ár alls.
Síðast lét hann það af hendi árið
1981 þegar Sósíalistar fengu
hreinan meirihluta íþingkosning-
um.
Chaban-Delmas er persónu-
legur vinur Mitterands Frakk-
landsforseta og sagt er að það geti
veitt honum lykiistöðu á þinginu
ef ágreiningur rís með Mitterand
og forsætisráðherrranum, Chir-
ac.
Hinir nýju ráðherrar hægri-
stjórnarinnar hafa vikið úr þing-
sætum sínum og varamenn þeirra
taka við þingsætunum. Búist er
við að Þjóðernisfylking Le Pens
muni fara fram á að fá einhver af
sex embættum varaforseta þing-
sins. Þjóðernisfylkingin hefur nú
35 þingsæti af þeim 577 sætum
sem nú eru á franska þinginu. Bú-
ist er við að kosið verði um þessi
sæti auk ýmissa nefndaformanna-
staða í lok þessarar viku.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
að í gær að Chirac myndi kynna
þinginu starfsáætlun sína á
þriðjudag eða miðvikudag í
næstu viku. Mun hann þá líklega
fara fram á traustsyfirlýsingu
þingsins.
Bandaríkjamenn kynda undir átökum í Angola, segja Svíar.
á flugi
Svíþjóð
Svíar gagnrýna
Bandaríkjamenn
Utanríkisráðherrann, Pierre Schori, sagði að Bandaríkjastjórn vœri
að reyna að koma á nýju kaldastríðsskeiði. Svíar munu halda uppi
merki Palme í utanríkismálum
Þrír létust, sjö sœrðust,
vélinni tókst að lenda í
Aþenu
Aþenu — Sprenging um borð í
flugvél frá bandaríska flugfé-
laginu TWA varð þremur
manns að bana og sjö munu
hafa særst þar sem hún var á
flugi yfir Grikklandi í gær.
Sprengingin varð þegar vélin
var á flugi yfir Kórinþuborg en
flugmönnum tókst að lenda vél-
inni í Aþenu. Lík karls, konu og
barns fundust hins vegar á akri
við bæinn Argos á Pelópsskagan-
um. Ekki var vitað í gær hverrar
þjóðar hinir látnu voru. Sagt var
að þeir sjö sem særðust, þrír
Bandaríkjamenn, tveir Grikkir
og tveir Arabar, hefðu verið
fluttir á sjúkrahús í útborg Aþenu
þar sem gert var að sárum þeirra.
Tveir Bandarfkjamenn og tveir
Grikkir fengu fljótlega að yfir-
gefa sjúkrahúsið en voru boðaðir
á lögreglustöð til yfirheyrslu.
Grunur leikur á að sprengju hafi
verið komið fyrir í vélinni.
Flugvélin sem er þota af gerð-
inni Boeing 727, var á flugi frá
Róm til Kaíró með millilendingu
í Aþenu. Þar lenti hún eftir
sprenginguna. Sprengingin varð í
farangursrými vélarinnar og kom
fjögurra fermetra gat á skrokk
vélarinnar. Um borð í vélinni
voru 114 farþegar og 7 manna á-
höfn.
Stokkhólmi — Svíar sökuðu
Bandaríkjastjórn í gær um að
reyna að koma á nýju kalda-
stríðstímabili með þvi að
styðja skæruliða í Nicaragua
og Angola. Sænska ríkis-
stjórnin sagði að Bandaríkja-
menn notuðust við „ofbeldi í
miklum mæli“, einnig að þeir
réðust kerfisbundið á sak-
lausa borgara.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Svía, Pierre Schori, sagði að Sví-
ar hefðu undir höndum áreiðan-
legar upplýsingar um að UNITA
skæruliðar í Angola hefðu myrt
konur og börn. Bandaríkjastjórn
hefur veitt þessum samtökum lof-
orð um aðstoð. Schori sagði á
mánaðarlegum fundi með sænsk-
um blaðamönnum:„Hin nýja
dagskipun Bandaríkjastjórnar
um að veita þeim skæruliðum
sem hún nefnir „frelsishermenn"
aðstoð, er endurspeglun á kalda-
stríðstímabilinu."
Schori sagði að Contra-skæru-
liðar í Nicaragua notuðu svipaðar
aðferðir og Unita skæruliðar í
Angola en þeir hefðu minni
stuðning frá almenningi heldur
en Unita. Svíar hafa löngum stutt
við bakið á Sandinistastjórninni í
Nicaragua og Schori fór þangað
árið 1984 ásamt Palme þegar
hann var forsætisráðherra. Palme
varð þá fyrstur vestrænna ráða-
manna til að heims^ekja bylting-
arstjórnina í Nicaragua. Á sama
máta og stjórnin hefur gagnrýnt
hlut Bandaríkjkamanna í Mið-
Ameríku hefur hún gagnrýnt
tengsl Nicarague við Sovétmenn.
Schori sagði í gær að ekki Væri
hægt að bera baráttu afganskra
skæruliða gegn „leppstjórninni í
Kabúl sem hefði einungis stuðn-
ing herliðs Sovétmanna“, saman
við stríðið milli UNITA og Ang-
olastjórnar sem hefur stuðning
Kúbumanna.
Þá sagði Schori að forsætisráð-
herra Svía, Ingvar Carlsson,
myndi spyrja ágengra spurninga
þegar hann kemur í heimsókn til
Sovétríkjanna, 14. apríl. Hann
mun að sögn Schori m.a. spyrja
um örlög sovéskra gyðinga og
veru sovéskra kafbáta í sænskri
landhelgi. „Við munum tala skýrt
hvað þessi mál varðar", sagði
Schori við blaðamenn.
Fimmtudagur 3. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Jacques Chaban-Delmas, andspyrn-
uleiðtogi i stríðinu og síðar forsætis-
ráðherra, nú forseti þingsins í þriðja
sinn.
Kína
Erlend
fyrirtæki
velkomin
Peking — Nú eru um það bil 120
fyrirtæki, algjörlega í eign er-
lendra aðila, starfandi í Kína.
Árið 1979 voru hins vegar eng-
in erlend fyrirtæki starfandi í
Kína.
Fréttastofan Nýja Kína sagði
frá þessu í gær, í sömu frétt var
■einnig sagt að þessi erlendu fyrir-
tæki hefðu fjárfest fyrir um það
bil 500 milljónir dollara og 58%
þessarar fyrirtækja væru á fram-
leiðslusviðinu.
Kínverska þjóðþingið mun á
næstunni samþykkja lög varð-
andi starfsemi fyrirtækja sem eru
algjörlega í erlendri eign í Kína.
Finnland
Verkfall
Telja sig hafa setið eftir í
launamálum og fara nú
fram á allt að 20 % launa-
hœkkun.
Víðtœkara verkfall boð-
að 16. apríl
Helsinki — Fimmtán þúsund
opinberir starfsmenn hófu í
gær verkfall sem hafði áhrif á
innlendar sem erlendar sam-
göngur, póstþjónustu og aðra
opinbera þjónustu.
Verkfallið hafði m.a. þau áhrif
að Maauno Koivisto forseti
landsins varð að yfirgefa forseta-
höllina þar sem starfsmenn hans
voru í verkfalli.
Opinberir starfsmenn hafa far-
ið fram á 20% launahækkun.
Rétt áður en verkfall skall á fór
ríkisstjórnin fram á að verkfall-
inu yrði frestað en við þeirri
beiðni var ekki orðið þar eð ekki
hafði verið boðið upp á lausn
deilnanna. Stéttarfélag opin-
berra starfsmanna hefur boðað
allsherjarverkfall frá og með 16.
apríl og er búist við að 40.00
manns muni taka þátt í því verk-
falli.
Opinberir starfsmenn í Finn-
landi eru orðnir mjög óþolin-
móðir varðandi launahækkanir.
Þeir telja að þeir hafi setið eftir í
þeim efnahagsbata sem orðið
hefur í Finnladi og ekki fengið
launahækkanir á við aðrar starfs-
stéttir, sérstaklega launafólk hjá
einkafy rirtækj um.