Þjóðviljinn - 03.04.1986, Qupperneq 14
MANNLÍF
Milli nýmæla
og mið-
stýringarinnar
Tveir Sovétmenn spurðir um efnahags-
legt breytingaskeið
Endel Paap og Vladímír Volkof. Ljósm. Sig.
Af viðtali við sovéska gesti MÍR
á dögunum má helst ráða, að þær
breytingar á sovésku efnahagslífi,
sem boðaðar voru á nýafstöðnu
þingi Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, miðast við það, að ná
árangri að því er varðar vöru-
gæði og framboð vöru án þess að
hreyfa mikið við hinu miðstýrða
áætlanakerfí.
Gestirnir voru þeir Vladímír
Volkof aðstoðarráöherra (fjallar
um leit að og vinnslu á dýrmætum
jarðefnum) og Endel Paap námu-
verkstjóri frá Eistlandi.
Peir sögðu flokksþingið hafa
verið merkilegt fyrir sakir „opin-
skárrar umræðu“ um bæði mik-
inn herkostnað í heiminum og
þörf á efnahagslegum umbótum.
- Hvað er að gerast í sovéskum
fyrirtœkjum um þessar mundir?
- Það er nú ýmislegt. Tökum til
dæmis matvælaframleiðsluna.
Það er verið að koma upp land-
búnaðarsamsteypum, þar sem
saman koma samyrkjubú, fyrir-
tæki sem vinná úr matvælum og
sölufyrirtæki. Með þessu móti er
áætiað að ná megi betri nýtingu
og spara rýrnun í flutningum og
tengja betur saman beina
hagsmuni framleiðenda og sölu-
aðila.
Einstakar fjölskyldur munu
svo taka að sér í stærri mæli en
áður ræktun tiltekins lands og
stunda á því ekki bara grænmetis-
rækt eða alifuglarækt heldur
rækta þar hvaðeina sem menn
telja sig geta haft hagnað af. Með
þessu móti á að nýta betur frum-
kvæði hvers og eins.
(Ekki kunnu þeir félagar frá
því að segja, hvort viss hámarks-
kvóti væri á iandi því sem „fest
yrði við“ fjölskyldur).
Þá verður meira um það en
áður, að fóiki taki til sín ýmsa
heimavinnu, ekki síst á sviði
framleiðslu á ýmislegri þjóðlegri
neysluvöru.
- En hvað er átt við með því í
rœðum, að verðlag á nauðsynjum
verði sveigjanlegra en áður?
- Verðlag á ýmsum nauðsyn-
legum matvælum hefur verið
stöðugt lengi og á því verður ekki
breyting, eins þótt það kosti það
að greitt verði áfram með vissum
vörum. En markmiðið er að
lækka kostnaðarverð fram-
leiðslunnar með auknum af-
köstum svo mjög, að niður-
greiðslur geti fallið niður.
-Á þinginu var kvartað yfirþví
að alltof mikið af framleiðslu létt-
aiðnaðarins seldist ekki. Hvað á
að gera við því?
- Nú eru uppi mikil áform um
auknar fjárfestingar til þeirra fyr-
irtækja sem framleiða vélar og
tæki fyrir léttaiðnaðinn. Með því
móti vonast menn til að auka
sjálfvirkni og bæta vörugæði.
Miklu skiptir að koma í veg fyrir
að menn séu að framleiða það
sem ekki selst, og það kemur þá
til greina að veita tíma og fé í það
að leggja, niður vissa framleiðslu
og taka upp nýja í staðinn.
(Hér má skjóta því að, að ekki
virtust þeir félagar telja nauðsyn
á því að láta sjálft verðmyndun-
arkerfið gefa upplýsingar um
það, hvaða framleiðsla væri
óþörf og hver nyti eftirspurnar).
- Áhrifamenn á flokksþinginu
töluðu um það, að það vœri ófœrt
að greiða svipað kaup góðum
starfsmönnum og slœmum. Hvað
er að gerast í þeim efnum?
- Það hefur verið of langt
gengið í jafnlaunastefnu. Nú er
verið að endurmeta störf manna
(hver starfsgrein skiptist í ein sjö
launastig) til að fá fram betra
samræmi á milli tekna og fram-
lagðrar vinnu. Þetta endurmat
fer líka fram innan vinnuflokka
þar sem erfitt er að meta afköst
hvers og eins, ráð hvers vinnu-
flokks fer með þau mál.
Annars á sá árangur, sem
vænst er til að fyrirtækin nái, að
koma fram í því að þau hafi þá
aukna möguleika á að gera sjálf
meira fyrir sitt starfsfólk, ekki
bara í launum, heldur ekki síður í
samneyslu ýmiskonar.
Sovétmennirnir ræddu líka um
að dregið yrði úr umsvifum ríkis-
áætlunarinnar, sem færi áfram
með almenna fjárfestingarpóli-
tík, meðan fyrirtækin semdu
beint sín á milli um fyrirgreiðslu
og viðskipti.
Sem fyrr segir í skrifum um áð-
urnefnt flokksþing: sumpart eru
áformaðar breytingar af svipuðu
tagi og fitjað hefur verið upp á
áður og dugði ekki til - en sum-
part sýnist lengra gengið í „virkj-
un eigin frumvkæðis“ en ráða-
menn hafa verið reiðubúnir til
áður.
Þeir Volkof og Paap sátu
ársfund MÍR, heimsóttu Orku-
stofnun, fiskiðjuver og fleiri fyr-
irtæki meðan þeir höfðu hér við-
dvöl.
áb
HVAÐ ER AÐ GERAST 1ALÞÝÐUBANDALAGINU?
AB Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
verður haldinn að Kirkjuvegi 7 föstudaginn 4. apríl (athugið
breyttan fundardag) kl. 20.30. Fundarefni: Starfshóparum stefnu-
skrá skila niðurstöðum. Félagar íjölmennið! Stjórnin.
ABR 1. deild
Aðalfundur
1. deildar Alþýðubandalagsins í Reykjavík (kjördeildir Miðbæjar-
skóla og Melaskóla) verður haldinn mánudaginn 7. apríi kl. 20.30,
í Miðgarði Hverfisgötu 105. Stjórn 1. deildar.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Stefnuumræða borgarmála
Iþrótta- og æskulýðsmál: Fundur fimmtudaginn 3. apríl kl.
18.00.
Atvinnumál: Fundur fimmtudaginn 3. apríl kl. 12.00 á hádegi.
Fundirnir eru haldnir í Miðgarði Hverfisgötu 105.
ABR
AB Selfoss og nágrennis
Námskeið í blaðamennsku
Bæjarblaðið gengst fyrir námskeiöi í blaðamennsku 5. og 6. apríl
nk. að Kirkjuvegi 7 Selfossi. Leiðbeinendur verða Sigurjón Jó-
hannsson blaðamaðurog Össur Skarphéðinsson ritstjóri. Far-
ið verður í útlit, greinaskrif, auglýsingasöfnun og Ijósmyndun.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til Sveins í s. 1443 eða Önnu
Kristínar í s. 2189. Allir velkomnir. Blaðstjórn.
AB Stykkishólmi
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Almennur félagsfundur
ABH boðar til almenns félagsfundar fimmtudaginn 3. apríl kl.
20.30 í Skálanum Strandgötu 41.
Fundarefni: Rætt um stefnuskrár fyrir bæjarstjórnarkosningarnar.
Allir félagar hvattir til aö mæta. Stjórn ABH
Áhugamenn um sveitarstjórnarmál
Ráðstefna Byggðamanna AB um
sveitarstjórnarmál verður
haldinn 12.-13. apríl.
Dagskrá
Laugardag 12. apríl kl. 14-17.
Lög um sveitarstjórnir og framkvæmd þeirra:
Lög og reglur um framkvæmd sveitarstjórnarkosninga. Ingi R.
Helgason.
Sveitarstjórnarlög - Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
Steingrímur Sigfússon.
Málsmeðferð í sveitarstjórnum Sigurjón Pétursson.
Bókhald og fjárreiður, Óttar Proppe.
Sunnudag 13. apríl kl. 10-12.
Samskipti sveitarstjórna og ríkisvalds:
Málshefjandi Margrét Frímannsdóttir,
Dagvistarmál Svandís Skúladóttir,
Skólakostnaður Einar Páll Svavarsson.
Sunnudagur 13. apríl kl. 13-16
Alþýðubandalagið og sveitarstjórnarmál.
Málshefjandi Svavar Gestsson.
Starf i sveitarstjórn. Sigríður Stefánsdóttir, Þuríður Pétursdóttir.
Nú líðursenn að byggðakosningum.
Ekki veitir af að fylkja liði.
AB Garðabæ
Almennur félagsfundur veröur haldinn mánudag-
inn 7. apríl kl. 20.30 í áafnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.
Dagskrá: 1. Úrslit í prófkjöri og ákvörðun framboðslista
2. Blaöaútgáfa
3. Verkalýðsmál
4. Önnur mál
Framkvæmdastjórnin
/ESKULÝÐSFYLKINGIN
ÆFR auglýsir
Almennur félagsfundur
verður haldinn föstudaginn 4. apríl kl. 20.00 í Miðgarði Hverfisgötu
105. Dagskrá: 1) Starfið framundan, 2) Upplestur? Stjórnin.
Kínahappdrætti ÆFAB
Þeir sem hafa miða undir höndum og hafa annast innheimtu eru
beðnir um að gera skil strax. Dregið 1. apríl nk..
Framkvæmdaráð.
BYGGÐAMENN
Áhugamenn um sveitastjórnarmál
Opið hús
verður á fimmtudögum fram til kosninga í Verkalýðshúsinu. Húsiö
opnað kl. 20.30. Stjórnin
MuniðXG
Ráðstefna byggðamanna
Alþýðubandalagsins um sveitastjórnarmál verður haldin 12.-13.
apríl í Miðgarði Hverfisgötu 105. Nánar auglýst eftir páska.
14 SIÖA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. apríl 1986