Þjóðviljinn - 03.04.1986, Qupperneq 15
Knattspyrna
Stórsigur
Brasilíu
Brasilíumcnn sigruðu Perú 4-0
í vináttulandsleik sem fram fór í
Sao Luis í Brasilíu í fyrrakvöld.
Brassar þóttu ekki sannfærandi
þrátt fyrir stóran sigur en þó léku
þeir manni færri í 60 mínútur
eftir að Eder var rekinn af
leikvelli. Casagrande skoraði 2
mörk, Alemao og Carcea eitt
hvor. Falcao og Socrates léku nú
að nýju með liði Brasilíu.
—VS/Reuter
Torbjörn Nilsson var maöurinn á
bakvið frækinn sigur Gautaborgar á
Barcelona í gærkvöldi. Endar hann
feril sinn sem Evrópumeistari með
sænska liðinu?
Handbolti
Viggó
meðFH
Viggó Sigurðsson, fyrrum
landsliðsmaður og leikmaður
með Víkingi, Leverkusen og
Barcelona, hefur verið ráðinn
þjálfari 1. deildarliðs FH fyrir
næsta keppnistímabil. FH er
fyrsta félagsliðið sem Viggó þjálf-
ar hér á landi en hann stjórnaði
piltalandsliðinu, undir 21 árs, í
vetur. Viggó tekur við af Guðm-
undi Magnússyni sem hefur þjálf-
að lið FH sl. tvo vetur.
—VS
Körfubolti
Pétur með
í 11 mín.
Pétur Guðmundsson lék í 11
mínútur með Los Angejes Lakers
þegar liðið vann Seattle Supers-
onics 109-104 í bandarísku NBA-
deildinni í fyrrakvöld. Pétur hirti
4 fráköst í leiknum og skoraði 4
stig.
—VS
IÞROTTIR
Svíþjóð
Toitjöm sá
um Barcelona
Stórleikur Svíanna, sanngjarn sigur
Urslit Evrópuleikjanna
Evrópumótin í knattspyrnu, undanúrslit, fyrri leikir:
Evrópukeppni meistaraliða
Anderlecht (Belgíu)-Steaua (Rúmeníu)..........................1 _o
Gautaborg (Svíþjóð)-Barcelona (Spáni)..........................3-0
Evrópukeppni bikarhafa
Dynamo Kiev (Sovét)-Dukla Prag (Tékkosl.)......................3.0
AtleticoMadrid(Spáni)-BayerUerdingen(V.Þýskal.)............... 1-0
UEFA-bikarinn
Köln(V.Þýskalandi)-Waregem(Belgíu).............................4-0
Inter Milano (Italíu)-Real Madrid (Spáni)......................3-1
HandboltHbikar
Frá Birni Guðbrandi Jónssyni
fréttamanni Þjóðviljans í Gauta-
borg:
Enn og aftur sýndi IFK Gauta-
borg að það er lið á heimsmæli-
kvarða. Miljónalið Barcelona átti
aldrei möguleika í undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða í
knattspyrnu hér í gærkvöldi og ef
talið er í dauðafærum hefði
leikurinn átt að enda 5-1, en ekki
3-0 eins og lokatölur urðu.
Maður leiksins var erkiengill-
inn sjálfur (gælunafn IFK er Eng-
larnir) Torbjörn Nilsson, fót-
boltamaður af guðs náð. Hann
skoraði 2 mörk fyrir hlé og er á
góðri leið með að verða marka-
hæsti leikmaður Evrópumótanna
frá upphafi. Það verður mikið
tómarúm eftir Totte þegar hann
leggur skóna á hilluna í sumar til
að hefja rekstur matsölustaðar.
Það var hreint ótrúlegt að sjá
hvernig Totte lék spænsku vörn-
ina uppúr skónum. Þriðja markið
skoraði svo hinn óútreiknaniegi
Tommy Holmgren snemma í
seinni hálfleik.
Gautaborgarliðið er nú komið
með annan fótinn í úrslit Evrópu-
keppni meistaraliða, þangað sem
það á fullt erindi.
ÍA lagöi KR!
Víkingur fór létt með Val og Ármann
sigraði Fram
Skagamenn, sem léku í 3. deildinni
sl. vetur, gerðu sér lítið fyrir og slógu
1. deildarlið KR útúr bikarkeppninni
í gærkvöldi. Þeir sigruðu 31-30 í
hörkuspcnnandi baráttuleik á Akra-
nesi og eru komnir í 8-Iiða úrslitin.
Evrópuleikirnir
Gautaborg, Kiev og Köln
standa vel að vígi
Uerdingen tapaði naumlega í Madrid og á góða möguleika á
að komast í úrslitaleikinn
Gautaborg, Dynamo Kiev og
Köln virðast eiga fyrir höndum
úrslitaleiki í Evrópumótunum
þremur í knattspyrnu. I fyrri
leikjum undanúrslitanna í gær-
kvöldi vann Gautaborg Barce-
lona 3-0 í Evrópukeppni
meistaraliða, Kiev vann Dukla
Prag með sömu markatölu í Evr-
ópukeppni bikarhafa og Köln
malaði Waregem 4-0 í UEFA-
bikarnum.
Frá leiknum í Gautaborg er
sagt hér að ofan en þess ber að
England
West Ham tapaði
Möguleikar West Ham á að Ham. Bakvörðurínn Brian Rice
hreppa enska meistaratitilinn í tryggði síðan Forest sigur með
knattspyrnu dvínuðu nokkuð í marki þremur mínútum fyrir
gærkvöldi við 2-1 tap gegn Nott- leikslok.
ingham Forest á City Ground í Staða efstu liða er þessi:
Nottingham. Liverpool..36 20 10 6 73-36 70
Johnny Metgod kom Forest Everton....35 21 7 7 74-38 70
vfir með marki heinf i'ir anka- Man.Utd.35 19 8 8 57-28 65
ytir meö markt Deint ur auka Che|sea.33 i8 8 7 49-41 62
spyrnu af 30 m fært en Tony Cott- WestHam.32 18 6 8 51-30 60
ee jafnaði fljótlega fyrir West —vs/Reuter
2,deild
Skomðu síðustu
nítján stigin
Og unnu á 3ja stiga körfu í lokin!
Einhver ótrúlegasti körfubolta- flautið gall við rétt eftir að hann
leikur sem fram hefur farið hér á sleppti knettinum! Ótrúlegur
landi var leikinn á Selfossi sl. mið- sigur var í höfn og Skallagrímur
vikudagskvöld. Þar áttust við veitir nú Tindastóli keppni um 1.
HSK og Skallagrímur í úrslita- deildarsætið.
keppni 2. deildar karla og Skalla- Staðan í úrslitakeppninni er
grímur vann leikinn 76-73. þessi:
Þegar 5 mínútur voru eftir Tindastóli....4 3 1 338-308 6
Stefndi allt í sigur HSK, liðið Snæfell....6 3 3 422-426 6
hafði þá 16 stiga forystu, 73-57. \ ^ %
Þegar 45 sek. voru eftir hofðu
Borgnesingar kiórað í bakkann, Skallagrímur og Tindastóll
skoraði 10 stig í röð, og minnkað *eika annað kvöld í Borgarnesi og
muninn í 73-67. En þá gerðu þeir þar sem innbyrðis úrslit ráða ef
sér lítið fyrir og skoruðu þrjár 3ja eru jöfn þarf Skallagrímur að
stiga körfur á þessum skamma vinna leikinn með a.m.k. 12 stig-
tíma sem eftir var. Þá síðustu um- Lokaleikurinn, HSK-
gerði Guðmundur Guðmunds- Tindastóll, fer svo fram á Selfossi
son á allra síðustu stundu, loka- á sunnudaginn. —vs
Fimmtudagur 3. apríi 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
geta að Svíarnir eiga eftir erfiðan
leik í steikarpottinum í Barce-
lona. Anderlecht átti í vand-
ræðum með Steaua frá Búkarest í
hinum undanúrslitaleik meistar-
akeppninnar en vann 1-0 með
marki frá Enzo Scifo á 78. mín-
útu. Rúmenarnir léku sterkan
varnarleik og áttu hættuleg upph-
laup og Anderlecht á fyrir hönd-
um erfiðan leik í Búkarest. Arnór
Guðjohnsen lék ekki með
Anderlecht.
Kiev fór létt með Dukla Prag
og Sovétmennirnir eru taldir eiga
á að skipa einu albesta féiagsliði í
Evrópu í dag. Oleg gamli Blokin
skoraði 2 markanna og Alexand-
er Zavarov eitt. Bayer Uerding-
en gæti mætt Kiev í úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa en lið
Atla og Lárusar tapaði naumlega
í Madrid, 1-0 gegn Atletico, í
gærkvöldi. Julio Prieto skoraði
sigurmarkið 12 mínútum fyrir
leikslok.
Það er erfitt að spá hverj ir mót-
herjar Kölnarbúa í úrslitaleikjum
UEFA-bikarsins verða. InterMi-
lano vann reyndar Real Madrid
3-1 í Milano en hinir nýkrýndu
spænsku meistarar eru geysilega
erfiðir heim að sækja og skoruðu
dýrmætt mark á útivelli. Jorge
Valdano var þar að verki en fyrir
Inter skoraði Tardelli tvö mörk
og eitt var sjálfsmark Real,
tveimur mínútum fyrir leikslok. í
Köln fóru heimamenn létt með
Belgana frá Waregem. Hans-
Peter Lehnhoff skoraði í fyrri
hálfleik, Klaus Allofs gerði síðan
tvö og Ralf Geilenkirchen eitt.
—VS/Reuter
KR hafði undirtökin lengi vel,
leiddi 15-11 í hálfleik, en síðan tóku
heimamenn að sækja sig. Að loknum
venjulegum ieiktíma stóð 28-28 en ÍA
náði undirtökum í framlengingunni
og sigraði. Pétur Ingólfsson skoraði 8
niarka IA, Kristinn Reimarsson 6,
Sigþór Hreggviðsson 5 og Óli Páll
Engilbertsson 5. Ólafur Lárusson,
Stefán Arnarson og Jóhannes Stef-
ánsson gerðu 7 mörk hver fyrir KR og
Konráð Ólafsson 6.
Víkingar, handhafar bikarsins,
unnu furðu iéttan sigur á Vals-
mönnum í Laugardalshöllinni, 24-19.
Víkingar, sem leiddu 12-7 í hálfleik,
léku mjög vel í vörn og sókn og Val-
sliðið náði sér aldrei á strik. Steinar
Birgisson, Páll Björgvinsson og Guð-
mundur Albertsson áttu allir mjög
góðan leik með Víkingi ásamt Krist-
jáni Sigmundssyni markverði sem
m.a. varði 3 vítaköst. Jakob Sigurðs-
son stóð uppúr hjá Val. Steinar gerði
7 marka Víkings, Guðmundur A. 6
og Páll 5. Jakob skoraði 5 fyrir Val og
Jón Pétur Jónsson 4.
Ármenningar skelltu Krömurum á
undan, 28-23, og sýndu að þeir eru til
alls líklegir í 1. deildinni næsta vetur.
Ármann var alltaf yfir, 13-11 í hálf-
leik, og Guðmundur Friðriksson
markvörður átti drjúgan þátt í sigrin-
um. Bragi Sigurðsson skoraði 8
marka Ármanns og Óskar Ásmunds-
son 5. Egill Jóhannesson skoraði 8
mörk fyrir Fram og Dagur Jónasson
5.
Breiðablik vann Fylki auðveldlega
í Seljaskólanum, 33-22, eftir 14-10 í
hálfleik. Kristján Halldórsson
skoraði 8 marka Blikanna, Svavar
Magnússon 7 og Paul Dempsey 5. EI-
var Einarsson skoraði 6 mörk fyrir
Fylki, Jón Ó. Daníelsson, Kristján
Sigurðsson og Sigurður Sigurðsson 4
hver.
FH og Þróttur léku einnig í Seljask-
ólanum en leikjunum þar seinkaði
mjög og var viðureign félaganna ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun. í
hálfleik var staðan 13-11, FH í hag.
Þá eru Týr, Þór Ve, Stjarnan, Vík-
ingur, ÍA, Ármann og Breiðablik
komin í 8-liða úrslitin ásámt sigurveg-
aranurn í leik FH og Þróttar.
—HS/VS
Knattspyrna
Fram-KR
Annar leikur Keykjavikurmótsins í
meistaraflokki karla fer fram á gervi-
grasinu í Laugardal í kvöld. Fram og
KR eigast við kl. 20.30.
Badminton
Sigur í 3.deild!
Naumlega misst af sœti í 2.deild
íslenska landsliðið í badminton
tryggði sér í gær sigur í 3. deild
Evrópukeppninnar í Uppsölum í
Svíþjóð. Island lék til úrslita við
Tékkóslóvakíu og sigraði 3-2.
Ekki náði liðið þó að vinna sér
sæti í 2. deild, en litlu munaði. í
gærkvöldi lék ísland til úrslita við
Irland, sem hafnaði í neðsta sæti
2. deildar. Irarnir unnu nauman
sigur í spcnnandi leik, 3-2, og
halda sæti sínu í 2. deild en ísland
leikur áfram í þeirri þriðju.
—VS