Þjóðviljinn - 06.04.1986, Page 5
Vígbúnaðarkapphlaup
Að selja
geimvopn
Margir eru meira en vantrúaðir á
geimvopnaáœtlun Bandaríkjanna,
en áróður fyrir henni er rekinn af mikilli
hörku, enda œtla margir sér að
grœða á œvintýri þessu
Menn kannast við þá
meginhugmynd sem liggurað
baki svonefndum
Stjörnustríðsáformum
Reagans Bandaríkjaforseta.
Hún er sú, að koma fyrir í
geimnum búnaði, sem finnur
kjarnaodda Sovétmanna
meðan eldflaugar, sem þá
bera, eru á uppleið og eyða
þeim síðan með öflugum
geislavoþnum. Stjórnvöld
kenna þessi áform við
skammstöfunina SDI, en
algengt er að kenna hana við
fræga tæknibrellukvikmynd,
Stjörnustríð, en þarskjótast
geimverur á dauðageislum
eins og að drekka vatn eða
skylmast með prikum.
Síðan geimvopnaáætlun var
hleypt út í pólitískt andrúmsloft
hefur það verið mjög algengt, að
sérfróðir menn hafa reynt að
skjóta hana niður. Gagnrýni
þeirra stefnir í tvær áttir. Annars-
vegar fara þeir, sem mest hugsa
um pólitíska hlið málsins - þeir
segja að hér verði um nýtt skref í
vígbúnaðarkapphlaupi að ræða,
sem muni, þegar allt kemur tií
alls, ekki leiða til annars en veður
gerast enn vályndari í heiminum
en það nú eru. Þessir menn vitna
svo til tæknifróðra, sem hafa bor-
ið fram margar efasemdir um
tæknilegan áreiðanleik þeirra
geimvopna sem tilraunir eru
farnar af stað með. Þeir segj a á þá
leið, að í Stjörnustríðsáætlunum
sé gert ráð fyrir nákvæmni og
samstillingu vopna og stýrikerfa,
sem aldrei verði unnt að ná - auk
þess sem ótal ófyrirsjáanlegir
hlutir á tvísýnum tímum, sem og
tæknileg andsvör Sovétmanna
við áætlunum Bandaríkjamanna
gætu gert geimvopnin miklu verri
en gagnslaus.
Tœknileg
vandkvœði
f vesturþýska vikublaðinu Spi-
egel er af stað farin mikill greina-
flokkur um stjörnustríðsáformin.
Þar er fyrst lögð mikil áhersla á
það, hve óralangt er frá því, að
lasergeislatækni hafi verið
beisluð með þeim hætti, að hægt
sé að nota hana til að eyða eld-
flaugum og kjarnavopnum í mörg
þúsund kílómetra fjarlægð. I
raun og veru sé ástand þessarar
tækni þannig, að til að mynda
þennan „feiknalega aflmikla
stuttbylgjugeisla" dugi ekki
minna en að hlaða „geimfallbyss-
una“ með atómsprengingu. Með
öðrum orðum: til að skjóta niður
atómvopn verður þú að byrja á
því að sprengja atómsprengju!
En sú samantekt í Spiegel sem
hér er vitnað til er ekki síst for-
vitnileg vegna þess, að þar er
gerð ágæt grein fyrir því, hvaða
aðferðum „sölumenn“ geim-
vöpnaáætlunar Reagans, menn
eins og James Abrahamson flug-
hershöfðingi, beita tii að hafa
áhrif á fjölmiðla og þar með al-
menningsálit í þá veru, að menn
hrífist með þeirri reyfaralegu
hugmynd að riddarar hins góða
geti með yfirburða geislatækni
tryggt sig gegn öllum morðtólum
Heimsveldis hins Illa, eins og Re-
agan hefur stundum kallað So-
vétríkin, a.m.k. þegar hann er
ekki á leiðinni að tala við Gorbat-
sjof flokksleiðtoga.
Að skjóta
bundna hœnu
Dæmi er tekið af tilraun sem
gerð var 1984 með mikið laser-
appírat sem Miracl er kallað.
Búnaður þessi, sem er feiknafyr-
irferðarmikill og óhentugur, varð
fyrst til þegar bandaríski sjóher-
inn vildi vita, hvort hann gæti var-
ið skip sín með lasgergeislum.
Búið var að salta þau áform sem
óhentug, en Reagan og hans
menn grófu þau upp. Sýndar
voru myndir af því, hvernig mið-
þrep bandarískrar Titaneldflaug-
ar eins og tætist í sundur þegar
geislar frá Miracl lendir á því.
Svona ætlum við að fara með
Rússann, sögðu sölumenn
geimvopnanna. Abrahamson lét
að því liggja að þessi búnaður
væri eiginlega klár til notkunar í
hernaði („weapon grade“).
En þegar málið var betur
skoðað kom allt annað í ljós. Það
kom nefnilega á daginn, að Mir-
acl var í aðeins 800 metra fjar-
lægð frá kyrrstæðu skotmarki
þegar tilraunin var gerð. Þetta
köllum við að skjóta á bundna
hænu, sagði Philip Farley um
þetta mál, en hann er eðlisfræð-
ingur við Stanfordháskóla í Kalif-
orníu og meðhöfundur að
gagnrýninni úttekt á meginhug-
myndum þeim sem liggja til
grundvallar Stjörnustríðsáform-
um. Maður bindur hænu og
skýtur á hana af þriggja skrefa
færi - og lætur að því liggja, að
þar með sé sannað að vel sé hugs-
anlegt að þú getir lagt að velli fugl
sem flýgur í þéttu kjarri í segjum
1200 metra fjarlægð!...
Það fylgir sögunni, segir Spieg-
el, að lasergeislabúnaður af gerð-
inni Miracl sé úreltur, tilraunin
sem kvikmynduð var hafi ekki
verið til annars en að koma með
eitthvað „sýnilegt“ til að hjálpa
til við áróðurinn sem rekinn er
fyrir geimvopnunum.
Loftbyssur
Annað dæmi er frá blaða-
mannfundi sem haldinn var í Col-
orado Springs í nóvember í fyrra.
Þar var enn að verki sölustjóri
geimvopnahugmyndarinnar,
James Abrahamson. Hann sýndi
mynd af eftirlíkingu af sovéskri
eldflaug af gerðinni SS-18. Á lík-
ani þessu (sem var einn þriðji af
James Abrahamson: svona ætlum við að fara með Rússana.
hroughout time, great team
have made history...We’r
Auglýsing um geimvopnaáætlunina - við þurfum að örva ímyndunarafl þeirr
sem borga ...
fullri stærð) var gat mikið. Þetta
gat, sagði Abrahamson, höfum
við skotin á eldflaugarlíkanið úr
„geislabyssu" (hugmyndin að
baki slíkrar byssu er að skjóta
skoti, ekki með aðstoð sprengi-
efnis eða eldflaugareldsneytis
heldur með tilstilli rafsegulafla).
Abrahamson játaði að líkanið
væru að vísu úr gipsi, timbri og
pappa. En svona væri samt hægt
að skjóta göt á sovéskar græjur
með geislabyssu.
Viðstaddir klöppuðu ákaft.
Og þó var þetta líka auglýsing-
abrella. Geimvopnamenn hafa
ekki í höndum geislabyssu sem
geti búið til önnur eins „göt“ úr
nokkurri fjarlægð og sáust á
myndum þeim sem sýndar voru. í
rauninni var skotið gat á líkanið
úr loftbyssu, sem er framhald af
því vopni til að hrella með fugla,
sem Fransmenn höfðu búið til
þegar á sextándu öld og allir
strákar kannast við.
Útsmogin
auglýsingatœkni
Og þá er komið að því, sem
menn veita kannski ekki alltaf at-
hygli: að bandarískur vopnaiðn-
aður hefði ekki velt 2500 miljörð-
um dollara síðan heimsstyrjöld-
inni síðari lauk ef ekki hefði kom-
ið til útsmogin auglýsingatækni
og fortölukúnstir, sem freista
ráðamanna til að leggja fé í sífellt
ný vopnakerfi.
Um þetta mál er vitnað til frægs
auglýsingamanns sem David Og-
ilvy heitir. En hann hefur sagt á
þessa leið:
„Með því að nytsemi nútíma-
vopns er mestan part staðsett í
ímyndunarafli þess sem vopnin
kaupir, þá eru auglýsingastarf-
semi og virk fjölmiðlatengsli í
raun og veru enn þýðingarmeiri
fyrir vopnaiðnaðinn en fyrir
neysluvöruiðnaðinn. Hér er í enn
ríkara mæli en þegar seldir eru
sportbílar eða snyrtivörur um
það að ræða, að virkja ímyndun-
arafl og leyndar óskir þess fólks
sem eiga að bora“.
Og Ronald Reagan, sem einu
sinni talaði inn á auglýsingar fyrir
General Electric Company, hef-
ur þegar ýtt af stað í þjóðarvit-
undinni því „ímyndunarafli" sem
vopnaframleiðendur treysta á
þegar þeir vonast til þess að
Stjörnustríðsáætlunin verði
þeirra mesta gullnáma. Allir vilja
vera með - Lockheed, McDonn-
el Douglas, LTV Aerospace,
General Dynamics, Grumman,
Aerojet General og fleiri stórfyr-
irtæki, sem öll eru að meira en
hálfu leyti háð vopnaframleiðslu,
eru á þeim lista, og sá listi er
langur. Þegar er búið að ganga
frá um það bil 1000 samningum
við iðnfyrirtæki um rannsókna-
verkefni í þágu geimvopnaáætl-
unarinnar.
„Þeir peningar sem þegar eru
farnir að streyma eru enn ekki
peningaflóðið mikla, en þeir
þjóna einkum því markmiði að
búa til vini og stuðningsmenn og
byggja upp kraftmikil hagsmuna-
samtök“ segir John Pike sem hef-
ur fylgst með geimvopnaáætlun-
inni af hálfu Samtaka banda-
rískra vísindamanna. Hagsmuna-
samtök um að reka á eftir þeirri
áætlun, tryggja það sem best að
hún komist það langt og vítt og
breitt að ekki verði við snúið. Og
Time spáir því að Stjörnustríðsá-
ætlunin verði kannski mesta
„flesktunna" allra tíma - Sam-
band rafeindaiðnaðarins giskar á
að fram til 1994 muni takast að
dæla í þá miklu tunnu allt að 70
miljörðum dollara.
ÁB tók saman.
Aðalfundur
Miðgarðs
verður haldinn miðvikudaginn 16. apríi kl. 18.00
að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Sunnudagur 6. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5