Þjóðviljinn - 06.04.1986, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 06.04.1986, Qupperneq 13
Þorvaldur Örn Árnason BRÉF TIL JESÚ Reykjavík, á páskum 1986. Kæri Jesús! Efþú hefðir fæðst á Húsavík fyrir 29 árum og alist upp á Brekkunni á Akureyri hjá móður þinni, henni Maríu, sem vann 10 stundir á dag í spunaverksmiðjunni tilþess aðþú gætir gengið menntaveginn og lesið fornsögurnar, Laxness, Marx, Nýjatestamentið og mannréttindaskrá Sameinuðu þjóðanna og leitað sannleikans einn og ótruflaður uppi á i öræfum, -þá vildiéggerastlærisveinnþinn ogsamverkamaður, straxá morgun - og fylgja þérþegár þú færir að hughreysta þá niðurlægðu svo þeim finnist þeir ekki verri menn þótt þeir geti ekki komið sér upp þaki yfir höfuðið og farið til sólarlanda. Ég myndi vilja sjá þig ná ökumönnum lifandi út úr samanlögðum bílhræjunum, tala viðþá angistarfullu svo þeir hætti við að fyrirfara sér og hjálpa úrvinda vinnuþrælum til að komanast í samband við börnin sín. Ég vildi heyra þig segja okrurunum til syndanna og taka forstjórana, prestana og ritstjórana á beinið. Ég myndi brjótast með þér inn í sjónvarpshúsið að næturlagi í nóvember og eyðileggja allar spólurnar með jólaauglýsingunum í ár svo við gætum sjálf ákveðið hvað við keyptum ekki. Ég vildi vera félagi í byltingarflokki þínum sem boðaði samhjálp, sjálfræði og jafnrétti og berðist fyrir réttlátri skipan samfélgsins hér á Islandi og um heim allan, útbýta með þér dreifiblöðum við Ríkið, hjálpa þér við að koma upp hátalarakerfi á Lækjartorgi, og setjast með þér á malbikið fyrir framan Awacs-vél á Keflavíkurflugvelli áður en hún færi í loftið til þess að stjórna takmörkuðu kjarnorkustríði. Ég myndi bera fyrirþig mynda vélina og nestispokann þegarþú færir um vígvellina í Afganistan til að geta sagt fólki um heim allan frá glæpunum sem verið er að drýgja þar núna og vinna með þér í fáeina mánuði á sjúkrastöð í Nicaraqua. Ég myndi kasta mér á leigumorðingjann sem KGB og CIA réðu til að drepa þig þegar valdhöfum heimsins væri orðið ljóst að þeim stafaði ógn aforðum þínum og athöfnum og ég myndi hjálpa Maríu, móður þinni, viðlcitina að líkamsleifum þínum þegar óþokkunum aðendingu tækist að láta þig hverfa. Ég vildi að égþyrði að hættá lífi mínu tilþess að halda byltingarstarf- inu áfram eftir aðþú værir fallinn frá íþeirri von að einhvern tíma verði öll mannanna börn bræður og systur sem hjálpist að við að gera jörðina að þeirri paradís sem okkur báða dreymdi um, þcgar við vorum litlir drengir. Þinn Þorvaldur Örn. Laus staða Laus er til umsóknar staða lektors í franskri málfræði og málvísind- um við heimspekideild Háskóla íslands. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðu- neytinu fyrir 1. maí 1986. Menntamálaráðuneytið, 1. apríl 1986. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Seljahlíð, vistheimili aldraðra v/Hjallasel 1. Hjúkrunarfræðinga á dag- og kvöldvaktir. Upplýsingar gefur Aðalheiður Hjartardóttir í síma 73633. 2. Starfsfólk í ræstingu og aðhlynningu á vist, um er að ræða vaktavinnu. 3. Hársnyrti, um er að ræða V2 starf. 4. Snyrtifræðing til fótaaðgerða, um er að ræða V2 starf. 5. Starfskraft við símavörslu. 6. Starfskraft í þvottahús. 7. Húsvörð, um er að ræða dagvinnu. 8. Sjúkraþjálfara. Upplýsingar gefur María Gísladóttir, forstöðu- maður í síma 73623 frá kl. 10.00 til 12.00, dag- lega. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 13. apríl. meira úrval af teppum / hraðari afgreiðsla, á auðveldarihátt. / bættþjónusta. NY TEPPADEILD Nýir rafmagns-teppastandar gera okkur kleift að sýna þér meira og meira úrval af tepparúllum á auðveldari hátt. 2) 3) 4) Á fallegu parketgólfinu taka stöku teppin sig sérlega glæsilega út. Bætt vinnuaðstaða auðveldar afgreiðslu og betri þjónustu. JL-teppadeild: Greiðslukjör gerast varla betri. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.