Þjóðviljinn - 06.04.1986, Side 20
Afmœlisór
Tónleikar í Langholtskirkju í nœstu
viku. Frakklandsferð og bygging
félagsheimilis í bígerð
Húsavernd
Torfu-
samtökin
gefa út bók
Torfusamtökin hafa sent frá sér rit
um húsaverndun. í því er að finna
erindi frá ráðstefnu sem samtökin
gengust fyrir á sl. hausti. Þangað
komu fjölmargir og urðu sumir frá að
hverfa.
Á ráðstefnunni héldu margir helstu
sérfræðingar landsins á sviði húsa-
verndunar erindi. f ritinu birtast er-
indi eftir Birgi H. Sigurðsson skipu-
lagsfræðing, Hörð Ágústsson
listmájara og arkitektana Guðrúnu
Jónsdóttur, Hjörleif Stefánsson, Þor-
stein Gunnarsson og Þorvald S. Þor-
valdsson sem jafnframt er forstöðu-
maður Borgarskipulags Reykjavíkur.
Þess ber að geta að ritið er gefið út í
mjög takmörkuðu upplagi en það
verður til sölu í Bókabúð Máls og
menningar, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar, Bóksölu stúdenta,
hjá Sögufélaginu Garðastræti 13b og
á skrifstofu Torfusamtakanna að
Amtmannsstíg 1 (Torfunni) en þar
má einnig panta ritið í síma. —|>H
• •• aö skipta um veður, menningu, þjóötungur,
eftir því sem hentar hverju sinni.
• •• að vera í Kaupmannahöfn í dag og Rínar-
dalnum á morgun.
• •• aö njóta aðstoðar SL-veganestisins, (Euro-
guide bókarinnar) þar sem þú hefur ógrynni
upplýsinga um fallegar ökuleiðir og athygl-
isverða staði, borgakort, gististaðaskrár og
fleira og fleira.
• •• að borga aðeins krónur 15.900,- fyrir flug og
Ford Escort í 2 vikur, svo dæmi sé tekið.
• •• að borga ekkert fyrir þriðju vikuna þegar fjórir
eðafimmeru íbíJnum.
Herbz
Okeypis hjá í Danmörku
• Ókeypis vegakort/bók
• Tölvuútskrift með leiðbeiningum um stystu
leiðir til þeirra áfangastaða sem þú hefur
valið þér.
• Afsláttarbók sem veitir margs konar afslátt á
veitingastöðum, gististöðum, skemmtistöð-
um, leikhúsum, skemmtigörðum og víðar.
Afsláttarbókin getur hæglega sparað þér
margar þúsundir króna.
• Handhæg taska fyrir léttan farangur - fram-
tíöareign sem alltaf kallar á góðar ferða-
minningar.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
Karlakór
Reykjavíkur
60 ára
Karlakór Reykjavíkur heldur
upp á 60 ára afmæli sitt á þessu
ári með ýmsu móti. Á sjálfan af-
mælisdaginn, 3. janúar sl., var
haldinn sérstakur hátíðarfundur
ag í næstu viku verða árlegir
hljómleikar kórsins fyrir styrkt-
arfélaga sína.
Hljómleikarnir verða haldnir
fjórum sinnum í Langholts-
kirkju. Þeir fyrstu verða á þriðju-
dag, 8. apríl, kl. 20.30, síðan á
sama tíma á miðvikudag og
fimmtudag en lokatónleikarnir
verða laugardaginn 12. apríl kl.
14.30. Stjórnandi kórsins á þess-
um hljómleikum verður Páll
Pampichler Pálsson og Guðrún
A. Kristinsdóttir leikur undir á
píanó. Einsöngvarar verða Frið-
björn G. Jónsson, Hjálmar
Kjartansson, Hreiðar Pálmason
og Ólafur Magnússon en í tilefni
af afmælinu munu margir eldri fé-
lagar kórsins syngja með honum
nokkur lög.
Ýmislegt fleira stendur til á af-
mælisárinu. Fljótlega eftir styrkt-
artónleikana verður tekin fyrsta
skóflustunga að nýju félagsheim-
ili í norðanverðri Oskjuhlíð og í
maí syngur kórinn með Sinfóníu-
hljómsveit íslands í Háskólabíói.
Þar verður ma. flutt verk eftir
Skúla Halldórsson tónskáld við
ljóð Vilhjálms frá Skáholti um
Pourqouis pas?, franska rann-
sóknaskipið sem fórst undan
Mýrum fyrir réttum fimmtíu
árum. íbúar á Bretagne skaga í
Frakklandi munu minnast þessa
skipstapa í júní í sumar og hefur
kórnum verið boðið að syngja
þar á fjórum stöðum á þeirri há-
tíð. —ÞH
Karlakór Reykjavíkur ásamt stjórnanda sínum, Páli Pampichler Pálssyni, og undirleikara, Guðrúnu A. Kristinsdóttur
píanóleikara.
Herbz
Prófaðu flug og bíl
íDanmöifcu
• •• að vera á nýjum eða nýlegum bíl, traustum
og skemmtilegum og líða eftir hinum full-
komnu akvegum Evrópu.
• •• að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af
kílómetragjaldi, lélegum merkingum eða
bilunum.
• •• að geta skotist á stuttum tíma til spennandi
áfangastaða um alla álfuna; borga, bæja,
skemmtigarða, veitingastaða, baðstranda -
hvert sem er.