Þjóðviljinn - 10.08.1986, Qupperneq 6
Færeyjar
Ólafsvakan er
indœlis...
Helgi HjörvartekurþáttíÓlafsvöku Færeyinga vopnaður penna og Ijósmyndavél
Vart hefur nokkurs manns erfi
jafn oft verið drukkið og Ólafs
hins helga Noregskonungs,
nema kalla skyldi erfidrykkju
þá sem kristnir menn lepja
blóð síns frelsara enda engin
leið að keppa við slíkt þjór. Þó
svo væri hefði Ólafsvakan
vinninginn í því að það erfi er
dyggilegast drukkið enda
hafafrændurokkar
Færeyingar sannað það á
Vökum sínum að þeir eru
komnirafvíkingum, þó
sjóveikirværu.
Raunar hafa Færeyingar ekki
verið einir um að halda minningu
Ólafs konungs á lofti, það hafa
allar norrænar þjóðir gert en við
minni orðstír. Þessi litla þjóð hef-
ur ekki aðeins ein norrænna
þjóða haldið minningu Ólafs
helga óslitið í aldaraðir heldur og
haft hana svo í hávegum að hún
var gerð að þjóðhátíð þeirra. Við
hlið Ólafsvökunnar færeysku
þykir jafnvel minningardagur
Norðmanna sjálfra um sinn
eiginn konung heldur snautlegur.
Á því afhverju svo er finnst
engin ein algild skýring. Ástæður
þess að Ólafsvakan verður aðal
hátíð Færeyinga eru margar.
Slóttur miðast
við Ólatsvöku
Líkt og um margar aðrar stór-
hátíðir skiptir tíminn miklu. Ól-
afsvökudagur er ávallt hinn 29.
dagur júlímánaðar og segja mér
það fróðir menn að við hana hafi
bændur löngum miðað slátt. Enn
eru þeir nokkrir, einkum rosknir
bændur, sem hefja ekki slátt fyrr
en Ólafsvaka er liðin. Því hafi
þeir hér á árunum áður flykkst í
kaupstaðarferð á Ólafsvöku til
nauðsynjakaupa, bæði fyrir slátt-
inn og veturinn. Hafi sú ferð haft
svipaða þýðingu fyrir Færeyinga
og alþingi fyrir íslendinga.
Þegar heil þjóð flykkist í
kaupstaðarferð á sama tíma gefur
það auga leið að glatt gerist á
hjalla. Frændur og frænkur hitt-
ast eftir langan viðskilnað,
bræður og systur, foreldrar og
fjölskyldan og ekki síst piltur og
stúlka. Það er sannkallaður
endurfundarfögnuður við skál og
dans og lítt hirt um svefn. Frið-
sælt eða tilbreytingarlaust líf
sveitamannsins er rofið en aðeins
einusinni á ári. Einusinni á ári
hittir hann frændur sína og vini
alla, getur drukkið frá sér allt vit,
glaðst og gleymt öllum áhyggjum
hversdagsins. Þegar svo er veldur
það engri furðu þótt kaupstaðar-
ferðin dragist svolítið á langinn
enda ku Ölafsvaka hafa staðið
hér á árunum áður í eina viku
samfleytt.
Brennivín, messur
og íþróttir
Það sem einkennt hefur Ólafs-
vökuna á seinni árum utan brenn-
ivín og messusöngur, eru íþróttir.
Dagurinn fyrir Ólafsvöku er ekki
ósvipaður sjómannadeginum hjá
okkur. Þá er landsmót í kapp-
róðri á höfninni og þúsundir
fylgjast með því. Ef ekki hefði
verið allt þetta þjóðbúningafólk
þá hefði ég haldið mig heima á
skeri. Þennan sama dag voru
einnig barnakappríðingar og ein-
hver fleiri íþróttamót sem ég kaus
að sofa af mér.
Á Ólafsvökudag sá ég svo leik
milli færeyska landsliðsins og
brasilísks félagsliðs, en í því voru
ekki færri en sex landsliðsmenn
Brasilíu. Fóru hinir síðarnefndu
með sigur af hólmi fjögur eitt, án
þess þó að leggja mikið í leikinn,
en það kom engu að síður á óvart
hve þokkalega Færeyingar léku
og greinilegt að hér í Færeyjum
sem annarsstaðar í Danaveldi er
knattspyrnan á hraðri uppleið.
Fyrir utan íþróttirnar voru að-
eins þrír dagskrárliðir á Vökunni.
Ágætir útitónleikar níu færeyskra
hljómsveita á sunnudeginum, lítil
barnaskemmtun á mánudeginum
og þingsetningin, en hún er eina
hefðin á Vökunni. Þá kemur
þingið saman í tvo til þrjá daga og
kýs nefndir og ráð fyrir veturinn.
Danskurinn fyrst,
trúin svo og fulltrúar
fólksins teymdir
af prestum
Múgur og margmenni flykkjast
að til að fylgjast með setningunni
enda er hún yndi fyrir augað.
Fyrst ganga þeir í þingið og setja
það en þá er gengið í kirkju. Þessi
ganga er hin skrautlegasta.
Fremst fer fornaldarvera með
korða, gulllitaða axlaskúfa,
fjaðrahatt og spora og er um-
boðsmaður konungs. Þá fer bisk-
up og síðast prestar og þingmenn
tveir og tveir hönd í hönd. Er
þetta lýsandi fyrir stöðu þjóðar-
innar, danskurinn fyrstur, trúin
svo en fulltrúar fólksins teymdir
af prestum.
Ánnars er Ólafsvakan hátíð
fólksins og helsta skemmtanin sú
að hitta góða vini og gleðjast.
Menn skemmta sér hér sjálfir.
Margir hittast eftir langan viðskilnað... ekki síst piltur og stúlka.
Á Ólafsvökunni skemmtir fólk sér úti undir beru lofti mestan part.
Dagurinn fyrir Ólafsvöku er ekki ósvipaður sjómannadeginum hjá okkur. Þá er landsmót í kappróðri.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1986