Þjóðviljinn - 10.08.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.08.1986, Blaðsíða 8
SUNNUDAGSPISTILL Ólympíuleikar í Berlín 1936 Nasistarvoru fullkomnir andstæðingar Ólympíuhreyfingarinnar, en þeir gátu notað hana ísinn mesta áróðurssigur Það var margt að gerast í heiminum fyrir fimmtíu árum. Borgarastyrjöldin á Spáni var að hefjast. Það voru haldnir Ólympíuleikar í Berlín. Þjóðviljinn var að byrja að koma út. í töfrabirtu í vitund ungra drengja með íþróttadellu stóð ljóminn af Ól- ympíuleikunum í Berlín alveg fram á þann dag að hægt var að halda næstu leika að ófriði lokn- um, það var í London 1948. Eldri bræður okkar og frændur höfðu safnað ólympíumyndum, sem földu sig í kaffipökkum, og límt inn í vönduð albúm - þetta voru glæsilegustu íþróttamyndir sem til voru. Við vissum náttúrlega ekkert um það, hvernig nasism- inn sló sér upp á þessari íþrótta- hátíð og heldur ekki neitt um þá mögnuðu vísu sem Jón Helgason hafði sett saman um frammistöðu íslensku íþróttamannanna í Berl- ín: í þeirri íþrótt að komast aftur úr öllum var enginn í heimi þeim jafn... En við vissum allt um afrek Jesse Owens, einvígi hans við langstökkvarann þýska Lutz Long, um heimsmetin sem fuku og ólymípumetin. Og við vissum líka að það hafði verið tekin framúrskarandi glæsileg kvik- mynd um þessa ieika, og sælir voru þeir sem fengið höfðu að sjá hana. ágæti - síðan hafa leikarnir meðal annars verið keppni í því, að komast ögn lengra en gert var næst á undan í skipulagningu og íburði. f fyrsta sinn var öllu afli fiölmiðla beint að því að blása út Ólympíuleika - heill her blaða- manna fylgdist með leikunum og útvarpað var frá þeim á þrjátíu tungumálum. Það var meira að segja sjónvarpað frá þeim í Berl- ín sjálfri. Og í fyrsta sinn voru Ólympíu- leikar hápólitískt deilumál. Margir voru þeir, sem ekki vildu tika þátt í þeim, vegna þess að kynþáttakúgunarstefna þýsku nasistastjórnarinnar var vitan- lega í hróplegri mótsögn við yfir- lýstan anda ólympíuhreyfingar- innar. Þar stóðu harðar deilur um það í Bandaríkjunum hvort íþróttamenn þaðan skyldu sitja heima. Á Spáni var vinstristjórn nýtekin við völdum - og uppreisn gegn henni reyndar hafin sem fyrr segir. En það var þessi stjórn sem boðaði til „Alþýðuólympíu- leika“ í Barcelóna um svipað leyti og leikarnir fóru fram í Berlín. Hér heima hvatti Verkalýðsblað- ið, fyrirrennari Þjóðviljans, ó- spart til þess að íslendingar sendu fulltrúa á leikana í Barcelona. Sigurhótíð Það er mikið talað um það núna að þýskir nasistar hafi ó- spart látið uppi kynþáttafordóma sína meðan á leikunum 'stóð, til dæmis er einatt vitnað til þess að blaðið Angriff hafi farið háðs- Hitler á leikvanginum - til hægri við hann er Lewald, sá sem sagði: Þetta verður góð auglýsing fyrir Þýskaland. Það er verið að rifja upp ýmis- legt um Ólympíuleikana þessa daga, meðal annars með mynd um Jesse Owens í sjónvarpinu. Margt í fyrsta sinn Ólympíuleikarnir í Berlín voru stærsta og um margt glæsilegasta íþróttahátíð sem haldin hafði ver- ið. Meira en 4000 keppendur komu frá 49 ríkjum (þá voru ríki heimsins líklega þrisvar sinnum færri en nú). Margt var gert í fyrsta sinn: í fyrsta sinn höfðu stjórnvöld ákveðið að gera Ól- ympíuleika að áróðri fyrir eigin legum orðum um „hinar svörtu hjálparsveitir" Bandaríkja- manna - en reyndar voru flestir bandarískir verðlaunahafar í frjálsum íþróttum blökkumenn. Það er rétt, að þetta komst á blað. Hitt vita færri að Göbbels áróðursmálastjóri tók Angriff til bæna á fundum með þýskum blaðamönnum. Það var brýnt fyrir þeim, að meðan á leikunum stæði, að minnsta kosti, skyldi enginn hreyfa kynþáttasjónar- miðum. Þetta eru bandarískir ríkisborgarar, sagði fulltrúi Göbbels á einum slíkum fundi, og það verður að bera virðingu fyrir þeim sem slíkum. Eitt hinna þýsku dagblaða gekk svo langt í Jesse Owens: segið ekkert misjafnt um blökkumenn meðan á leikunum stendur... „umburðarlyndi" að segja, að einmitt svartir menn hefðu fyrir- myndar líkamsbyggingu „sem líktist fegurðarhugsjón forn- aldar“! Hrifnir gestir Göbbels var slóttugur. Rifin voru niður skilti um að Gyðing- um væri bannaður aðgangur hér og þar. Djassinn, sem skömmu áður var fordæmdur sem úrkynj- uð niggaramúsík, fékk að blómstra á skemmtistöðum Berl- ínar. Allir áttu að sýna vinsemd og kurteisi. Auk þess sem Þjóð- verjar voru náttúrlega í essinu sínu bæði að því er varðar al- mennan íþróttaáhuga og skipul- agsdugnað. Útkoman varð svo sú, að erlendir gestir fengu miklu glýju í augun. Þeir höfðu aldrei séð annað eins. Þeir voru stór- hrifnir. Þeir sögðu að nasisminn væri líklega nokkuð gott skipu- lag. Ekki bara vegna þess, hve vel hann skipuleggur íþróttamót - þótt það eitt nægði mörgum sjálf- sagt til að fá í hnén. Líka vegna þess, að svo sýndist, sem Hitlers- Þýskaland hefði betur ráðið við heimskreppuna og afleiðingar hennar en flestir aðrir. Og eins og margoft hefur gerst fyrr og síðar: gestir á vandlega undirbúinni hátíð vita í rauninni afar fátt um það, hvar þeir hafa verið. Þeir vita svosem ekkert um hvunndagslíf í landinu sem þeir heimsóttu, þeir átta sig ekki á því, hve marga og mikla mögu- leika einræðisríkið á til að mála framhliðina á sínu húsi fallega og láta annað ekki sjást. Nasistar á móti Þýska vikublaðið Spiegel tók saman fróðlega grein um Ólym- píuleikana í Berlín á dögunum. Þar er minnst á ýmsar merkilegar þversagnir: en sú er stærst, segir blaðið, að í rauninni voru nasistar andvígir Ólympíuleikum. Þeir höfðu ekki beðið um þá, þeir höfðu ekki annast skipulagning- una, og þeir áttuðu sig tiltölulega seint á því að þeir gætu með leikum þessum unnið mikinn sigur í áróðursstríði. Það voru þrír virðulegir og há- borgaralegir menn, sem árum saman unnu að því að gera hlut þýskrar íþróttahreyfingar sem mestan (en hún var lengi vel klofin eftir trúfélögum og stjórnmálaflokkum) og stefndu að því, að fá Ólympíuleikana til Berlínar. Þeir hétu Theordor Lewald (hálfur Gyðingur), Carl Diem og Karl Ritter von Halt. Eftir margra ára starf, sem m.a. fólst í því að virkja fjölmiðla og áhrifamikla stjórnmálamenn, fengu þeir því framgengt á fundi alþjóðlegu ólympíunefndarinnar í Lausanne árið 1931, að Berlín var valin vettvangur næstu Ólym- píuleika, hinna elleftu í röðinni. Nasistar voru enn ekki komnir til valda og þeir voru vægast sagt lítið hrifnir. Þeir drógu ekki duld á það að þeir fyrirlitu allt alþjóð- legt bræðralagstal um íþróttir. Nasistablaðamenn töldu lík- legast, að á bak við Ólympíu- ævintýrin væri samsæri Gyðinga og friðarsinna. Þeir höfðu engan sérstakan áhuga á íþróttum nema sem „líkamsrækt“ fyrir slagsmálahunda Stormsveitanna og verðandi hermenn. Skelfi- legast af öllu þótti nasistum samt að hugsa til þess, að þýskir Aríar neyddust til að keppa við hlið ARNI BERGMANN negra og júða. Þegar Edward Tolan, svartur maður, vann til gullverðlauna í Ólympíuleikun- um í Los Angeles 1932, skrifaði flokksblað nasista, Volkischer Beobachter: „Negrar eiga ekkert erindi á Ólympíuleika. Vonandi vita ábyrgir menn, hver skylda þeirra er. Það verður að útiloka þá svörtu frá þátttöku. Við ætlumst til þess“. Hitler skildur Það var því ekki nema von, að það færi hrollur um menn í höf- uðvígstöðvum alþjóðlegu ólympíunefndarinnar þegar nas- istar komust til valda árið 1933. Hvernig verður hægt að halda leikana í Berlín undir þeirra stjórn? En Lewald var bjartsýnn. Hann gekk á fund Hitlers og laumaði því að honum í samtali, að Ólympíuleikar, með þúsund erlendum blaðamönnum, gætu orðið hin besta auglýsing fyrir Þýskaland. Og Hitler mun fljótt hafa áttað sig á því, að þetta voru orð að sönnu. Undirbúningurinn að leikun- um gekk ekki átakalaust. Hitler vildi gjarna losa sig við Lewald og hans nóta og setja tóma nasista í staðinn í undirbúningsnefndir. En þegar ýmis ótíðindi í Þýska- landi höfðu orðið til þess að magna upp hreyfingu um að hundsa Berlínarleikana, þá sneri hann við blaðinu. Hann leyfði Lewald meira að segja að starfa áfram sem formaður Ólympíu- nefndarinnar. Hann samþykkti mikla fjárveitingu til Ólympíu- leikvangsins í Berlín. Hann sam- þykkti að tveim hálfum Gyðing- um skyldi boðið að keppa í þýska liðinu til þess að allt liti nú sem best út. Á þennan sérstæða hátt vannst áróðurssigur, sem margir telja að hafi ráðið miklu um að Þýskaland losnaði að nokkru út úr þeirri ein- angrun á alþjóðavettvangi sem valdataka nasista hafði haft í för með sér... Sá sem eiðinn sór Það var ungur, fríður og ljós- hærður lyftingamaður, Rudolf Is- mayr, sem vann ólympíueiðinn þegar leikarnir í Berlín voru settir fyrir fimmtíu árum. Eftir stríð gerðist hann einn af stofnendum Þýska friðarsambandsins og fékk orð í eyra frá íhaldinu fyrir að vera kommavinur. í nýlegu við- tali við Ismayr, svaraði hann þeirri spurningu, hvers vegna hann hafi sér til ýmislegra óþæg- inda farið að hafa afskipti af friðarmálum: „Ég hafði áttað mig á því, að það nægði ekki að við íþrótta- menn eltumst aðeins við okkar íþrótt og teldum að ein- hvernveginn mundum við efla heimsfriðinn með því móti. Við hefðum í þá daga átt að fylgjast betur með handapati stjórnmála- manna - og berja á fingur þeirra sem oftast...“. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.