Þjóðviljinn - 10.08.1986, Page 16
IÐNSKOLINN I REYKJAVÍK
Bókagerðarmenn
Kennara vantar í bókagerðargreinum, einkum
offsetskeytingu og plötugerð.
Upplýsingar veitir Oli Vestmann Einarsson, yfir-
kennari, í síma 18326.
A
Fóstrur -
starfsfólk
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftirtaldar
stöður á dagvistarheimilum bæjarins lausar til
umsóknar.
Um er að ræða ýmist 50% eða 100% störf.
Fóstru að dagvistarheimilinu Efstahjalla. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46150.
Fóstru að dagvistarheimilinu Grænatúni. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46580.
Fóstru að dagvistarheimilinu Kópasteini við
Hábraut. Upplýsingargefurforstöðumaðurísíma
41565.
Fóstru og starfsfólk við uppeldisstörf að dag-
vistarheimilinu Marbakka. Upplýsingargefurfor-
stöðumaður í síma 64112.
Fóstru að leikskólanum Fögrubrekku. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 42560.
Fóstru að skóladagheimilinu Dalbrekku. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12. Einnig veitir dag-
vistarfulltrúi upplýsingar um störfin í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
A
iSfrJ
Kópavogur-
foreldrar
Höfum enn nokkur pláss laus á dagvistarheim-
ilinu Kópaseli. Kópasel er dagvistarheimili, sem
staðsett er við Lækjarbotna. Aðstaða er mið-
svæðis í Kópavogi, þar sem starfsfólk og börn
safnast saman í byrjun og lok hvers dags.
Vegna staðsetningar Kópasels býður starfsemin
þar upp á ýmsar nýjungar og dýrmæta reynslu
fyrir börnin.
Um er að ræða dagvist fyrir börn á efri forskóla-
aldri í allt að 71/2 klst. á dag frá kl. 7.30-15. Þeir
Kópavogsbúar, sem óska eftir vistun fyrir börn
sín í Kópaseli í haust, hafi samband við Félags-
málastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12, sími
41570. Þar liggja umsóknareyðublöð frammi og
allar nánari upplýsingar eru veittar.
Dagvistarfulltrúi
Orðsending
til bænda
Þeir bændur sem hafa framleiðslu í mjólk og
kindakjöti samanlagt undir 300 ærgildisafurðum
á verðlagsárinu 1984/1985 og meirihluta tekna
sinna af þeirri framleiðslu geta sótt um viðbótar
fullvirðisrétt í mjólk til Framleiðsluráðs landbún-
aðarins sbr. 3. tölulið 13. gr. reglugerðar nr. 339/
1986, sem bændur hafa nýlega fengið senda.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofum búnaðar-
sambandanna.
Þeir bændur, sem telja sig eiga rétt skv. 14. gr.
sömu reglugerðar, skulu sækja um aukinn rétt til
viðkomandi búnaðarsambands.
Umsóknarfrestur er til 1. september nk.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
stað þess að stytta allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna um þrjár vikur, einsog Perez de Cuellar aðalritari SÞ lagði til,
var ákveðið að fresta ráðstefnu mannréttindastofnunarinnar um óákveðinn tíma.
Mannréttindum
frestað
Fjárskortur Sameinuðu þjóðanna verður til þess að
ráðstefnu mannréttindastofnunarinnar sem halda átti í
þessum mánuði verðurfrestað. Þykirýmsum sem
sparnaðurinn komi niðurá mikilvægasta þætti
starfsemi SÞ
Sameinuðu þjóðirnar hafa
hættvið aðhalda
mannréttindaráðstefnu, sem
átti að vera í Genf nú í ágúst.
Ástæðan erfjárskorturSam-
einuðu þjóðanna. Samtals
skulda aðildarríkin um 20
milljarða króna til Sameinuðu
þjóðanna. Til að sparavar
ákveðið að hætta við ráð-
stefnuna, en í staðinn hafa30
frjáls samtök ákveðið að
halda samskonar ráðstefnu í
Genf og verður hún dagana
28.-30. ágúst.
Ýmsar tilraunir hafa verið
gerðar til að reyna að bjarga ráð-
stefnunni og m.a. safnaði breska
hreyfingin gegn þrælkun um sex
milljónum króna meðal fé-
lagssamtaka víðsvegar um heim-
inn. Aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, Perez de Cuellar, gat hins-
vegar ekki þegið peningagjafir.
Segir hann að Sameinuðu þjóð-
irnar verði að standa fast á þeirri
reglu að þyggja aldrei fégjafir frá
neinum, slíkt kunni að binda
samtökin, en þau mega ekki vera
skuldbundin neinum fjárhags-
lega.
Perez vísar m.a. til þess að ný-
Iega afþakkaði hann tilboð frá
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um um peningagjöf. Risaveldin
buðust til að láta SÞ fá rúmar 400
milljónir gegn því að nokkur
óþægileg mál yrðu tekin út af
dagskrá allsherjarþingsins. So-
vétríkin skulda annars SÞ um
rúma þrjá milljarða króna.
Það að SÞ hafi ekki lengur ráð
á að fást við mannréttindamál er
að mati margra afar slæmt, því
mannréttindin eru mikilvægasti
málaflokkur samtakanna.
Mannréttindabrot
mjög mörg
Árlega eru tilkynnt um 50.000
mannréttindabrot til Sameinuðu
þjóðanna og hefur
mannréttindastofnunin haft í
nógu að snúast við að reyna að
ráða bót á þessu ástandi.
Undanfarin tíu ár hefur
mannréttindastofnunin unnið
mikið og þarft verk. Hefur ein-
stökum málum verið fylgt eftir
þar til þeim hefur verið lokið,
skýrslur hafa verið samdar um
ástandið í ákveðnum löndum og
fjalla þær um kynþáttamisrétti,
þrælkun, fólk sem hverfur spor-
laust, pyntingar, aftökur ogfang-
elsisvist.
Árangurinn af starfi
mannréttindastofnunarinnar hef-
ur verið nokkuð góður. Vakin er
athygli á grófum mannréttinda-
brotum og ósjaldan hafa yfirvöld
í viðkomandi landi orðið að taka
tillit til almenningsálitsins í um-
heiminum. Einstaka nefndir og
ráð á vegum mannréttindastofn-
unarinnar hafa beitt sér fyrir því
að ríkisstjórnir lagfæri það sem
miður fer í löndum þar sem
mannréttindabrot hafa verið al-
geng.
Betri og
friðvœnlegri
heimur
Takmark Sameinuðu þjóðanna
er að skapa betri og friðvænlegri
veröld fyrir íbúa þessarar plán-
etu, þar sem sérhver einstakling-
ur getur lifað mannsæmandi lífi,
því hlýtur starf mannréttinda-
stofnunarinnar að vera horn-
steinn starfsemi SÞ. Nú þegar
þarf að skera niður starfsemi SÞ
er byrjað á þessum þætti starfs-
ins.
Aðildarríki SÞ verða að gang-
ast undir eið þar sem þau heita
því að virða mannréttindi að fullu
en reyndin er sú að einungis um
helmingur ríkjanna heldur þenn-
an eið. Er ekki að efa að mörg
þeirra ríkja sem virða
mannréttindi að vettugi hafi orð-
ið fegin þegar árlegum fundi
mannréttindastofnunarinnar var
aflýst, en það var meirihluti ríkja
SÞ sem ákváðu að fresta fundin-
um.
Perez de Cuellar lagði til að í
staðinn yrði allsherjarþing SÞ
stytt um þrjár vikur, en það þing
er þekkt fyrir orðavaðal sinn og
pappírsflóð en þykir lítið
áþreifanlegt koma út úr starfi
þess. Aðalritarinn fékk þó ekki
nægan hljómgrunn fyrir þessa til-
lögu sína og því var ákveðið að
hætta við ráðstefnu
mannréttindastofnunarinnar.
-Sáf/Ny tid.
Kennarar
Kennara vantar í Grenivíkurskóla.
Almenn kennsla í 1. og 9. bekk.
Frítt húsnæöi í góðri íbúð.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í
síma 96-33131 á kvöldin.
Sjúkrahús
Húsavíkur
auglýsir
Sjúkraliða vantar á Sjúkrahús Húsavíkur frá 1.
september eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri eða deildar-
stjóri í síma 96-41333.