Þjóðviljinn - 12.09.1986, Síða 1

Þjóðviljinn - 12.09.1986, Síða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA AWINNULÍF MATARGAT GLÆTAN Herstöðvasamningurinn Uppsögn lögð fyrir alþingi Pingflokkur Alþýðubandalagsins hyggst leggja fram tillögu um uppsögn herstöðvasamn- ingsins og aukið eftirlit þingsins með utanríkisstefnunni. Svavar Gestsson: Tel reglulega endurskoðun samningsins á þingi skynsamlega þangaðtil herinn fer ingflokkur Alþýðubandalags- ins er nú að undirbúa þings- ályktunartillögu um að segja upp herstöðvasamningnum við Bandaríkjamenn frá 1951, svo- kölluðum varnarsamningi. Drög að þessari tillögu eru eitt megin- efni þingflokksfundar í gær og í dag. Svavar Gestsson lagði til- löguna fyrir þingflokksfundinn. Hann sagði Pjóðviljanum í gær að hér væri á ferð tillaga um upp- sögn herstöðvasamningsins og sjálfstæða utanríkisstefnu, og væri meðal annars gert ráð fyrir að alþingi hefði á hendi aukið eft- irlit með framkvæmd utanríkis- stefnu, en hingaðtil hafa utan- ríkisráðherrar verið nánast einir íslendinga um að móta og fylgja fram íslenskri utanríkisstefnu, þar með talin samskiptin við Bandaríkjaher. Þá er fjallað um atvinnu til handa því fólki sem nú vinnur hjá Bandaríkjaher. Þingsályktunartillagan verður á dagskrá framkvæmdastjórnar AB og utanríkisnefnd miðstjórn- ar næstu daga. Búast má við að málið verði lagt fram í þingbyrj- un. í útvarpsþætti í síðustu viku tók forsætisráðherra undir hug- myndir Alþýðubandalagsmanns- ins Ólafs Ragnars Grímssonar um reglulega endurskoðun. Svavar sagði þessar hugmyndir hafa verið uppi á tímum vinstri- stjórnarinnar ’71-4, - „þær eru skynsamlegar meðan við náum ekki fram markmiðum okkar um uppsögn samningsins. Ég sé þetta þannig fyrir mér að samningurinn yrði því aðeins framlengdur að alþingi samþykkti hann hverju sinni, til dæmis til eins árs í senn. Með því móti væri málið stöðugt á dagskrá og yrði óhjákvæmi- legur hluti af pólitískri umræðu í landinu. Þannig væri málið alltaf á dagskrá þangaðtil herinn fer“. Pingflokksfundi Alþýðu- bandalagsmanna lýkur eftir há- degið í dag. -m Þykkvibær Kartöflu- annir Nú er sá tími árs sem kartöflu- upptaka er í fullum gangi. í hin- um fræga kartöflubæ, Þykkva- bæ, voru kartöfluvélar að störf- um í fjölda garða er við litum þar við í vikunni. Páll Guðbrandsson bóndi í Há- varðarkoti var við kartöfluupp- töku ásamt vinnufólki og spurð- um við hann um sprettu í ár. „Hún er ágæt, á að giska tólf-fö- ld, Það viðraði ágætlega í sumar til kartöfluræktar, þó var helst til þurrt og frost í júní og í byrjun ágúst gerðu ofurlítið strik í reikninginn. Hér lifa flestir bændur eingöngu á kartöflurækt og við rekum nú verksmiðju sem vinnur úr smælkinu. Sá rekstur gengur þó ekki nógu vel, því við keppum við innflutning í þeirri framleiðslu. Mættu stjórnvöld al- veg taka það til athugunar.“ - GH. Ragnar Geirsson og María Pálsdóttir í kartöfluupptökuvél Páls I Hávarðarkoti. Ljósm.: Sig. Brasilía Síðasti þrætiinn Waldomiro Da Silva, fyrrverandi þræll, léstígær Fyrrverandi þræll, sem taldi sig vera 119 ára gamlan, dó í svefni í Rio De Janeiro í gær. Hafði hann komist í fréttirnar í mars á þessu ári, þegar hann kvæntist konu sem var 65 ára og því 54 árum yngri en hann sjálfur. Þræll þessi, Waldomiro Da Silva að nafni, geymdi jafnan fæðingarvottorð sitt á náttborðinu til að sanna aldur sinn. Þrælahald var afnum- ið í Brasilíu fyrir tæpri öld, árið 1888, en samkvæmt fæðingar- vottórðinu var Da Silva fæddur 1867. e.m.j./reuter Markaðstilraun Sjóðum niður Atlantshafið Sjóefnavinnslan selur sjóþykkni til dansk-íslenskrar saltverksmiðju Sjóefnavinnslan hefur gengið frá samningum við dansk- íslenska félagið Sagasalt um til- raunasendingu á eimuðum sjó sem notaður verður í matvæli og framleiðslu á heilsusalti, sagði Magnús Magnússon fram- kvæmdastjóri Sjóefnavinnslunn- ar í samtali við Þjóðviljann í gær. „Þetta eru 4000 tonn af sjó sem verða eimuð og úr því fáum við 200 tonn af sjóþykkni sem send verða út. Þar verður prófað að vinna úr þykkninu, m.a. heilsu- salt en það er salt sem inniheldur rétt hlutfall af saltefnasambönd- um fyrir mannslíkamann og því mun hollara en venjulegt salt. Þetta er markaðstilraun og ef vel gengur íhugum við að fara út í áframhaldandi framleiðslu sem Sagasalt er nú að prófa. Úr þessu fæst skorið á næstu mánuðum og spumingin er fyrst og fremst um hvort markaður er tilbúinn til að greiða nógu hátt verð fyrir vöru- na“, sagði Magnús Magnússon framkvæmdastjóri Sjóefnavinns- lunnar. -GH Fiskeldi Laxar í lúsabaði Igær unnu starfsmenn Sjóeldis að því að aflúsa lax í flotkví eldisstöðvarinnar rétt utan við Keflavík. „Það hefur borið nokk- uð á lús á laxinum að undan- förnu“, sagði Sigurður St. Helga- son frá Eldisráðgjöfinni, en hann aðstoðaði og ráðlagði við aflús- unina. „Með því að taka svona snemma á vandanum komum við í veg fyrir að vanhöld verði vegna lúsarinnar. Þetta gengur vel, og laxalúsin mun ekki valda neinu tjóni hjá Sjóeldi", sagði Sigurð- ur. Fiskurinn er baðaður úr sér- stakri lausn til að eyða lúsinni. Víða erlendis hefur hún valdið tjóni í laxeldisstöðvum en hér á landi hefur nitin til þessa ekki bakað verulegan vanda. -ÖS

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.