Þjóðviljinn - 12.09.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 12.09.1986, Blaðsíða 6
j tWUUci . ^ '?VÍ4, Eftirtaldar greinar eru í boöi á haustönn 1986, ef þátttaka leyfir: TUNGUMÁL: íslensk málfræöi og stafsetning. íslenska fyrir útlendinga (1. einu sinni í viku 80 mín., 2. tvisvar í viku 60 mín., 3. tvisvar í viku 80 mín., 4. framhaldsflokkur). Danska 1.-4. flokkur. Norska 1.-4. fl.. Sænska 1.-4. fl.. Enska 1.-6. fl.. Þýska 1.-3. fl.. Þýska, samtalsfl. ítalska 1.-4. fl.. ítalskar bókmenntir. Spænska 1.-4. fl.. Spæn- skar bókmenntir. Spænska, samtalsfl.. Franska 1.-4. fl.. Portúgalska. Hebreska. Gríska. VERSLUNARGREINAR: Vélritun . Bókfærsla. Tölvunámskeið. Stærðfræöi (grunnskóla- og framhaldsskólastig). VERKLEGAR GREINAR: Sníöar og saumar. Myndmennt. Formskrift. Postulínsmálun. Mynd- vefnaður. Leikfimi. NÝTT: NÁMSKEIÐ í MYNDBANDAGERÐ (VIDEO). Danska, sænska og norska fyrir 7-10 ára börn, til að viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna eitthvað fyrir í málunum. í almennri deild er kennt einu sinni eða tvisvar í viku, ýmist 2, 3 eða 4 kennslustundir í senn í 11 vikur. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Lauga- lækjarskóla, Gerðubergi og Árseli. Námskeiðsgjald fer eftir kennslustundafjölda og greiðist við innritun. ATHUGIÐ: Félög og hópar sem óska eftir kennslu í einhverri grein geta farið þess á leit að Námsflokkarnir haldi námskeið um efnið og verð- ur það gert svo fremi sem hægt er. INNRITUN fer fram 17. og 18. sept. kl. 17-20. Kennsla hefst 29. sept. 4 ilJcUrKeuL # KENNSLA í SÆNSKU OG NORSKU í STAÐ DÖNSKU Á GRUNNSKÓLASTIGI. Skólaárið ’86-’87 verður kennd sænska og nor- ska í eftirfarandi skólum í Reykjavík: SÆNSKA NORSKA Árbæjarskóla Breiðholtsskóla Hagaskóla Hvassaleitisskóla Langholtsskóla Seljaskóla ölduselsskóla Árbæjarskóla Hagaskóla Langholtsskóla Seljaskóla Æfingadeild K.H.Í. Nemendur sem ekki geta sótt kennslu í þessum skólum sækja áfram kennslu í Miðbæjarskólan- um. Einnig verður kennt í Kópavogi og Hafnarfirði. Nemendur, sem ekki hafa innritað sig enn, eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Náms- flokkanna í símum 12992 og 14106. Laus staða Staða yfirfangavarðar við Vinnuhælið á Litla- Hrauni er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 10. október nk. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 3. september 1986. A1VINNULÍF Þreskivélin aö slætti. Hálmurinn sem eftir verður á akrinum er nýttur til svepparæktar í svepparæktunarverksmiðu á Flúðum. Mér finnst fjári hart að þurfa að keppa við innflutning í kornrækt. Hér fæst korn á 9 kr. kílógrammið, og það er erfitt að reka búskap þegar innflutningur á útlendum afurðum er leyfður hömlulaust. Ég útbjó hér fóðurblöndu í fyrra sem innihélt 93% innlent hráefni og sú blanda var mjög góð og gafst vel. Einnig kynbætt- um við þá tegund sem við höfum verið með hér með norsku komi og sú útkoma lofar góðu. Af þess- ari kynbættu fæ ég 19 falda upp- skeru eða 40 tunnur af hektara, en af hinu fékk ég 30 tunnur. Og þessi kynbætta tegund nær þroska hálfum mánuði fyrr en hin, sem skiptir miklu fyrir okk- ur“. - Er hugsanlegt fyrir bændur að snúa sér að kornrækt? „Dýr vélakostur er eitt sem gerir þessa ræktun erfiða. Menn verða að fjárfesta í þreskivél, en hún slær, lemur kornið og hreinsar rusl frá. Síðan verður að þurrka það og til þess þarf dýran vélabúnað. Það er vel mögulegt fyrir bændur að fjármagna kaup á vélum í sameiningu og skiptast á um notkun. Sumir bændur t.d. í Landeyjum selja sitt korn beint til graskögglaverksmiðju og koma sér þannig hjá að þurrka komið sjálfír". - Er kornið eingöngu nýtt í skepnufóður? „Já, mestmegnis. Að vísu hef- ur verið prófað að nýta það til brauðgerðar og Háaleitisbakarí ætlar að baka úr því á næstunni". Nú kom traktorinn með þresk- ivélina og tæmdi kornið í vagn og við fylgdumst með er kornið sáldraðist um borð. Að lokum þökkuðum við Eggert fyrir spjall- ið og hér á síðunni má sjá nánar hvernig kornrækt getur verið á íslandi. -GH AFMÆLISÚTGÁFA vegna 70 ára afmælis Guðrúnar Guðvarðardóttur NIÐJATAL Þóru Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli Álftafirði Guðrún Guðvarðardóttir í tilefni af 70 ára afmæli Guðrúnar Guðvarðardóttur í vor s.l. mun Starfsmannafélag Þjóðviljans gefa út ferðasögur hennar frá Vestfjörðum og niðjatal Þóru Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli. Bókin er væntanleg á markaðinn í október. Þeir sem hug hafa á að tryggja sér eintak geta hringt í síma 681333/73687 (Jóhannes) og 610398 (Jörundur) eða fyllt út pöntunarseðil og sent Starfsmannafélagi Þjóðviljans. Pósthólf 8020, 128 Reykjavík. Nöfn áskrifenda munu birtast í bókinni sem heillakveðja. Bókin kostar kr. 1.300,- til áskrifenda. (Útsöluverð úr búð verður kr. 1.500.-). Pöntunarseðill Nafn Heimili Sími Póstnúmer FERÐA- SÖGUR FRÁ VESTFJÖRÐUM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.