Þjóðviljinn - 12.09.1986, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 12.09.1986, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTHR Evrópukeppnin Stefnir í sama lið gegn Sovétmönnum Sömu níu atvinnumennirnir og léku gegn Frökkum eru væntanlegir aftur. Tíufrá Kiev ísovéska liðinu Gary Lineker hefur skorað 3 mörk í þremur fyrstu umferðum spænsku 1. deildarinnar. Barcelona Breskar hetjur Allt bendir til þess að ísland tefli fram nánast óbreyttu liði frá leiknum við Frakka í fyrrakvöld þegar leikið verður gegn Sovét- mönnum á Laugardalsvellinum annan miðvikudag, 24. septemb- er. Það er annar leikurinn í 3. riðli Evrópukeppni landsliða. Allir atvinnumennirnir 9 sem léku og.voru í hópnum í fyrra- kvöld verða einnig lausir fyrir leikinn við Sovétmenn. Aðeins meiðsli ættu að geta hindrað þátt- töku þeirra. Þetta eru þeir Ásgeir Sigur- vinsson, ArnórGuðjohnsen, Atli Eðvaldsson, Sigurður Jónsson, Sævar Jónsson, Bjarni Sigurðs- son, Ómar Torfason, Ragnar Margeirsson og Guðmundur Þor- björnsson. Hinir sex, Pétur Pétursson, Stefán Jóhannsson, Ágúst Már Jónsson, Gunnar Gíslason, Guðni Bergsson og Ólafur Þórð- arson, verða vafalítið áfram í hópnum en í þetta skiptið hlýtur Sigfried Held landsliðsþj álfari að kippa inn sextánda manni. Sovétmenn koma með sitt sterkasta lið hingað og reiknað er með að þar af verði 10 leikmenn frá hinu geysisterka liði Dynamo Kiev, sovésku meisturunum og sigurvegurunum í Evrópukeppni bikarhafa sl. vor. Það er öllum ljóst sem sáu Dynamo Kiev leika sl. vor og síðan sovéska landsliðið í Mexíkó að leikurinn við Sovét- menn verður án efa enn erfiðari en viðureignin við frönsku Evr- ópumeistarana í fyrrakvöld. -VS Islandsmótið Hreppir Fram titilinn og Guðmundur markamet? Lokaumferðl. og2. deildar um helgina Bresku miðherjarnir Gary Lineker og Mark Hughes skutu Barcelona í efsta sæti spænsku 1. deildarkeppninnar í knattspyrnu í fyrrakvöld. Þeir skoruðu sitt hvort markið í 2-0 sigri liðsins á Cadiz. Jorge Valdano (Argentínu) og Hugo Sanchez (Mexíkó) skoruðu mörk meistara Real Madrid sem gerðu 2-2 jafntefli við Sporting Gijon á útivelli. Eftir 3 umferðir eru Barce- lona, Real Betis og Las Palmas með 5 stig en Real Madrid, Atlet- ico Madrid og Real Mallorca með 4 stig. Ekkert þessara liða hefur tapað leik. -VS/Reuter Ítalía Brady skiptir Liam Brady, sá kunni írski landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við Ascoli, nýliða í ítölsku 1. deildinni. Ascoli er fjórða ítalska félagið sem Brady leikur með á sex árum. Hann hóf feril sinn þar hjá Juventus, fór þaðan til Sampdoria og síðan til Inter Milano þar sem hann lék þar til í vor. Inter keypti í staðinn Argentínumanninn Daniel Pass- arella frá Fiorcntina en hinn út- lendingurinn í liðinu er Vestur- Þjóðverjinn Karl-Heinz Rum- menigge. ítalska knattspyrnan hefst um helgina og í 1. umferð 1. deildar leika meistarar Juventus, mót- herjar Vals í Evrópukeppni meistaraliða, gegn Udinese. Lið Udinese var dæmt niður í 2. deild vegna mútumáls sem upp kom í sumar Það fékk 1. deildarsætið aftur en byrjar keppnistímabiiið í staðinn með níu stig í mínus. -VS/Reuter Said Aouita frá Marokkó og Yordanka Donkova frá Búlgar- íu tryggðu sér í fyrrakvöld sigur í stigakeppni Grand-Prix með sigrum í lokakeppninni í Róm. Aouita sigraði í 5000 m hlaupi karla þrátt fyrir að hafa legið rúmfastur með hita daginn áður Á morgun, laugardag, eiga Framarar alla möguleika á að tryggja sér íslandsmeistaratitil- inn í knattspyrnu í fyrsta skipti í 14 ár. Til þess dugir þeim jafntefli gegn KR á Laugardalsvellinum en Ieikur liðanna hefst kl. 14.30 eins og allir aðrir í síðustu umferð 1. deildarkeppninnar. Valsmenn leika við ÍA á Akra- nesi. Til þess að þeir verji titil sinn þurfa þeir að sigra þar og treysta á að Fram tapi fyrir KR. Allt getur gerst en möguleikar Vals eru óneitanlega frekar litlir - ekki síst vegna þess að fyrir þá verður erfitt að sigrast á Skaga- mönnum sem hafa unnið alla sína sex leiki síðan Pétur Pétursson gekk til liðs við þá. Framarar eru heldur engan veginn öruggir með stig gegn KR- ingum sem sýndu gegn Val um síðustu helgi að þeir geta leikið eins vel og best gerist hér á landi. KR stefnir örugglega á sigur og það yrði góður endir á keppnis- tímabili sem ekki hefur farið að Pólska liðið GKS Katowice er væntanlegt hingað til lands á og Donkova vann enn einn sigur- inn í 100 m grindahlaupi kvenna. Annars vöktu mesta athygli í keppninni heimsmetstilraunir so- véska hástökkvarans Igors Pakl- in. Hann reyndi tvívegis að bæta heimsmet sitt sem er 2,41 metri, en mistókst naumlega. -VS/Reuter óskum hjá liðinu að sigra bæði Val og Fram. Guðmundur Torfason, mið- herji Fram, getur sett nýtt marka- met í 1. deild á morgun. Um síð- ustu helgi jafnaði hann 8 ára gam- alt met Péturs Péturssonar er hann skoraði sitt 19. mark í deildinni í sumar. Guðmundur þarf því aðeins eitt mark en til að skora það þarf hann að taka á öllu sínu gegn hinni geysisterku vörn KR sem aðeins hefur fengið 10 mörk á sig í 1. deild í sumar. FH og Breiðablik leika úrslita- leik í fallbaráttunni í Kaplakrik- anum. Breiðablik þarf að vinna þriggja marka sigur til að halda sæti sínu á kostnað FH, allt annað þýðir fall fyrir Kópavogsliðið. Þar verður örugglega ekkert gef- ið eftir. Aðrir leikir eru Víðir-ÍBV í Garðinum og Þór-ÍBK á Akur- eyri. Staðan fyrir síðustu umferð: Fram.............17 11 4 2 39-13 37 Valur............17 11 2 4 28-9 35 ÍA..............17 9 3 5 31-19 30 KR..............17 7 7 3 21-10 28 sunnudaginn. Það mætir Fram í fyrri leiknum í Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu á Laugardalsvellinum kl. 18 á þriðjudaginn en seinni leikurinn fer fram í Póllandi fimmtudaginn 2. október. Katowice hefur komið mjög á óvart í haust og er í hópi efstu liða. Það varð í fimmta sæti í fyrra og hefur aldrei orðið pólskur meistari. Einn leikmanna liðsins, Jan Furtok, lék með Pólverjum í heimsmeistarakeppninni í Mex- íkó og einn annar, Jerzy Wijas, hefur leikið með pólska landslið- inu. Það er skammt stórra högga á milli hjá Frömurum þessa dag- ana. Þeir geta tryggt sér íslands- meistaratitilinn á morgun með jafntefli gegn KR og síðan eru það pólsku bikarmeistararnir á þriðjudag. IBK...............17 9 1 7 23-24 28 Víðir.............17 5 4 8 20-23 19 Þór...............17 5 4 8 18-29 17 FH................17 5 3 9 22-34 18 Breiðablik........17 4 3 10 16-33 15 (BV...............17 2 3 12 18-42 9 í 2. deild er lokaumferðin leikin kl. 14 á sunnudag. Þar er aðeins óútkljáð hvaða lið fellur með Skallagrími í 3. deild, ÍBÍ eða UMFN. ÍBÍ dugir að sigra Skallagrím til að halda sér uppi. Takist það ekki á UMFN mögu- leika með því að vinna Þrótt í Reykjavík. -VS ísland varð fyrir nokkrum dögum fullgildur meðlimur í Evr- ópusambandi Karatemanna (EKU). Hingað til hefur Karate- samband íslands (KAI) verið aukameðlimur og þurft sérstakt leyfi til að taka þátt í Evrópu- mótum. Nú er það úr sögunni og KAI fær auk þess fullan atkvæð- isrétt á þingum Evrópusam- Setur Guðmundur Torfason nýtt markamet á morgun? bandsins. „Þetta er stór og þýðingar- mikill áfangi fyrir okkur. Nú eigum við mun nteiri möguleika á að fá landskeppni við aðrar þjóð- ir og eigum auðveldara með að sækja mót erlendis,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, formaður KAI, í samtali við Þjóðviljann í gær. -VS Grand-Prix Aouita og Donkova sigurvegarar Unnu í úrslitakeppninni í Róm Fram-Katowice Pólverjamir koma á sunnudaginn Karate ísland aðili að Evrópusambandinu -vs HK Tékkinn úr leik en Guðjón raðinn Guðjón Guðmundsson, fyrr- um leikmaður FH, hefur verið ráðinn þjálfari 2. deiidarliðs HK í handknattleik. Hann mun jafn- framt leika með liðinu. Til stóð að Tékkinn Jaroslav Papernik myndi þjálfa og leika með HK en hann hætti við að koma á síðustu stundu og fer líklega til félags í Vestur-Þýskalandi í staðinn. Guðjón er einnig kunnur úr knattspyrnunni, lék með FH og Þór í 1. deild og hefur þjálfað og leikið með ÍK í Kópavogi sl. tvö ár. „Þetta kom óvænt upp nú í vikunni en það er spennandi verkefni að taka við HK-liðinu,“ sagði Guðjón í spjalli við Þjóð- viljann í gær. HK hefur misst tvo sterka leik- menn, Magnús Stefánsson, markvörð úr 21-árs landsliðinu, sem leikur í Noregi í vetur og Björn Björnsson sem er genginn til iiðs við Gróttu. í staðinn hefur Kópavogsliðið fengið auk Guðj- óns þá Kristján Þór Gunnarsson frá Breiðabliki og breskan ung- lingalandsliðsmann, Brian Harri- son, og einnig markvörðinn Hörð Bjarnason frá Borgarnesi. -VS Föstudagur 12. september 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.