Þjóðviljinn - 12.09.1986, Side 10
Vertshús
í Fischersundi
Að vera dús við lífið er að:
- Borða gómsætan mat
- Njóta léttra veiga
- Dvelja í hlýlegu umhverfi
- Hlusta á hæfileikamann flytja tónlist
- Hitta fólk, spjalla og slaka á!
- Dansa eftir matinn.
HITTUMST í DUUS
SÍMI 14446
VEITINGAHUSIÐ
FÓGETINN
Veitingahúsiö FÓGETINN er opið
daglega frá kl.12.00-14.00 og frá 18.00
Ljúffengir réttir bornir fram jafnt af
matseðli dagsins sem af fjölbreyttum
sérréttaseðli.
Vönduð og lipur þjónusta.
Hljómsveitir leika 3 kvöld vikunnar.
Kreditkortaþjónusta.
Upplýsingar og borðapantanir í síma
16323.
Aðalstræti 10-101 Reykjavík.
VEITINGAHÚSIÐ FÓGETINN
- SVO SANNARLEGA í
HJARTA
REYKJAVÍKUR!
Lena Bergmann.
Sveppaparadísin
ISLAND
Rætt við Lenu Bergmann um tínslu, geymslu og matreiðslu sveppa
„ísland er í raun sveppapar-
adís. Hér getur maður á litlu
svæði safnað miklu af svepp-
um í körfu, en víða erlendis
verður að safna sama magni á
stóru svæði,“ sagði Lena
Bergman sem er mikill
sveppasérfræðingur. Við
leítuðum til hennar til að fá að
vita allt um sveppi og veitti hún
okkur góðfúslega allar upplýs-
Ingar.
„Mér finnst alger synd að fólk
skuli ekki nýta sér þetta búsflag
sem sveppirnir eru. Maður sér
fólk kaupa sveppi í búðum dýrum
dómum en hægt er að tína alla þá
sveppi sem maður þarf úti í nátt-
úrunni og geyma til ársins.
Sveppatími hér er frá lokum
júlímánaðar, fer þó dálítið eftir
veðráttu og stundum hefst hann
fyrr ef hlýtt er í veðri. Má tína
sveppi allt sumarið þar til fer að
frjósa á haustin. f grennd við
Reykjavík eru góð sveppasvæði í
t.d. Öskjuhlíð, Elliðaárdal,
Heiðmörk og Hafnarfjarðar-
hrauni. Til eru nokkrar tegundir
af ætum sveppum en bestir hér
sunnanlands eru birkisveppur og
furusveppur. Þá er auðvelt að
þekkja og þeir eru matarmiklir.“
Hvernig má þekkja þá?
„Birkisveppur er með brúnan
hatt en getur þó haft þann litar-
mun að vera allt frá ljósbrúnu
upp í svart. Hann er með hvítan
stilk sem alsettur er svörtum
strikum og getur verið bæði mjór
og langur og stuttur og feitur...“
„Lýsa má furusvepp þannig að
ungir sveppir af tegundinni eru
oftast með brúnan hatt og hinir
eldri með gulan. Oft eru þeir með
slímhimnu sem verður að fjar-
lægja“.
Hvernig á að tína sveppi?
„Góð regla er að hafa með sér
hníf og skera sveppina frá rótinni
eða snúa hann varlega af, því
annars er hætt við að maður drepi
jurtina og valdi því að enginn
sveppur vex næsta ár. Best er að
tína í þurru veðri, en það er alls
ekkert skilyrði. Séu sveppirnir
blautir má kreista varlega úr
þeim bleýtuna. Þegar heim er
komið á að skola sveppina eða
bara þurrka af þeim, en alls ekki
leggja þá í vatn því þeir sjúga það
í sig líkt og svampur.“
- Hvernig er best að geyma
sveppina?
„Það má t.d. steikja þá í olíu
eða smjöri, salta og pipra, kæla
þá og frysta síðan í litlum pakkn-
ingum. Þá má svo nota í allt sem
vill, súpur, sósur og allt sem hug-
urinn girnist.
Það er iíka hægt að marinera þá
og er gott að nota unga furu-
sveppi til þess. Þeir eru hreinsað-
ir og himnan tekin af þeim og
soðnir í vatni í 10 mínútur. Að
marinera sveppi er svipað og þeg-
ar sfld er marineruð. Notað er
borðedik og vatn til helminga,
mikið af salti og síðan mariner-
ingarblanda eftir smekk, sem fá
má í öllum verslunum. Þetta er
sett saman í pott og suða látin
koma upp. Soðnu sveppunum er
síðan bætt út í og allt látið sjóða í
5 mínútur. Við marineringu verð-
ur að gæta þess að nota ekki al-
úminium potta, en aðra potta má
nota. Að marinera býður upp á
langa geymslu.
Svo má líka þurrka sveppina í
sól eða í ofni. Þeir skornir í
sneiðar, ofninn stilltur á ca. 70°
hita og sveppirnir hafðir í honum
opnum þar til þeir eru þurrir eða
stökkir".
Ertu með einhverjar frekari
leiðbeiningar að lokum?
„Fólk ætti að hafa í huga að
taka aldrei sveppi sem það þekkir
ekki. Að vísu eru ekki til banvæn-
ir sveppir hér á landi, þannig að
slík hætta er varla fyrir hendi.
Berserkjasveppurinn er sá eini
sem er eitraður en hann er vel
þekkjanlegur. Best er að læra að
þekkja ákveðnar tegundir og
halda sig við þær. Og eins og áður
sagði eru furusveppur og birki-
sveppur bestir til tínslu hér um
slóðir og eins og nöfnin benda til
vaxa þeir innanum samnefndar
trjátegundir". Að svo mæltu
þakkaði ég Lenu fyrir gagnlegt
spjall og vonandi verða einhverj-
ir til þess fyrir atbeina upplýsinga
hennar að fara í sveppaleiðangur
fyrir haustið.
-gh
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. september 1986