Þjóðviljinn - 12.09.1986, Qupperneq 17
I
Hvönn með kjötsúpu
4 I vatn, V2 kg kartöflur
salt 150 gr hrísgrjón
1 kg rófur 1 - 200 gr hvönn
l‘/2 kg kjöt
Þegar kjötið sýður, eru hrís-
grjónin, rófurnar og kartöflurnar
sett út í og soðið í 3 stundarfjórð-
unga. Þá er söxuð hvönnin sett út
í og soðið í 5 mínútur.
„Um þau segir Magnús Steph-
ensen í Hugvekjum 1808: Sér-
hver sjóarabóndi og sömuleiðis
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Grænmeti og ber
Fyrr á öldum var það sjálfsagður þáttur svcitastarfa að fara
grasaferðir og þótti öflun fjallagrasa og annarra nytjajurta mikil
búdrýgindi. Nú hafa þessar nytjajurtir fallið í gleymsku að
mestu og til fróðleiks og skemmtunar birtum við hér uppskriftir
úr bók Helgu Sigurðardóttur, Grænmcti og ber allt árið. Gcfum
Helgu orðið:
Skarfakál. Hér fyrrum var
skarfakálið talið eitt hið óbrigð-
ulasta meðal við skyrbjúg, og var
tröllatrúin svo mikil á ágæti þess,
að oft var sjúkt fólk sent langar
leiðir, til að vera nokkurn tíma
þar sem skarfakálið var fáanlegt,
og var lækningamáttur þessarar
jurtar svo mikill, að fólkið varð
heilbrigt eftir nokkra daga...
Sennilega er þetta auðugasti
C-fjörefnisgjafinn, sem til er hér
á landi, og hefði mann ekki grun-
að að upp úr íslenzkri mold
sprytti jurt, sem hefir jafnmikið
C-fjörefnismagn og appelsínur
og sítrónur, og jafnvel meira en
þær... Og hér fáum við uppskrift-
ir:
Skarfakál í skyri
200 gr skarfakál
H2 kg skyr
Skarfakálið er hreinsað og sax-
að. Blandað saman við hið
hrærða skyr. Bragðbætir er að
láta ofurlítinn sykur í það.
Skarfakálssalat
Skarfakálið er hreinsað og
skorið smátt. Gæta verður þess,
að sem minnst af safanum fari til
spillis. Hinu skorna káli er
blandað saman við þeyttan eða
óþeyttan rjóma, þar í er látinn
ofurlítill sykur eftir smekk. Best
er að rjóminn sé súr, sé hann það
ekki, er betra að láta sítrónusafa
eða edik í salatið... Sé lítið til af
skarfakáli má drýgja það með sal-
ati eða njóla. Mikil bragðbót er
að hafa tómata í salatinu.
Njóli
Þótt haustið sé ekki rétti tím-
inn til brúkunar njóla látum við
fylgja með nokkra fróðleiksmola
um þá jurt.
...Hann er þroskaður til matar
í maí - júní, og er það fyrsta
græna jurtin sem hver húsmóðir
landsins getur notað til matar að
vorinu. Hin ungu njólablöð eru
mjög bragðgóð og holl, en síðla
sumars verða njólablöðin ormét-
in, og þá verða íeggirnir trénaðir,
og verður hann þá ekki eins ljúf-
fengur.
Njólasalat, hrátt
Njólablöð
Súr rjómi
Njólablöð, sem tæplega eru
þroskuð, eru þvegin og þerruð,
og skorin í ræmur. Ræmunum er
blandað saman við hinn þeytta
rjóma. Það er bragðbætir að láta
ofurlítinn sykur saman við. Sé
rjóminn ekki súr, verður að láta
sítrónusafa eða edik í hann. í
staðinn fyrir rjóma má nota skyr,
sem hefir verið hrært út með
mjólk.
Hvönn
„Hvönn er, vegna sinna
dyggða, víðast komin í aldin-
garða hér í Norðurálfunni; bæði
jurtin og rótin er fyrir austan
borðuð hrá með smjöri, hér hefir
hvort tveggja til salats brúkað
verið. Hvannarrót er góð í te,
þurrkuð áður“, segir í Matjurta-
bók Eggerts Ólafssonar frá 1774.
margt sveitafólk gjörþekkir söl,
sem eru almenn fæða fjölda
manna í nokkrum héruðum,
einkum Árnes-, Borgarfjarðar og
Dalasýslum, hvar þeim jafnvel er
til sölu í uppsveitir töluvert safn-
að ...
Um kraft og næringu sölva til
manneldis er margra þjóða
reynsla, og vorrar eigin fullnóg
um fleiri undanfarnar aldir, og
ber saman þar um, að þau gefi
eitthvert hið hollasta og mest
nærandi fæði fyrir menn og fénað
undir eins og ljúffengt að
smekk“.
Söl
með sveskjubýting
110 gr sveskjur 30 gr söl
sykur eftir vild V2 sítrónuhíði
Sveskjurnar og sölin eru þveg-
in og lagt sitt í hvora skál með 1/41
af heitu vatni, og látið standa yfir
nóttina. Næsta dag eru sveskj-
urnar hitaðar í vatninu sem þær
hafa legið í, og soðnar við hægan
hita í 10 mín. Sveskjurnar færðar
upp og steinarnir teknir úr þeirn,
og þær lagðar í skál. Sölunum,
með vatninu, sem þau hafa legið
í, er hellt í sveskjulöginn og allt
soðið í 1/2 klst. með sírtónuhýð-
inu. Þessu er hellt yfir sveskjurn-
ar. Borðað kalt með eggjamjólk
eða rjóma.
Að lokum eru nokkrar fjalla-
grasauppskriftir:
Fjallagrasamjólk
40 gr fjallagrös
1 tsk. salt
IV2 l tnjólk
Grösin eru þvegin vel úr köldu
vatni. Þegar mjólkin sýður eru
grösin láin út í, soðið í 15 mínútur
og saltað eftir smekk. Það bætir
mjólkina, að láta ofurlítið af sykri
í hana.
Fjallagrasate
með sítrónusafa
25 gr fjallagrös eða annar sykur
50 - 100 gr kandís,l l vatn
Grösin eru hreinsuð, soðin í 15
mín. í vatninu, síuð á grisju, saf-
anum hellt í pottinn aftur og soð-
inn augnablik með sykrinum.
Það gerir teið miklu ljúffengara
og sérstaklega hollara, sé látinn
sítrónusafi í það, þegar búið er að
sjóða það með sykrinum. Sér-
staklega vil ég mæla með þessu
tei sem kvefmeðali handa sjúk-
lingum.
^ O
Líttu inn
. og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig!
Eingöngu unnið með snyrtivörur
frá Helena Rubinstein og Clarins,
sem einnig eru til sölu á stofunni.
Andlitsböð — húðhreinsun — make-
up, fótaaðgerðir - handsnyrtingar
— litanir
og vaxmeðferð
Sérþjálfað starfsfólk,
tímapantanir,
notalegt umhverfi.
1 BUSTLINE
2. L UPP ARM
3 R UPP ARM -
4 MID SECTlON
5 WAIST
0 ABDOMEN
7 HIPS
8 ,L UPP THIGH
• 9 R UPP THIGH
10 L MIDTHIGH
l l RMIDTHIGH
12 LETl KNEL
13 RlGHI KNLE
14 LLR CALT
15 RlGHl CALf
16 LEfT ANKlL
' 17 RlGHl ANKLL
Ný leið
til megrunar
3 vikna kúr
- 3 tímar Clarins
megrunarnudd
— 3 tímar Kwik Slint
Fótaaðgerða- og snyrtistofan
Viktoríci
Eddufelli 2 — Sími 7 95 25
i
<
J
t