Þjóðviljinn - 17.09.1986, Side 7

Þjóðviljinn - 17.09.1986, Side 7
UÖÐVIUINN Umsjón: Páll Valsson Eitt af málverkum Hallgríms Helgasonar sem sýnir út þessa viku í Gallerí Hallgerði við Laufásveg. Myndlist Támióir tímar Hallgrímur Helgason hefur verið að hasla sér völl á ýmsum sviðum í sumar, á meðan hann bíður eftir að komast aftur vestur til Ameríku; þess lands sem hefur það fram yfir skerið að þar má hlusta á útvarp allan sólarhring- inn. Honum hefur vegnað vel, enda hæfileikamaður í fleiru en notkun pentskúfsins. List hans fengum við að kynnast oftar en einu sinni á forsíðum helgarblaðs Þjóðviljans, þar sem nokkrar teikninga hans voru birtar fyrri- part sumars. Reyndar má segja að með teikningum sínum hafi Hallgrímur brotið blað í forsíðu- málum Þjóðviljans. Bann það sem gilt hefur um nokkurt skeið á birtingu myndlistar á forsíðum helgarblaðsins er nú úr gildi num- ið og mega listunnendur þakka hinum unga krossfara endur- heimt þeirra ginnhelgu Jórsala. Smiðshöggið á sumargagnið rak Hallgrímur þegar hann gerð- ist myndlistargagnrýnandi Þjóð- viljans í afleysingum. Sást þegar á fyrsta dómi hans hve pennafær hann er. Honum tókst að blása nýju lífi í „mér finnst-stílinn“ með svo eðlilegri háttprýði að beinskeytni hans varð beinlínis hjartnæm. Lá við að undirritaður fylltist öfund, ekki síst eftir að hafa setið nokkru fyrr undir ákúr- um drukkins áhanganda mál- gagnsins sem vændi hann (þ.e. mig aumingjann) um skoðana- leysi, ruglandi og óþj óðlegt orð - bragð í listrýni sinni. Ergo,ipso Nú heldur þessi þúsundþjala- smiður sýningu í nýstofnuðum sýningarsal á horni Laufásvegar og Bókhlöðustígs, svonefndum „Hallgerði“, eins konar útibúi frá verslun Langbróka á sama stað. Þar sýnir Hallgrímur hátt á fjórða tug málverka auk fjölmargra teikninga. Allar eru myndimar gerðar á þessu ári, eða frá því hann kom til landsins síðastliðið vor. Þær eru smáar í sniðum sam- kvæmt kröfum tímans, eða día- lektískri sjálfvirkni sem kveður á um það að eftir stórt komi smátt og öfugt. Og samkvæmt þeirri sömu dí- alektík er þar ekki að finna neinn vott expressionismans sem ráðið hefur ríkjum í „nýja málverkinu“ hér á landi. í stað breiðu bullanna eru tímarnir orðnir támjóir, eins og listamaðurinn sagði í viðtali við blaðamanh Þjóðviljans um síðustu helgi. Það er ekki svo að skilja að Hallgrímur elti einhverja tísku þegar hann neitar að sletta og slumsa málningu á strigann. Hann hefur ætíð verið snyrti- menni i umgengni við liti og lé- reft. Til að mynda átti Munchen ekki við hann sem námsborg, því þar sulluðu menn bjórnum sínum yfir litina svo úr varð hið sóðaleg- asta gums. Engu að síður finnst manni sem óþarflega mikið sé sjálfgefið í Hallgerði og stingur það í stúf við margræðni fyrri sýn- inga málarans. „Wittydada“ Að renna augunum yfir sýn- ingu Hallgríms er ekki ósvipað því að fara yfir hraðteflda byrjun- arleiki í skák. Allt er pottþétt, því frávikin frá orsakasamhenginu eru svo hverfandi. Nauðhyggja dadaismans ræður ferðinni; hnyttin kaldhæðni sem stendur og fellur með listfræðilegri þekk- ingu áhorfandans. Hver tilvísun- in í sögu módemismans rekur aðra, dregin skýrum dráttum og fyllt með litum sem minna á Hörputónana fyrir þrjátíu ámm. Yfir öllum þessum tilvísunum hvílir sérstæð, ísmeygileg afdala- mennska og menntskælingshátt- ur, hvort sem vitnað er í Picasso, súrrealismann eða hreinflata- stefnur. Það er unun að sjá hve afdráttarlaust Hallgrímur þræðir hverja klisju módernismans á fætur annarri og staðlar af meistaralegu smekkleysi. Oft vantar ekki meira en hársbreidd að áhorfandanum finnist hann kominn austur í aldingarðinn Eden þar sem þeir listamenn pluma sig sem aldrei hafa etið af skilningstrénu. HALLDOR B. RUNÓLFSSOt Þetta er hið támjóa einstigi sem Hallgrímur fetar eins og ný- útspmnginn Oscar Wilde; enskur í sínu gráa gamni; skjótur að átta sig; orðheppinn og lævís í út- úrsnúningum. Tjallamir nefna það „wit“, sem sjálfsagt er dregið af eiginnafninu Wittgenstein, en spekingurinn sá mun hafa verið einkar málfimur. Er nema von að Hallgrímur sé orðinn eftirlæti bókmenntafræð- inga, þeirra ágætu manna sem eiga svo miklu betra með að átta sig á vitsmunalegri myndlist en tilfinningalegum ljóðaleik sem ófært er að umorða á því ylhýra. „Boys from Brazil“ Hallgrímur er horfinn frá hinni ljóðrænu og óræðu túlkun, sem einkenndi fyrstu sýningar hans. En er þessi sýning í Hallgerði nokkuð annað en stundarfrávik, sem gefur honum tækifæri til að gagnrýna ástandið í myndlistar- málum landsmanna? Það hlýtur margt að gerjast í kolli þess manns sem dvalið hefur í Mekka myndlistarinnar við mynni Hudson-fljóts, þar sem listinni er tryggður ákveðinn sess eftir verð- leikum. Fyrír slíkan mann hlýtur að vera kynleg reynsla að horfa upp á forarvilpu þá sem fangað hefur íslenska myndlist með öllum þeim leir sem þjóðin ber á hönd- um sér og kallar kúnst. En þar sem listin nútímans endurnýjar sig með því að leita gersema í sorpinu, verður hatursfullt ást- arsamband æðri og óæðri listar seint umflúið og það veit Hall- grímur mætavel. Þess vegna hagar hann sér eins og brúðgumi sem er neyddur til að kvænast þótt hin heitbundna sé ekkert gæðaval. Ráðahagur- inn leiðir af sér líkamlegt sam- neyti rúið persónulegri innlifun og má sjá afleiðingamar á veggj- um Hallgerðar. Þótt afkvæmin beri svipmót föður síns, hafa þau farið á mis við ástúð hans. Þau eru kuldaleg; nánast jafn miklir bastarðar og „klónarnir“ hans Stebba heitins Bidlos. En ef það er eitthvað sem forð- ar verkum Hallgríms frá því að gerast eineggja tvífarar ákveð- inna, módernískra meistara- verka, þá er það Kitsch- menningarkýrin fræga, sem hann brúkar sem millilið við kynlausa æxlun sína. Það er hún Búkolla gamla, sem hann fékk að láni frá Gallerí Borg, þar sem hún tróð upp í líki gjafa gefnum Reykja- víkurborg á tvö hundruð ára af- mæli kaupstaðarins. Það er því óhætt að óska Hallgrími til ham- ingju með sýningu sína í henni Hallgerði, því með hjálp kýrinn- ar þjóðlegu er hann landinu og borginni til sóma. HBR. Miðvikudagur 17. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Bókmenntir Skálda- kvöld á Borg- ■ ■ inm Ljóðalestur þekktra sem óþekktra Einn er sá félagsskapur sem er öðrum þekkilegri og virðist, ef svo fer f ram sem horf ir, einnig ætla að verða öðrum duglegriog þarfari. Hérerað sjálfsögðu átt við Besta vin Ijóðsins sem haldið hefurfjöl- mörg skáldakvöld og enn eitt mun verða á Hótel Borg í kvöld og hefjast klukkan níu. Eins og á fyrri dagskrám ei boðið uppá blöndu lifandi skálda og dauðra og í kvöld verða lifend- ur: Jóhann Hjálmarsson, Þorgeir Þorgeirsson, Margrét Lóa Jóns- dóttir, Gerður Kristný, Bragi Ól- afsson, Sveinbjörn Þorkelsson, Magnús Gezzon, Hafliði Helga- son, Einar Kárason og Steinunn Sigurðardóttir. Tíu þekkt skáld sem óþekkt og nokkur að lesa í fyrsta sinn opinberlega. Þau skáld sem ekki eru lengur í tölu lifenda en kynnt verða á skáldakvöldinu eru að þessu sinni Kristján Jónsson Fjallaskáld og Jóhann Gunnar Sigurðsson. Mestur sérfræðingur landsins í Kristjáni Fjallaskáldi um þessar mundir er Matthías Viðar Sæmundsson lektor og hann hef- ur tekið saman kynningu á þessu merka skáldi, en Hrafn Jökuls- son kynnir Jóhann Gunnar sem einnig orti margt góðra ljóða. Viðar Eggertsson leikari mun mæla fyrir hönd látinna. Þess skal að auki getið að nýjar og nýlegar ljóðabækur verða til sölu á skáldakvöldinu og m.a. ný útgáfa af Flugum Jóns Thorodd- sen; stórmerkri ljóðabók sem nýtt og samnefnt forlag hefur látið verða sitt fyrsta verk að gefa út og fer í því sannarlega vel af stað. -pv. Myndlist Septem saman á ný Hópurinn sýnir nú á Vesturgötu 17 Meðlimir Septem hópsins í ís- lenskri myndlist hafaopnáð sýningu í Gallerí íslensk list að Vesturgötu 17. Septem hópurinn gegndi ntikil- vægu hlutverki í íslenskri mynd- listarsögu og nú gefst mönnum tækifæri á að sjá myndir þeirra saman á ný í salnum á Vesturgöt- unni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.