Þjóðviljinn - 30.09.1986, Síða 1
1936-1986 ÞJOÐVILJINN 50 ARA
30
221. tölublað 51. öroangur
september
1986
þriðju-
dagur
DJOÐVIUINN
Samruni
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
VHDHORF
BJ sameinast krötum
BJ verður deild í Alþýðuflokknum. Samþykkt á fundilandsnefndar í nótt.
Flokksstjórnarfundur Alþýðuflokks samþykkir inngöngu BJ í dag
Þingmenn BJ verða fulltrúar á flokksþingi krata um helgina.
Guðmundur Einarsson: Er ekki að tryggja þingmennskuframa minn
í nótt samþykkti landsnefnd
Bandalags jafnaðarmanna að
ganga í Alþýðuflokkinn. Forystu-
menn BJ munu tilkynna um sam-
runann á sérstökum blaða-
mannafundi síðar í dag. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
hefur flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins verið boðuð á fund síðar í dag
til að samþykkja inngöngu BJ.
Þar með er lokið leynilegum
samningum Guðmundar Einars-
sonar og Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, sem einkum stóðu í
viðræðunum. A flokksþingi Al-
þýðuflokksins að Hótel Örk um
næstu helgi munu þingmenn BJ
verða fulltrúar, og Guðmundur
Einarsson fær að flytja ávarp.
Kristín Kvaran, sem kosin var
á þing fyrir BJ, mun ekki ganga í
Alþýðuflokkinn.
Þess er vert að geta að BJ mun
ganga sem deild í Alþýðuílokk-
inn í krafti sérstaks ákvæðis sem
Vilmundur Gylfason fékk sett í
flokkslög á flokksþinginu 1981.
í skoðanakönnunum upp á síð-
kastið hefur fylgi BJ gersamlega
hrunið og ljóst var að þingmenn
flokksins, sem hatrammlega hafa
barist gegn fjórflokkakerfinu
sem þeir hafa nefnt svo, myndu
þurrkast út af þingi. í fljótu
bragði virðist sem þeir hafi nú
gengið til liðs við flokkakerfið til
að viðhalda þingpólitísku lífi.
Þjóðviljinn náði tali af Guð-
mundi Einarssyni síðastliðna
nótt, þar sem fulltrúar BJ sátu
þöglir og þreyttir að fundi í húsa-
kynnum Alþingis við Templaras-
und.
- Ertu með þessu að tryggja
þingmennskuframa þinn, Guð-
mundur?
„Nei, það er fráleitt að halda
því fram. Ég og félagar mínir úr
þingliði BJ hefðum auðveldlega
getað gert það með öðrum hætti.
Með inngöngunni í Alþýðuflokk-
Mich*l Ptatlni mr kominn til íslands! Juventus frá Ítalíu, eitt frægasta og besta knattspyrnulið heims, kom til landsins í gær og mætir Val á morgun í
Evrópukeppni meistaraliða á Laugardalsvellinum. Stjörnurnar voru umsetnar ungum aðdáendum um leið og þær stigu útúr rútunni við Hótel Sögu rétt fyrir
kvöldmatinn í gær. Platini, sem lengi hefur verið talinn einn sá albesti í heimi, þurfti oft að rita nafniðsitt áður en hann slapp upp á herbergi sitt til hvíldar. Mynd:
E.ÓI. Sjá íþróttir bls. 9-12.
Framsókn
inn höfum við ekki gert nein
hrossakaup um þingsæti. En okk-
ur er opin sú leið að spreyta okk-
ur í opnum og lýðræðisiegum
prófkjörum á vegum flokksins og
að minnsta kosti sum okkar
munu reyna það. Þar fyrir utan er
ekkert sem segir að við munum
endilega vilja vera á þingi.“
Með inngöngunni í Alþýðu-
flokkinn er á enda nær fjögurra
ára barátta BJ gegn flokkunum
fjórum, eða fjórflokknunum
einsog núverandi forysta hefur
nefnt svo. 1 nóvember
næstkomandi eru fjögur ár liðin
frá því Vilmundur heitinn Gylfa-
son sagði skilið við Alþýðuflokk-
inn og lýsti yfir stofnun BJ.
-ÖS
Atlaga að
Alexander
Hjálparstofnunin
Vísað til ríkisendurskoðanda
Jón Helgason vísaði beiðninni til ríkisendurskoðanda. Jóhönnu Sig-
urðardóttur bent á að snúa sér milliliðalaust til saksóknara
Jón Helgason dónis- og kirkju-
málaráðherra hefur vísað til
umsagnar ríkisendurskoðanda
beiðni Hjálparstofnunar kirkj-
unnar um hvort ástæða sé til að
rannsaka bókhald stofnunarinn-
ar fyrir árin 1984 og 1985.
Jón sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að hann vonaðist eftir
svari ríkisendurskoðanda ein-
hvern næstu daga. Jóhanna Sig-
urðardóttir, alþingismaður, hafði
einnig farið fram á rannsókn á
ásökunum á starfsemi Hjálpar-
stofnunarinnar. Sagði Jón mjög
óljóst hvað hún væri að fara fram
á, hvort það væri samskonar
rannsókn og Hjálparstofnunin
hefur farið fram á eða hvort hún
vildi opinbera rannsókn. Sagðist
hann hafa bent henni á að snúa
sér milliliðalaust til ríkissaksókn-
ara ef svo er og að hún tilgreini þá
nánar rannsóknarefnið.
Jón sagðist þeirrar skoðunar
að nauðsynlegt væri að fá þessi
mál á hreint, en hinsvegar væri
erfitt að hlaupa eftir dylgjum í
blöðum en almenningur virðist
treysta mun betur blaðamönnum
en þeim mönnum sem þarna sitja
undir ámælum. „Ég hef ekkert í
höndunum sem bendir til að
þarna hafi ekki verið rétt að
öllum málum staðið."
Jón sagðist taka undir það með
Baldri Möller að þörf væri laga-
setningar fyrir stofnanir á borð
við Hjálparstofnunina, enda væri
verið að vinna að slíkri Iagasetn-
ingu í ráðuneytinu. Óljóst er
hinsvegar hvenær hún verður
lögð fyrir þingið, en þetta verður
kannski til þess að því verði flýtt.
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar-
innar, segir ásakanir Helgar-
póstsins óréttmætar í viðtali á bls.
13 í Þjóðviljanum í dag. Telur
hann samt fulla þörf á lagasetn-
ingu um stofnanir á borð við
Hjálparstofnunina, enda þurfi
stofnunin strangt aðhald til að
traust almennings til hennar rýrni
ekki. Sáf
Sjá ennfremur leiðara bls. 4
Mikil óánægja ríkir með Alex-
ander Stefánsson, þingmann og
ráðherra Framsóknarflokksins,
meðal flokksbræðra hans á Vest-
urlandi. Framsóknarmenn á
Akranesi íhuga því að bjóða fram
konu í annað efstu sæta listans, og
Ljóst er að því framboði yrði
stefnt gegn Alexander fremur en
Davíð Aðalsteinssyni, hinum
þingmanni flokksins á Vestur-
landi.
Einkum er rætt um Guðrúnu
Jóhannesdóttur, skrifstofustjóra
í Trésmiðjunni Jaðri, eftir að
Steinunn Sigurðardóttir bæjar-
fulltrúi á Skaga afréð að gefa ekki
kost á sér.
Sjá opnu ös