Þjóðviljinn - 30.09.1986, Blaðsíða 3
FRETflR
Hœstiréttur
Ansi frjálsleg túlkun
Örlygur Geirsson: Aðgerðir verkfallsmanna voru réttmœtar
Mín skoðun er sú að hæstirétt-
ur hafi með þessum dómi
túlkað ansi frjálslega hlutverk
forstöðumanna stofnana í að-
stöðu eins og háskólarektur lenti í
í verkfallinu. Ég tel að í Ijósi þessa
dóms sé nauðsynlegt að koma inn
í nýju samningsréttarlögin
ákvæði um þetta atriði, sagði Or-
lygur Geirsson varaformaður
Margeir
sigraði
Margeir Pétursson
Skákmeistari íslands í
fyrsta sinn á Skákþinginu
á Grundarfirði
Margeir Pétursson stór-
meistari sigraði á Skákþingi ís-
lands sem lauk um helgina í
Grundarfirði. Margeir fékk 8
vinninga úr 11 umferðum, og
Skákmeistari íslands í fyrsta
sinn.
í öðru og þriðja sæti voru Jó-
hann Hjartarson og Guðmundur
Sigurjónsson með 7 vinninga,
Jón L. Árnason, Karl Þorsteins
og Þröstur Þórhallsson fengu 6V2
vinning, Hannes Hlífar Stefáns-
son 6, Davíð Ólafsson 5 vinninga,
Dan Hanson AV2, Björgvin Jóns-
son og Sævar Bjarnason 4,
Þröstur Árnason 1 vinning.
Margeir er þrítugasti skákmað-
urinn sem verður Skákmeistari
íslands, en um þann titil hefur
verið keppt árlega allar götur frá
1913, og keppnin aðeins einu
sinni fallið niður. Eggert Gilfer
hefur oftast borið titilinn, sjö
sinnum á árunum 1918-1942. Ás-
mundur Ásgeirsson vann sex
sinnum á árabilinu 1931-1946,
Baldur Möller er einnig sexfaldur
meistari (1938-1950) og sömu-
leiðis Friðrik Ólafsson (1952-
1969). Með Margeiri hafa allir
stórmeistarar og alþjóðlegir
meistarar íslenskir orðið Ská-
meistarar íslands.
Mótið var nú í fyrsta sinn háð
utan Reykjavíkur, og var tilefni
kaupstaðarafmæli Grundfirð-
inga. Það er talið hið allra sterk-
asta í íslenskri skáksögu, enda
tóku þátt fjórir stórmeistarar og
einn alþjóðlegur. Athygli vekur
góð frammistaða hins unga
Hannesar Hlífars á svona sterku
móti.
-m
Skotárásin
Pilturínn
játar
Tvítugur piltur hefur viður-
kennt að hafa skotið á bifreið í
Breiðholtinu í síðustu viku. Hann
var handtekinn fyrir helgina og á
laugardaginn var hann úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 8. októ-
ber n.k.
Að sögn Helga Daníelssonar
hjá Rannsóknariögreglu ríkisins
verður rannsókn málsins enn
haldið áfram. Vitni sem yfirheyrð
hafa verið vegna þessa máls segj-
ast áður hafa heyrt skothvelli á
staðnum.
Eins og kunnugt er af fréttum
hafnaði skotið í framsæti bflsins,
en ökumanninn sakaði ekki.
-gg
BSRB þegar Þjóðviljinn leitaði
álits hans á dómi hæstaréttar í
máli Háskóla íslands gegn BSRB.
Háskólinn kærði á sínum tíma
aðgerðir félaga í BSRB haustið
1984, þegar verkfallsmenn
reyndu að varna nemendum og
kennurum skólans inngöngu í há-
skólabyggingar. Húsverðir voru í
Akjördæmisráðstefnu Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum
sem haldið var um helgina á
Suðureyri varð opinbert að
Kjartan Ólafsson ætlar ekki í
framboð fyrir Alþýðubandalag-
ið. Akveðið var að efna einsog
áður til forvals meðal Alþýðu-
bandalagsmanna um skipan efstu
sæta á G-listanum, og verður
fyrri umferð 26. október en hin
síðari 16. nóvember.
Á ráðstefnunni var lesið bréf
sem Kjartan sendi stjórn kjör-
dæmisráðs 7. mars síðastliðinn,
þar sem hann baðst undan þátt-
töku í forvali um framboðslista
við næstu þingkosningar. Kjartan
sagðist í samtali við Þjóðviljann
hafa tekið þessa ákvörðun af
ástæðum sem bæði væru persónu-
legar og pólitískar, og vildi ekki
skýraþær ástæður nánar. Kjartan
fór fyrst í framboð vestra 1974,
varð þingmaður 1978, Alþýðu-
bandalagið tapaði þingsætinu
naumlega 1979, og vantaði fáein
atkvæði til kjörs í síðustu kosn-
verkfalli, en þáverandi háskóla-
rektor gekk í störf þeirra og taldi
sig hafa rétt til þess, en áleit að-
gerðir verkfallsmanna ólögmæt-
ar.
BSRB var sýknað af ákæru há-
skólans í undirrétti, en í síðustu
viku dæmdi hæstiréttur banda-
lagið til þess að greiða skólanum
300 þúsund krónur í skaðabætur.
ingum. Kjartan er nú varaþing-
maður.
Með nýjum kosningalögum
aukast líkur á að Alþýðubanda-
lagið fái þingmann á Vestfjörð-
um. Vestra hafa í efstu sæti G-
listans einkum verið nefnd til,
þau Finnbogi Hermannsson ísa-
firði, Kristinn H. Gunnarsson
Bolungarvík, Magnús Ingólfsson
Vífilsstaðamýrum í Önundar-
firði, Sveinbjörn Jónsson Súg-
andafirði og Þuríður Pétursdóttir
ísafirði. Þuríður lýsti því yfir á
ráðstefnunni að hún gæfi ekki
kost á sér í efstu sæti listans.
Á kjördæmisráðstefnunni á
Suðureyri var samþykkt
stjórnmálaályktun þar sem með-
al annars er lýst eftir góðærinu
fræga sem ekki sér enn stað á
Vestfjörðum, og minnt á að eina
stórframkvæmd sem nú er unnið
að í landshlutanum er ratsjár-
stöðin á Stigahlíð. í sérstakri á-
lyktun um Stigahlíðarstöðina
segir að í hennar líki sýni hernað-
arhyggjan Vestfirðingum klærn-
ar á tímum þegar friðarumræða
fari stöðugt vaxandi. „Mikil er
„Það er erfitt að segja til um
hvort þessi dómur verði stefnu-
markandi. Okkar skilningur hef-
ur verið sá að þarna hafi verið
gengið inn á verksvið húsvarð-
anna og þess vegna hafi okkar
aðgerðir verið réttmætar,“ sagði
Örlygur í gær.
skömm þeirra sem ábyrgð bera í
þessu máli,“ segir í ályktuninni,
og eru Vestfirðingar hvattir til að
„sýna ríkisstjórn hernaðarhyggj-
unnar hug sinn í næstu kosning-
um og hrinda þessu hernaðar-
ævintýri af höndum sér.“ -m
Nú verður BJ bara partur af JB
Hannibalssyni!
"■ÖRFRÉniR”^
Húsaleiga
fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnu-
húsnæði hækkar um 9% frá og
með októberbyrjun samkvæmt
tilkynningu Hagstofunnar. Þessi
hækkun reiknast á september-
leigu en leigugjöld eiga síðan að
haldast óbreytt til áramóta. Þessi
hækkun gildir aðeins fyrir þá
húsaleigu sem bundin er
ákvæðum í lögum nr. 62 frá 1984.
Kosningar
innan Flokks mannsins fara fram
19. október n.k. Kosið verður í
landsráð, kjördæmisráð og
bæjarráð um allt land. Frestur til
að skila inn framboðslistum renn-
ur út I3. október. Öllum flokksfé-
lögum gefst kostur á að kjósa í
þessi ráð.
Konur
í kosningaham er yfirskrift há-
degisfundarsem Kvenréttindafé-
lagið gengst fyrir að Litlu - Brekku
í hádeginu á fimmtudag. Guð-
ríður Adda Ragnarsdóttir sál-
fræðingur mun þar halda erindi
um konur í stjórnmálum.
Verðkannanir
verkalýðsfélaganna og neytend-
afélagsins í Borgarnesi í sumar
sýna að verð á algengustu mat-
vörum hefur hækkað í Borgar-
nesi fráþvíívorum6.1%. Hækk-
unin frá mars til maí var 1.2% en
frá miðjum maí til 21. ágúst sl.
4.8%.
Elding
svæðisfélag smábátaeigenda í
ísafjarðarsýslum varar við þeirri
þróun að stór skip stundi veiðar
upp í harða landi með dragnót
meðan smábátar þurfa að sækja
á djúpmið. Telur félagið rétt að
engar dragnótaveiðar verði
leyfðar innan fjarða, og mótmælir
öllum undanþágum til togara að
veiða innan 12 mílna.
T rúnaðarmannaráð
og stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur hefur vísað á bug
niðurstöðu Félagsdóms um að
yfirvinnubann farmanna á kaup-
skipum í vor hafi verið ólögmætt.
Bendir félagið á að sjómönnum
beri almenn mannréttindi,
sambærileg og öðru vinnandi
fólki í landinu.
Þriðjudagur 30. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Auglýsing
um styrkveitingar
til kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsókn-
um um styrki til kvikmyndagerðar.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu kvikmynda-
sjóðs, Skipholti 31, 105 Reykjavík, og í mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu kvikmynda-
sjóðs fyrir 1. desember, 1986.
Reykjavík, 30. september 1986.
Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands.
-gg
Þelr létu ekki rigningarú&ann á sig fá garparnir sem áttust við í Vatnsmýrinni um helgina. Þar var haldið
íþróttamót í fornum og nýjum bardagaíþróttum og vitaskuld glímdu menn að fornum íslenskum bændasið. Það er
félagsskapurinn Fold , sem stóð að þessari uppákomu í Vatnsmýrinni og öðrum uppákomum þar. Hápunktur þeirra
verður svo um næstu helgi. Mynd Sig.
Vestfirðir
Kjartan ekki í framboð
Kjördœmisráðstefna AB ákveðurforval. Seinni umferð 16.
nóvember.