Þjóðviljinn - 30.09.1986, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
MINNING
Hjól óskast
Á einhver gamalt hjól sem hann/
hún vill selja mér ódýrt? Uppl. í síma
621945 eftir kl. 18.
Djúpur vaskur óskast
Mig vantar djúpan vask til að hafa í
þvottahúsi. Má gjarnan vera með
borði. Vinsamlegast hringið í síma
41262.
Til sölu
Philco ísskápur. Mál: ca 170x70.
Verð kr. 3.000.- Gömul Rafha elda-
vél með 4 hellum sem stendur á
gólfi. Verð kr. 3.000,- Uppl. í síma
29304 eftir kl. 18.
Til sölu
Gamall pels, gamall borðlampi úr
messing með nýjum skermi, kvenúr
á festi frá því um aldamót, Clairol
fótanuddtæki og ýmislegt fl. Sími
27214.
Óska eftir
Óska eftir notuðu vel með förnu ein-
staklingsrúmi. Uppl í síma 681736
eftir kl. 18. Gunnar.
Bílskúr óskast
á leigu, helst upphitaður. Uppl. í
síma 621309 og 621083.
Gamalt hjónarúm til sölu
ásamt náttborðum og dýnum. Selst
ódýrt. Uppl. í síma 41262.
Fataskápur eða geymsluhill-
ur óskast
útlit skiptir engu máli. Sími 611844
til kl. 13 og eftir kl. 21.
Bíll óskast
Óska eftir að kaupa bíl á 20-30 þús.
kr. Helst skoðaðan 1986. Uppl. í
síma 651514.
Einn umgangur vetrardekk
til sölu (155 x 12“). Selst ódýrt. Sími
18054 á kvöldin.
íbúð óskast
Óska eftir 2ja herb. íbúð á leigu sem
fyrst. Engin ákveðin staðsetning
skilyrði. Uppl. í síma 79887, 35010
og 77544.
Skápar-tauhengi
Mig vantar tauhengi fyrir gat sem er
2 metrar að hæð og 3,5 m á breidd.
Einnig vantar mig 2 fataskápa. Sími
13894.
Sinclair ZX Spectrum plus
tölva til sölu. 2ja mán. gömul. Selst
ódýrt. Uppl. í síma 45530.
Borðtennisspaðar
óskast keyptir
þurfa að vera í góðu ásigkomulagi.
Á sama stað fæst Sansui - magnari
fyrir lítið. Sími 621454.
Dísarpáfagaukar
Til sölu grátt par, búr getur fylgt.
Uppl. í síma 79424.
Hjónarúm með lausum
náttborðum til sölu
Lítur mjög vel út. Einnig stórt fugla-
búr með 2 páfagaukum. Sími
34460.
Óska eftir að kaupa
barnarimlarúm
Uppl. í síma 15615.
Notuð hjól
Til sölu ýmis hjól þ.á.m. Mountain
bike, 18 gíra tilvalið vetrarhjól, tví-
menningshjól (Tandem) 15 gíra og
ýmis önnur hjól, stór og smá. Uppl. í
síma 621083.
Óska eftir stúlku
til að gæta barna nokkrum sinnum í
mánuði. Nánari uppl. í síma 79548
eftir kl. 19.
Óska eftir hjóli
Ég heiti Hrönn og er 9 ára og bráð-
vantar hjól. Vinsamlegast hringið í
síma 41660 eftir hádegi.
Körfugerð
Námskeið í körfugerð hefjast
næstu daga. Morgun- síðdegis og
kvöldtímar fyrir börn og fullorðna.
Uppl. og innritun í síma 25703.
Kaupi:
íbúaskrá Reykjavíkur og aðrar,
manntöl, nafnaskrár, þjóðskrár,
Bæjarskrár og útsvarsskrár frá
öllum árum. Einnig ættartöluhandrit
og fjölrit, stéttartöl, ættfræðibækur
o.fl. þ.h. Sími 27101 (Jón).
Vantar bílútvarp
FM og hátalara. Einnig toppgrind á
Lödu 1200 og nagladekk. SÍmi
621949.
Vil kaupa trérennibekk
Sími 38528.
Ódýr flugmiði
frá Kaupmannahöfn til sölu. Dag-
settur 12. okt. Uppl. í síma 40220.
Til sölu
Lister bátavél 24 hestafla, loftkæld.
Skiptiskrúfa og stefnisrör fylgja.
Uppl. í síma 51018 eftir kl. 19.
PÓST- OG
SfMAMÁLASTOFNUNIN
Póststofuna í Reykjavík
vantar starfsfólk f í vaktavinnu.
Æskilegur aldur 20 - 40 ára.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
póstmeistarans í Reykjavík að Ármúla 25, Rvík.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
BRÉFBERA
til starfa í Reykjavík. Um er að ræða hálfsdags-
störf frá kl. 8 til 12.
Upplýsingaráskrifstofu póststofunnarÁrmúla25
og hjá útibússtjórum á póstútibúunum Klepps-
vegi 152, Laugavegi 120 og Neshaga 16.
Viðskiptaráðuneytið
óskar að ráða háskólamenntaðan fulltrúa til
starfa. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
störf skal senda viðskiptaráðuneytinu, Arnar-
hvoli, 101 Reykjavík, fyrir 25. október 1986.
Guðjón Magnússon
Fœddur 26.8. 1919 - Dáinn 29.4. 1986
Naustahvammur var gamlt býli
fyrir botni Norðfjarðar. Þar
bjuggu lengi fyrir og eftir alda-
mótin, hjónin Vilhelmína Bjarn-
adóttir og Ari Marteinsson. Þau
áttu 4 dætur sem upp komust.
Lukka, Anna, María og Gyða.
Lukka bjó í þorpinu út á Nesi og
dó f blóma lífsins frá 2 dætrum.
Hinar 3 systur bjuggu þar á sínum
æskustöðvum langt fram eftir
þessari öld. Hús þeirra stóðu með
stuttu millibili á sjávarbakkan-
um. Þessar 3 systur áttu samtals
26 börn sem upp komust. Börn
þeirra systra voru nokkurn veg-
inn jafnaldra svo barnahópurinn
var stór sem undi að leik og starfi
þarna við fjarðarbotninn.
Að vísu hafa þau elstu flogið
fljótt úr hreiðri eins og gengur, en
ávallt var og er ennþá innilegt
samband þessara mörgu frænd-
systkina.
Guðjón var sonur hjónanna
Önnu Aradóttur og Magnúsar
Guðmundssonar. Þau hjón voru
dugnaðarmanneskjur, Anna sér-
stök ákafa manneskja við vinnu
og Magnús mjög fjárglöggur,
hagur vel og hið mesta snyrti-
menni. Hlaut Guðjón þessa
eiginleika í vöggugjöf. Þau
systkinin voru 8 er upp komust.
Foreldrar Guðjóns bjuggu í því
húsi sem hét Miðhús og stendur
það rétt ofan við götuna eða
þjóðveginn sem lá út í þorpið á
Nesi, sem þá var í örum vexti.
Flest býlin á þessu svæði höfðu
nokkrar landsnytjar. Þegar
Neskaupstaður fékk bæjarrétt-
indi, voru hreppaskil rétt utan við
Miðhús þar til lögsagnarumdæmi
bæjarins var stækkað.
Foreldrar Guðjóns höfðu
nokkurn búskap auk þess stund-
aði Magnús eftir því sem kostur
var í hlaupavinnu - úti á Nesi -
eins og sagt var.
Trúlegt er að Guðjón hafi ekki
verið hár í loftinu er hann fór að
fara með föður sínum í fjárhúsin.
Frá fjarðarbotninum þar sem
æskuheimili Guðjóns var sýnist
Barðsneshornið loka firðinum
við Nípuna, en þar er innsiglingin
inn á fjörðinn. Sá mikli skagi sem
endar á Barðsneshorni er sá öldu-
brjótur sem ver Norðfjarðarfló-
ann fyrir hafáttinni. Þar á Suður-
byggð sem kallað var sér til eyði-
býla sem vitna um horfið mannlíf
og horfna starfshætti sem eru þó
undarlega nærri.
Inn af Norðfirði skerst grösug-
ur dalur með blómleg bændabýli
- Norðfjarðarsveitin - sem sér
Neskaupstað þessari einangruðu
byggð fyrir mjólk. Til suðurs
gengur Oddsdalur, um hann
liggur vegur, eina samgönguæðin
við þessa byggð á landi.
Á unglingsárum Guðjóns var
ekki mikið um atvinnu. Sú kyn-
slóð var alin upp í skugga
heimskreppunnar. Atvinnulífið
var fábreytt hér á landi og mikið
atvinnuleysi. Austfirðirnir voru
erfiðir útgerðarstaðir yfir vetrar-
vertíðina og er útgerðarmenn
fóru að eignast stærri vélbáta,
fóru þeir með þá til Hornafjarðar
á vetrarvertíð og síðar þegar
fleyturnar stækkuðu meira, í ver-
stöðvarnar á Suðurlandi. Mikið
var róið á línu frá Austfjörðunum
yfir sumarið. Var oft drjúgur afli
dreginn þar á land á þeim tíma
ársins og allt verkað heima. Mátti
heita að hver smáútgerð ætti sinn
bryggjustúf og aðstöðu til
saltfisksverkunar.
Þeir voru ekki háir í loftinu
drengirnir sem byrjuðu að beita,
stokka upp línu og hjálpa til við
fiskaðgerð. Algengt var að stúlk-
ur ynnu við þetta líka. Guðjón
vann að sjálfsögðu þessi störf sem
hans jafnaldrar og svo er hann
hafði aldur og þroska til, fór hann
á vetrarvertíðir til Hornafjarðar
og Suðurnesja um margra ára bil.
Mun hann oftast hafa unnið á
landi við að beita línuna og gera
að afla. Meðan allur fiskur var
flattur var þetta óhemju vinna og
vinnudagur langur. Guðjón var
góður verkmaður að hvaða verki
sem hann gekk, gæddur ódrep-
andi seiglu og samviskusemi.
Eftir að faðir hans féll frá sem var
1946 var lokið vertíðarstörfum
Guðjóns og öðrum störfum
tengdum sjávarútvegi. Hann tók
þá við rekstri búsins og mun vart
hafa getað hugsað sér að farga
fjárstofninum og gerast dag-
launamaður. Þó var hann þá þeg-
ar farinn að vinna við múrverk og
þótti fljótt liðtækur í því starfi og
sérstaklega vandvirkur. Þá var
ekki algengt að hans jafnaldrar
gætu aflað sér menntunar, pen-
ingar lágu ekki á lausu og fag-
menn tóku sjaldan lærlinga til
náms vegna atvinnuleysis. Þetta
breyttist að vísu eftir að herinn
kom hingað eins og kunnugt er.
7. febr. 1960 giftist Guðjón eft-
irlifandi konu sinni Erlu Gunn-
arsdóttur frá Akureyri. Þau
eignuðust 3 börn, 2 dætur og 1
son. Erla átti son fyrir sitt hjóna-
band og mun hann hafa verið
kornungur er hún giftist Guð-
jóni. Hjá þeim ólst hann upp.
Eftir að Guðjón giftist var býli og
bústofn selt og þau byggðu sér
hús miðsvæðis í Neskaupstað og
stundaði Guðjón síðan múrverk
og hafði ærið nóg að gera meðan
heilsan entist. Hann var eftirsótt-
ur í því starfi sökum vandaðra
vinnubragða og samviskusemi í
starfi.
Ekki hætti Guðjón með öllu
við sauðféð, hann átti kindur til
dauðadags og lét sér mjög annt
um þær. Hann var vel virtur fé-
lagi í hópi fjáreigendafélagsins,
það sagði mér mikill vinur hans í
því félagi að það hefði verið venja
þeirra að láta Guðjón skoða
hrúta sem félagsmenn settu á og
helst öll lömb sem sett voru á vet-
ur. Áliti hans treystu allir vegna
þess hve gott vit hann hafði á fé.
Eflaust hafa þær stundir sem
hann var að sinna fénu og sá góði
félagsskapur sem hann naut í fé-
lagi „rollukarlanna" - eins ag
þeir eru kallaðir, verið honum
mikil lífsfylling.
Starf múrarans er erfitt og get-
ur verið hættulegt heilsu manna
að talið er. Einhvern veginn
fannst mér að annað fag hefði
hæft hans högu höndum betur og
má vera að þá hefði heilsa hans
enst lengur. Oft var vinnudagur-
inn langur hjá Guðjóni við múr-
verkið og ofan á það bættist hirð-
ing kindanna en þær virtust hans
hálfa líf.
Síðustu árin voru Guðjóni erf-
ið. Hann var þá haldinn ólækn-
andi sjúkdómi og varð að lokum
algjör öryrki. Lyfjameðferð
læknanna kom að litlu haldi þó
allt væri reynt sem hægt var til
hjálpar.
Eldri dóttir Guðjóns er búsett í
Neskaupstað og á 4 unga syni sem
oft voru gestir á heimili afa og
ömmu. Hafði hann mikla ánægju
af þessum litlu glókollum. Síð-
astliðinn vetur var hann mikið á
sjúkrahúsinu í Neskaupstað en
nokkru áður en hann dó fór hann
heim og var sem af honum bráði.
Hann gat þá heimsótt vini sína og
farið í fjárhúsin.
Síðasta heimsóknin var til aldr-
aðs vinar úr fjáreigendafélaginu.
Þeir höfðu haft náið samband um
langt árabil og notið saman
margra ánægjustunda. Þetta var
þeirra síðasti fundur. Stuttu síðar
var hann fluttur þungt haldinn á
sjúkrahúsið og andaðist þar.
Guðjón var prúður maður og
hógvær, gat þó verið gaman-
samur og hnyttinn í tilsvörum og
glaður í góðra vina hópi. Hann
ólst upp sem drengur á mörkum
sveitar og vaxandi kaupstaðar.
Rætur hans voru fyrst og fremst í
sveitinni og sveitalífinu þó hann
ætti heimili sitt lengst í kaup-
staðnum. Hann hélt fast við þá
fomu arfleifð bóndans að eiga
kindur og umgangast þær sér til
ánægju og sálubótar.
Hann kvaddi lífið - að vísu ekki
aldinn að árum en örþreyttur, - á
þeim tíma ársins sem náttúran
vaknar af dvala vetrarins og var
grafinn í Skorrastaðar-kirkju-
garði, þar sem foreldrar hans og
vinir hafa fengið sitt hvflurúm.
Hann var tryggur vinum sínum
og trúr yfir öllu sem hann tók að
sér. Slíkra er gott að minnast.
ÓB
Námsgagnastofnun Afgreiðslu- og lagerstarf hálfan eða allan daginn Námsgagnastofnun auglýsir eftir afgreiöslu- og lagermönnum til starfa allan eöa hálfan daginn. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Námsgagnastofnun, Pósthólf 5192, 125 Reykjavík fyrir 3. okt. nk. merkt „Um- sókn“.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. september 1986