Þjóðviljinn - 30.09.1986, Page 7
Starfsmenn á Alþýðubandalagsskrifstofunni á Hverfisgötu: Kristján Valdimarsson, Margrét Tómasdóttir, Óttar Proppé, Anna Hildur Hildibrandsdóttir (Mynd: Sig.)
Alþýðubandalagið
Erum að skipta um gír
Óttar ProppéframkvœmdastjóriAB:
Kosningaundirbúningur að hefjast. Þurfum kröftuga sókn á nœstu mánuðum
Óttar Proppé nýr fram-
kvæmdastjóri Alþýðu-
bandaiagsins, tók við störf-
um fyrir þremur vikum, og
líst vel á sig: „Ég hef verið
að hnusa útí loftið og finn
að menn eru enn í sumar-
stemmningu, en nú fer
flokksstarf að vakna fyrir
veturinn, enda þurfa Al-
þýðubandalagsmenn um
allt land að fara að taka á
honum stóra sínum. Mið-
punktur þess starfs hlýtur
að verða hér í höfuðstöðv-
um flokksins," sagði Óttar
þegar Þjóðviljinn heimsótti
hann í skrifstofurnar á
Hverfisgötu 196.
Óttar er fæddur „lýðveldisbarn, á
besta fimmtugsaldri," alinn upp í
Reykjavík og Garðahreppi sem
þá hét. Að loknu námi tóku við
kennslustörf, frá ’74 á Dalvík þar
sem hann varð einnig bæjarfull-
trúi, og síðar fluttist Óttartil Sigl-
ufjarðar og tók þar við störfum
bæjarstjóra. Nýtist honum sveit-
arstjórnarreynslan í núverandi
sessi?
- Ég held að þau störf nýtist
mér ágætlega hér. Pólitískt starf
hjá flokki einsog Alþýðubanda-
laginu snertir mjög vítt
mannlífssvið, og sveitarstjórnar-
störfin eru sama marki brennd.
Hversdagsmál einsog fjármál eru
keimlík; - flokkurinn er í mikilli
peningaþörf, og eins er það hjá
sveitarfélögunum, og ég vona að
mér nýtist reynslan á því sviði;
minni á að þróttmikið starf kostar
peninga, - og því öflugra sem
starfið er því betra er fyrir fæti um
fjáröflun.
Bæjarstjórnar-
reynslan
Það er kannski ekki síður um
vert fyrir framkvæmdastjóra
stjórnmálaflokks að hafa verið
bæjarstjóri. í sveitarstjórnum
vinna margir flokkar saman, með
ólík sjónarmið, og til þess þarf
bæjarstjóri að taka tillit og stilla
menn saman, - í Alþýðubanda-
laginu eru líka mismunandi
áherslur uppi í ýmsum málum, og
framkvæmdastjórinn verður að
taka svipað tillit og bæjarstjór-
inn, - og vera opinn fyrir því að
láta þúsund blóm spretta. Enda
verður jurtagarðurinn þeim mun
blómlegri sem flokkurinn verður
stærri og öflugri.
- Hvert er eiginlega verksvið
framkvœmdastjóra í Alþýðu-
bandalaginu?
- Framkvæmdastjórinn er
ábyrgur fyrir því að ákvörðunum
forystum flokksins sé framfylgt,
hann er starfsmaður fram-
kvæmdastjórnar, á náið samstarf
við þá sem þar sitja, og þó kann-
ski sérstaklega við varaformann-
inn sem er formaður miðstjórnar
og helsti ábyrgðarmaður um
innra starf flokksins. Af þessu
leiðir dagleg stjórn á skrifstofu,
sem er ekki mikið mál. Bæði
vegna þess að hér er því miður
ekki ýkja fjölmennt starfslið, og
vegna hins ekki síður að þeir sem
hér vinna eru vandanum vaxnir
og þekkja vel til mála.
Ékki síst felst mitt starf svo í að
halda öflugum tengslum við Al-
þýðubandalagsfélög og Alþýðu-
bandalagsfélaga um allt land.
Pað er mikilvægt að félögin og
allir félagar átti sig á því að það er
réttur þeirra að sækja hingað að-
stoð og upplýsingar af ýmsu tæi, -
og ég beini þessu einkanlega til
sveitarstjórnarmanna vítt og
breitt um landið, ekki sfst til
þeirra sem nú taka þátt í þeim
störfum í fyrsta sinn.
- Það eru þingkosningar fram-
undan...
- Já, og undirbúningur þeirra
kosninga er höfuðverkefnið á
næstu mánuðum. Nú er verið að
tala um kosningar snemma í apr-
íl, - það er enn ekki hægt að slá
neinu föstu um kosningadaginn,
en hinsvegar er ljóst að stjórnar-
flokkarnir eru að undirbúa sig
undir að geta verið tilbúnir hve-
nær sem er. Þessvegna skiptir
miklu máli að Alþýðubandalags-
menn fari sem fyrst að snúa sér að
undirbúningi komandi kosninga,
hver í sínu héraði, hvort sem þær
verða í vor eða rétt eftir áramót.
- Hér og hvar er hafinn próf-
kjörsslagur, - er ekkerl að frétta
úr herbúðum Allaballa?
- Skipan lista og aðferð við þá
skipan er í höndum hvers kjör-
dæmisþings Alþýðubandalagsins
fyrir sig. Pað eru engar bindandi
reglur um það á landsvísu. Við
síðustu þingkosningar var fyrir-
komulagið með ýmsum hætti,
sumstaðar var raðað á lista með
tilliti til forvals, til dæmis í
Reykjavík, á Suðurlandi og
Norðurlandi eystra, sumsstaðar
komu tillögur um lista frá hefð-
bundnum uppstillingarnefndum.
Enn er ekki ljóst hvaða aðferð-
ir verða notaðar við að raða á
G-lista í kjördæmunum, en víða
má búast við einhverskonar for-
vali. Kjördæmisþingin koma
saman á næstu vikum,
Vestfirðingar hittust nú um helg-
ina, á Norðurlandi vestra þinga
Alþýðubandalagsmenn fyrstu
helgina í október, og svo koll af
kolli, Austfirðingar og Sunnlend-
ingar hittast viku síðar, og á
Norðurlandi eystra er þing um
miðjan mánuð.
- Býstu við breytingum á þing-
liðinu næsta kjörtímabil?
- Já, -ég vonast eftir stórfelld-
um breytingum í þá veru að þing-
mönnum fjöigi verulega. í þing-
flokknum er aðeins einn sem hef-
ur lýst því yfir að hann gefi ekki
kost á sér, það er Helgi Seljan á
Austurlandi. Að því er mikill
skaði, en það kemur maður í
manns stað.
Heitt haust
j ,
- Utkoma Alþýðubandalags-
ins í kosningunum ræðst að sjálf-
sögðu mikið af því starfi sem unn-
ið er á næstu mánuðum, bæði í
forystusveitinni og meðal al-
mennra félaga. í flokknum er nú
verið að vinna að stefnumótun
fyrir kosningarnar, og þess sér
væntanlega stað á aðalfundi
miðstjórnar í nóvember. Þessar
vikurnar er unnið af kappi að því
að undirbúa þann fund, - meðal
annars er starfshópurinn sem
kosinn var á síðasta landsfundi nú
að ganga frá niðurstöðum sínum
um ný viðhorf í atvinnu- og efna-
hagsmálum, heldur vinnufund á
Neskaupstað nú um helgina.
- Sumarið er liðið, og nú tekur
við haustið og blákaldur raun-
veruleikinn í pólitíkinni, og við
erum að skipta ungir í samræmi
við það. Á næstu vikum er margt
á döfinni hjá Alþýðubandalag-
inu. Ég hef áður nefnt kjördæma-
þingin, að auki er landsþing
Æskulýðsfylkingarinnar í Ölfus-
borgum fyrstu helgina í október,
10. októberkemurverkalýðsmál-
aráð flokksins saman til aðal-
fundar, 120 manns, - og 7. nóv-
ember er aðalfundur miðstjórn-
ar. Eftir lagabreytingarnar á síð-
asta landsfundi gegnir sá fundur
svipuðu hlutverki og flokksráðs-
fundur áður.
- Framundan er síðan mikil
röð funda í Alþýðubandalagsfé-
lögum um allt Íand. Á þá mætir
breiðfylking úr forystu flokksins,
gerir grein hinu pólitíska ástandi
frá sínum sjónarhól og ræðir við
félagana um það á hvern hátt
sóknin næstu mánuðina getur
orðið sem kröftueust.
- Saga Alþýðubandalagsins
síðustu misseri hafa einkennst af
titringi, hrœringum og átökum, - í
hvaða deild ert þú?
- Ég er ósköp venjulegur Al-
þýðubandalagsmaður, og held
reyndar að það hafi verið gert
meira úr ágreiningi í flokknum en
efni standa til. En þessi flokkur er
sem betur fer ekki dauður, -
fyrstu dauðamerkin í flokkum
eru þegar menn geta ekki rætt
saman. Það segir sig sjálft að í
samstarfi manna hljóta að vera
skiptar skoðanir um bestu leiðina
að settu marki, og ég vona svo
sannarlega að umræður um þær
leiðir falli ekki niður í flokknum.
- Hinsvegar verður að gæta
þess að hvað hefur sinn tíma, og
nú er sá tími í nánd að mönnum
ber að sækja fram í órofa fylk-
ingu.
- m
Þriðjudagur 30. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7