Þjóðviljinn - 30.09.1986, Side 8
FJARAR
UNDAN
Alexander
Óánœgja meðal Framsóknar-
manna á Vesturlandi með Alexand-
er ráðherra. Tengslin milli Davíðs
Aðalsteinssonar og kjósenda hafa
einnig trosnað. Framsóknarmenn á
Akranesi stefna að framboði konu í
annað efstu sœta listans. Guðrún
Jóhannsdóttir líklegust til aðfella
ráðherrann
Framsóknarmenn á Akranesi
íhuga nú sterklega að bjóða fram
konu gegn Alexander Stefánssyni
félagsmálaráðherra í prófkjöri
flokksins á Vesturlandi, sem
verður haldið í nóvember. Flokk-
urinn stendur hvergi traustari
fótum í kjördæminu en einmitt á
Skaga, og í krafti þess vilja Ak-
urnesingar koma kandídat í ör-
uggt sæti. Þá er spjótum beint
fyrst og fremst að Alcxander. En
með ráðherradóm hins grá-
sprengda Ólsara hefur óánægja
gerjast og margt hnígur að því að
hann kunni að liggja eftir í valn-
um, þegar orrahríð prófkjörsins
slotar.
Óánægjan með Alexander fer
vissulega vaxandi. En hinn þing-
maður Framsóknarflokksins í
kjördæminu, Davíð Aðalsteins-
son frá Arnbjargarlæk, horfir
einnig með nokkrum ugg til óróa-
sams hausts. Tengsl hans við
kjósendur flokksins í heimahér-
aðinu hafa mjög trosnað, og víða
um Mýrasýslu og í Borgarnesi,
þar sem Halldór E. Sigurðsson
skildi á sínum tíma eftir ramm-
gert vígi Framsóknar, tala menn
nú fullum fetum um að þingmað-
urinn ungi frá Arnbjargarlæk sjá-
ist ekki lengur nema rétt fyrir
kosningar og þá í dyrum Kaupfél-
agsins til að taka í hendur kjós-
enda. Afkomendur Egils á Mýr-
um vestur kjósa traustari og
snöfurmannlegri vinnubrögð.
í næstsíðustu sveitarstjórnar-
kosningum vann Framsóknar-
flokkurinn góðan sigur á Akra-
nesi og hélt því fylgi bærilega við
kosningarnar í vor, öfugt við aðr-
ar deildir flokksins í kjördæminu.
Akurnesingar telja sig því eiga
nokkurn rétt á öðru hinna
tveggja efstu sæta, en við síðustu
kosningar urðu þeir að láta sér
nægja þriðja sætið. Það skipaði
Jón Sveinsson, ungur og geð-
þekkur lögfræðingur sem fluttist
úr Reykjavík á Skagann, en hefur
nú samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans afráðið að taka ekki þátt í
prófkjörinu. En þess í stað hyggj-
ast Akurnesingar bjóða fram
eina - eða tvær - konur. Mest er
rætt um þær Guðrúnu Jóhanns-
dóttur, formann Kjördæmissam-
bandsins og bæjarfulltrúann
Steinunni Sigurðardóttur. Svo
virðist sem meiri stemmning hafi
ríkt kringum Steinunni, en sam-
kvæmt heimildum Þjóðviljans
mun hún ekki gefa kost á sér.
Þessi mál munu hins vegar
skýrast á allra næstu dögum.
Efnilegur Ólsari
Á sínum tíma bundu Vestlend-
ingar nokkrar vonir við þing-
mennsku og síðar ráðherradóm
sléttmáls sveitarstjóra úr Ólafs-
vík undir Jökli. Körlunum fannst
Ólsarinn hafa hressilegt blik í
augum og konum fannst maður-
inn kurteis vel og þessutan hafa
fagurlega liðað hár, sem silfraðist
snemma.
En þó aðdáendahópur Alex-
anders hafi í upphafi náð út fyrir
raðir Framsóknartrúboðsins hef-
ur hann að flestra dómi rækilega
brugðist þeim vonum sem Ólsar-
ar og aðrir menn undir Jökli og
víðar bundu við hann. í kjör-
dæminu hafa menn á orði að í
samanlagðri sögu lýðveldisins
hafi tæpast nokkur ráðherra ver-
ið jafn verkfár og er þá meira að
segja Jón Helgason, núverandi
landbúnaðarráðherra talinn
með...
Húsnæðismálunum er einkum
smeygt sem myllustein um háls
Alexanders. Fyrir síðustu kosn-
ingar var hann einn þeirra sem
rann í fylkingarbrjósti Framsókn-
ar, þegar hún sóaði loforðum um
gull og græna skóga í húsnæðis-
málum á báða bóga. Sestur í stól
ráðherra urðu efndirnar engar.
Hann viðraði að vísu hugmyndir
úr frumvarpsdrögum um lausnir í
húsnæðismálum, sem hann átti
þó ekki sjálfur heldur sótti í
smiðju aðstoðarmanns síns, Jó-
hanns Einvarðssonar varaþing-
manns og fyrrum bæjarstjóra í
Keflavík. En það vantaði fjár-
magn, og þó honum væri bent á
leiðir í þeim efnum skorti hinn
fyrrum sveitarstjóra undan Jökli
rögg til að keyra hugmyndir sínar
í þeim efnum gegnum stjórnarlið-
ið. Þess skal að sönnu getið að
hann naut þar lítillar hjálpar
Steingríms Hermannssonar og
annarra forystumanna Fram-
sóknar, sem ekki þorðu að
styggja íhaldið fremur en endra-
nær.
Það varð svo hlutskipti verka-
lýðshreyfingarinnar að ganga frá
því sem gert var í húsnæðismál-
unum, meðal Alexander sat hjá
einsog þvara og vissi ekki hvaðan
á sig stóðu veður.
Sláturlistinn
Það voru einkum ungir Fram-
sóknarmenn sem knúðu á um að-
gerðir af hálfu Alexanders í hús-
næðismálum. Þær komu aldrei.
En Framsóknarungviðið launaði
honum lambið gráa. Á þingi
Sambands ungra Framsóknar-
manna að Hrafnagili í Eyjafirði
var Alexander efstur á „sláturli-
stanum“ sem svo var kallaður og
gekk heímullega manna í millum.
En á honum voru nöfn þeirra
þingmanna sem ungir Framsókn-
Alexander mikli náði undir sig Persaveldi og komst alla leið austur að fljótinu
Indus. Alexander Stefánsson má hins vegar þakka fyrir nái hann að halda
Ólafsvík eftir burtreiðar sínar við konur á Skaga. Hér er hinn silfurhærði Ólsari
milli stafs og hurðar í Alþingishúsinu...
armenn vildu fella í komandi
prófkjörum og koma þarmeð
endanlega fyrir pólitískan ættern-
isstapa.
Framsóknarmenn um allt land
ganga nú til kosninga uggandi
mjög um sinn hag. Flokkurinn
hefur verið að tapa í síðustu al-
þingiskosningum og skoðana-
kannanir spá honum ekki giska
góðu. Víða í flokknum eru því
menn komnir á þá skoðun að rót-
tækra breytinga sé þörf á fram-
boðslistunum eigi flokkurinn að
geta smeygt sér inn í hugi kjós-
enda. Konur og ungt fólk gera
krgfur í ríkum mæli um að kom-
ast á lista flokksins. Til að rýma
fyrir þeim er að sjálfsögðu litið til
þeirra sem elstir eru og þykja
minnstu hafa afrekað.
Um Alexander er sagt, að
hann hafi náð lengra en nokkur
hefði með sanngirni getað spáð
honum við upphaf ferils hans.
Engar líkur séu á þvf að hann sigli
lengra, - og litlar á að hann héldi
ráðherradómi þó samstjórn
íhalds og Framsóknar öðlaðist
framhaldslíf eftir kosningarnar.
Hann ætti því að standa upp úr
þingsætinu og gefa það eftir til
yngra fólks.
Menn fyrir borð
Snæfellskir Framsóknarmenn
vilja hins vegar ekki missa þing-
sæti sitt í hendur mönnum á
Skaga, og munu ef að líkum lætur
eggja Alexander lögeggjan til
framboðs. Þrautreyndir stuðn-
ingsmenn ráðherrans eru þó farn-
ir að ugga um Alexanders hag, og
helsti agent hans á Snæfellsnesi,
Stefán Jóhann Sigurðsson í Ólafs-
vík, er þegar farinn að smyrja
gangvirki kosningamaskínunnar.
Alexander hefur það hins veg-
ar á móti sér, að vera að vissu
marki kennt um ófarir flokksins í
kjördæminu. Menn benda sér-
stakiega á að í hinu forna höfuð-
vígi ráðherrans, Ólafsvík, tapaði
Framsóknarflokkurinn umtal-
sverðu fylgi við kosningarnar í
vor, og missti meðal annars
bæjarfulltrúa fyrir borð. Það þyk-
ir benda til að staða Alexanders,
jafnvel á heimavelli, hafi mjög
veikst.
Á Mýrum og í Borgarnesi, þar
sem Davíð á Arnbjargarlæk ætti
að standa fótum föstum er líka
merkjanlégt Ios á fylginu. Yngra
fólk hefur mjög á vörunum að
Davíð hafi vanrækt tengslin við
kjósendur sína. Meðal ungra
bænda í Borgarfirði geldur hann í
ríkum mæli landbúnaðarstefnu
stjórnarinnar. Mjólkurfram-
leiðsla er helsta atvinnugreinin í
sveitum Borgarfjarðar, þar sem
Framsókn hefur verið einsog
fiskur í vatni, og mjólkurkvótinn
kom einkar illa niður á mörgum
Fréttaskýring
yngri bændum þar, og raunar
víðar í kjördæminu. Bóndinn á
Arnbjargarlæk er í mun ríkari
mæli en Alexander dreginn til
ábyrgðar fyrir þetta af búand-
fólki.
f kosningunum á síðasta vori
misstu Framsóknarmenn mann í
Borgarnesi, og þar og í sveitun-
um í kring er tilþrifaleysi og
tengslaskortur Davíðs nefnt á
meðal orsaka. Annars staðar,
utan hins eiginlega umdæmis Da-
víðs á Borgarfjarðarsvæðinu,
liggja mönnum hins vegar já-
kvæðari orð til hans. Akurne-
Steinunn Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi.
Hún var óskakandidat Framsóknarmanna á
Skaga í annað efstu sæta Framsóknarlistans á
Vesturlandi, en hefur samkvæmt heimildum
Þjóðviljans afráðið að fara hvergi.
singar hafa til dæmis nokkra trú á
l honum - en kona hans er þaðan
með mikla ætt að baki sér - og
framboði af Akranesi í efstu sæti
listans yrði trauðla stefnt sérstak-
lega gegn Davíð Aðalsteinssyni.
Af þessu er ljóst, að báðir þing-
menn Vesturlands hafa nokkra
ástæðu til að bera kvíðboga fyrir
prófkjörinu í nóvember, einkum
þó hinn kurteisi ráðherra úr
Ólafsvík.
Framsóknarmenn standa nú
vel að vígi á Akranesi. í sveitar-
stjórnarkosningunum 1982 unnu
þeir mikinn sigur og fengu þrjá
bæjarfulltrúa. Jón Sveinsson lög-
fræðingur, sem fyrr var nefndur
var í fyrsta sæti, en þar á eftir
komu Ingibjörg Pálmadóttir og
Steinunn Sigurðardóttir. Þær
stöllur færðust upp um sæti á list-
anum við kosningarnar í vor,
þegar Jón Sveinsson dró sig í hlé,
og á Akranesi héldu þær fylginu
frá sigrinum fyrir fjórum árum, -
þrátt fyrir tap á landsvísu og áber-
andi tap í vígjum þingmannanna
tveggja í kjördæminu.
Innan Framsóknarflokksins
hefur LFK (Landssamband
Framsóknarkvenna) sett fram
skýrar kröfur um konur í örugg
sæti á listum flokksins, en þar er
nú engin kona. SUF hefur enn-
fremur heimtað meira af ungu
fólki. Af sjálfu sér leiðir að um-
ræða af þessu tæi hefur veikt
stöðu manna af aldri og gæða-
flokki Alexanders. Við það bæt-
ist að Framsóknarflokkurinn á
Akranesi er sterkasta vígi flokks-
ins í kjördæminu og í krafti þess
kalla menn nú eftir þingmanns-
sæti á Skagann.
Besta leiðin til þess er að sjálf-
sögðu að notfæra sér kröfur
kvennanna og unga fólksins: gera
út á óánægjuna með Alexander
og setja fram dugandi konu.
Þetta hafa Skagamenn af Fram-
sóknarætt nú ákveðið að gera.
Þeir benda líka á önnur og
sterk rök fyrir því að fórna Alex-
ander fyrir unga konu: allir hinir
listarnir munu verða með
óbreytta röð í efstu sætunum. Að
auki mun í^vennalisti nær örugg-
lega bjóða fram í kjördæminu í
fyrsta sinn við næstu þingkosn-
ingar. Kona í efsta sæti Fram-
sóknarlistans myndi því vafalaust
verða vel fallin til að bæta hag
listans.
Sleggjan af Skaga
Bæjarfulltrúinn Steinunn Sig-
urðardóttir, 35 ára gamall hjúkr-
unarfræðingur, var bersýnilega
efst á óskalista Akurnesinea bee-
ar Þjóðviljinn „gerði kpnnun“
síðustu daga. En Þjóðviljinn hef- ,
ur fyrir því heimildir aðSteinunn
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 30. september 1986
Guðrún Jóhannsdóttir af Skaga: Fellir hún
ráðherrann?- Þaðyrðu án efasögulegustu úrslit
prófkjöralotunnar framundan...
sé nú búin að taka ákvörðun um
að fara ekki í slaginn.
En í Trésmiðjunni Jaðri á
Akranesi er önnur kona, 42 ára
gamall skrifstofustjóri, með
mikla reynslu af starfi innan
Framsóknarflokksins. Það er
Guðrún Jóhannsdóttir, mið-
stjórnarmaður, ritstjóri mál-
gagns flokksins í kjördæminu,
Magna, þar til í síðustu viku, for-
maður kjördæmissambandsins á
Vesturlandi, og auk þess varafor-
maður Landssambands Fram-
sóknarkvenna. Guðrún þykir
mjög starfhæf, að sögn flokksfé-
laga hennar, og Þjóðviljinn hefur
heimildir fyrir því að forystukon-
ur í LFK hafi eggjað hana til
framboðs.
Að sögn heimildarmanna á
Skaga langar Guðrúnu nú að
taka þátt í glímunni í þungavigt
stjórnmálanna eftir að hafa unnið
langan dag í erfiðisverkum inni í
flokksa. Þessvegna er mjög lík-
legt að hún verði frambjóðandi
Framsóknarmanna gegn Alex-
ander.
Könnun á viðhorfum manna
víða í kjördæminu leiddi í ljós að
Guðrún myndi að öllum líkind-
um ná öruggu sæti. Fiestir virtust
sammála um að það yrði Alex-
ander sem lægi eftir, - Davíð
kæmist áfram. Á þessu er þó einn
laus endi: Alexander hefur sterka
maskínu, en Davíð hefur fáa liðs-
foringja og virðist snúast að
mestu sjálfur í sínum eigin próf-
kjörsmálum. Óánægjan er lang-
mest með Alexander, og þó
stuðningsmenn Guðrúnar á
Skaga neiti því að framboði
hennar yrði beinlínis stefnt gegn
Alexander, þá er slík atburðarás
prófkjöra, að atlaga af hálfu
Guðrúnar á annað efstu sæta
myndi fljótlega snúast upp í átök
milli hennar og Alexanders.
Sveitarstjórinn gamli mun hins
vegar taka sterklega á móti og
kveðja út allt sitt lið. Staðan gæti
því mögulega snúist þannig, að
Davíð án sterkra fótgönguliðs-
sveita myndi lenda milli steinsins
undan Jökli og sleggjunnar af
Skaga: og hafna í þriðja sæti! Um
þetta er auðvitað erfitt að spá. En
ljóst er að framboð Guðrúnar Jó-
hannsdóttur, tiltölulega óþekktr-
ar konu úr Trésmiðjunni Jaðri á
Skaga, kynni að leiða til einna
óvæntustu atburða komandi
prófkjöralotu.
Alexander mikli lagði á sínum
tíma undir sig allt Persaveldi og
komst alla leið austur að fljótinu
Indus. Alexander Stefánsson má
hins vegar hrósa happi, nái hann
að halda Ólafsvík eftir burtreiðar
sínar við konur af Skaga.
Guðmundur Einarsson á skrifstofu sinni. I Helgarpóstinum var talað um íburð á skrifstofum stofnunarinnar og geta lesendur sjálfir daemt um það Oll húsgögn
á skrifstofunni eru hinsvegar gefin til stofnunarinnar af húsgagnavérslunum. Mynd E.ÓI.
Skelf ilegt að liggja
undir þessum ámælum
Rœtt við Guðmund Einarsson, framkvœmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar,
um þœr ásakanir sem komið hafa fram á stofnunina
„Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur í einu og öllu farið að lögum
með því að fá áritun löggilts
endurskoðanda, sem þýðir að
hann hefur heimild ráðuneytisins
til þess. Jafnframt hefur Hjálpar-
stofnunin sent ríkisendurskoð-
anda staðfestan ársreikning
stofnunarinnar og hann hefur
verið athugasemdalaus og hefur
fylgt honum áritun endurskoð-
anda stofnunarinnar, að hann
gefi glögga mynd af starfsemi
Hjálparstofnunarinnar," sagði
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Guðmundur sagði að í fram-
haldi af þeim umræðum um mál-
efni stofnunarinnar, sem átt hafa
sér stað í fjölmiðlum, hafi verið
farið fram á það við kirkjumála-
ráðherra, að hann hlutaðist nú
þegar um að ríkisendurskoðun
rannsaki bókhald og reiknings-
skil Hjálparstofnunarinnar fyrir
árin 1984 og 1985, ef ástæður þyki
til véfengingar áritunar löggilts
endurskoðanda stofnunarinnar.
Hugtakamisskilningur
magnar tortryggni
í framhaldi af skrifum Helg-
arpóstsins um reikningshald
Hjálparstofnunarinnar kom upp
misskilningur á orðinu reikning-
ur, en með því var átt við
ársreikning stofnunarinnar en
ekki bókhald hennar einsog
fréttamaður sjónvarpsins gerði á
sunnudagskvöldið. Sá misskiln-
ingur hefur að sögn Guðmundar
magnað enn þá tortryggni sem
Helgarpósturinn kveikti með
skrifum sínum.
í Helgarpóstinum er sagt frá
því að árið 1983 hafi Lárus Hall-
dórsson, endurskoðandi stofnun-
arinnar gert mjög ákveðnar at-
hugasemdir við bókhaldið og gert
tillögur um eftirlitskerfi, og að
framkvæmdanefnd færði bæði
styrkjabók og ferðabók.
Guðmundur sagði við Þjóðvilj-
ann að vegna þessarar ábending-
ar endurskoðandans hefði verið
farið fram á við hann að hann
útvegaði stofnuninni bókhalds-
tölvuforrit og var hætt að hand-
færa bókhaldið eftir það.
Hagnast
á bilakaupum
„Það er hinsvegar til marks um
blaðamennsku Helgarpóstsins að
hann sleppir að greina frá því að í
bréfi sínu tekur Lárus Halldórs-
son það skýrt fram, að ekkert hafi
komið fram við endurskoðun
hans, sem bendi til þess að með-
ferð fjármuna stofnunarinnar sé
ábótavant. Hinsvegar þurfti að
færa skráningu bókhaldsins til
betri vegar og það var gert.“
Helgarpósturinn talar um bfla-
brask hjá stofnuninni og sagði
Guðmundur að það væri alveg
rétt að stofnunin hefði haft eigin
bfla, enda nauðsynlegt þar sem
töluvert er um að starfsmenn
stofnunarinnar þurfi að fara út á
land vegna söfnunar. „Það hefur
verið ódýrara fyrir okkur að eiga
eigin bfla heldur en að nota bfla-
leigubfla. Við höfum keypt gamla
bfla og iátið gera þá upp. Þeir sem
hafa séð um viðgerðir á bílunum
hafa oftast verið menn sem eru
vinveittir okkur og hafa stundum
gefið stóran hluta af vinnu sinni,
þannig að þegar bílarnir hafa ver-
ið seldir aftur höfum við komið út
með hagnaði."
Sundurliðun
söfnunarfjárins
í jólasöfnun Hjálparstofnunar-
innar 84-85 söfnuðust f peningum
frá einstaklingum til verkefnisins
í Eþíópíu liðlega 14 milljónir
króna. Árið 1985 var ráðstafað
tæpum 16 milljónum króna til
verkefnisins þar. Þar af voru
keypt matvæli fyrir rúmlega
3,257 miljónir króna og lyf fyrir
tæpar 1,3 miljónir. Rúm miljón
fór í veiðarfæri vegna fiskveiði-
verkefnis í Massawa í Eþíópíu, en
það er fyrirbyggjandi langtíma-
verkefni sem Hjálparstofnunin
vinnur að. Aðrir stærstu liðir
sundurliðunarinnar eru laun,
uppihald og ferðakostnaður
hjálparfólks auk hjálparflugsins
og fraktar á hjálpargögnum.
Flugið og fraktin voru upp á tæp-
ar þrjár miljónir. Laun uppihald
og ferðakostnaður hjálparfólks,
en 23 starfsmenn tóku þátt í starf-
inu, var upp á rúmar sex miljónir
króna.
Osættaníeg
sjónarmið
Það hefur verið töluvert
gagnrýnt að svo stór hluti söfnun-
arfjárins fari í þessa liði. Jón
Ormur Halldórsson, fyrrverandi
starfsmaður Hjálparstofnunar-
innar hefur verið með þá kenn-
ingu að rétt sé að senda söfnunar-
féð til erlendra hjálparstofnana
og láta þær um að koma aðstoð-
inni á leiðarenda.
Guðmundur sagði að þarna
væri um ósættanleg sjónarmið að
ræða. Annarsvegar að senda
ávísun út og hinsvegar að fylgja
aðstoðinni eftir á leiðarenda.
Hjúkrunarfólkið sem starfaði í
Eþíópíu er hluti af aðstoðinni, þá
er sú nálægð sem skapast við að
fylgja aðstoðinni á leiðarenda og
sjá til þess að hún komi að fullum
notum nauðsynleg að mati Guð-
mundar. Sagði hann að Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hefði enga
heimild til að ráðstafa fénu sem
hún safnar með öðrum hætti en
gert væri.
Öruggasta og
skjótvirkasta
leiðin valin
„Við höfum einnig verið
gagnrýndir fyrir að veita fyrst og
fremst neyðarhjálp í stað þess að
vinna að fyrirbyggjandi aðgerð-
um, en á það ber að líta að sl. tvö
ár hefur ríkt gífurlegt neyðará-
stand vegna þurrka og annarra
náttúruhamfara og því verið lögð
megináhersla á að hjálpa því fólki
sem hefur staðið á þröskuldi lífs
og dauða. En jafnframt því höf-
um við verið þátttakendur í al-
þjóðlegum verkefnum sem unnin
eru í fyrirbyggjandi skyni, svo
sem fiskveiðiverkefnum og
vatnslagnaverkefnum.
Þá höfum við verið gagnrýnd
fyrir að nota flugvélar til að koma
hjálpargögnum á leiðarenda. Það
tekur hinsvegar nokkrar vikur að
sigla með hjálpargögn til Afríku,
auk þess sem löng landleið er
fyrir höndum eftir að hjálpar-
gögnin eru komin til hafnar, leið
sem er auk þess mjög ótrygg
vegna rána og hins ótrygga
stjórnmálaástands. Þegar ákveð-
ið var að senda gögnin með flug-
vél lá fyrir beiðni um að við flytt-
um mjólkuduft til þurrkasvæð-
anna strax. Við ákváðum að
verða við því og notuðum ferðina
jafnframt til að senda hjálparbíl
og veiðarfæri til Eþíópíu í sömu
ferð. Það var bæði öruggusta og
skjótvirkasta leiðin til að svara
beiðninni.“
Vantar strangt
aðhald
Baldur Möller gagnrýndi það í
Helgarpóstinum að ekki væri til
löggjöf fyrir sjálfseignarstofnanir
einsog Hjálparstofnun kirkjunn-
ar. Hvert er álit Guðmundar Ein-
arssonar á því?
„Við erum fyllilega sammála
því. Þau lög sem til eru eru löngu
úrelt og þarf að endurskoða þau.
Við viljum að stofnuni sé undir
ströngu aðhaldi enda byggist
traust hennar á því.“
Nú hefur verið ákveðið að
fresta sameiginlegri fjársöfnun
Rauða Kross fslands og Hjálpar-
stofnunarinnar, sem átti að renna
til Flóttamannastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna.
„Já við töldum ekki eðlilegt að
koma fram með beiðni um fjár-
stuðning frá fólki fyrr en niður-
stöður af bréfinu, sem við send-
um Jóni Helgasyni kirkjumála-
ráðherra, hafa fengist. Rauði
krossinn tók svo þá ákvörðun að
fresta söfnuninni á meðan þessi
mál væru að komast á hreint, en
þesssar tvær stofnanir hafa ætíð
átt mjög gott samstarf og vinna
einsog systkini að hjálparverk-
efnum.
Það er skelfilegt að liggja undir
þessum ámælum og ég harma
þann misskilning sem hefur átt
sér stað vegna hugtakaruglings á
ársreikningi og bókhaldi, sem
hefur gert okkur enn tortryggi-
legri og orðið til þess að fólk hef-
ur dregið þá ályktun, að hér sé
ekki allt með felldu,“ sagði Guð-
mundur Einarsson að lokum.
-Sáf
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13