Þjóðviljinn - 30.09.1986, Page 13
HEIMURINN
Daniloff fékk farar-
leyfi frá Moskvu
Moskvu - Bandaríski frétta- sem Sovétmenn ákærðu fyrir elsi mánaðartíma, fékk í gær
maðurinn Nicholas Daniloff, njósnir og lokuðu inni í fang- að yfirgefa Moskvu með konu
Sprengjutilræðin í París hafa verið slæmur blettur á frægðarskjöld Chiracs forsætisráðherra, þar sem hann hafði lofað
kjósendum auknu öryggi, og hefur hann nú verið ákærður fyrir að hafa sýnt hryðjuverkamönnum linkind og leitað
samninga við þá. Pessi teiknimynd birtist í dagblaðinu „Libération" og er Chirac þar látinn segja: „Við vinirnir förum nú
ekki að rífast..." _ , , . ,
Frakkland
Stjómin eykur fylgi
Skip verða tekin í notkun í
Danmörku til að hýsa flóttamenn
sem koma til landsins, að því er
talsmaður danska útlendingaeft-
irlitsins sagði í gær. Sex hundruð
flóttamenn hafa þegar fengið vist
í skipi, sem flutt var frá Færeyjum
og liggur nú við landfestar í Kaup-
mannahöfn, og næsta mánuð
verður tekið í notkun hótelskip,
sem fengið hefur verið að láni hjá
Svíum. Geta bæði skipin hýst til
samans 1800 manns. Meira en
sjö þúsund flóttamenn hafa beð-
ist hælis í Danmörku á þessu ári,
og hefur verið miklum erfiðleikum
bundið að taka á móti þessum
fjölda. Hefur danski Rauði kross-
inn jafnvel orðið að koma flótta-
mönnum fyrir í tjöldum. Flestir
flóttamannanna koma frá Austur-
löndum nærog bardagasvæðun-
um við Persaflóa, en einnig eru
margir Tamilar frá Sri Lanka í
hópnum. Straumurinn hefur enn
aukist síðan í júlílok, og þessa
viku komu 500 á fjórum dögum.
Reglur um innflutning flótta-
manna eru mjög frjálslegar í Dan-
mörku, en stjórnin hefur nýlega
boðað ný lög um vegabréfsáritun
til að draga úr strauminum.
Einn af hverjum fimm sállækn-
um í Wisconsin í Bandaríkjunum
hefur fengið til meðferðar sjúk-
ling, sem hefur haft kynferðisleg
mök við sállækni, sem hann eða
hún hefur áður verið í meðferð
hjá. Kom þetta fram í skýrslu sem
Sálfræðingasamtök Wisconsin
birti nýlega, og var hún byggð á
upplýsingum frá 1559 sállækn-
um. Talsmenn samtakanna
sögðu, að kynferðislegt misferli
sállækna væri mun útbreiddara í
Wisconsin en áður hefði verið tal-
ið og þyrfti að fylgjast vel með
þeim. Það væri álit yfirgnæfandi
meirihluta þeirra sem gefið hefðu
upplýsingar, að kynferðismök við
sállækna væru harla skaðleg
fyrir sjúklinga.
Smokka auglýsingar verða
e.t.v. bráðlega leyfðar í bresku
sjónvarpi, en þar hafa þær ekkert
rúm fengið hingað til af engilsax-
neskum velsæmisástæðum.
Þessi nýjung er einn liðurinn í
baráttu landsmanna gegn sjúk-
dómnum banvæna alnæmi, en
talið er að notkun smokka geti
myndað vegg gegn útbreiðslu
hans. Hafa heilbrigðisyfirvöld
landsins svo miklar áhyggjur af
sjúkdómnum, sem u.þ.b. 350
Bretar hafa tekið, að rótgrónar
hefðir landsmanna verða að
víkja. Hefur komið til tals að út-
vega eiturlyfjaneytendum
ókeypis sprautur, og í síðustu
viku skýrði stjórnin frá því að uppi
væru hugmyndir um að gera
heilbrigðisrannsóknir á Afríkubú-
um sem til landsins koma. Sjúk-
dómurinn hefur breiðst mjög
mikið út í Afríku, og er jafnvel talið
að sex af hundraði íbúa álfunnar
hafi tekið veiruna.
Lungnakrabbi er nú að ryðja
krabbameini i brjósti úr sæti sem
helsta dánarorsök kvenna í iðn-
væddum ríkjum, að því er segir í
skýrslu frá Alþjóða heilbrigðis-
stofnuninni WHO, og er auknum
reykingum meðal kvenna síðustu
tuttugu ár kennt um þessa þróun.
Samkvæmt skýrslunni hafa
dauðsföll kvenna af völdum
lunanakrabba þrefaldast í Ástral-
íu, Irlandi, Nýja Sjálandi og Bret-
landi og fjórfaldast í Kanada,
Bandaríkjunum og Danmörku.
Annars staðar er þróunin svipuð
og hafa dauðsföll þannig tvöfald-
ast í Noregi, Svíþjóð, Póllandi og
Japan. Telur skýrslan, að þróun-
in í þessum löndum stafi af því að
þar hafi konur tileinkað sér
reykingavenjur karlmanna fyrr en
annars staðar. Hæsta dánartala
kvenna af völdum lungnakrabba
var í Skotlandi, 38 af hverjum 100
000, og síðan komu Danmörk
með 29,9, England og Wales
með 28,3, og Bandaríkin með
26,8. Svíþjóð með 12 og Noregur
með 11 voru talsvert neðar á list-
anum.
París - Frönsku stjórnarflokk-
arnir juku fylgi sitt í aukaþing-
kosningum, sem fóru fram um
helgina í kjördæminu Haute-
Garonne í Suðvestur-
Frakklandi vegna þess að úr-
slitin þar í mars höfðu verið
dæmd ógild. Þeir unnu þó ekki
þingsæti til viðbótar við þau
sem þeir höfðu fyrir, þannig að
Stokkhólmi - Svíar ætia að
koma á fót neðanjarðar
rannsóknarstofu, sem verður
höggvin i kletta á Eystrasalts-
strönd, og á tilgangur hennar
að verða að kanna hvaða stað-
ir hæfi best til að geyma geisla-
virk úrgangsefni um aldur og
ævi.
Sven Bjurström, sem er einn af
forráðamönnum sænskra kjarn-
orkuvera, sagði á blaðamanna-
fundi, að rannsóknarstöðin yrði
400 m í jörðu niður nálægt Osk-
arshamn, en þar er þegar aðstaða
til að geyma geislavirk efni um
stundarsakir. Sagði hann, að
rannsóknarstöðin myndi kosta
jafnvirði 25 miljóna dollara, og
myndu menn þar fást við að rann-
eftir sem áður hefur franska
stjórnin ekki nema þriggja
þingsæta meirihluta. Einnig
var um helgina kosið um þriðj-
ung sæta í öldungadeildinni,
þar sem hægri flokkarnir hafa
jafnan haft meirihluta, og unnu
Gaullistar þar sigur þannig að
þeir eru nú stærsti flokkurinn í
deildinni.
saka hreyfingar grunnvatns fyrir
neðan sjálfan jarðveginn og
stöðugleika granítkletta. Greftr-
unarstaður fyrir geislavirk úr-
gangsefni verður að vera lokaður
um aldur og ævi til að koma í veg
fyrir að geislamengun berist út í
umhverfið, þar sem ýmis þessara
efna geta verið skaðleg í árþús-
undir. Yfirmenn sænska kjarn-
orkuiðnaðarins hafa valið rúm-
lega tíu tilraunastaði víðsvegar
um Svíþjóð en endanlegur
geymslustaður fyrir geislavirk
úrgangsefni verður ekki valinn
fyrr en um 1995.
Talsmenn kjarnorkuiðnaðar-
ins höfðu áður sagt að vegna
granítklettanna væri Svíþjóð á-
Þessi úrslit eru talin styrkja
Chirac í sessi. Sprengjutilræðin í
París hafa verið nokkurt áfall
fyrir hann, þar sem hann hafði
heitið kjósendum sínum meira
öryggi, og svo eru aukakosningar
oft erfiðar fyrir stjórnarflokka. í
þessum kosningum var Lionel
Jospin, formaður sósíalistaflok-
ksins, efstur á lista hans og háði
kjósanlegur alþjóða-greftrunar-
staður fyrir geislavirk úrgang-
sefni, en ríkisstjórnin var andvíg
öllum slíkum hugmyndum, og
sinni og var ferð þeirra heitið
til Frankfurt í Vestur-
Þýskalandi.
Áður en Daniloff fór í gegnum
tollskoðunina á flugvellinum í
Moskvu, sagði hann frétta-
mönnum að sér hefði verið til-
kynnt þennan sama eftirmiðdag
að hann fengi að fara og hefði
hann þá strax sótt vegabréf sitt,
en hann sagði ekkert um það
hvort brottförin hefði verið
skilmálum háð.
í fylgd með Daniloff var
bandarískur sendiráðsritari og
einnig sá blaðamaður sem á að
taka við starfi hans sem fréttarit-
ari „U.S. News and World Rep-
ort“. í stuttu ávarpi sínu til frétta-
manna, sem viðstaddir voru á
flugvellinum las Daniloff upp á
rússnesku kvæði eftir 19. aldar
skáldið Mikhail Lermontoff, sem
byrjaði á orðunum: „Óþvegna
Rússland, land þræla, land
herra“, og sagði kona eftirmanns
hans, að hann hefði verið að læra
kvæðið utanað í þrjár vikur.
Brottför Daniloffs bar svo skjótt
að, að hann fékk ekki tíma til að
taka hund sinn með sér. Heitir
hundurinn Seifur og verður í
vörslu eftirmannsins.
Reagan Bandaríkjaforseti,
sem staddur var á kosningafundi í
Kansas City tilkynnti um brottför
Daniloffs frá Moskvu við gífurleg
fagnaðarlæti áheyrenda.
ERLENDAR
FRÉTTIR
JÓNSSON /REUIER
sitt
mjög virka kosningabaráttu.
Fyrir bragðið komst hann nú inn
á þing, en hann féll í París í vor.
En stjórnarflokkarnir juku samt
fylgi sitt um þrjú prósentustig og
sósíalistar töpuðu hálfu prósent-
ustigi. Bæði kommúnistar og
hin hægrisinnaða„þjóðarfylking“
öfgamannsins Le Pen töpuðu
verulega.
þeim var endanlega vikið til hlið-
ar eftir slysið í Tsérnóbíl. Áfor-
mað er að loka öllum kjarnorku-
verum í Svíþjóð fyrir árið 2010.
Þriðjudagur 30. september 1986 þjóÐVILJINN - SÍÐA 17
tealFiórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
óskar að ráða deildarstjóra á Geðdeild til eins
árs, frá og með 1. nóvember.
Sérmenntun í geðhjúkrun er æskileg.
Deildin tók til starfa í nýju húsnæði í apríl 1986.
Umsóknir sendist til hjúkrunarforstjóra, sem gef-
ur upplýsingar í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tilraunir með geymslustað
fyrir geislavirk efni