Þjóðviljinn - 30.09.1986, Síða 14
0*"
Viðgerðir á
fomminjum Rómar
Yfirvöldin sjá varla fram úr vandanum
Ferðamenn sem koma til
Rómaborgar verða fyrir þeirri
óþægilegu reynslu, að ýmsar
helstu fornminjar staðarins
sem útlendinga fýsir mest að
sjá eru faldar bak við tréverk
eða þlasttjöld, þannig að oft er
ekki annað sýnilegt en óljósar
útlínur eða þá kannski blettur
hér og þar. Hefur þetta ástand
staðið yf ir svo lengi, að farið er
að kalla Róm „borg hinna eilífu
stillansa".
Farið var að byggja stillansana
á síðasta áratug. Þá var það orðið
deginum ljósara að margar merk-
ustu fornminjar Rómar voru í
bráðri hættu vegna loftmengunar
sem var smám saman að éta upp
marmara og spilla steinhleðslu.
. „ —- I.
Féfagsmálaskófi
alþýðu
1. önn 19. október tll 1. nóvember 1986
Hvað kannt þú fyrir þér í fundarstörfum og framsögn? Hvað veist þú um
verkalýðshreyfinguna. starf hennar og sögu? Áttu auðvelt með að koma fram
á fundum og samkomum? Tekurðu þátt í félagslífi? Viltu bæta þekkingu
þína í hagfræði, félagsfræði og vinnurétti?
Ve.tt er tilsögn í þessum og öðrum hagnýtum greinum á I. önn
Félagsmálaskóla alþýðu. sem verður í Ölfusborgum 19. október tll
1. nóvember n.k. Þá eru á dagskránn. menningar- og skemmtikvöld auk
heimsókna í stofnanir og fyrirtæki. Félagsmenn Alþýðusambands íslands
e.ga rétt á skólavist. Hámarksfjöldi á önn er 25 þátttakendur, Umsókn.r um
i skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA fyrir 15. október. Nánarl upplýtlngar
eru velttar á skrlfstofu MFA, Grensásvegl 16. sfml 91 — 84233.
ÞEKKING, STARF OG STERKARI VERKALÝÐSHREYFIIMG
MENNINGAR- OG
FRÆÐSLUSAMBAND ALÞÝÐU
svæðisumsjónarmann á Suðurnesjum.
Viðkomandi þarf að vera: símvirki/símvirkja-
meistari eða rafeindavirki/rafeindavirkjameistari.
Laun skv. launakjörum ofangreindra stéttarfé-
laga.
h Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjórinn í Kefla-
vík, sími 92-1000.
Brugðust yfirvöldin þá við á-
standinu á þann hátt að styrkja
veggi með tréverki og „pakka“
jafnvel forminjunum inn í plast-
umbúðir þangað til fjármagn
fyrir nauðsynlegum viðgerðum
væri fáanlegt. Meðal þeirra
mannvirkja sem eru nú „ósýni-
leg“ á þennan hátt má nefna Sig-
urboga Konstantínusar keisara,
sem er reistur úr marmara rétt
hjá hringleikahúsinu Kolosseum,
súlur Trajanusar og Antoníusar
keisara, sem gnæfa við himin og
eru þaktar lámyndum af sigursæl-
um herferðum þeirra (sumir hafa
sagt að lágmyndirnar á súlu Tra-
janusar sé ein elsta myndasaga í
heimi), stórir hlutar af baðhúsum
Caracalla og Díókletíanusar
keisara, sem voru ætluð almenn-
ingi en ekki síður stór og glæsileg
fyrir það, og „Gullna húsið“
(Domus aurea), sem Neró keisari
lét byggja fyrir sig. Hlutar af Kol-
osseum voru einnig bak við still-
ansa um langt skeið vegna
sprungna í veggjunum.
Þegar farið var að „fela“ forn-
minjarnar á þennan hátt, bjugg-
ust menn við því að innan
skamms yrði hægt að framkvæma
viðgerðirnar, þannig að hinar
fornu byggingar og minnismerki
birtust aftur augum túrhestanna í
allri sinni dýrð. En nauðsynlegt
var að huga að því hvernig leysa
mætti þau vandamál, sem varð-
veisla þeirra hefur í för með sér,
og voru um það ýmsar bollalegg-
ingar. Komu m.a. fram þær til-
lögur að gera svæðið, sem mið-
borg hinnar fornu Rómar stóð á,
að e.k. fornleifa-garði og afleggja
þær umferðargötur og jafnvel
harðbrautir sem nú liggja í gegn-
um það og eru reyndar mjög til
truflunar og óprýði.
Leitað til
einkaaðila
En árin liðu og lítið var gert.
Nú hafa ftölsk yfirvöld leitað til
einkaaðila og fyrirtækja og beðið
þá um að fjármagna viðgerðirnar
og gerast á þann hátt „sponsorar"
framkvæmdanna. Er vonast til að
með þessu móti verði bráðlega
hægt að ljúka viðgerðum á ýms-
um mikilvægum byggingum. Það
voru yfirvöld Páfastóls sem riðu á
vaðið með þessi viðbrögð: Árið
1980 gerðu þau samning við jap-
anska sjónvarpsstöð um viðgerð-
ir á hinum frægu freskómyndum
Michaelangelos í lofti Sixtínsku
kapellunnar: Skyldi sjónvarps-
stöðin sjá um kostnað af viðgerð-
inni, sem nemur a.m.k. þremur
miljónum dollara, og fá í staðinn
einkarétt í þrjú ár til að taka og
selja ljósmyndir af freskómynd-
unum, þegar búið verður að
hreinsa þær, en gert er ráð fyrir
að því verði lokið árið 1992. Þess-
ar framkvæmdir í Vatíkaninu
hafa þó vakið miklar deilur á ítal-
íu. Sumir telja að með hreinsun
myndanna hverfi það
draumkennda andrúmsloft sem
Hjartanlegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
Jörgens Guðna Þorbergssonar
fyrrverandl tollvarðar.
Agnar Jörgensson Jensey Stefánsdóttir
Slgurður Jörgensson Sigrún Gissursdóttir
Svana Jörgensdóttlr Gunnar Torfason
Ása Jörgensdóttir Einar Þórir Guðmundsson .
barnabörn og barnabarnabörn.
yfir þeim var og stuðlað ekki síst
að frægð þeirra, en margir list-
fræðingar halda því fram, að við-
gerðirnar geri myndirnar sem lík-
astar því sem þær voru, þegar
Michaelangelo gekk frá þeim
árið 1514. Svo eru aðrir hræddir
við að þjóðararfur ítala kunni á
þennan hátt að lenda í klónum á
auglýsingasmiðum.
Þetta fordæmi Vatíkansins hef-
ur þótt leitt til þess að aðrir hafa
Iðnaður og umferð nútímans hefur leikið forn mannvirki Rómaborgar grátt.
reynt sömu leiðir og leitað til
einkaaðila. Árangurinn hefur
orðið sá, að Rómarbanki hefur
gefið hundrað miljónir líra til að
gera við bronsstyttuna af Mark-
úsi Árelíusi keisara á hestbaki,
sem stóð á Kapítól-torgi en var
flutt þaðan 1980 vegna skemmda
af völdum loftmengunar. Italgas
hefur veitt 250 miljónir líra til að
gera við ýmis listaverk frá
Kapítól-hæð, m.a. lágmyndir af
„Friðaraltari" Ágústusar keisara.
Önnur fyrirtæki hafa verið hjálp-
leg í viðgerðum mannvirkja frá
barok-tímabilinu, sem eru ekki
eins illa farin og hin fornu
mannvirki en þurfa þó talsvert
viðhald. Þannig eru í gangi við-
ræður við fulltrúa tryggingafé-
lagsins Assitalia um að það gefi
1,2 miljarða líra til viðgerða á
gosbrunninum fræga Fontana di
Trevi, sem ferðamenn halda sér-
lega mikið upp á - og sýna það
með því að kasta í hann smápen-
ingum. Dagblaðið Republica í
Róm hefur þegar stuðlað að við-
gerð á gosbrunni í bátslíki, „Bar-
accia,“ í grennd við stigann mikla
í Piazza di Spagna.
Þær viðgerðir sem opinberir
aðilar standa fyrir í einu og öllu
halda líka áfram, og í síðasta
mánuði voru stillansarnir teknir
burt af hringleikahúsinu Kolosse-
um. Hafði þá tekist að gera við
sprungur með því að hella steypu
inn í veggina gegnum sérstakar
holur. Tilkynnt hefur verið að
innan skamms verði Sigurbogi
Severusar keisara og Hof Saturn-
usar á hinu forna torgi Rómar,
Forum Romanum, „afhjúpuð",
og loks stendur til að setja á sinn
stað efst á Engilsborg styttuna af
Mikkjáli erkiengli, sem tekin var
niður til viðgerða fyrir þremur
árum.
Umfangsmikill
þjóðararfur
Vandamálin sem viðhald þess-
ara fornminja hefur í för með sér
eru ákaflega stór. „Þjóðararfur“
ítala er svo óhemju umfangs-
mikill að ríkið ræður hreinlega
ekki við að annast varðveislu og
viðhald alls og verður að treysta á
aðra aðila, hvort sem það eru al-
þjóðastofnanir, sveitarstjórnir
eða einkaaðilar. Einnig hefur
verið bent á að mikill vandi
skapist af stærð mannvirkjanna -
súlaTrajanusarert.d. 33máhæð
- og skorti á sérfræðingum. í ný-
legu viðtali sagði Adriano La
Regina, fornminjavörður Róm-
ar, að þegar hann tók við embætti
hefðu menn ekki haft annað en
mjög frumstæða tækni til að
hreinsa útveggi fornra bygginga.
Hann bætti því við, að þótt menn
kynnu harla vel til verka þegar
verið væri að gera við gömul mál-
verk, hefðu menn enn litla þekk-
ingu á því hvernig hægt væri að
gera við marmara.
Árið 1981 samþykkti ítalska
þingið 180 miljarða fjárveitingu á
fimm ára tímabili til að annast
mjög brýnar viðgerðir á forn-
minjum sem voru í hættu. Hefur
því fé að mestu verið varið í það
sem kalla mætti hrein „neyðartil-
felli,“ og er lítið sem ekkert eftir í
aðrar viðgerðir. En þótt hér hafi
sennilega verið unnið nokkuð
gott starf, þótt betur megi gera,
hafa verið talsvert mikil brögð að
því á Ítalíu, að fé, sem veitt er til
slíkra viðgerða, hvort sem það
kemur frá ítalska ríkinu eða er-
lendum stofnunum eins og Un-
esco, skili sér illa. Þannig „hvarf“
mikil fjárupphæð, sem safnað
hafði verið með alþjóðlegum
samskotum og átti að verja til
brýnna viðgerða á höllum í Fen-
eyjum. Enginn vissi nákvæmlega
hvað af því varð, en grunur lék á
að það hefði horfið í einhverja
spillingahít, eða þá í sjálfa Mafí-
una, sem er nú einmitt í fréttun-
um þessa dagana fyrir það hve
nösk hún hefur verið í að ná í
fjárstyrki, sem Efnahagsbanda-
lagið hefur ætlað ítölskum land-
búnaði. Hvernig sem fjármagn til
viðgerða á fornum mannvirkjum
er fengið er hætt við að erfitt
verði að leysa þau vandamál sem
varðveisla þeirra hefur í för með
sér nema fyrst sé skrúfað fyrir
slíkan leka og séð til þess að ann-
ast verði um framfarir af dugn-
aði.
emj (eftir Reuter)
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. september 1986