Þjóðviljinn - 30.09.1986, Síða 15
Trúðurinn Ruben hittir reykvíska krakka á útitaflinu. (mynd: EÓI.)
Leiklist
Tiúðurinn Ruben um landið
Háskólinn
Óskabam
eða
öskubuska
BHM heldur
afmœlishátíð í tilefni
afmælis Háskólans
í tilefni af 75 ára afmæli Há-
skóla íslands mun Bandalag Há-
skólamanna gangast fyrir afmæl-
ishátíð dagana 4.-11, október.
Meðal efnis á hátíðinni er fundur
í Odda þann 5. október sem ber
yfirskriftina Háskóli íslands,
óskabarn eða öskubuska? Fram-
sögumenn verða menn úr at-
vinnulífinu og rætt verður um
hvort Háskólinn þjóni hlutverki
sínu nægjanlega vel og hvort
nógu vel er búið að honum.
Af sama tilefni hefur BHM
staðið fyrir fjársöfnun meðai fé-
lagsmanna sinna til þess að stofna
sjóð háskólaforlags til útgáfu vís-
indarita en að sögn Gunnars G.
Schram formanns BHM er mikil
þörf á slíku forlagi.
-vd.
Trúðurinn Ruben frá Svíþjóð
er nú kominn til iandsins og er
i þann veginn að leggja upp í 6
vikna leikferð um landið ásamt 2
aðstoðarmönnum sínum og is-
lenskum túlki, Kolbrúnu Ernu
Pétursdóttur leikara.
Ruben er landsmönnum að
góðu kunnur frá því hann kom
hingað sem gestur Listahátíðar
1982 og hélt þá sirkusskóla fyrir
börn. I ferð sinni núna um landið
sem skipulögð hefur verið af
Bandalagi ísl. leikfélaga mun Ru-
ben og félagar starfa með 23
leikfélögum í bæjum og þorpum
víðsvegar um landið. Hann mun
hafa námskeið fyrir leikfélögin,
standa fyrir sirkusskóla í skólum,
þar sem ekki færri en 1000 börn fá
notið tilsagnar hans og síðast en
ekki síst mun hann hafa sýningar
fyrir almenning. Ruben hefur
ferðast víðs vegar um heiminn
með sirkusskólann sinn, nú síðast
var hann í þriggja vikna ferð um
Pólland.
Sirkusskólinn hefst á Patreks-
firði í dag, og þar sýnir Ruben í
kvöld. Á morgun verður Ruben í
Bolungarvík, og fer síðan um
landið.
Húsnœðislögin
Aukavaktir
hjá
Húsnæðis-
stofnun
Húsnæðisstofnun ríkisins hef-
ur brugðið á það ráð vegna til-
komu nýju húsnæðislaganna að
hafa sérstaka aukavakt eftir
skrifstofulokun, þar sem fólk get-
ur fengið allar upplýsingar í gegn-
um síma um nýju lögin.
Stofnunin hefur verið með sím-
atíma fimmtudag og föstudag frá
17 til 20, og í dag getur fólk hringt
og fengið upplýsingar kl. 13-18.
Margrét Sigurðardóttir hjá
Húsnæðisstofnun tjáði Þjóðvilj-
anum í gær að mikið hefði verið
hringt undanfarna daga á venju-
legum opnunartíma, en auka-
vaktirnar hafa ekki nýst eins og
búist var við.
-gg
Athugasemd frá
Steingrími Þonnóðssyni
Til ritstjórnar Þjóðviljans.
Athugasemd við ranga, vill-
andi og ærumeiðandi frétt Þjóð-
viljans, er birtist á forsíðu blaðs-
ins þann 23.9. sl. En efni fyrir-
sagnarinnar er orðrétt þannig:
„Skuldlaus á uppboði. Steingrím-
ur Þormóðsson hdl. krefst
nauðungaruppboðs á bifreið
Guðbjörns Breiðfjörð vegna
skuldar. Bfllinn löngu seldur,
skuldin löngu greidd. Höfuðstóll
skulda: 35.179 krónur. Þóknun
Steingríms: 31.887 krónur. Hvar
er féð?“
Það er skoðun undirritaðs að
hér hafi Þjóðviljinn alls ekki
aflað sér nokkurra heimilda,
áður en hann birti frétt sína, þar
sem óneitanlega er um grófar
ásakanir að ræða í garð undirrit-
aðs. Blaðið aflar sér ekki heim-
ilda hjá undirrituðum, sem var á
skrifstofu sinni þann 22.9 sl. frá
kl. 8.30 árdegis til kl.19.00 síð-
degis. Blaðið aflar sér ekki heim-
ilda hjá uppboðshaldaranum í
Húnavatnssýslu eða kröfueig-
anda, þar sem ekki var talað við
framkvæmdastjóra kröfueiganda
Versl. Sigurðar Pálmasonar hf.,
eða þann aðila félagsins sem með
innheimtur hefur að gera. Slík
forsíðufrétt þvert yfir forsíðu
Þjóðviljans, feitletruð, getur því
vart talist sæmandi íslenskri
blaðamannastétt, með hliðsjón
af þeim ásökunum sem í fréttinni
koma fram á hendur undirrituð-
um. Verður því ekki annað séð
en hér höggvi Gula pressan enn í
þann sama knérunn siðareglna,
sem íslenskir blaðamenn skulu í
heiðri hafa og frjáls blaða-
mennska byggist á. Má af þessu
atferli blaðsins ætla að Alþingi
götunnar sé saman komið og hafi
ráðið sér saksóknara. Saksóknari
þessi hefur nú birt ákæru sína, án
þess að ákærði fengi að kynna sér
sakarefnið. Hefur ákærði þegar
verið leiddur fyrir næsta alþýðu-
dómstól, sem er lesendur Þjóð-
viljans. Þeir hafa vafalaust kveð-
ið upp sinn dóm. í þeirri von að
lesendur Þjóðviljans taki dóm
sinn til endurskoðunar, mun ég
hér á eftir rekja hina réttu mála-
vexti er saksóknari Þjóðviljans
hefði átt að kynna sér áður en
ákæran var birt.
Vorið 1985 hóf undirritaður að
innheimta kröfu á hendur Versl.
Sigurðar Pálmasonar hf., fyrir
fyrirtæki í Reykjavík. í júní 1985
var gerð sátt við Versl. Sigurðar
Pálmasonar hf. fyrir aukadóm-
þingi Vestur-Húnavatnssýslu, en
skv. sátt þessari skuldbindur
Versl. Sig. Pálmasonar hf. sig til
að greiða téða kröfu með þremur
jöfnum afborgunum síðari hluta
ársins 1985. Versl. Sig. Pálma-
sonar hf., kom að máli við undir-
ritaðan, eftir að sátt þessi hafði
verið gerð og fól undirrituðum að
innheimta fyrir sig nokkrar úti-
standandi kröfur og skyldi and-
virði þeirra renna til greiðslu
skuldar félagsins við umbjóð-
anda undirritaðs í Reykjavík, ef
þessar kröfur greiddust fyrr en fé-
lagið hefði bolmagn til að greiða,
skv. ofangreindri sátt. Þá voru
undirrituðum einnig afhentir
víxlar er félagið átti á hendur
þriðja aðila og voru þeir teknir til
tryggingar kröfunni og sem
greiðsla þegar og ef þeir
greiddust. Ein af ofangreindum
kröfum var á Guðbjörn
Breiðfjörð og hún til greiðslu á
skuld félagsins við skjólstæðing
undirritaðs, nú í júlí í sumar,
ásamt með andvirði víxla er settir
höfðu verið af félaginu til trygg-
ingar og sem greiðsla ef og þegar
þeir greiddust. Þetta vissi fram-
kvæmdastjóri Versl. Sig. Pálma-
sonar hf., og sá aðili sem sá um
téð mál fyrir félagið. Þannig
hefðu skýringar fengist ef talað
hefði verið við rétta aðila, en það
var heilög skylda blaðsins, þar
sem um þungar ásakanir er að
ræða.
í fréttinni segir að þóknun til
undirritaðs sé kr. 31.887,00. Hér
er farið með rangt mál, þar sem
stór hluti þessarar fjárhæðar er
útlagður kostnaður vegna þing-
festingar, fjárnáms og uppboðs.
Þá er rétt að fram komi að upp-
boðsbeiðni ds. 13. des. 1985 á bif-
reiðinni H-548, teg. Volvó, árg.
1973, skráð eign Guðbjarnar
Breiðfjörð var afturkölluð, þegar
Guðbjörn hafði greitt kröfti sína,
enda hefur bifreiðin ekki verið
boðin upp og Guðbjörn selt
hana, án þess að á bifreiðinni
hvfldi fjárnám. Orsökin fyrir því
að Guðbjörn fékk enn á ný hótun
um uppboð á bifreiðinni H-548
var sú að þann 25. júní sl. sendi
undirritaður uppboðsbeiðni til
uppboðshaldarans í Húnavatns-
sýslu um uppboð á bifreið Guð-
björns H-1092, teg. Lada Vaz,
árg. 1973. Stóð undirritaður í
þeirri trú að þá bifreið ætti að
selja á uppboðinu 26. sept, 1986.
Hins vegar munu þau mistök hafa
átt sér stað hjá uppboðshaldara,
að hann sendi Guðbirni tilkynn-
inguna um uppboð og byggði til-
kynninguna á hinni eldri upp-
boðsbeiðni frá 12. des. 1985.
Þessi mistök hafa þegar verið
leiðrétt og uppboði frestað til
miðs október. Er það von mín að
þá verði Guðbjörn þegar búinn
að greiða hina síðari uppboðs-
kröfu alls að fjárhæð kr. 28.808,-
þann 25. júní sl., en eigandi
þeirrar kröfu hefur beðið eftir
greiðslu síðan árið 1983.
Með von um að lesendur þessa
bréfkorns verði einhvers vísari
um siðferði gulu pressunnar.
Steingrímur Þormóðsson hdl.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Þrlðjudagur 30. september 1986
Er ekki tilvalið
að gerast áskrifandi?
UðÐVIUINN Sími 681333
Heiðurslaun
Brunabótafélags
íslands
1987
í tilefniaf65 ára afmæli
Brunabótafélags íslands
Ljanúar 1982,
stofnaði stjórn félagsins
til stöðugildis hjá félaginu
tilþess aðgefa einstaklingum
kostá að sinna sérstökum
verkefnum til hags og heilla
fyrir íslenskt samfélag
hvortsem erá sviði lista,
vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs.
Nefnaststarfslaun þess, sem ráðinn er:
Heiðurslaun Brunabótafélags
íslands
Stjórn B. í. veitir heiðurslaun þessi
samkvæmt sérstökum reglum og eftir
umsóknum.
Reglurnar fást á aðalskrifstofu B. í.
að Laugavegi 103 í Reykjavík.
Þeir, sem óska að koma til greina
við ráðningu í stöðuna á árinu 1987
(að hluta eða alltárið) þurfa
að skila umsóknum tilstjórnarfélagsins
fyrir 10. október 1986.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS.