Þjóðviljinn - 30.09.1986, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Þriðjudagur 30. september 1986 221. tölublað 51. örgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Verkamannabústaðir
Stjómlaust í sumar
Framkvœmdir við byggingu 26 íbúða í Kópavogi
dragastfram á nœsta ár. Ósamkomulag ífyrristjórn.
Ný stjórn ekki samanfyrr en í haust
Stjórn verkamannabústaða í
Kópavogi hefur verið óvirk
mcira og minna allt þetta ár, þar
til f haust, þegar ný stjórn tók til
starfa. Af þeim orsökum hafa enn
ekki verið hafnar framkvæmdir
við byggingu 26 íbúða, sem
stjórninni var heimilað að byggja
í ár og ljóst er að byggingarfram-
kvæmdir munu ekki hcfjast á
þessu ári.
Stjórn verkamannabústaða í
Kópavogi er ein af nítján stjórn-
um verkamannabústaða á
landinu sem eiga inni fé hjá bygg-
ingarsjóði verkamanna. Alls er
þarna um að ræða stjórnir í 19
sveitarfélögum, sem enn hafa
ekki nýtt samtals yfir 100 miljónir
króna til bygginga eða kaupa á
verkamannaíbúðum.
Guðrún Einarsdóttir formaður
stjórnarinnar í Kópavogi sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
ekki hefði verið tekin ákvörðun
um byggingu þessara íbúða fyrr
en ný stjórn kom saman í haust.
Ekki náðist eining um bygging-
arframkvæmdirnar í fyrri stjórn
að sögn Guðrúnar. Sú stjórn fór
frá í kjölfar sveitarstjórnarkosn-
inganna í vor, en síðan dróst að
koma nýrri saman allt þangað til í
haust, eins og áður segir.
Nú hefur stjórnin skrifað undir
samninga um hönnun 40 fbúða í
Suðurhlíðum. Guðrún sagðist
búast við að teikningar að þeim
lægju fyrir um áramót, en af því
er ljóst að byggingarframkvæmd-
ir munu ekki hefjast fyrr en liðið
verður á næsta ár.
Drátturinn sem orðið hefur á
framkvæmdum mun einnig hafa
stafað af því að lóðir hafa til
skamms tíma ekki verið bygging-
arhæfar frá hálfu bæjarfélagsins.
Að sögn Guðrúnar lágu fyrir
80-90 umsóknir um íbúðir í Kóp-
avogi í upphafi þessa árs.
-gg
Síldarverksmiðjur ríkisins
Stjómin
dregur
í land
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins ákvað á fundi sínum í gær að
færa sýnatöku á loðnuförmum
aftur í fyrra horf, þ.e. að sýni
skuli tekin um borð í skipunum en
ekki við verksmiðjudyr. Loðn-
usjómenn hafa boðað löndunar-
bann á verksmiðjur fyrirtækisins
í Reykjavík og á Siglufirði vegna
óánægju með sýnatöku við verk-
siniðjudyr.
Óvíst var í gærkvöld hvernig
sjómenn ætluðu að bregðast við
ákvörðun stjórnar SR.
Ákvörðun stjórnar sfldar-
verksmiðjanna gildir aðeins í vik-
utíma.
Alþýðuleikhúsið
Inn á gafli
hjá Göflurum
Alþýðuleikhúsið fœr afnot af Bœjarbíói í Hafnarfirði.
Frumsýnir Köttinn í nœsta mánuði
Það er verið að ganga frá samn-
ingum á milli Leikfélags
Hafnaríjarðar og Alþýðuleik-
hússins um að við fáum afnot af
Bæjarbíói í Hafnarflrði, þannig
að við crum ekki á götunni
lengur, sagði Sigrún Valbergs-
dóttir leikstjóri hjá Alþýðuleik-
húsinu í samtali við blaðið í gær. í
Bæjarbíói eru þegar hafnar
æfingar á verki Olafs Hauks
Símonarsonar, Kötturinn sem fer
sínar eigin leiðir, og að sögn Sig-
Ríkissaksóknari
Afkynjun
til skoðunar
Beðið eftirsvari
ríkissaksóknara við
kröfu Svölu Thorlacíusar
um afkynjun
kynferðisafbrotamanns
Málið liggur nú hjá ríkissak-
sóknara og hann hcfur lýst því
yfir að það komi mjög sterklega
til greina að gera þá kröfu að
framkvæmd verði afkynjunarað-
gerð á manninum þegar hann
kemur fyrir dóm en hann situr í
fangelsi eins og stendur“, sagði
Svala Thorlacíus hæstaréttarlög-
maður í samtali við Þjóðviljann í
gærkvöldi.
Svala hefur farið fram á við
ríkissaksóknara að kynferðisaf-
brotamaður sem ítrekað hefur
framið kynferðisafbrot gegn ung-
um drengjum, verði látinn gang-
ast undir afkynjunaraðgerð.
Svala er lögmaður foreldra eins
drengjanna sem hefur orðið fyrir
árás umrædds manns.
Afkynjun fer fram með þeim
hætti að „kynkirtlar karla eða
kvenna eru numdir í burtu eða
þeim eytt þannig að starfsemi
þeirra ljúki að fullu“, eins og
segir í lögum frá 1938. -IH
rúnar er stefnt að frumsýningu
um iniðjan næsta mánuð.
„Leikfélag Hafnarfjarðar mun
að sjálfsögðu hafa forgang að
húsinu en það mun ekki hefja
neinar sýningar fyrr en eftir ára-
mót,“ sagði Sigrún. Leikritið sem
nú er verið að æfa er söngleikur
og var áður fært upp af Leikfé-
laginu á Akureyri á næstasíðasta
leikári. Með hlutverk fara Helgi
Björnsson, María Sigurðardóttir,
Barði Guðmundsson, Erla B.
Skúladóttir, Gunnar Rafn Guð-
mundsson, Bjarni Ingvarsson og
Margrét Ólafsdóttir. Mikið er
sungið í verkinu, 14 söngnúmer,
að sögn Sigrúnar og ætlar Ólafur
Haukur að gefa þau út á plötu
einhvern tímann á næstunni.
-vd.
Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri: Erum farin að æfa Köttinn í Bæjarbíói. Mynd E.ÓI.
Alþýðuflokkurinn
Uppgjör fyrir vestan
Sighvatur stefnir á efsta sœtið. Kosinn í herforingjaráðið í
Reykjavík. -Iframboði í einu kjördæmi í einu
Það vantaði hershöfðingja
fyrir kosningabaráttuna og ég
tók að mér starfið, sagði Jón Ar-
mann Héðinsson fyrrverandi
þingmaður Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi sem var
kjörinn formaður Alþýðuflokks-
félags Reykjavikur á aðalfundi
þess fyrir helgina. Jón Ármann er
búsettur í Kópavogi.
Mikil uppstokkun átti sér stað í
stjórn félagsins en meðal nýrra
stjórnarmanna er Sighvatur
Björgvinsson varaþingmaður Al-
þýðuflokksins sem um helgina til-
kynnti framboð gegn Karvel
Pálmasyni í prófkjöri Alþýðu-
flokksmanna á Vestfjörðum sem
fer fram í lok nóvember. Sighvat-
ur sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að hann stefndi á 1. sætið
fyrir vestan.
Reiknað er miklu uppgjöri
milli þeirra Sighvats og Karvels,
en á kjördæmisþinginu um helg-
ina voru samþykktar nýjar próf-
kjörsreglur sem þrengja nokkuð
þátttöku frá því sem verið hefur.
Þannig þurfa þátttakendur nú að
undirrita með eigin nafni yfirlýs-
ingu þess efnis að þeir séu hvorki
flokksbundnir né stuðningsmenn
annarra flokka né hafi tekið þátt í
prófkjörum þeirra.
-Slíkt hefur ekki verið rætt og
er ekki til umræðu, sagði Sighvat-
ur í gær aðspurður um þann orð-
róm að hann hyggðist bjóða sig
fram í Reykjavík til að forðast
uppgjör fyrir vestan sem forystu-
menn Alþýðuflokksins óttast að
kunni að hafa alvarlegar afleið-
ingar fyrir flokkinn. -Ég mun
einbeita mér fyrir vestan. Maður
getur ekki verið í framboði nema
í einu kjördæmi í einu, sagði Sig-
hvatur.
-*g-
Vímuefnavandi
íhaldii
sparar
Borgarstjórn leggur
niður hópstarf gegn
vímuefnum
Fuiltrúar Sjálfstæðisflokksins í
félagsmálaráði borgarinnar
felldu á dögunum tillögu frá Guð-
rúnu Ágústsdóttur um aukaijár-
veitingu upp á 80 þúsund krónur
til hópstarfs með unglingum
vegna vímuefnavandans og vcrð-
ur sú afgreiðsla til þess að hóp-
starfið mun leggjast niður innan
tfðar.
Starf þetta hefur verið á vegum
félagsmálastofnunar frá 1984.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
greiddi tillögu Guðrúnar atkvæði
sitt, en allir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins voru á móti.
Við gerð fjárhagsáætlunar
þessa árs var beðið um 500 þús-
und krónur til hópstarfsins, en
aðeins fengust 50 þúsund. -gg