Þjóðviljinn - 10.12.1986, Side 3

Þjóðviljinn - 10.12.1986, Side 3
FRETTIR ABIVesturlandi G-listinn kominn Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins í Vesturlandskjördæmi hefur samþykkt framboðslista flokksins til alþingiskosninganna á næsta vori. Listinn verður þannig skipað- ur: 1. Skúli Alexandersson alþm., Hellissandi 2. Gunnlaugur Har- aldsson forstöðum., Akranesi 3. Ólöf Hildur Jónsdóttir bankam., Grundarfirði 4. Ríkharð Brynj- ólfsson kennari, Hvanneyri 5. Þorbjörg Skúladóttir háskóla- nemi, Akranesi, 6. Sigurður Helgason bóndi, Hraunholtum 7. Sigurjóna Valdemarsdóttir hús- móðir, Búðardal 8. Arni E. Al- bertsson kennari, Ólafsvík 9. Kristín Benediktsdóttir húsmóð- ir, Stykkishólmi 10. Þórunn Eiríksdóttir hútsmóðir, Kaðal- stöðum. „Petta er góður listi og það er hugur í okkar fólki,“ sagði Skúli Alexandersson í samtali við Þjóðviljann í gær. _j Finnar Fá fréttir á myndböndum „Þessi fréttamiðstöð gefur út fréttaefni á táknmáli á mynd- böndum daglcga og sendir út til áskrifenda“ sagði Gunnar Salv- arsson skólastjóri Heyrnleys- mgjaskólans, en hann hefur feng- ið 40.000 króna styrk úr Menn- ingarsjóði íslands og Finnlands til þess að kynna sér gerð fréttaþátta fyrir heyrnarlausa í Rovaniemi í N-Finnlandi. „Fréttirnar eru teknar úr einu stærsta dagblaði Finnlands og þegar áskrifandinn kemur heim úr vinnu bíður hans spóla með fréttum dagsins sem samsvarar síðdegisblöðunum" sagði Gunn- ar. „Þessi leið er mjög áhugaverð hér þar sem við búum við fá- menni og gífurlegan skort á fréttaefni fyrir heyrnleysingja.“ Gunnar gerir ráð fyrir því að fara utan á næsta ári og mun þá kynna sér í smáatriðum framkvæmd, fyrirkomulag og kostnað við rekstur sem þennan. -vd. Innbrot Eigendur heita verðlaunum Eigendur skartgripaverslunar Guðmundar Þorsteinssonar í Bankastrætinu hafa heitið 100 þúsund króna verðlaunum fyrir upplýsingar sem leiða til þess að innbrotið í verslunina um helgina upplýsist og þýfið komist til skila. Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj- anum í gær komust innbrots- mennirnir inn um glugga á bak- hlið hússins og höfðu á brott með sér skartgripi að verðmæti 3-4 miljónir króna, gullhringi og hálsfestar. Eigendurnir hafa ákveðið að greiða verðlaunaféð úr eigin vasa. Málið er í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, en lögreglan verst allra frétta af rannsókninni. -gg Kjaramál SVR-stjórinn hótar Sveinn Björnsson ásakar Kristin Hraunfjörð vagnstjóra um brot í starfi Það er engin tilviljun að ég fæ þetta bréf nú. Ég tel að þarna sé verið að búa til ástæðu til þess að bola mér burt, sagði Kristinn Hraunfjörð vagnstjóri frá SVR í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann fékk í gærmorgun ábyrgð- arbréf frá Sveini Björnssyni for- stjóra SVR þar sem hann er sak- aður um brot í starfi. Kristinn var sem kunnugt er einn þeirra vagnstjóra sem lögðust veikir á mánudaginn með þeim afleiðingum að ferðir SVR röskuðust nokkuð. Tilgangur vagnstjóranna með þessum að- gerðum var að vekja athygli á lágum launum, lélegum aðbún- aði og óhóflegri yfirvinnu. Bréf Sveins er dagsett 08.12. og er svo hljóðandi: „Undirrituð- um er kunnugt, að þú fellir niður ferðir að eigin geðþótta og hirðir ekki um gjaldtöku af farþegum. Ekki verður unað við, að þú hald- ir uppteknum hætti og haldir áfram að gerast brotlegur í starfi þínu sem vagnstjóri. Eftir mót- töku þessa bréfs er þér uppálagt að hafa tafarlaust samband við undirritaðan.“ Kristinn fékk bréfið í hendur í gær, skömmu áður en hann átti að fara á vakt og gafst því ekki tími til að hafa samband við 70 ár Ræður Kristjáns Menningarsjóður hefur gefið út bókina „Hjá fólkinu í Iandinu“ og geymir hún 25 ræður og ávörp úr forsetatíð Kristjáns Eldjárns. Bókin er gefin út í tilefni af því að sjötíu ár voru liðin frá fæðingu Kristjáns 6. desember siðastlið- inn. Þórarinn sonur Kristjáns bjó til prentunar. I bókarkynningu er á það minnst að tækifærisræður Krist- jáns og ávörp hófust langt yfir til- efni líðandi stundar, enda var Kristján talinn einn bestur ræðu- maður á sínum tíma. Hann var „völundur á töluð orð og snjall rithöfundur“ segir í bókarkynn- ingunni og vitnar bókarefnið um „ágætan leiðtoga og mennta- mann sem átti töfrasprota mælsku og listar". í tilefni sjötugsafmælisins var einnig stofnuð sérstök rannsóknarstaða við Þjóðminja- safnið, kennd við Kristján, og til- efnið var einnig nýtt til að opna myntsafn Þjóðminjasafns og Seðlabanka. Svein. Það hyggst hann hins veg- ar gera í dag. En um ásakanir Sveins sagði Kristinn: „Sveinn veit og hefur sagt það sjálfur að þessar ásakan- ir eiga við alla sem aka niður Laugaveginn, það er óhjákvæmi- legt að þar falli niður ferðir og mjög erfitt er að fylgjast ná- kvæmlega með því hvort fólk borgar það sem það á að borga.“ -gg ■QRFRÉTTIR" Allir meinatæknar nema yfirmeinatæknir Borgar- spítalans hafa sagt upp störfum og rennurendanleguruppsagna- frestur þeirra út um áramótin. Kjaramálafundur Meinatæknafé- lagsins hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við meinatækna á spít- alanum og hvetur til þess að gengið verði að launakröfum þeirra hið allra fyrsta. Landbúnaðar- ráðherra hefur ákveðið að fela nefnd þeirri sem lokið hefur úttekt á nýtingu og rekstrargrundvelli sláturhúsa að taka til hliðstæðrar rannsókn- ar skipulag og rékstur mjólkurbú- anna. í nefndinni eiga sæti þeir Margeir Daníelsson, hagfræð- ingur, Ari Skúlason, hagfræðing- ur og Egill Bjarnason, ráðunaut- ur. Vinningurinn í lukkupotti Hlaðvarpans kom á miða nr. 1873. Vinninginn Nissan Sunny wagon bifreið má vitja á skrifstofu Hlaðvarpans, Vestur- götu 3. Kristján Eldjárn - „völundur á töluð orð Fatlaðir Mótmælt við Alþingishúsið Framkvœmdasjóður fatlaðra skorinn niður um helming. Fatlaðir vist- aðir í kvennafangelsi vegna húsnœðisleysis Tilefni þessarra aðgerða er miiljóna niðurskurður á Framkvæmdasjóði fatlaðra á hverju ári síðan iög voru sett um þennan sjóð og framlög í hann. Samkvæmt fjárlögum er niður- skurðurinn um 50% á næsta ári, framlagið átti að vera 200 milljónir en verður 110 milljónir, sagði Magnús Þorgrímsson fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands í samtali við Þjóðviljann, en bandalagið og Samtökin Þroskahjálp standa fyrir aðgerð- um á morgun fyrir framan Al- þingishúsið. Þessum aðgerðum hefur verið gefið nafnið Skammdegisvaka fatlaðra og eftir að safnast hefur verið saman fyrir framan Alþing- ishúsið kl. 14.00 hefst dagskrá á Hótel Borg. „Það ríkir hálfgert neyðar- ástand í málefnum fatlaðra á ís- landi“ sagði Magnús. „Fatlaðir fá ekki þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum og til dæmis fæst ekki sambýli fyrir fólk sem aðstæðna vegna á erfitt með að búa heima. Sem dæmi um bráðabirgðalausnirnar þá má nefna að nokkrir fatlaðir einstak- lingar eru nú vistaðir í kvenna- fangelsinu í Bitru, því annað hús- næði fæst ekki.“ -vd. Flokkarnir Kratar háir Skoðanakönnun um flokka- fylgi í D V í gær sýnir sömu hneigð meðai kjósenda og tvær síðustu kannanir: Alþýðufiokkurinn aflar sér fylgis hjá fyrri kjósend- um Sjálfstæðisflokksins. Þeir sem svöruðu ekki eða sögðust óákveðnir voru stærsti hópurinn, 43,6%, en af þeim sem völdu sér flokk studdu 26,4% Al- þýðuflokk, 17% Framsókn, 34,7% Sjálfstæðisflokk, 13,4% Alþýðubandalag og 7,1% Kvennalista. Væru þetta kosningaúrslit fengi Sjálfstæðisflokkurinn 23 þingmenn (nú 23), Alþýðuflokk- ur 17 (nú 6), Framsóknarflokkur 11 (nú 14), Alþýðubandalag 8 (nú 10), Kvennalisti 4 (nú 3). Stefán Valgeirsson ætti mögu- leika á Norðurlandi eystra. m I Niðursuða K. Jónsson Tjónið 45 miljónir Sölustofnun lagmetis álítur að tjónið vegna afturköllunar og endursendingar á niðursoðinni rækju sem fyrirtækið K.Jónsson á Akureyri framleiddi og bætti útí rotvarnarefninu Hexa sé um 45 miijónir. Þetta er í þriðja sinn á tæpum áratug sem niðursuðu- vörur frá K. Jónsson eru dæmdar ónýtar. Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi er sjávarútvegsráð- herra svaraði fyrirspurn frá Skúla Alexanderssyni en Skúli spurði ma. um ástæður þessara óhappa og hvort ráðherra teldi nægilegar ráðstafnir gerðar til að koma í veg fyrir áföll af þessu tagi. í svari ráðherra kom fram að framleiðslugallarnir voru í öll skipti á ábyrgð framleiðandans. Daglega séu tekin sýni af fram- leiðslu niðursuðuverksmiðjanna sem Rannsóknarstofnun fiskiðn- aðarins metur en ráðherra taldi útilokað að framkvæma reglu- lega dýrar og tímafrekar mæ- lingar til þess að sannreyna að ekki séu í framleiðslunni þau ótalmörgu aukaefni sem óheimilt er að nota. Miðvikudagur 10. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Námsráðgjafi Viö leitum að námsráðgjafa fyrir skólann. Við viljum efla ráðgjafar- og leiðbeiningarstarf fyrir nemendur og auglýsum eftir karlmanni eða konu til að hafa umsjón með því. Tilvalið starf fyrir duglegan og hugmyndaríkan kennara, félags- fræðing eðasálfræðing. Nánari upplýsingarveita skólastjóri og ^ámsráðgjafi. Iðnskólinn í Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.