Þjóðviljinn - 18.12.1986, Qupperneq 5
Ævisögur
og
minningar
MARGS ER AÐ MINNAST
Frásöguþættir
Kristján Albertsson
Jakob F. Ásgeirsson skráði
Frásagnasnilld Kristjáns Alberts-
sonar er alkunn og nýtur sín enn
vel þó að árum fjölgi. En sjón-
leysið varnar honum ritstarfa og
því er þessi dýrlega minningabók
orðin fyrir samstarf tveggja.
Kristján Albertsson kynntist
mörgum og var vinur manna eins
og Matthfasar Jochumssonar,
Einars Benediktssonar, Jóhanns
Sigurjónssonar, Guðmundar
Kambans, Jóhannesar Kjarvals,
svo að einhverjir séu nefndir af
þeim sem koma við sögu í þess-
ari bók, og nótafrásagnar hennar
slfkra náinna kynna í ríkum mæli.
Kristján Albertsson segir umfram
allt frá því sem hann hefur heyrt
og séð innanlands og utan, og er
það bæði margt og minnisvert.
Almenna bókafélagið
Verð: 1950 kr.
KRISTINN í BJÖRGUN
ELDHUGINN í SANDINUM
Árni Johsen
Samtalsbók við Kristin í Björg-
un.
Árni Johnsen ræðir hér við Kristin
Guðbrandsson í Björgun um líf
hans og stórbrotinn starfsferil.
Auk þess ræðir hann um Kristin
við þrjá af vinum hans, þá Helga
Eyjólfsson, Jóhannes Nordal og
Einar Halldórsson. Þrír mikil-
sverðir eiginleikar virðast ein-
kenna Kristin Guðbrandsson
umfram aðra menn: Hann þekkir
ekki uppgjöf, þolir ekki lognmollu
eða kyrrstöðu og hann er fæddur
tæknisnillingur.
Kristinn í Björgun er löngu þjóð-
kunnur maður og þá einkum fyrir
fernt björgun strandaðra skipa,
þátttöku í vel heppnuðum tilraun-
um í fiskirækt, dælingu bygging-
arefnis úr sjó, og leitina að gull-
skipinu.
Þeir Björgunarmenn gáfust aldrei
upp við strönduð skip og komu
rúmlega 80 á flot; eftir 30 ára til-
raunastríð er fiskirækt Kristins og
félaga hans loks farin að skila
arði; sanddælingin gekk strax
vel, en gullskipið er ófundið enn.
Skyldu þeir finna það?
Bók full af fjöri og spennu, eins og
líf þessa eldhuga, Kristins Guðb-
randssonar, hefurverið. Sandur-
inn hefur verið starfsvettvangur
hans, en hann hefur aldrei byggt
á sandi.
Almenna bókafélagið
Verð: 1950 kr.
BÓNDI ER BÚSTÓLPI VII
Umsjón Guðmundur Jónsson
fyrr. skólastjóri á Hvanneyri
Sagt er frá átta látnum bænda-
höfðingjum: Páli Þorsteinssyni í
Tungu, Pétri Jonssyni í Reyni-
hlíð, Bjarna Sigurðssyni frá Vig-
ur, Gunnari Þórðarsyni frá Græn-
umýrartungu, Hirti Líndal frá
Efra-Núpi, Eyjólfi Eyjólfssyni á
Hnausum í Meðallandi, Jóni
Guðmundssyni á Torfalæk og
Kristni Guðlaugssyni á Núpi.
Bókaflokkurinn Bóndi er bústólpi
er nú orðin að sjö bókum. Hver
bók er sjálfstæð en allt safnið
segir f rá yfir 80 bændum sem sett
hafa svip á íslenskan landbúnað.
í þessu bindi er ítarleg nafnaskrá
yfir öll bindin sjö.
Bókhlaðan
Verð: 1595 kr.
MANNLÝSINGAR l-lll
Sigurður Nordal
Fyrsti flokkur heildarútgáfu á
verkum Sigurðar Nordals. Sam-
eiginlegt einkenni þessara bóka
er að lýsingar á einstaklingnum
er hinn rauði þráður en vitaskuld
er fjallað um fleira og þá ekki síst
menningarsögu, skáldskap og
aðrar bókmenntir.
Sigurður Nordal var sá íslending-
ur sem sökkti sér dýpst í athugun
íslenskra þjóðareinkenna og
menningar. Ritferill hans var
langur og fjölbreytilegur en flest
sem frá honum kom var lesið af
áhuga og hrifningu - ekki af fáum
útvöldum heldur stórum hluta
þjóðarinnar. Fyrsta bindið heitir
Frá Snorra til Hallgríms og fjall-
ar um persónur frá fyrri skeiðum
íslandssögunnar. Annað bindið
heitir Skáldaöld og eru þar tekin
til athugunar fjórtán skáld 19. og
20. aldar. Nafn þriðja bindisins er
Svipir og lýsir 71 einstaklingi
sem fiestir voru samtímamenn
Sigurðar Nordals. Ritgerðir sem
sameina snilld og lærdóm -
sannkallaður skemmtilestur án
þess að nokkru sinni sé slegið af
vísindaiegri nákvæmni.
Almenna bókafélagið
Verð: 5250 kr.
GYÐJAN
ANTHONY 5UMMERS
GYÐJAN LEYNDARDÓMUR-
INN
UM MARILYN MONROE
Ævisaga þessarar þekktu leik-
konu er merkileg bók. Hún var
kyntákn tuttugustu aldarinnar,
átti í sambandi við fjölda karl-
manna, þar á meðal nokkra sem
hún giftist. Hún gat aldrei verið
tengd neinum um langan tíma.
Hún átti í miklum sálarlegum
þrengingum sem leiddu m.a. til
eiturlyfjaneyslu. Hún var bendluð
við Kennedybræður og mafíuna
eins og þessi bók greinirfrá. Bók-
in fjallar um ævi konu sem lifði
lífinu með þeim hætti að engin
fordæmi eru þar um. Sagt er að
allar fyrri bækur um leikkonuna
séu einskis virði eftir að þessi
kom út.
Bókhlaðan
Verð: 1494 kr.
LÍF MITT OG GLEÐI
Minningar Þuríðar Pálsdóttur
Jónína Michaelsdóttir skráði
Ævi Þuríðar Pálsdóttur er ævin-
týri líkust. Hún er komin af einni
merkustu tónlistarfjölskyldu á ís-
landi og hefur komið meira við
sögu tónlistar hér á landi en flest-
ir aðrir síðastliðin fjörutíu ár. Hún
er meðal brautryðjenda á ís-
lensku óperusviði og hefur átt
ómældan þátt í að kynna löndum
sínum sönglist innlendra og er-
lendra meistara. Saga Þuríðar er
ekki aðeins tengd tónlist. Hún
hefur starfað ötullega að félags-
málum og er vinsæll fyrirlesari. Á
síðustu árum hefur Þuríður orðið
fyrst manna til að ræða hispurs-
laust og af þekkingu um
breytingaskeið kvenna. Ekki er
ofmælt að hvar sem Þuríður kem-
ur við sögu, fylgir hugur máli. For-
lagið gefur einnig út plötu með
söng Þuríðar Pálsdóttur.
Forlagið
Verð 1.988 kr.
BERGIÐ KLIFIÐ
Minningar veiðimanns
BERGIÐ KLIFIÐ
MINNINGAR VEIÐIMANNS
HlöðverJohnsen
Bergið klifið er minningabók hins
þekkta Vestmannaeyja-
Hlöðvers Bjarneyjarjarls. Hann
er fæddur og uppalinn í Eyjum og
hefur alið þar aldur sinn að
mestu. Hann tók þegar í bernsku
mikinn þátt í atvinnulífinu í Eyjum,
varð síðan einn af helstu sig-
mönnum Vestmannaeyja, veiði-
maður í úteyjum, náttúrubarn og
náttúruskoðandi, sjómaður,
rannsóknamaður í Vestmanna-
eyjagosínu o.m.fl. Frá mörgu hef-
ur hann því að segja: horfnum
þjóðháttum Eyjamanna, fuglin-
um og náttúrunni við Eyjar, sérk-
ennilegum persónum (Binna í
Gröf) o.fl.
Fjörlega rituð, fróðleg og bráð-
skemmtileg bók um lifið og þjóð-
hætti í Vestmannaeyjum á fyrri
hluta þessarar aldar og til þessa
dags.
Almenna bókafélagið
Verð 1950 kr.
sannleika
Biísalx-t Þtwgeirsdóttir skráði
í SANNLEIKA SAGT
Elísabet Þorgeirsdóttír skráði
Bjarnfríður Leósdóttir er þjóð-
kunn baráttukona. ( aldarfjórð-
ung tók hún þátt í verkalýðsbar-
áttu á Akranesi og var félagi í Al-
þýðubandalaginu frá stofnun
þess. Bjarnfríður kvaddi flokkinn
á þessu ári, er henni þótti sýnt að
honum var þrotið baráttuþrek
gegn láglaunastefnu ríkisstjórn-
arinnar. Frásögn Bjarnfríðar er
opinská og heiðarleg. Lýsing
hennar á hlutskipti drykkju-
mannskonunnar er ein eftir-
minnilegasta frásögn bókarinn-
ar. Hún segir tæpitungulaust frá
baktjaldamakki í verkalýðshreyf-
ingunni og hlífir engum. Að baki
alvörunni býr leiftrandi skopskyn,
hvort heldur hún segirfrá óvænt-
um ævintýrum áhugaleikara á
Akranesi, lýsir hlutskipti þeirra
sem tóku út þroska sinn á stríðs-
árunum eða rifjar upp landlegu-
slagsmál á síldarárunum.
Forlagið
Verð 1.888 kr.
SIGURÐUR HRÓABSSON
EINA JÖRD
VEIT ÉG EYSTRA
HALLDÓR LAXNESS
OG SOVÉTRI'KIN
-
„EINA JÖRÐ VEIT
EG EYSTRA“
Halldór Laxness og Sovétríkin
Sigurður Hróarsson
„Eina jörð veit ég eystra" er ítar-
leg ritgerö um Halldór Laxness
og viðhorf hans til Sovétríkjanna
á tímabilinu 1930 og fram yfir
1960 og hvernig þetta viðhorf
breyttist. Höfundurinn, Sigurður
Hróarsson er ungur bókmennta-
og íslenskufræðingur.
Á þessu tímabili - frá rússnesku
byltingunni og fram að stríði,
löðuðust margir rithöfundar bæði
í Evrópu og Ámeríku að komm-
únisma. Þeir töldu hann veita
svör við flestum aðkallandi
spurningum samtímans og fram-
kvæmd hans í Sovétríkjunum
væri lausn veraldarvandans. (
þessum hópi var Halldór Lax-
ness. Þessi þáttur í sögu Lax-
ness er saga um óvenjulega hrif-
næmi „saga glæstustu vona og
sárustu vonbrigöa", eins og rit-
gerðarhöfundur kemst að orði.
Gefin út sem kilja.
Almenna bókafélagið
Verð: 790 kr.
Ýmsar
bækur
LEIKDOMAR OG
BÓKMENNTAGREINAR
Ólafur Jónsson
Bókin skiptist í tvo hluta og er
hinn fyrri helgaður leiklistarmál-
um. (slensk leikritun var um daga
Ólafs í örum vexti og eru hér birtir
dómar um margar af sýningum
leikhúsanna og eru þeir hvort-
tveggja í senn heimildir um það
sem við bar á þeim vettvangi og
umfjöllun um bókmenntir sviðs-
ins. ( seinni hluta bókarinnar eru
ritgerðir og greinar um bók-
menntir og bókmenntafræðileg
efni.
Hið íslenska bókmenntafélag
Verð: 1250 kr.
SAMRÆÐUR UM
KENNINGU BÚDDHA
eftir Francis Story
Skúli Magnússon islenskaði.
Höfundur þessarar bókar - Fra-
ncis story - er enskur maður að
uppruna, sem snerist til Búddh-
isma. Hann dvaldi um árabil á
Indlandi og síðar (Búrma og Sri-
Lanka. Sú grein Búddhisma sem
hann aðhyllist er hinn svokallaði
suður-Búddhismi eða Therava-
da. Hann reit ailmikið um bú-
ddhiska heimspeki. Þessi bók er í
samtalsformi. (myndaður vest-
rænn fríhyggjumaður ræðir