Þjóðviljinn - 18.12.1986, Side 9
Árni Bergmann
Handbókí
væntumþykju
Leo Buscaglia.
Að elska hvort annað.
Helga Ágústsdóttlr þýddl.
Iðunn.
Eitt einkenni jólabókaútgerð-
ar í ár er mikill fjöldi handbóka.
Okkur er boðið upp á leiðarvísi
um kynlíf, unglingavandamál,
kokkteila, pantanir á veitinga-
húsum, blómarækt og svo mætti
lengi áfram telja. Þessi bók hér,
eftir ítalskan Amríkana, gefur
ráð um væntumþykjuna.
Eins og vænta mátti eru þau
ráð flest ágæt - svo langt sem þau
ná. Menn eru minntir á nauðsyn
þess að láta þá, sem þeim þyícir
vænt um, vita af því, vera samt
ekki uppáþrengjandi, gera ekki
of háar kröfur, setja öngva mann-
eskju á stall. Það er skrifaður
kafli um ágæti snertingar í mann-
legu sambýli, um nauðsyn þess að
hafa húmorinn í lagi og þar fram
eftir götum. Okkur er líka ráðlagt
að spilla ekki hlýhug, væntum-
þykju, ást með samanburðar-
fræðum, því allir hafa nokkuð sér
til ágætis.
Þetta er semsagt allt gott og
blessað og vafalaust betur af stað
farið en heima setið. Gallinn við
slíkar bækur er hinsvegar sá, að
þær eru mjög almenns eðlis, í
þeim verður mannleg reynsla
einskonar afstraksjón - og eins
víst að lesandinn segi við sjálfan
sig áður en lýkur: þetta gat ég
sagt mér sjálfur. Flest af því að
minnsta kosti. f framhaldi af því
mætti spyrja að því, hvort menn
missi ekki mikils, þegar þeir
hverfa frá „óbeinum” ráðlegging-
um lífsins og skáldskaparins og
setja traust sitt í vaxandi mæli á
kerfisfræðinga mannlegra sam-
skipta.
ÁRNIBERGMANN
Nauðsynleg bók öllum sem
vilja vita fleira um íslenska
blaðamennsku og vinstri-
hreyfíngu
BÆKUR - LEIKFÖNG OG PÚSLUSPIL
I URVALI
Hringið í síma 14235 og
biðjið um bókaskrána
Vp.
* W - ijia- -■ . j—
I bókaskrá Æskunnar eru á annað þúsund
"itlar eldri úrvalsboka
ÆSKAN
Laugavegi 56 sími 14235