Þjóðviljinn - 22.02.1987, Síða 14

Þjóðviljinn - 22.02.1987, Síða 14
Ljóti andar- unginn Heimildarkvikmyndin er besta verkfœrið til að varðveita sögu okkar fyrir komandi kyn- slóðir Þegar rætt er um kvikmynda- gerð hér á landi er yf irleitt ver- ið að tala um gerð leikinna kvikmynda. Onnur kvik- myndagerð þrífst þó í skugga leiknu kvikmyndanna en það eru heimildakvikmyndirnar. Þessara kvikmynda er sjaldn- ast að miklu getið í fjölmiðlum þó hér sé síst um ómerkari framleiðslu að ræða. Eigi vel að takast til við gerð heimilda- myndar þarf margt af því sama að koma til og við gerð vel heppnaðrar leikinnar kvik- myndar, glöggt auga, list- rænn metnaður, tilfinning fyrir sögu, persónum og öðru sem nauðsynlegt er til að verkið verði ein heild. Heimildamyndir ná sjaldnast til stórs hóps áhorfenda, þó vissu- lega séu undantekningar á því einsog t.d. Rokk í Reykjavík eftir Friðrik Þór Friðriksson sýndi og sannaði. Yfirleitt er það áhuga- fólk um þessi ákveðnu fyrirbæri sem myndin fjallar um, auk þeirra sem um er fjallað, sem sýna myndinni áhuga. Engu að síður gegna heimildamyndir mikilvægu hlutverki. Skráning og varðveisla Kvikmyndin er þeim eigin- leikum búin að hún sameinar flesta þætti annarra listgreina, mynd, hreyfingu, hljóð og tal. Kvikmyndin hentar því mjög vel til að varðveita upplýsingar um iíf og hætti fyrir komandi kynslóðir. Það er hægt að skrá lýsingu af ákveðnu fyrirbæri á bók, það má taka mynd af því, jafnvel varð- veita upplýsingar á segulbandi. Ekkert af þessu kemst þó í hálf- kvisti við kvikmyndina sem gefur okkur upplýsingarnar ljóslifandi. Það eina sem vantar er lyktin. Með tilkomu myndbanda hlýtur hlutverk heimildarmyndar Vinnuaðstaðan við síldveiðar hefur tekið byltingakenndum breytingum. Hér má sjá nokkra sjómenn um borð í nótabát að vinnu sinni. Nótabátarnir hurfu með tilkomu kraftblakkarinnar. að vaxa til muna. Auðvelt er að færa kvikmyndirnar yfir á snældu og nota í skólakerfinu, enda fær- ist það mjög í vöxt. Jafnframt henta heimildakvikmyndirnar vel til sýningar í sjónvarpi, enda hefur sjónvarpið látið gera þó nokkrar slíkar kvikmyndir, auk þess sem það hefur keypt sýning- arrétt á öðrum. Þá geta söfn nýtt sér heimilda- myndir og hafa gert. Eitt er að sjá munina hengda upp á veggi og annað að sjá hvernig þeir voru notaðir. Með myndböndum er því hægt að gera safnið að lifandi húsi í stað geymslu fyrir fom áhöld. Við lifum á tímum mikilla um- breytinga. Nýjungar úreltast fljótt og gleymska umlykur marga þætti gærdagsins. Til að skilja nútíðina og skapa framtíð- ina er nauðsynlegt að þekkja fortíðina. Þessu gera sér flestir grein fyrir núorðið og þeir manna best sem fást við framtíðarspár. Auk þess getur gömul þekking komið aftur að notum í nýju sam- hengi seinna. Stuðningur úr atvinnulífinu Það er með heimildarmyndir einsog aðra kvikmyndagerð, að þetta eru dýr fýrirtæki. Pening- arnir eru hinn eilífi höfuðverkur. Kvikmyndasjóður hefur vissu- lega hlaupið undir bagga og út- hlutar nú ákveðnu hlutfalli af fjármagni sínu til gerð heimilda- mynda, en sjaldnast nægir það til þannig að kvikmyndagerðar- mennirnir verða oft á tíðum að gefa vinnu sína og jafnvel veð- setja eigur sínar svo dæmið gangi upp. Það hefur þó sem betur fer færst í vöxt að ákveðnir aðilar í atvinnulífinu hafa styrkt slíka kvikmyndagerð, jafnvel kostað hana að fullu. Stundum vill svo vel til að þessir aðilar hafa sjálfir frumkvæðið að gerð heimilda- mynda og ráða kvikmyndagerð- armenn til að gera myndirnar. Dæmi um slíkt er kvikmynd Þor- steins Jónssonar um sögu ASÍ, sem sýnd hefur verið í sjónvarp- inu. Fyrirtækið Lifandi myndir hf. hefur fengist mikið við gerð heimildamynda. Margar þessar kvikmyndir hafa tengst sjávarút- Fomnonœn bók Á Noröurlandaráðsþinginu í Helsinki verðurbók- menntaverðlaunum Norður- landaráðs úthlutað. Að þessu sinni er það norskur rithöfund- ur, Herbjörg Wassmo, sem hlýtur verðlaunin Ekki eru allir á eitt sáttir með valið á verðlaunahafanum í ár. Þykir ýmsum sem öll nýsköpun á bókmenntasviðinu sé sniðgengin en í stað þess sé verið að verð- launa bókmenntir, sem þóttu framsæknar á kreppuárunum. Einn af þeim sem hefur gagnrýnt það að norski rithöf- undurinn Herbjörg Wassmo fékk verðlaunin er danski rithöfund- urinn Poul Borum. í harðorðri grein í Ekstra Bladet í lok síðasta mánaðar, kallar hann það skömm. Blóðskömm, að skáld- verk frá fjórða áratugnum, skrif- að þrjátíu árum of seint, skuli vera verðlaunað. Þroskasaga Herbjargar Wassmo er að mati danska rithöfunarins Poul Borum skrifuð þrjátíu árum of seint. Telur hann að bækur hennar hefðu sómt sér vel á fjórða áratugnum. Wassmo fékk verðlaunin fyrir þriðja hlutann í ritröð um upp- vöxt stúlkunnar Toru í fátækt og eymd í Norður-Noregi, skömmu eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk. Stjúpfaðir hennar nauðgar henni og hún þarf að láta eyða fóstri. Þrátt fyrir þessar þrenging- ar í æsku missir hún ekki lífslöng- unina heldur eflist við hverja raun og endar sjálfsagt sem ljóð- skáld í sjöunda eða áttunda bindi, einsog Borum segir í grein sinni. Wassmo gaf fyrstu bókina um Toru út árið 1981. Áður hafði hún gefið út eina ljóðabók. Fyrsta bólýin um Toru nefndist Húsið með blindu veröndinni. Árið eftir tilnefndu Norðmenn þá bók til verðlauna Norður- landaráðs, en hún hlaut ekki náð fyrir augum nefndarinnar. Ann- að bindi sagnabálksins kom svo út 1984, Þögla herbergið og þriðja bindið sl. haust, Hörunds- laus himinn, sem nú í vikunni verður verðlaunaður í Helsinki. Borum nefnir tvo höfunda til, sem honum þykir betur að slíkri viðurkenningu komnir en Wassmo. Annarsvegar er það sænski rithöfundurinn Lars Gyll- ensten og hinsvegar danski rit- Ekki eru allir áeittsáttir með að HerbjörgWassmo hljóti bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs íár höfundurinn Peer Hultberg; „En það er varla hægt að ætlast til að verðlaunanefndin sé í stakk búin til að skilja meistaralega skáld- sögu hans Sálumessan," segir Borum. Skáldsögur þeirra Péturs Gunnarssonar, Sagan öll og Ein- ars Kárasonar, Gulleyjan, voru

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.