Þjóðviljinn - 26.04.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 26.04.1987, Blaðsíða 13
Jónshús á horni Austurveggs og Stokkhúsgötu. Hér bjuggu hjónin og frændsystkinin Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttiráárunum 1852-1879 og hér lést Jón. Heimili þeirra var einatt opið öllum íslending- um og svo er enn: Núna er hér veitinaasala og allstór veitingasalur ætlaðlslendingum í Höfn. Svokölluð fræðimannaíbúð er á annarri hæð en presturinn (nú sr. Ágúst Sigurðsson) býr á 4. hæð. Safn Jóns Sigurðs- sonar er á þriðju hæð. Séð f raman á húsið þar sem Jónas Hallgrímsson bjó síðast. Hann bjó á efstu hæðinni til hægri. Húsið er við St. Pædersstræde og er núna númer 22. Neðst á myndinni sést miningar- skjöldurinn sem talað er um í greininni. Hviids Vinstue opnaði fyrst árið 1723 og telst vera ein elsta knæpan ( Kaupmannahöfn. í tilefni af 250 ára afmæli vínstofunnar gaf örlygur Sigurðsson henni teikningar af fjórum íslenskum gleðimönnum. Myndin hangir þar uppi á vegg og segja ólygnir að heiðursmenn- irnir drekki í gegnum landa sína sem setjast þar til borðs! Tunnan er traust og stendur á gömlum merg. Hún er til vinstri við innganginn þegar komið er inn hjá Hvíti. Drakk Jónas Hallgrímsson hér sinn síðasta bikar í botn? Verslunardeild Sambands- ins auglýsir Að kröfu Rafmagnseftirlits ríkisins hefur Verslunar- deild Sambandsins ákveðið að breyta öllum þvotta- vélum af gerðinni ZEROWATT 5304. Samkvæmt prófunum RER er hugsanlegt við ákveðna bilun að hætta skapist vegna ofhitunar hitalds. Hér með eru eigendur þessara þvottavéla eindregið hvattir til að skrá sig hjá seljendum þvottavélanna, svo að breyting geti fariðfram. Á höfuðborgarsvæðinu erviðskiptavin- um bent á að hringja í Rafbúð Sambandsins í síma 687910, en annars staðar í viðkomandi seljanda. Viðgerðarmenn munu framkvæma breytinguna eins fljótt og kostur er. Eftir breytinguna verður búnaður þvottavélanna í samræmi við kröfur RER. Sambandið leggur höfuðáherslu á að öryggi eigenda þvottavél- anna verði tryggt og mun því kappkosta að breyting þeirra fari fram svo fljótt sem auðið er. VERSLUNARDEILD SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM Verkamannafélagið Dagsbrún Orðsending Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofs- húsum félagsins í sumar, fráog með mánudegin- um 27. apríl 1987 á skrifstofu félagsins að Lind- argötu 9, 2. hæð. Þeir sem ekki hafa áður dvalið í húsunum ganga fyrir með úthlutun til og með 30. apríl. Húsin eru: 5 hús í Ölfusborgum 2 hús í Svignaskarði 1 hús í Vatnsfirði 2 hús á lllugastöðum 2 hús á Einarsstöðum 2 íbúðir á Akureyri Vikuleigan er krónur 4.000 sem greiðist við pöntun. Stjórnin fLAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Fóstrustöður á leikskól- unum Fellaborg, Völvufelli 9 Brákarborg v/ Brákarsund og dagheimilinu Múlaborg v/Ármúla Uppl. veita forstöðumenn viðkomandi heimila og umsjónarfóstrur í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Guðmundar Magnússonar Verkfræðings Kleppsvegi 84 verðurgerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. apríl kl. 15.00 Margrét Tómasdóttir Sigríður Daníelsdóttlr Már Guðmundsson Svava Slgr. Guðmundsdóttir Pétur Tyrfingsson Snorri Guðmundsson Ingibjörg Geirsdóttir Magnús Tumi Guðmundsson Anna Guðrún Líndal Elísabet Vala Guðmundsdóttir og barnabörn Sunnudagur 26. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.