Þjóðviljinn - 26.04.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 26.04.1987, Qupperneq 15
vissi hvað beið mín. Það er ekki vel séð að stinga af með „sending- arnar.” í nokkra daga ráfaði hann um eins og umrenningur og át úr tunnum. Hann svaf innan um úti- gangsmenn í skemmtigörðum. „Eg var dauðhræddur um að löggan tæki mig. Ég var viss um að mér yrði stungið inn og síðan myndi ég rotna í spænsku fang- elsi.” Síðan hitti Sævar nokkra ís- lenska túrista. „Pakk,” segir hann og útskýrir það ekki frekar. Pau hjálpuðu honum samt og Sæ- var kom heim. „Ég var ákveðinn í að hætta. Ég var búinn að fá nóg. Ég byði ekki hundi upp á það sem ég hef gengið í gegnum.” Þetta var á síðasta ári. Og það voru menn sem áttu óuppgerðar sakir við Sævar. Hann glottir og strýkur niður örið á vanganum. Nýir kontaktar Hann er kominn með nýja kontakta núna. Ný sambönd. Hann selur fyrir ákveðna aðila. Aðallega hass og spítt. Og eins og hver annar sölumaður er hann á prósentum. En hverjir kaupa af honum? „Ég hef mína kúnna. Það er alls konar lið. Alveg upp í topp í þjóðfélaginu. Flestir virðast halda að það séu bara unglingar og aumingjar sem eru í þessu. Grammið af kóaíni kostar tíuþús- und kall. Hverjir heldurðu að kaupi? Skólakrakkar kannski?” Sævar glottir. í lesendabréfunum eru svona menn kallaðir sölumenn dauðans. Sumir heimta dauða- refsingu. „Mér er skítsama um lesendab- réf. Fólk vill dóp - ég sel það. Ríkið selur brennivín og enginn heimtar dauðarefsingu þar, þótt brennivín káli fleirum en dópið gerir.” Honum er illa við umræð- uefnið. Samt heldur hann áfram: „Fólk verður að passa sig sjálft. Ég geri engan að dópista.” Selur hann krökkum eiturlyf? „Mér illa við það. Einfaldlega vegna þess að það er áhætta. Eg hef ekki komið neinum krakka upp á að nota dóp.” Sjálfur notar hann aðallega spítt. Aðallega þýðirdaglega. Og stundum lifir hann eins og greifi og stundum eins og ræfill. Er þetta spennandi líf? „Er spennandi að vera blaða- maður?” spyr hann á móti. „Það er ekkert spennandi að vera hundeltur af löggunni og það er ekkert spennandi þegar „vinirn- ir” svíkja mann. En þetta er það sem ég geri og ég nenni ekki að væla út af því.” En framtíðin? Hlýtur ekki löggan einhvern tímann að ná honum eða dópið að kála hon- um? Sævar glottir eins og honum standi á sama. „Ég stressa mig ekki út af fram- tíðinni. Mín framtíð er þessi dag- ur núna og búið. Það sem síðar gerist - það kemur í ljós. Ég hef þurft að bjarga mér sjálfur síðan ég var 14 ára og það kemur eng- um við hvað ég geri. Ég hef engar áhyggjur.” þess. Ég varð langfrakkastur af þeim öllum í innbrotunum. Svo skildi ég fljótlega að mesti töffar- inn sukkaði mest og náði í flestar píur. Alla vega voru sögurnar þannig...” Sævar hætti í skólanum þegar hann var 14 ára. Hann var rekinn og honum var sama. Klíkan var lífið og stundum kom hann ekki heim dögum saman. Að meika daginn Hann þvældist út um landið og vann í fiski og bjó í verbúðum. „Sukkið var númer eitt, tvö og þrjú. Síðan kom vinnan pening- anna vegna. En það er varla til leiðinlegri vinna en í frystihúsum. Ég vildi verða ríkur og geta gert það sem ég vildi. Slorvinnan er ekki besta leiðin til þess.” Hann var til í allt: Notaði hass og amfetamín og LSD. Át hvaða töflur sem var ef þær gátu komið honum í vímu. „Að lokum meikaði ég ekki daginn án þess að fá eitthvað. Ég hataði vinnu og leit niður á pakkið sem lét bjóða sér hvað sem var.” Síðustu tvö árin hefur hann ekki unnið handtak. Hann hefur selt dóp. Verður hann ríkur af því? „Nei, stundum er maður eins og milljónamæringur og þá á maður heiminn, nóg af öllu, sér- staklega vinum.” Hann leggur áhersiu á síðasta orðið. „Svo er maður stundum eins og ræfill, á ekki krónu, ekki stað til að sofa á - og vinirnir eru gufaðir upp. Þetta er bara gangurinn í þessum bransa.” „Fyrir tveimur árum fór hann í fyrsta skipti til útlanda. Það var viðskiptaferð og hann var ekkert annað en sendill. „Ég var klín - ekki á neinum skrám - og ég var dubbaður upp og sendur til Am- sterdam.” Og hverjir sendu hann til Am- sterdam? Hann svarar ekki - þetta er heimskuleg spurning. Síðan fór hann nokkrar ferðir og notaði þær vel. Amsterdam er Mekka eiturlyfjanna og hann notfærði sér það. Að lokum stakk hann af með „sendinguna” - fór til Spánar og lifði eins og greifi. En það stóð stutt. „Eg var rændur og átti ekkert annað skilið. Ég hagaði mér eins og ég ætti heiminn.” Hann komst að öðru í sóðaiegum bakgarði í Madrid. Hann var laminn til óbóta og rúinn inn að skinni. Hundalíf Hann stóð uppi slyppur og snauður í útlenskri borg. Kunni ekkert í málinu og átti ekki einu sinni í strætó. „Mig langaði til að drepa mig,” segir hann. „Mig langaði ekki til íslands, því ég Sunnudagur 26. april 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.