Þjóðviljinn - 26.04.1987, Blaðsíða 18
Nr. 566
KROSSGATA
'i x— 8— V 5— ?— i— 7— w~~ 1 1— 9— V TT~
V ii 12 /3 T~ >4 T i3 T~ 14 v1 V /5' /&> W
)k> )? 13 (v; 8 13 S ¥ 2'ú z) 22 TT~
/v. 23 !b vf i y i> * W ZT 18 )2 Uo
5“ V >4 J'J 26" r 20 ' s r~ it )‘J v- )
(t 18 V )°> 4 1 É h j )4 Zö 23 ' V V
2) )b /3 W ¥ r b )4 ll /4 y b i ?
TiT T~ )¥ HV ll 3 )¥ / V )4
S ¥ 23 /9 /4 /9 )4 y í>T % £
6 Z y /8 d )4 T~ °j r~ ý T~ )¥ i
í^> £T ¥ )9 y n U !p w~ r~ /9 ¥ $
28 3 >4- zo i ib' ilv 13
ir~ IV- J & £ j Zé> )‘J 2S Jö v~~ T~
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kven-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
566“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
5 30 )2 9 )/ 22 1 /9
Stafirnir mynda íslenskt orö eöa mjög kunnugleg erlend heiti nvort sem lesið er
lá- eöa lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í^þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Kristinn Óskarsson, Kúrlandi 1,
Reykjavík, fékk verðlaun fyrir
krossgátu nr. 563. Lykilorðið var Mið-
skógar. Hann fær senda bókina Á
vinafundi, eftir Guðmund Daníels-
son.
Verðlaunin fyrir krossgátuna
þessa vikuna er Samastaður í
tilverunni eftir Málfríði Einars-
dóttur. Ljóðhús gaf út.
SKAK
BRIDGE
Skák og pólilik
Á kosningadegi er við hæfí að
huga nokkuð að tengslum skákar
og pólitíkur en þau eru eða geta
verið allmikil. Sumir skákmenn
kunna að vilja sitja í friði í skák-
vígjum sínum, fjarri öllum
heimsins umsvifum, en það er
ekki nokkur ástæða til að þeir
komist upp með það frekar en
aðrir.
Hvergi hefur skák verið beitt
jafn markvisst í pólitískum til-
gangi og í Sovétríkjunum á fyrstu
árunum eftir byltinguna. Þá var
veitt stórfé til að byggja upp
skákhreyfingu enda fjölgaði
skráðum skákmönnum úr nokkr-
um tugum þúsunda í milljónir á
fáum árum. En allt þetta lið átti
ekki bara að sitja og tefla. Skákin
varð til að hækka menningar-
standard almennings.
Ólæsum verkamönnum var
kennt að tefla og þegar þeir
höfðu smitast af leiknum fóru
þeir að tefla upp skákir og hnýs-
ast í skákrit en til þess þurftu þeir
fyrst að læra að lesa. Þegar því
stigi var náð fóru þeir að lesa aðr-
ar bækur, skáldverk og fræðirit
og komust þannig til þroska
gegnum skákina. Reyndin var sú
að þetta kerfi virkaði og það hafa
verið skráð fjölmörg dæmi um
hópa ólæsra verkamanna sem
hófu skólagöngu eftir að skákin
hafði þvingað þá til að tileinka sér
lestur og skrift.
í öðru lagi hafa menn lengi tal-
ið að skákiðkun þroski margs
konar hæfileika sem að gagni
mega koma í lífinu, minni, rök-
vísi, einbeitingu og fleira af því
tagi. Það er svo sem ekki amalegt
að ala heila þjóð upp með skák-
iðkun og kann þessi þáttur að
hafa haft áhrif á áhuga
stjómvalda á að auka viðgang
skáklistarinnar í Sovétríkjunum.
Þá má nefna það atriði að skák-
heimurinn er smáheimur, hlið-
stæður hinum raunverulega
heimi að mörgu leyti nema miklu
minni. Á skákborðinu er allt
sjáanlegt, 64 reitir, 16 hvítir
menn og 16 svartir og ekkert ann-
að. Með því að tefla venjast
menn því á þann þankagang að
umheimurinn sé viðráðanlegur
og það sé hægt að ná tökum á
honum bara ef menn hafi nóga
þekkingu. Það er ekkert „yfir-
náttúrulegt” í skákinni og því
skyldi það þá vera í lífinu sjálfu?
Út frá þessum sjónarmiðum
beittu sovésk stjórnvöld skákinni
að nokkm leyti gegn trúar-
brögðum og hjátrú af öllu tagi.
Ekki er síður athyglisvert
hvemig skáklistinni er beitt á al-
þjóðavattvangi. Fyrstu árin eftir
byltinguna vom Sovétríkin nán-
ast einangrað enda áttu sum vest-
rænu ríkin í styrjöld við þau langt
fram á þriðja áratuginn. Þau voru
því lokað land. Ein hin fyrstu
samskipti á menningarsviðinu
var stórmótið í Moskvu árið 1925
þar sem ellefu „borgaralegir”
skákmeistarar öttu kappi við
fremstu sovésku skákmennina.
Mótið vakti mikla athygli um all-
an skákheiminn og vestrænu
þátttakendurnir fóm mjög
lofsamlegum orðum um upp-
byggingu sovésku skákhreyfing-
arinnar.
Næstu árin varð samt hlé að
mestu leyti á skáksamskiptum
enda fylgdu kommúnistar þá
þeirri stefnu að einangra sig frá
borgaralegu flokkunum. Þegar
uppgangur nasista í Þýskalandi
hófst breyttu kommúnistar um
stefnu og fylgdu svo nefndri sam-
fylkingarstefnu næstu ár, en þá
átti að reyna að ná samstöðu með
öðmm vinstriflokkum og mið-
flokkum gegn fasistum. Samfylk-
ingarstefnan endurspeglaðist á
skáksviðinu með þeim hætti að
sovéskir skákmenn tóku að tefla
á vesturlöndum (t.d. Botvinnik í
Hastings 1935 og Nottingham
1936), haldin voru mikil skákmót
í Moskvu 1935 og 1936 en að
þeim loknum fengu erlendu þátt-
takendumir boð um að dvelja í
Sovétríkjunum. T.d. var Lasker,
sem þá hafði hrakist frá Þýska-
landi vegna ofsókna nasista, þar í
eitt og hálft ár og lagði einkum
stund á stærðfræðirannsóknir. Þá
drógu Sovétríkin sig út úr alþjóð-
legu skáksambandi verkamanna
en á þriðja áratugnum hafði það
haldið uppi miklu skáklífi meðal
verkamanna í Mið-Evrópu.
Eftir síðari heimsstyrjöldina
fóm Sovétmenn að skilgreina
sérstakan „sovéskan skákstfl” og
eru þau fræði öll hin forvitnileg-
ustu. Sannfærður kommúnisti
sem er á „réttri leið” er bjart-
sýnn, ákafur, sjálfsöruggur og
kraftmikill. Hann þekkir stöðu
sína í þróunarferli mannsins og er
sjálfur smiður örlaga sinna. Þetta
viðhorf endurspeglaðist á skák-
borðinu í þróttmikilli tafl-
mennsku og sjálfstæðri hugsun,
en rútínutaflmennskan er kveðin
í kútinn. Sköpunargáfan nýtur
sín og alltaf er leitast við að
vinna. Þetta viðhorf gaf árangur
ásamt öflugum stuðningi hins op-
inbera við skákhreyfinguna og í
nærri tvo áratugi vora sovéskir
skákmenn ósigrandi í alþjóð-
legum keppnum.
Upp úr rannsóknum Sovét-
manna á byrjunum sköpuðust ný
varnarkerfi þar sem svartur
leitaði eftir frumkvæði í stað þess
að leggjast í vörn. T.d. má nefna
mörg afbrigði Kóngsindverskrar
varnar og Grunfelds varnar.
Það fór hins vegar svo að vest-
rænir skákmenn lærðu af kol-
legum sínum austan járntjalds og
nú er ekki lengur hægt að tala um
sérstakan sovéskan skákstfl enda
hafa ekki allir sovétskákmenn
teflt í anda hans (Petrosjan). Það
er hins vegar hálf undarlegt að
hugsa til þess að núverandi
heimsmeistari, Kasparof, er lík-
lega besti fulltrúi hins sovéska
skákstfls um langt skeið, stfls sem
skapaðist á tímum Stalíns. Hon-
um er hins vegar hampað mikið í
borgaralegum fjölmiðlum á vest-
urlöndum sem hálfgerðum upp-
reisnarmanni gegn því kerfi sem
skapaði hann.
Nýir íslandsmeistarar
íslandsmótinu í sveitakeppni lýkur
í dag á Loftleiðum. Til úrslita kepptu
átta sveitir úr Reykjavík. Að lokinni
keppni verða afhent verðlaun fyrir
þær keppnir sem lokið er á vegum
Bridgesambandsins. Fjallað verður
um landsmótið í næsta þætti.
Fjallað verður um landsmótið í
næsta þætti.
Jón Baldursson og Sigurður Sverr-
isson sigruðu á Opna Daihatsu-
stórmótinu, sem Bridgesamband
Reykjavíkur gekkst fyrir í páskavik-
unni. Að launum fengu þeir bifreið. f
2. sæti urðu svo bræðurnir Ólafur og
Hermann Lárussynir, en þeir höfðu
leitt mest allt mótið.
í 3. sæti urðu svo Þórarinn Sigþórs-
son og Þorlákur Jónsson og Jónas P.
Erlingsson og Hrólfur Hjaltason
hrepptu 4. sætið.
Mótið þótti takast með afbrigðum
vel. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist
með frá byrjun, enda eitt veglegasta
bridgemót sem haldið hefur verið á
Norðurlöndum. Verðmæti verðlauna
var á sjöunda hundrað þúsund. Einn-
ig var starfrækt getraun í mótinu og
náði Magnús Sigurjónsson að vinna
„pottinn“, en auk hans var Hermann
Lárusson einnig með pörin (fjögur ef-
stu) „á hreinu“.
Undirbúningsnefnd mótsins var
skipuð þeim: Kristjáni og Valgarð
Blöndal, Guðmundi Sveinssyni, Stef-
áni Pálssyni og Ólafi Lárussyni.
íslandsmótin í parakeppni og Opn-
um flokki nálgast óðum. Um næstu
helgi verður parakeppnin haldin í
Sigtúni og stendur skráning yfir hjá
Bridgesambandinu. Um aðra helgi
verður svo undanrásin fyrir Opna
flokkinn spiluð í Gerðubergi. Skrán-
ing stendur yfir hjá öllum félögum
innan BSÍ, svo og á skrifstofu sam-
bandsins.
Gengið hefur verið frá vali á lands-
liðum þeim, sem koma til með að
spila fyrir fsland í sumar. Er óhætt að
segja að landsliðsnefnd hafi valið
„bestu” liðin í vel flestum flokkum,
þ.e. þann mannskap sem við blasti að
myndi skipa liðin af afstaðnu vali.
Um fyrirliðamál eru hins vegar
óskýrari línur, en heyrst hefur að
Hjalti Elíasson muni stjórna karialið-
inu, Guðmundur Hermannsson
kvennaliðinu og Guðmundur Péturs-
son eldra unglingaliðinu. Óvíst er
með yngra unglingaliðið.
Þrjár sveitir eru komnar í undanúr-
slit Reykjavíkurbikarsins. Það eru
sveitir Átlantik, Samvinnuferða/
Landsýnar og Aðalsteins Jörgensen.
Ólokið er leik sveita Delta-Elínar J.
Ólafsdóttur. Dregið hefur verið í
undanrás og mætast þá eftirtaldar
sveitir: Samvinnuferðir/Landsýn
gegn Delta/Elínu Ólafsd., og Atlant-
ik gen Aðalsteini Jörgenssyni.
Bridgedeild Sjálfsbjargar lauk
keppni á þessum vetri með ein-
menningskeppni. Spilað var í tveimur
12 manna riðlum og urðu úrslit þessi:
A) Magnús Sigtryggsson 170
Steindór Berg 156 og Pétur Þor-
steinsson 141.
B) Guðrún Guðmundsdóttir 154
Hlaðgerður Snæbjömsdóttir 149
Gísli Guðmundsson 141.
Lokakvöld, verðlaunaafhendingar
og kaffiveitingar verða mánudaginn
4. maí.
Urslit í Opna mótinu á Neskaup-
stað, sem fór fram um páskana þar
eystra, urðu:
1. Sigurður Freysson - Gísli Stefáns-
son Eskifirði 641 stig.
2. Ámi Guðmundsson - Einar Þor-
varðarson Eskifirði 578 stig.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
3. Anton Lundberg - Magnús Jó-
hannsson Neskaupstað 572 stig.
Alls tóku 24 pör þátt í mótinu, sem
þótti takast mjög vel. Formaður
þeirra á Neskaupstað er fna Gísla-
dóttir.
Norðurlandsmótið í sveitakeppni
(bæði svæðin) verður haldið á Akur-
eyri 22.-24. maí n.k. Skráning er haf-
in, hjá þeim Herði Blöndal og Erni
Einarssyni á Akureyri.
Vestfjarðamótið í sveitakeppni
verður um sömu helgi, á ísafirði.
Ævar Jónasson á Tálknafirði annast
skráningu f þá keppni.
18 SÍÐA — ÞJÓÖVILJINN Sunnudagur 26. apríl 1987