Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 2
—SPURNINGIN—
Spurt á Hlemmi:
Hvernig kemur fækkun
strætisvagnaferða við
Þig?
Birgitta Spur:
Fremur illa því ég á ekki bíl.
Ætli fækkun strætisvagnaferða
hafi ekki þau keðjuvirkandi áhrif
að færri noti vagnana og þá verð-
ur ferðum aftur fækkað á þeim
forsendum að það sé ekki þörf
fyrir þjónustuna í boði.
Guðmunda Gunnarsdóttir:
Ég nota vagnana svo litið að
þetta breytir engu að ráði fyrir
mig. Mér finnst fækkun ferða
samt vera til óþæginda.
Jóhann G. Guðmundsson,
umsjónarmaður á Hlemmi:
Þetta kemur mjög illa við mig
því ég nota vagnana mikið. Ég
hef líka orðið var við það að fólk
sem ég tala við hér er margt mjög
óánægt.
Pétur Ingi Guðmundsson,
starfsmaður á Orkustofnun:
Ég nota strætisvagna mjög
mikið, en get tekið svo marga
vagna í og úr vinnu að fækkun
ferða kemur lítið við mig.
Fanný Gunnarsdóttir:
Engan veginn. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég tek strætó í lengri
tíma.
FRETTIR
Uppgjör Sjálfstœðismanna
Flokksforystan
í fflabeinstumi
Harðar árásir áforystu Sjálfstœðisflokksins frá ýmsum frammámönnum
íflokknum. Orsök fylgishrunsins kaufaskapur Þorsteins, sambandslaus forysta,
svik Davíðs í kosningabaráttunni og ónýturþingflokkur.
Friðrikog Matthías Á. Mathiesen vilja samstarf við Albert
Sriðrik Sophusson varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins og
Malthías Á. Mathiesen utanríkis-
ráðhcrra lýsa því yfir í Vogum,
málgangi Sjálfstæðisflokkum í
Kópavogi að halda eigi öllum
leiðum opnum gagnvart Borgara-
flokki Alberts Guðmundssonar til
að tryggja sameiningu þessara
flokka síðar. Þetta er þvert á það
sem formaður flokksins Þorsteinn
Pálsson hefur lýst yfir, að sam-
starf við Borgaraflokkinn komi á
engan hátt til greina að sinni.
I blaðinu kemur fram að Frið-
rik Sophusson upplýsti á fundi
með Sjálfstæðismönnum í Kópa-
vogi í sl. mánuði að þeir Þor-
steinn hefðu rætt um að boða til
Landsfundar og leggja embætti
sín að veði, en hætt við, vegna
þess að „það væri óskynsamlegt
að opna þetta mál á meðan að
stjórnarmyndun, sem er síðari
hálfleikur í þessum kaflaskiptum
í íslenskum stjórnmálum, hefði
ekki farið fram. Það mundi
veikja flokkinn," sagði varafor-
maðurinn.
Pólitísk skammsýni
-Pólitísk skammsýni, klaufa-
skapur og mistök síðustu mánuði
fyrir kosningar. Virðisauka-
skattsfrumvarpið, Borgarspítala-
málið, Fræðslustjóramálið,
Námslánamálið, Hallarekstur
ríkissjóðs, Kádiljákur Davíðs og
síðast en ekki síst meðhöndlun
skattamáls Alberts Guðmunds-
sonar, nefnir Jón Magnússon sem
nokkrar helstu ástæður fylgis-
hruns Sjálfstæðisflokksins.
Til viðbótar nefnir Jón að
framboðslistar flokksins hafi ekki
höfðað til fólks utan flokksins.
Endurnýjun lítil og klúður í próf-
kjörsmálum. Kosningabaráttan
hafi höfðað til fortíðar og nútíðar
þegar best lét og að nokkrir for-
ystumenn flokksins hafi leitt
kosningabaráttuna hjá sér þegar
mest reið á að enginn lægi á liði
sínu.
Stýrimenn kerfisins
Jón fer hörðum orðum um
þinglið flokksins og segir m.a. að
gömlu þingmennirnir virki nán-
ast eins og hluti af stjórnkerfinu.
„Þeir eru ekki að boða nýjungar
eða breytingar. Þeir virðast frem-
ur líta á sig sem stýrimenn kerfis-
ins en leiðsögumenn sem benda á
hvert skuli stefna.“ Jón segir enn-
fremur að fjórir af þingmönnum
flokksins hafi einungis 3000 at-
kvæði á bak við sig og fjölmenn-
Nýju fóstbræður Sjálfstæðisflokksins: Friðrik og Matthías. Vilja báðir sættir
við Albert gegn vilja formannsins.
aSll KjUócnuauupui
sætti sig ekki við það lengur að
hagsmunum hans sé fórnað af
þessum mönnum. „Haldi slíkt
áfram og landbúnaðarstefnan,
Steinullarverksmiðjur og Ölfus-
árbrýr verði hornsteinar í stefnu-
framkvæmd Sjálfstæðisflokksins
á hann enn eftir að tapa fylgi,“
segir varaþingmaðurinn.
Djúpstæð oanægja
Richard Björgvinsson bæjar-
fulltrúi er ekki síður orðhvass og
segir að í kosningabaráttunni í
vor hafi menn orðið mjög varir
við „djúpstæða óánægju með for-
ystu flokksins meðal flokks-
manna og þeirra, sem venjulega
fylgja flokknum í kosningum.
Ástæðan fyrir þessari óánægju
segir Richard að sé fyrst og
fremst sú að forysta flokksins hafi
á síðustu árum fjarlægst flokks-
fólkið. Ekkert samband sé á milli
forystunnar og flokksmanna.
„Hinn almenni flokksmaður og
forysta flokksins stefna í sitt
hvora áttina. Meðan svo er þarf
ekki að búast við góðu fylgi
hans,“ segir forystumaður Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi um
ástandið í innanhússmálum
flokksins.
-•g-
Þorsteinn fær harðarákúrur: Forystu-
klíkan sambandslaus við hinn al-
menna flokksmann. Hélt illa á Al-
bertsmálinu.
Var Siggi Held nokkuð að
flækjast hérna?
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júní 1987