Þjóðviljinn - 05.06.1987, Qupperneq 9
VIÐ GRILLUM
Baldur
Hannesson: Hef
ekkiundan að
framleiða
grillkolin í góða
veðrinu
Baldur Hannesson framleiðir íslensku grillkolin: „í blíðunni undanfarið höfum
við ekki haft undan að framleiða kolin. Allar vólarnar til framleiðslunnar eru
heimasmíðaðar."
Grill-
kolagerð
í Stmums-
vík
Vélin sem steypir kolin er að hluta til gömul malbikunarvél. Kolasallinn
blandaður bindiefnum og hæfilegum raka er steyptur hér og koma „kolak-
ökurnar" hér út úr vólinni og falla í grindur sem síðan er komið fyrir í
þurrkofni þar sem kolin eru þurrkuð við rúmlega 100 gráðu hita í 15-16 tíma.
Þá er þeim pakkað í neytendaumbúðir og tilbúin á grillið.
„Það sem kom mér af stað var
skýrsla eða úttekt sem gerð var í
Háskólanum um möguleika á
þessari framleiðslu úr innlendum
hráefnum," sagði Baldur Hann-
esson, en Baldur framleiðir ís-
lensku grillkolin sem fást á bens-
ínstöðvum og í verslunum um allt
land.
„Núorðið flyt ég þó inn hráefn-
ið að mestum hluta frá Brasilíu,
en það er kolaður viðarsalli og
kemur laus í gámum, þetta er
Brasilíufrumskógurinn,“ sagði
Baldur. Framleiðslan gengur
þannig fyrir sig að rakur sallinn
fer í sérstaka hrærivél og blandað
er í hann bindiefnum og rakinn
jafnaður. Meðan hrært er í
blöndunni er fylgst með henni og
séð til að hún fái rétta eiginleika
og þegar þeir eru fengnir flytur
færiband blönduna úr hrærivél-
inni í vél sem pressar hana saman
í kökur.
Pressuvélin eða öllu heldur
steypuvélin skilar síðan kökun-
um í grindur og er þeim síðan
komið fyrir í ofni þar sem þær eru
þurrkaðar í 15-16 klukkutíma við
105 gráða hita. Að því loknu eru
kolin sett í vél sem sigtar allan
salla frá og vigtar rétt magn ofan í
pappírspoka sem síðan er pakkað
saman fjórum í plastpoka með
handfangi sem þægilegt er að
taka með sér í sumarbústaðinn.
Baldur sagði að hver einasta
vél í framleiðslunni væri heima-
smíðuð og t.d. er vélin sem
steypir kökurnar eða sjálf kolin
að hluta til gömul malbiksblönd-
unarvél.
Baldur hóf framleiðsluna síðla
sumars í hitteðfyrra, en það var
nánast tilraunastarfsemi, en kol-
in voru á markaðnum í allt fyrra-
sumar og framleiddi Baldur þá 60
tonn sem voru um helmingur af
grillkolasölu á landinu þá. Baldur
sagðist ekki hafa haft undan að
framleiða kol í blíðviðrinu sem
verið hefur að undanförnu og
væri framleiðslan í maí margföld
á við sama tíma í fyrra.
Heildsöludreifingu íslensku
kolanna annast Ó. Johnson &
Kaaber og olíufélögin og fást þau
í flestum verslunum og bensín-
stöðvum um allt land. -sá.
—Grillspurningin*
Grillarðu í góða veðrinu
og hvaða grillmatur
finnst þér bestur?
Júlíus Sigurjónsson
nemi
Grillaður matur er með betri mat.
Mérfinnst nautakjöt best, en heil-
grillað lamb er sérlega Ijúffengt
og þá er við hæfi að drekka gott
rauðvín með.
Anna Lára Steindal
nemi
Ég grilla lítiö sjálf, en get alveg
borðað grillaðan mat, og mér
finnst svínakjöt best.
Jóna G. Guðmundsdóttir
nemi
Ég er heldur lítið fyrir grillaðan
mat, en finnst fiskur grillaður í ál-
pappír þó ágætur.
Ingólfur Á. Jóhannesson
landvörður í Mývatnssveit
Já, ég hef grillað heilmikið af
lambarifjum frá SS og þykir það
gott. Ég hef heyrt að grillað
nautakjöt sé betra, en hef þó ekki
sannprófað þaö enn.
Kristín Sigsteinsdóttir
skrifstofumaður
Já, það geri ég. Mér finnst grillað
nautakjöt best, en einnig er grill-
aður silungur góður. Hann er þá
flakaður, kryddaður eftir smekk
og settur á grillið.